24 stundir - 26.07.2008, Side 27
24stundir LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 27
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Rösk fimm ár eru síðan fjölþjóðlegt
herlið undir stjórn Bandaríkjanna
réðst til innrásar í Írak. Innrásin
hófst 19. mars 2003, Saddam Huss-
ein hraktist fljótt frá völdum og 1.
maí lýsti George W. Bush Banda-
ríkjaforseti því yfir að átökum væri
að mestu lokið.
Þrátt fyrir yfirlýsingu Bush hefur
starf erlends herliðs verið ærið í
Írak undanfarin fimm ár. Síðustu
mánuði hefur hins vegar rofað til,
og þótt ofbeldi sé enn algengt og
mannfall töluvert þykir stefna í
friðarátt.
Heimamenn að taka við
Þótt ástandið í Írak sé oft ekki
upp á marga fiska, hefur það stór-
batnað undanfarið. Árásir hafa
ekki verið færri í mörg ár og fall
óbreyttra borgara hefur dregist
saman um nærri 90% síðan við-
bótarherafli var sendur til landsins
í byrjun síðasta árs. Stefnir ríkis-
stjórn Nuri al-Maliki að því að
heimamenn geti tekið við stjórn-
artaumunum um næstu áramót, ef
fram heldur sem horfir.
Þegar sigur vannst á stjórn Sadd-
ams Husseins ályktaði öryggisráð
SÞ um hersetu bandalagsþjóða í
Írak. Gildistími þeirrar ályktunar
hefur verið framlengdur í þrígang
og rennur út 31. desember næst-
komandi. Hart var deilt á Íraks-
þingi um síðustu framlengingu, og
hefur Maliki lýst því yfir að ekki
verði sóst eftir því að umboð
bandalagshersins verði enn fram-
lengt.
Unnið er að tvíhliða samningum
á milli Íraks og Bandaríkjanna um
áframhaldandi veru herliðs. Gera
Írakar ráð fyrir að geta að mestu
sinnt löggæslu sjálfir, en Banda-
ríkjaher verði þeim til halds og
trausts fyrst um sinn.
Nýr Bandaríkjaforseti
Breyttar forsendur Bandaríkja-
hers í Írak verða arfleifð fráfarandi
Bandaríkjaforseta til eftirmanns
síns. Það verður því annaðhvort
John McCain eða Barack Obama
sem tekst á við endanlega úrlausn
átakanna.
Stjórnvöld í Írak og Bandaríkj-
unum róa um þessar mundir öll-
um árum að því að ná tvíhliða
samkomulagi um áframhaldandi
dvöl erlends herliðs í landinu. Mið-
ast þær samningaviðræður við að
herinn hverfi á brott, þótt tíma-
rammi liggi ekki fyrir.
Barack Obama, forsetafram-
bjóðandi demókrata, hefur sagst
munu reyna að draga bandarískt
herlið sem fyrst út úr Írak – og
miðar við að bardagasveitir yfirgefi
landið á sextán mánuðum.
John McCain, frambjóðandi
repúblikana, lýsir hins vegar efa-
semdum um að hægt sé að tryggja
stöðugleika í landinu á svo
skömmum tíma.
„Sá árangur sem við höfum
náðst er enn viðkvæmur og gæti
hæglega gengið til baka,“ sagði
McCain þegar hann var spurður
álits á brotthvarfi frá Írak.
Er stríðið í Írak að klárast?
a
Við þurfum að ein-
beita okkur að Afg-
anistan og Pakistan, þar
sem talíbanar eru á upp-
leið og al-Kaída á athvarf.
Eins og bent hefur verið
á, þá höfum við ekki
styrk til að ljúka starfinu í
Afganistan fyrr en við
drögum saman seglin í
Írak. Barack Obama
➤ Bandarískir hermenn í Írakvoru um 170 þúsund þegar
mest var.
➤ Sem stendur eru þeir 146þúsund.
➤ Stefnt er að því að fækkaþeim í 120 til 130 þúsund.
HERAFLINN
Mjög hefur dregið úr ofbeldi í Írak að undanförnu Bandaríkjamenn farnir að hugsa sér til hreyfings
FRÉTTASKÝRING
frettir@24stundir.is a
Okkur vantar ekki peningana. En við þurfum að
finna heiðarlegar hendur til að eyða þeim.
Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks.
Mikil aukning hefur orðið á fjár-
festingum ríkisstjórnar Íraks þetta
árið. Eru vonir bundnar við að
hægt sé að nota tekjur af olíufram-
leiðslu landsins til að hleypa efna-
hagslífi landsins af stað og byggja
upp helstu grunnþjónustu. Fengu
embættismenn til að mynda á milli
50% og 100% launahækkun í júní-
lok.
Jafnframt dreifa stjórnvöld fé til
fólks úti á götu – þó með því skil-
yrði að sporslan sé ekki of há.
Eftir því sem jafnvægi hefur auk-
ist í landinu hefur framleiðsla
mjakast nær 2,5 milljónum olíufata
á dag – sem er jafnmikið og áður
en ráðist var inn í landið fyrir rúm-
um fimm árum. Þetta, auk hækk-
unar á heimsmarkaðsverði, hefur
haft í för með sér að Írakar sjá fram
á að hafa um 70 milljarða Banda-
ríkjadala í tekjur af olíuvinnslu á
árinu.
Samningar olíumálaráðuneytis
um vinnslu stærstu olíusvæðanna
hafa verið gagnrýndir, þar sem
gengið var til samninga við stærstu
olíufyrirtæki Vesturlanda án út-
boðs.
Enn vantar þó nokkuð upp á að
framleiðslan slagi upp í það sem
var áður en Saddam Hussein réðst
inn í Kúveit árið 1991. Þá skiluðu
olíubrunnar Íraks 4,5 milljónum
fata af sér á dag.
Íraksstjórn með fullar hendur fjár
Olíutekjur knýja
landið áfram
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti tilkynnti áform um að senda
viðbótarhermenn til Íraks í byrjun
árs 2007. Ráðstöfunin var umdeild
heima fyrir, en í febrúar byrjaði
liðsaukinn að berast. Í september
náði hann hámarki, þegar 28.000
viðbótarhermenn urðu til þess að
heildarherafli Bandaríkjanna í
landinu náði 168 þúsundum.
Á því ári sem liðið er hefur mikil
breyting orðið á mannfalli. Á línu-
ritinu má sjá tölur um fallna er-
lenda hermenn og óbreytta Íraka
árið áður en liðsaukinn barst og til
loka síðasta mánaðar. Minnkunin
undanfarið leynir sér ekki.
Enn eru það þó óbreyttir borg-
arar sem bera þyngstu byrðarnar –
en áætlað er að í júní hafi 373
óbreyttir borgarar týnt lífi af völd-
um átakanna.
Innspýting Bandaríkjahers bar árangur
Minna mannfall
Ja
n.
06
Fe
b.
06
M
ar
s
06
Ap
ríl
06
M
aí
.0
6
Jú
ní
06
Jú
lí
06
Ág
.0
6
Se
pt
.0
6
Ok
t.
06
Nó
v.
06
De
s.
06
Ja
n.
07
Fe
b.
07
M
ar
s
07
Ap
ríl
07
M
aí
.0
7
Jú
ní
07
Jú
lí
07
Ág
.0
7
Se
pt
.0
7
Ok
t.
07
Nó
v.
07
De
s.
07
Ja
n.
08
Fe
b.
08
M
ar
s
08
Ap
ríl
08
M
aí
.0
8
Jú
ní
08
Óbreyttir Írakar Erlendir hermenn
MANNFALL Í ÍRAK
3500
140
3000
120
2500
100
2000
80
1500
60
1000
40
500
20
0
24stundir/BMSHeimild: icasualties.org
Um 200 bandarískir hermenn
hafa hlaupist undan merkjum
og sótt um hæli í Kanada
vegna stríðsins í Írak. Til að
hljóta landvist þurfa þeir að
njóta stöðu flóttamanns, sem
kanadísk yfirvöld hafa til
þessa ekki veitt þeim.
Liðhlauparnir bera því flestir
við að stríðið í Írak sé ólög-
legt. Jafnframt segja þeir
framferði hersins oft jaðra við
stríðsglæpi, sem þeir vilji ekki
taka þátt í.
Dómur hefur fallið í máli
tveggja hælisleitenda, þar sem
þeim var veitt leyfi til að vera í
landinu til að reka hælismál
sín.
Hermenn til Kanada
Sækja um
pólitískt hæli