24 stundir - 26.07.2008, Qupperneq 33
Á Domo í Þingholtsstræti „Það
var alltaf draumur okkar að eignast
eigin veitingastað.“
um við að stofna lítið fjárfesting-
arfélag, Bergman Investments,
ásamt fleirum en það er með verk-
efni úti í Glasgow og Miami.“
Um er að ræða byggingu um-
hverfisvænna einbýlishúsa, sem eru
hönnuð af íslenskum arkitektum, á
South-Beach í Miami, Flórída og í
Skotlandi.
„Við teljum að það eigi eftir að
verða mikil bylting í þessum efnum
á næstu tveimur, þremur árum.
Fólk er að vakna til vitundar um
umhverfismál. Þetta er eins og í
íþróttunum. Þú þarft alltaf að tak-
ast á við nýjar áskoranir.“
Finnið þið fyrir kreppunni?
„Já, við gerum það. Sá sem held-
ur öðru fram er einfaldlega lygari.
Það er óþarfi að vera með látalæti.
Það finna allir fyrir kreppunni, bara
á mismunandi hátt. Fyrir okkur er
orðið erfiðara að fá fjármögnun. Fái
maður lánsfé er það á verri kjörum.
Auðvitað hefur það áhrif á allt.
Okkar kynslóð hefur ekki séð neitt
þessu líkt áður. Ekki kynslóðin á
undan okkur heldur. Síðan talar
maður við ömmu og hún hlær bara
að þessu. Þetta er engin kreppa eins
og var í gamla daga. En þetta er
samt kreppa,“ segir Arnar.
„Það eru tækifæri líka,“ segir
Bjarki. „Þótt við séum sjálfir að
fjárfesta þá viljum við að bankarnir
vandi sig þegar þeir lána og láni í
góð verkefni. Verkefnin eiga alltaf
að standa fyrir sínu. Góð verkefni
eiga að fá fjármögnun en léleg verk-
efni ekki.“
Hvers konar bisness finnst ykkur
skemmtilegastur af því sem þið hafið
komið nálægt?
„Ég held að fasteignabransinn
gefi manni mest,“ svarar Bjarki.
„Þar fær maður að koma að hönn-
un og sköpunarvinnu. Áður keypt-
um við tilbúin verkefni eftir aðra og
seldum þau. En núna erum við
farnir að þróa verkefni sjálfir frá
grunni. Það er mjög gaman,“ segir
Arnar.
Vorum ekki merkjaglaðir
Bræðurnir eru annálaðir fyrir að
vera flottir í tauinu og segja tísku-
áhugann hafa fylgt sér lengi. „Við
höfum alltaf haft áhuga á fallegum
fötum,“ segir Bjarki. „Mamma
saumaði alltaf á okkur þegar við
vorum yngri. Ég veit eiginlega ekki
hvaðan þessi áhugi kemur. Við vor-
um ekki merkjaglaðir menn þegar
við vorum yngri.“
„Áhuginn á fötum tengist bara
því að vilja líta vel út. Hver vill það
ekki?“ segir Arnar og hlær. „Svo
hefur fólk mismunandi smekk.“
Þið hafið fengið orð á ykkur fyrir
að lifa dálítið hátt …
„Já, við gerðum það kannski í
gamla daga. Það er alveg rétt,“ svar-
ar Arnar. „Það kemur alltaf fram í
blöðunum að við séum í hinum og
þessum rekstrinum og þar af leið-
andi fær fólk kannski þessa hug-
mynd um okkur,“ segir Bjarki.
„Í fótboltanum er maður eigin-
lega eins og stór krakki. Þénar vel.
Þarf ekki að hafa neinar áhyggjur.
Mætir bara á æfingar og spilar fót-
bolta. Í augum annarra lítur þetta
kannski út fyrir að vera óábyrgt líf-
erni. Menn fái allt upp í hendurnar
og þá hljóti bara tómir vitleysingar
að vera í þessu,“ heldur Arnar
áfram.
„Maður mætir á æfingar einu
sinni á dag, í tvo tíma í senn, og svo
er maður bara laus. Og með helling
af peningum. Hvað gera menn?
Þeir fara að versla!“ útskýrir Bjarki.
„Hérna heima látum við alls ekki
mikið á okkur bera. Ef svo er þá
tökum við ekki eftir því sjálfir,“ seg-
ir Arnar. „Við vildum vera okkar
eigin herrar og fórum því út í eigin
rekstur. Þess vegna hefur þessi at-
hygli haldið svolítið áfram.“
Þar sem þeir eru sínir eigin herr-
ar hefur það ekki valdið Arnari og
Bjarka teljandi vandræðum að
koma fótboltanum fyrir í stunda-
skránni. „Það verður samt erfiðara
þegar við verðum komnir út. Það
stendur til að ég flytji til Glasgow og
verði þar næstu þrjú, fjögur árin,“
segir Arnar. „En ef liðið stendur sig
vel og fólk vill halda okkur áfram –
hver veit hvað gerist þá?“
24stundir/Árni Sæberg
a
Maður mætir á
æfingar einu
sinni á dag, í tvo
tíma í senn, og svo er
maður bara laus. Og með
helling af peningum.
Hvað gera menn? Þeir
fara að versla!
24stundir LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 33
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
1
2
0
3
-
A
c
ta
v
is
8
0
6
0
3
1
Íbúfen®
– Bólgueyðandi og verkjastillandi
Notkunarsvið: Íbúfen inniheldur íbúprófen sem er bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Íbúfen er
notað við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu og höfuðverk. Einnig eftir minniháttar aðgerðir, t.d. tanndrátt.
Varúðarreglur: Fólk sem hefur ofnæmi fyrir íbúprófeni eða öðrum skyldum lyfjum (NSAID), með skerta
lifrarstarfsemi eða alvarlegan hjarta- og nýrnasjúkdóm ætti ekki að nota lyfið. Fólk sem hefur fengið astma,
nefslímubólgu eða ofsakláða eftir töku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi lyfja ætti ekki að nota lyfið.
Nota skal lyfið með varúð hjá fólki með tilhneigingu til magasárs eða sögu um slík sár. Lyfið er ekki ætlað
barnshafandi konum. Aukaverkanir: Íbúfen getur valdið aukaverkunum eins og t.d. meltingaróþægindum,
niðurgangi, ógleði, útbrotum, þreytu og höfuðverk. Skammtastærðir: Fullorðnir: Venjulegir skammtar eru
600-2000 mg á dag í 3-4 jöfnum skömmtum. Ekki mælt með stærri skammti en 2400 mg. Börn: Venjulegir
skammtar eru 20 mg/kg líkamsþunga á dag í 3-4 jöfnum skömmtum. Börnum <30 kg skal eigi gefa meira en
500 mg á dag. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Júlí 2004.
Höfuð,
herðar…