24 stundir - 26.07.2008, Side 36
36 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 24stundir
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Lax og silungur er víða á boðstól-
um á þessum árstíma þegar veiði
stendur sem hæst í ám og vötnum
landsins. Sumir sitja jafnvel uppi
með mikið af fiski sem þeir vita
ekki hvað þeir eiga að gera við.
Margir eru vanafastir þegar bleiki
fiskurinn er annars vegar og mat-
reiða hann alltaf á keimlíkan hátt.
Það er samt ekkert sem bannar
manni að breyta út af vananum og
prófa að klæða fiskinn í nýjan og
framandi búning.
Fólk til í eitthvað nýtt
Sveinn Kjartansson, matreiðslu-
meistari á Fylgifiskum, segir að æ
fleiri séu tilbúnir að prófa að gera
eitthvað nýtt með lax og silung.
„Þessir klassísku laxaréttir standa
algerlega fyrir sínu. En síðustu ár
finnst mér fólk í auknum mæli vera
tilbúið að gera eitthvað annað við
laxinn og silunginn en gert hefur
verið hingað til. Hér áður fyrr
keypti fólk þetta aðallega til að
reykja og átti síðan reyktan lax út
árið,“ segir Sveinn sem er sjálfur
óhræddur við að feta ótroðnar
slóðir. „Ég hef mikið verið að
spreyta mig á því að búa til aust-
urlenskan mat, bæði hér á Fylgi-
fiskum og heima hjá mér,“ segir
Sveinn.
„Mér finnst líka gaman að því
hvað fiskur er í raun fjölbreyttur og
hvað það er hægt að gera mikið úr
fiskmetinu,“ bætir hann við.
Austurlensk áhrif
Sveinn lætur lesendum 24
stunda í té uppskriftir að óhefð-
bundnum laxa- og silungaréttum
þar sem framandi áhrifa gætir.
Meðal annars býður hann upp á
ofnbakaðan lax að marokkóskum
hætti og austurlenskt núðlusalat
með kryddlegnum silungi. Sumir
myndu líklega frekar velja hvítan
fisk í norðurafríska og austurlenska
rétti. „Maður á samt ekki endilega
að þurfa að útiloka bleika fiskinn
því að þetta passar vel við hann,“
segir Sveinn.
Í réttina notar Sveinn krydd-
blöndur frá Nomu sem fást í ýms-
um sérverslunum með matvörur.
„Það má segja að marokkóska
bragðið sé í krydddollunni. Það
þarf voðalega lítið annað til að fara
í bragðlaukaferðalag til Marokkó,“
segir Sveinn Kjartansson mat-
reiðslumeistari að lokum.
Nýtt og framandi Sveinn Kjart-
ansson matreiðslumeistari er
óhræddur við að matreiða lax og
silung á framandi hátt.
Bleikan fisk má matreiða á ýmsa vegu
Lax og silungur
á framandi hátt
Bleikur fiskur hentar vel í
framandi fiskrétti að
sögn Sveins Kjartans-
sonar matreiðslumeistara
sem gefur lesendum
þrjár uppskriftir. Hann
segir að fólk sé í auknum
mæli farið að matreiða
lax og silung á nýjan hátt.
➤ Sveinn Kjartansson er mat-reiðslumeistari og einn eig-
enda Fylgifiska.
➤ Fylgifiskar eru sérverslunmeð fiskafurðir og reka einn-
ig veisluþjónustu.
➤ Aðalverslunin er á Suður-landsbraut en einnig er útibú
á Skólavörðustíg.
➤ Fyrirtækið var stofnað árið2002.
FYLGIFISKAR
Ef menn hafa gaman af stang-
veiði og kunna að meta reyktan lax
eða silung getur verið ráð að fjár-
festa í eigin reykofni. Slíkir ofnar
henta einnig skotveiðimönnum
sem kjósa að reykja bráðina. Reyk-
ofnar fást í flestum veiðivörubúð-
um og eru búnir til í ýmsum stærð-
um og gerðum. Ofnarnir eru mis-
dýrir en þeir ódýrustu kosta undir
10.000 krónum. Einnig er hægt að
fá ýmsar sagtegundir sem gefa
fisknum eða fuglinum ólíkan keim,
allt eftir smekk hvers og eins.
Eigin reykofn
Víngerðarhús Pascals Jolivet er meðal þeirra yngstu og atorkusömustu í Loire-dalnum.
Hann hóf víngerðina 1982 með Grand Vins du Val de Loire en stofnaði ekki húsið undir sínu
eigin nafni fyrr en 1987. Áætlunin var að sérhæfa sig í gerð vína frá Sancerre- og Pouilly
Fumé-svæðunum sem fljótlega öðluðust forystu á vínseðlum Michelin-stjörnu veitingahúsa í
Frakklandi og skömmu síðar annars staðar í heiminum.
Pascal Jolivet er nú með tæplega 30 ha. í tveimur fremstu víngörðum Sancerre
og Pouilly Fumé. Úr hráefninu sem kemur frá þessum víngörðum sem og að-
keyptum þrúgum er framleitt bæði rauðvín og hvítvín í gullaldar Loire-stíl.
Frískandi sítrustónar í nefi með lime-berki og grænum jurtatónum. Af-
gerandi sýra í munni, þó ekki áreitin, með vott af myrkilsveppum og
þokkafullum tinnusteinskeimi. Milliþungt og afbragðs jafnvægi. Einfald-
lega fyrirtaks vín í alla staði.
Algjört matarvín sem færi fullkomlega með humri, skelfiski í rjóma-
löguðum sósum, kálfa- eða alifugla-Blanquette og sérstaklega geitaost-
um. Þó ekki verra að drekka eitt og sér.
Þrúga: Sauvignon Blanc
Land: Frakkland
Hérað: Loire
3.099 kr.
Vín vikunnar
Elísabet Alba Valdi-
marsdóttir vínþjónn
Pascal Jolivet Sancerre Blanc
Le Chêne Marchand 2004
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Þessir klassísku laxaréttir standa algerlega
fyrir sínu. En síðustu ár finnst mér fólk í aukn-
um mæli vera tilbúið að gera eitthvað annað við
laxinn og silunginn en gert hefur verið hingað til. matur
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Barcelona
8. og 15. ágúst
frá kr. 29.990
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á vikuferðum til Barcelona, 8. og 15.
ágúst. Barcelona er einstök perla sem Íslendingar hafa tekið ástfóstri
við. Frábært mannlíf og óendanleg fjölbreytni í menningu og afþreyingu
að ógleymdu úrvali fjölbreyttra verslana í borginni. Gríptu þetta frábæra
tækifæri - takmörkuð gisting og sætafjöldi í boði!
Örfá sæti laus
Verð kr. 59.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á
Hotel Confortel Barcelona **** í 7 nætur
með morgunverði, 8. eða 15. ágúst.
Verð kr. 29.990
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir
með sköttum. Sértilboð, 8. og 15. ágúst.
Verð kr. 69.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á
Gran Hotel Catalonia **** í 7 nætur með
morgunverði, 8. ágúst. Eða Hotel Rivoli
Ramblas **** í 7 nætur með
morgunverði, 15. ágúst.