24 stundir - 26.07.2008, Blaðsíða 30

24 stundir - 26.07.2008, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 24stundir Sýning á málverkum Höskuldar Björnssonar verður opnuð í Lista- safni Árnesinga á morgun, sunnu- daginn 27. júlí klukkan 15. Sýn- ingin ber heitið „Á ferð með fuglum“ og vísar í það myndefni sem Höskuldur er hvað þekktastur fyrir, sem er fuglar í íslenskri nátt- úru. Sýningarstjóri er Hrafnhildur Schram listfræðingur. „Á sýning- unni verða á níunda tug verka eftir Höskuld. Það verða bæði fugla- og landslagsmyndir auk nokkurra sjálfsmynda og uppstillinga. Þann- ig verður myndefnið fjölbreytilegt og sömu sögu er að segja af tækninni. Þetta eru olíumálverk, vatnslitamyndir, pennateikningar og svo myndir unnar með bland- aðri tækni,“ segir hún. Höskuldur fæddist árið 1907 og lést árið 1963 og Hrafnhildur segir hann hafa verið fyrsta íslenska myndlistarmanninn sem kom fram með myndefni sem var að mestu ókannað, sem sagt fuglarnir í nátt- úru Íslands. „Hann var fæddur og uppalinn í Hornafirði sem er við- komustaður farfuglanna. Hann átti sér sína uppáhaldsfugla og túlkaði til dæmis mikið æðarkollur og blika svo einhver dæmi séu nefnd. Hann byrjaði mjög snemma að mála fugla, eða um 1930 þegar hann var kornungur maður. Hann átti við veikindi að stríða á sínum yngri árum og á þessum tíma voru samgöngur almennt erfiðar þannig að hann átti ekki gott með að ferðast. Ég held að það hafi haft þau áhrif að hann einbeitti sér meira að smáatriðum í náttúrunni heldur en margir aðrir og heillaðist fljótt af fuglum. Enda komu fugl- arnir fljúgandi til hans í stað þess að hann þyrfti að elta þá.“ Sýningin stendur til 28. septem- ber. Á ferð með fuglum og Höskuldi Æðarblikar Vinsælt myndefni hjá Höskuldi. virkja fólk, ekki síst konur, til þess að taka þátt í hlaupum og eiga fjöl- marga aðdáendur.“ Lék með Umu Thurman Edwards fór sjálfur til Keníu á síðasta ári og gerði heimildarmynd um Masai-hermann sem fór til Bandaríkjanna og tók þátt í New York-maraþoninu. „Myndin er nú í eftirvinnslu og mun væntanlega koma út einhvern tíma á næstu sex mánuðum,“ segir hann. „Annars lauk ég nýlega tökum á myndinni Motherhood þar sem ég leik með Umu Thurman og hún kemur væntanlega út í janúar eða febrúar. Þar fyrir utan rek ég framleiðslu- fyrirtæki ásamt félaga mínum í New York. Annað slagið tek ég svo að mér hlutverk í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. En ég er ekki að leita mér að föstu hlutverki í sjón- varpsþáttum eins og er.“ Þannig að Bráðavaktarævintýrið verður ekki endurtekið? „Nei, það held ég varla,“ segir hann kankvís að lokum. Anthony Edwards, leikari úr Bráðavaktinni Beinir sjónum Ís- lendinga að Afríku Hinn þekkti leikari Ant- hony Edwards er staddur á Íslandi á vegum sam- takanna Shoe4Africa þar sem hann er stjórnarfor- maður. Ætla að byggja sjúkrahús Anthony Edwards með skó af Cristiano Ronaldo. ➤ Samtökin voru stofnuð árið1995. Þau hafa styrkt bygg- ingu skóla, staðið fyrir íþróttaviðburðum og sent notuð og ný skópör til Afr- íkubúa. SHOE4AFRICA 24 stundir/Ómar Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Bandaríski leikarinn Anthony Edwards er staddur hér á landi þessa dagana í tilefni af góðgerð- arkvöldverði samtakanna Shoe4Af- rica sem fram fór í gær. Edwards, sem er einna þekktastur fyrir hlut- verk sitt sem dr. Green í þáttunum um Bráðavaktina, er stjórnarfor- maður Shoe4Africa. „Við erum að hefja söfnun fyrir byggingu barna- spítala í Keníu og sú söfnun hefst hér á landi. Allir sem starfa á veg- um samtakanna gera það launa- laust þannig að ágóðinn af allri söfnuninni fer beint í verkefnin,“ segir hann. „Eitt af því sem við ger- um er að halda íþróttaviðburði, aðallega kapphlaup í Keníu og Tan- saníu, þar sem konur fá í leiðinni fræðslu um alnæmi og alnæmis- próf ef þær vilja. Þessir viðburðir hafa verið vel sóttir enda höfum við fengið til liðs við okkur fram- úrskarandi keníska hlaupara, eins og til dæmis Martin Lel og Lornuh Kiplagat. Þau hafa verið dugleg að Bára Grímsdóttir og Chris Foster flytja íslensk og ensk þjóðlög á tónleikum í Þjóðlagasetri séra Bjarna Þorsteinssonar í dag, laugardaginn 26. júlí klukkan 17. Tónleikarnir eru liður í sumartónleikaröð setursins sem hófst um síðustu helgi með Spilmönnum Ríkínís. Bára hefur um langt árabil verið flytjandi íslenskra þjóðlaga og kvæðalaga. Hún ólst upp við kveðskap og söng foreldra sinna og afa og ömmu, meðal annars í Grímstungu í Vatnsdal. Hún hefur sérstakan áhuga á rímum og kvæðalögum en hefur einnig kynnt sér þjóðlagaarf liðinna alda, bæði veraldlegan og trúar- legan. Chris ólst upp í Somerset á Suðvestur-Englandi. Þar hóf hann sinn tónlistarferil og hefur í þrjá áratugi komið fram á tónleikum víða á Bretlandseyjum, í Evr- ópu og Norður-Ameríku. Samvinna hans og Báru hófst árið 2000 og hafa þau komið fram víða í Evrópu og í Bandaríkjunum og Kína. Íslensk og ensk þjóðlög Bára og Chris Spila á Siglufirði í dag. Jóhannes Ágústsson í 12 tón- um heldur hugleiðingu um týnda Bach-kantötu í Skál- holtsskóla í dag klukkan 14. Erindið er liður í Sum- artónleikaröð Skálholts. Klukkan 14.55 verða Þórdís Heiða Kristjánsdóttir og Hild- ur Guðný Þórhallsdóttir með listasmiðju fyrir börn á sama stað. Hugleiðing um Bach Einnig verða í Skálholti minn- ingartónleikar um séra Guð- mund Óla Ólafsson í dag klukkan 15. Á efnisskrá eru þrjú verk eftir Bach í flutningi Ágústs Ólafssonar bassaleik- ara og Mörtu Guðrúnar Hall- dórsdóttur sóprans ásamt Bachsveitinni í Skálholti með Peter Spissky í fararbroddi. Sr. Guðmund- ar Óla minnst Hinn þekkti finnski orgelleik- ari Kalevi Kivianiemi leikur á tónleikum Alþjóðlegs orgel- sumars í Hallgrímskirkju í dag og á morgun. Hádegistón- leikar hans í dag hefjast á spuna um íslenskt stef sem hann fær afhent og leikur út frá. Annað kvöld klukkan 20 leikur hann meðal annars verk eftir Sibelius og Suru- siotto. Kivianiemi á tónleikum Sigurjón Guðjónsson er ungur og spennandi ljósmyndari. Hann er fæddur 1983 en síðustu tvö ár hefur hann stundað nám í ljós- myndun við School of Visual Arts í New York. Hann hefur opnað sína fyrstu einkasýningu hérlendis í Gallerí Gónhól á Eyrarbakka. Leikur að ljósi, skugga og litum Þar eru til sýnis „abstrakt“ landslagsljósmyndir, teknar af Sig- urjóni í Central Park í New York haustið 2007. Þar bregður hann á leik með ljós, skugga og liti en myndirnar eru hugsaðar sem sjálf- stæð verk jafnt sem ein heild. Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu en hún verður opin allar helg- ar frá 13-17 til og með 10. ágúst. hh Spennandi ljósmyndir Sigurjón Guðjónsson heldur sína fyrstu einka- sýningu hér á landi í Gall- erí Gónhól Stórsöngvarinn Raggi Bjarna heldur tónleika í Sólheima- kirkju klukkan 14 í dag. Tón- leikarnir eru liður í Menning- arveislu Sólheima sem er nú í fullum gangi. Með Ragga Bjarna á tónleik- unum verður Þorgeir Ást- valdsson og er aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Raggi Bjarna á Sólheimum LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Ég er ekki að leita mér að föstu hlutverki í sjónvarpsþáttum eins og er. menning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.