24 stundir - 26.07.2008, Blaðsíða 31

24 stundir - 26.07.2008, Blaðsíða 31
24stundir LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 31 Um helgina mun karlakórinn frá St. Ba- sil dómkirkjunni í Moskvu halda þrenna tónleika á Íslandi en tvennir verða í tengslum við Sumartónleika við Mývatn. „Þeir komu til landsins á vegum Reyk- holtshátíðar og spiluðu þar á miðvikudag, fimmtudag og föstudag, en síðan fara þeir norður til að koma fram hjá okkur,“ segir Margrét Bóasdóttir, listrænn stjórnandi Sumartónleika við Mývatn. „Þeir syngja tvisvar sinnum hjá okkur í dag, í Þorgeirskirkju við Ljósavatn klukkan þrjú og í Reykjahlíðarkirkju við Mývatn klukkan níu í kvöld. Síðan koma þeir fram á Hólum í Hjaltadal á morgun en snúa svo heim.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kórinn leggur leið sína til Íslands en hann kom einnig á Reykholtshátíð í fyrra, þar sem uppselt var á alla tónleika þeirra, auk þess sem þeir komu fram á Listahátíð 2004. „Þeir eru alveg ótrúlegir. Þetta eru bara sextán manns en ekki fimmtíu eins og við erum vön að sjá í karlakórum. En þeir hljóma eins og þeir séu hundrað. Þeir eru allir saman sprenglærðir söngvarar og valdir í kórinn með það fyrir augum að geta sungið þessa rússnesku tónlist. Þeir eru með bassa sem geta hreinlega sungið langt fyrir neðan allt og tenóra sem ná upp í hæstu hæðir. Þeir eru svo með fræg rúss- nesk þjóðlög sem mörg hafa sungið sig inn í þjóðarsál okkar með íslenskum texta.“ Í þetta sinn kostar 2000 krónur inn á tónleikana en allir aðrir sumartónleikar við Mývatn hafa verið ókeypis. „Menn verða því að taka upp veskin en það er þess virði.“ haukurj@24stundir.is Karlakórinn frá St. Basil í Moskvu syngur á Norðurlandi Sextán manns sem hljóma eins og hundrað Sprenglærðir Allir í kórnum eru hámenntaðir söngvarar. Yangsi Rinpoche heldur fyr- irlestur um tíbeskan búddisma og hugleiðslu á morgun kl. 16 í Norræna húsinu. Hann á að baki 25 ára nám í tíbeskum búddisma og útskrifaðist með Geshe Lha- rampa-gráðu frá Sera Je- klaustrinu í Suður-Indlandi en í dag starfar hann sem prófessor í búddískum fræðum við Maitripa Institute í Bandaríkjunum. Áhugamenn um tíbeskan búdd- isma standa að fyrirlestrinum í samstarfi við Norræna húsið. Eru allir boðnir velkomnir og að- gangur ókeypis. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Tíbeskur búdd- ismaprófessor Í kvöld stendur Hugsandi dans- tónlist fyrir allsherjardansveislu á Dátanum á Akureyri. For- sprakkar Hugsandi danstónlistar munu stíga á stokk en auk þeirra munu Ozy, Óli Ofur, DJ Eyvi, Bjössi Brunhein, Oculus og plötusnúðar Breakbeat.is standa vaktina á bak við spilarana. Að- gangseyrir er 600 krónur fyrir dansþyrsta gesti. hh Allsherjar- dansveisla Á veitingastaðnum Halastjörnu yfir Hálsi í Öxnadal verður í dag opnuð sýningin Höfguð en að henni standa Marta María Jóns- dóttir og Arnaldur Máni Finns- son. Sýningin samanstendur af málverkum og skúlptúr Mörtu og gjörningi Arnalds. Gjörning- urinn Hringlaga skurður tímans fer fram við opnunina í dag en gjörningurinn er í anda japönsku Gutai-hreyfingarinnar sem er frumkvöðull listformsins. Höfguð á Hálsi Heildsöludreifing og þjónusta: Tæknivörur, Skútuvogi 12c auk viðurkenndra söluaðila um land allt M110 fæst hjá Vodafone og Símanum, ÚTIVISTARSÍMINN sem þorir og þolir Flúðasiglingin var rosaleg, allt rennblotnaði en síminn virkaði. Þekki þessi ekki neitt, Fannst þau bara svo ekta þýsk eitthvað. Skemmtilegt sjónarhorn, Nonni skal aldrei komast með tærnar þar sem ég hef hælana. Þetta var frábær ferð og kjötið ljúffengt. Sætt. 30 mínútum áður en sá stóri tók. Nenni þessu varla aftur, en það var gaman meðan á því stóð. Á skíðum skemmti ég mér... Högg,- ryk- og rakavarinn (IP54) • VGA myndavél • Bluetooth Vasaljós • Stereo FM-útvarp • Innbyggður hátalari Blautasta Hróarskeldu- hátíðin hingað til, að utan sem innan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.