24 stundir - 26.07.2008, Page 32
„Okkur finnst. Við teljum.“
Kannski tala allir tvíburar svona.
Eins og samhent, gömul hjón sem
hafa búið svo lengi saman að þau
eru orðin vön því að tala í fyrstu
persónu fleirtölu. Þannig tala þeir í
það minnsta, Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir, nýráðnir þjálfarar
meistaraflokks Í.A. í knattspyrnu.
„Við vorum strax staðráðnir í því
að taka þetta að okkur og FH-ingar
voru sannir heiðursmenn og leyfðu
okkur að fara,“ segja þeir. Það er að
segja annar þeirra. Dálítið erfitt að
greina hvor er hvað. Þeir hafa leikið
með FH í sumar en í vikunni barst
þeim formleg beiðni um að taka við
ÍA, eftir að Guðjón Þórðarson hafði
verið látinn fara.
Þið hafið staðið í sömu sporum
áður, ekki satt?
„Jú, við tókum við ÍA á miðju
leiktímabili árið 2006 og þekkjum
þennan klúbb mjög vel. Þetta er
ekki eins og að byrja á nýjum
vinnustað. Svo spiluðum við nátt-
úrlega með ÍA á yngri árum og okk-
ur hefur verið mjög vel tekið.“
Á hverju ætlið þið að byrja?
„Við ætlum að láta liðið vinna
leiki! Stutt og laggott,“ svarar Bjarki
og hlær. „Öll lið Guðjóns eru vel
þjálfuð líkamlega og í liðinu eru
góðir knattspyrnumenn. Þegar
þetta tvennt er til staðar þá á að vera
hægt að ná árangri,“ bætir Arnar
við. „Þetta snýst fyrst og fremst um
að byggja upp sjálfstraust leik-
manna. Við höfum alltaf haft trú á
sóknarbolta og ætlum að fá liðið til
að skora mörk. ÍA hefur alltaf verið
litla félagið á landsbyggðinni sem
fólk hefur haldið með, leynt og
ljóst. Þessi hefð hefur kannski verið
að týnast síðustu misserin.“
„Okkur finnst að Keflavík og
Breiðablik séu að taka við þessari
stöðu núna,“ heldur Bjarki áfram.
„Að byggja á leikmönnum sem eru
aldir upp hjá félögunum. Svona
klúbbur á frekar að byggja á heima-
mönnum, enda hefur það gefið
langbestu raunina. Þeir strákar
skilja miklu betur sögu félagsins og
hefðina sem er til staðar.“
Nú er Atli, sonur Guðjóns Þórð-
arsonar, hættur í liðinu. Eigið þið
von á því að Bjarni Guðjónsson verði
leystur undan samningi?
„Við skiljum alveg hvað hann er
að ganga í gegnum. En á meðan
ekkert tilboð berst þá gerum við ráð
fyrir að hann haldi áfram að spila,“
svarar Bjarki. „Auðvitað getum við
ekki haldið leikmönnum sem vilja
fara. Ég held að það sé engum til
góðs,“ heldur Arnar áfram. „Okkar
persónulega mat er að hann ætti að
klára tímabilið og taka svo sína
stöðu eftir það.“
Þið ætlið að spila sjálfir með lið-
inu?
„Já, reyndar getum við ekki spil-
að á móti FH á morgun vegna heið-
ursmannasamkomulags við FH. En
eftir það verðum við með.“
Nú eruð þið í þeirri stöðu að þið
gætuð bæði unnið deildina og fallið -
sitt með hvoru liðinu …
„Já, reyndar. Það væri nú samt
betra að FH ynni deildina og við
héldum okkur í henni. Sú staða að
ÍA falli er ekki til í okkar huga. Við
erum bjartsýnir menn og höfum
mikla trú á sjálfum okkur.“
Í fyrra gáfu Arnar og Bjarki út þá
yfirlýsingu að þeir væru hættir í fót-
bolta.
„Við ætluðum líka að hætta í
hittifyrra og þar áður! Leikurinn
togar bara alltaf í okkur. Á meðan
maður hefur fætur til er alltaf gam-
an að fíflast með strákunum.“
Eru engin meiðsl að hrjá ykkur?
„Ekkert alvarlegt, miðað við ald-
ur og fyrri störf. Ég þurfti að hætta
að spila sem atvinnumaður vegna
meiðsla í mjöðm,“ nefnir Bjarki.
„Svo er maður með slitgigt og fleira
skemmtilegt. Það háir okkur samt
ekkert. Við erum líka með þjálfara
sem skilja okkar hlutskipti. Við get-
um alltaf spurt hvor annan hvort
við megum taka frí,“ segja þeir
hlæjandi.
Draumurinn sem rættist
Bræðurnir spiluðu erlendis sem
atvinnumenn í knattspyrnu í tíu ár.
Eftir að ferlinum lauk sneru þeir sér
að viðskiptum og hafa látið til sín
taka á ýmsum sviðum; í verslunar-
og veitingahúsarekstri, auk fast-
eignaviðskipta. Núna starfa þeir
sjálfstætt að fasteignaviðskiptum og
eiga veitingastaðinn Domo í Þing-
holtsstræti, ásamt Kormáki og
Skildi. „Konseptið á bak við Domo
er okkar hugmynd en Ragnar Óm-
arsson, yfirkokkur og yfirþjónn, sér
um reksturinn. Það var alltaf
draumur okkar að eignast eigin
veitingastað,“ segir Arnar. „Svo vor-
Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir ræða um boltann og baráttuna
Tilbúnir í slaginn
HELGARVIÐTAL
Eftir Heiðdísi Lilju
Magnúsdóttir
a
Þegar allt kemur
til alls þá erum
við í sama lið-
inu. Þetta er Ísland og
fólk verður að vinna sam-
an.
Þeir tala um sjálfa sig í fleirtölu og geta rætt saman
um flest. Nema kannski tilfinningamál. Þar draga þeir
mörkin. Tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir
tóku í vikunni við þjálfun meistaraflokks ÍA í knatt-
spyrnu af Guðjóni Þórðarsyni og eru staðráðnir í að
halda liðinu í deildinni.
32 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 24stundir