24 stundir - 26.07.2008, Side 34
34 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 24stundir
Evrópuumræðan
Spurðir um áhuga á stjórnmál-
um segir Bjarki þá alltaf hafa sveifl-
ast til hægri. „En núna erum við að
færast nær miðjunni. Rétt eins og í
fótboltanum erum við hrifnir af því
að spila eftir ákveðnu kerfi – en vilj-
um hafa frjálsræði innan þess kerf-
is.“
„Ég held að maður hljóti að vera
pólitískur. Annars væri manni skít-
sama um þjóðfélagið. Við höfum
skoðanir á því sem er að gerast,“
bætir Arnar við. „Okkur finnst að
það þurfi að skoða aðildarumræð-
una um Evrópubandalagið mjög
vel. Setjast niður, ræða kosti og
galla og komast að niðurstöðu. Það
er engin góð umræða eða rök-
stuðningur í gangi, hvað þá ákvarð-
anataka.“
Arnar segist ánægður með ráðn-
ingu Tryggva Þórs Herbertssonar
sem efnahagsráðgjafa hjá forsætis-
ráðuneytinu. „Það er fullt af hæfum
hagfræðingum hjá Seðlabankanum
en stundum þarf einhvern til sem
er með innsýn í atvinnulífið og fjár-
málastarfsemina.
Menn þurfa að komast að ein-
hverri niðurstöðu. Við erum hvorki
með eða á móti aðild að Evrópu-
sambandinu. Við viljum bara sjá al-
vöru umræðu um kosti og galla og
taka ákvörðun út frá því. Svo má
benda á lönd eins og Þýskaland,
Spán og Ítalíu þar sem atvinnuleysi
hefur aukist eftir að evran var tekin
upp. Það þarf að skoða hvort evran
hafi haft þessi áhrif eða eitthvað
annað. Þetta þarf allt að vega og
meta. Þeir sem eru í stjórnarand-
stöðu mættu líka koma með upp-
byggilegri gagnrýni. Þegar allt kem-
ur til alls þá erum við í sama liðinu.
Þetta er Ísland og fólk verður að
vinna saman,“ segir Arnar af festu
og ákveðni knattspyrnuþjálfarans.
„Mikið er ég feginn að ég er ekki
stjórnmálamaður!“ segir hann svo
og hlær.
Einkalífið
Hafið þið einhvern tíma fyrir
önnur áhugamál?
„Golf, númer eitt tvö og þrjú,“
svarar Arnar. „Maður getur spilað
golf þar til maður dettur niður
dauður,“ segir Bjarki.
Er það ekki allt of rólegt sport fyrir
ykkur?
„Nei, alls ekki. En það fer mjög
slæmt orð af okkur í golfinu. Eins
og skapið á vel við í fótboltanum þá
á það sama ekki við um golfið.“
„Það eru kylfur í vötnum víðs
vegar um heim,“ segir Arnar sposk-
ur á svip.
„Við fengum eina ágætis við-
skiptahugmynd hvað það varðar.
Það er að byggja hljóðeinangraðan
klefa sem fólk getur farið inn í og
öskrað þegar því gengur illa í golf-
inu,“ segir Bjarki.
„Það er mjög óhollt fyrir líkama
og sál að geta ekki fengið útrás,“
skýtur Arnar inn í og kímir.
„Þú kannski kemur þessu á
framfæri? Ef einhverjir vilja fjár-
festa í hugmyndinni …?“ spyr
Bjarki.
Báðir eru þeir í sambúð og eiga
hvor um sig tvö börn, strák og
stelpu, frá fyrra hjónabandi. „Börn-
in eru númer eitt, tvö og þrjú hjá
okkur,“ segir þeir. Sambýliskona
Bjarka er Rósa Signý Gísladóttir en
Arnar er í sambúð með Pattra Sry-
ianonge.
Hafið þið svipaðan smekk þegar
kemur að kvenfólki?
„Já, já,“ segir Bjarki hugsi og
horfir á Arnar.„Við hrífumst bara
af skemmtilegu og heiðarlegu kven-
fólki,“ segir Arnar. „Fegurðin kem-
ur innan frá.“
Þeir segja skilnaðina tvímæla-
laust erfiðustu ákvörðun sem þeir
hafi tekið á lífsleiðinni en taka fram
að samskiptin við við fyrrverandi
eiginkonur séu mjög góð.
„Skilnaður er aldrei skemmtileg-
ur og það var erfitt að ganga í gegn-
um hann. En þetta er nauðsynleg
ákvörðun ef hlutirnir ganga ekki
upp. Þá er það bara best fyrir alla.
Alla vega fyrir mitt leyti,“ segir
Bjarki.
Hefur líf ykkar fylgt svipuðu
mynstri?
„Já, ég get nefnt eitt gott dæmi:
Þegar Arnar og fyrrverandi kona
hans tóku þá ákvörðun að skilja þá
hafði ég ekki hugmynd um að það
væru vandamál hjá honum. Við
hjónin skildum svo tveimur vikum
seinna. Þetta segir kannski ýmislegt
um það að við erum ekki mikið að
ræða tilfinningamál okkar á milli.
Þetta er meira svona … óþarfa
karlmennska,“ segir Bjarki og þeir
hlæja báðir.
„Eitt leiðir af öðru. Maður tekur
ákvörðun sem á þeim tíma lítur
kannski út fyrir að vera slæm en
verður að góðri ákvörðun með tím-
anum. Þetta reddast einhvern veg-
inn alltaf,“ segir Arnar.
„Hvernig líður þér í dag?“ spyr
hann svo og horfir djúpt í augun á
bróður sínum.
„Vel,“ svarar Bjarki með upp-
gerðareinlægni.
Við hvern talið þið um erfið mál ef
þið talið ekki saman?
„Við eigum góða foreldra. Við
bræður getum reyndar talað um
allt nema akkúrat þetta „hvernig
líður þér?“ Það hefur alltaf verið
þannig. Við erum ekkert rosalega
„macho“ gaurar,“ svarar Bjarki.
„Við erum svolítið lokaðir,“ við-
urkennir Arnar.
„Sjálfsagt var það þess vegna sem
við skildum. Af því að við erum svo
lokaðir. Við getum ekki opnað okk-
ur,“ segir þeir og hlæja.
Bjarki segir frábært að eiga við-
skiptafélaga sem hægt sé að treysta
fullkomlega. „Við þurfum ekki
mikið að rökræða. Þótt allt fari
stundum í háaloft þá komumst við
alltaf að betri niðurstöðu fimm
mínútum seinna.“
Rífist þið?
„Já, oft. Bjarki er sá eini sem ég
rífst við á fótboltavellinum og
gagnkvæmt,“ segir Arnar. „Við lát-
um aðra í friði en gagnrýnum hvor
annan óspart. Ég veit að hann getur
höndlað það og öfugt en við þekkj-
um aðra kannski ekki eins vel.“
Bjarki, hvernig myndirðu lýsa
Arnari?
„Hann er hundleiðinlegur,“
svarar Bjarki að bragði. „Nei, ég er
sjálfur mjög heillandi og skemmti-
legur maður og við erum mjög líkir
þannig að hann hlýtur að vera það
líka. Þetta er eins og að lýsa sjálfum
sér.“
Hvað greinir ykkur að?
„Flestir sem umgangast okkur sjá
alveg mun á okkur. Segja að ég sé
rólegri en Arnar ævintýragjarnari.“
„Bjarki hefur meira skap en ég,“
upplýsir Arnar. „Hann hefur
kannski skapið frá pabba en ég frá
mömmu.“ „Ég er sneggri upp og
aftur niður. Hann hefur ævintýra-
mennskuna. Ég er íhaldssamur en
hann ævintýragjarnari og við finn-
um jafnvægi í því. Þetta er hin full-
komna blanda í viðskiptum,“ segir
Bjarki.
Þú togar Arnar niður á jörðina?
„Já, og hann togar mig upp ef á
þarf á halda. Við vegum hvor ann-
an upp með kostum og göllum.“
Segja mennirnir sem tala um
sjálfa sig í fleirtölu. Og nú er bara
að sjá hvort Skagamörkin verði ekki
í fleirtölu það sem eftir er sumars.
a
Þegar Arnar og
fyrrverandi kona
hans tóku þá
ákvörðun að skilja þá
hafði ég ekki hugmynd
um að það væru vanda-
mál hjá honum. Við hjón-
in skildum svo tveimur
vikum seinna. Þetta segir
kannski ýmislegt um það
að við erum ekki mikið að
ræða tilfinningamál okk-
ar á milli.
24 stundir/Árni Sæberg
Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir
Bjarki til vinstri og
Arnar til hægri.