24 stundir - 26.07.2008, Side 40

24 stundir - 26.07.2008, Side 40
40 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 24stundir Eftir Heiðdísi Lilju Magnúsdóttur heiddis@24stundir.is Af hverju fluttirðu út? „Ég átti mér þann draum að stofna hljómsveit og gera það gott í músíkinni, finna flotta stráka í svörtum, þröngum buxum og Con- verse-skóm. Langaði að vera eins og Blondie frá því ég var ellefu ára. Ég komst síðan inn í tónlistarhá- skóla í Liverpool, greip þá tækifærið og fór út.“ Ertu sest að í Bretlandi til frambúðar? „Já, ég held það. Í september verða liðin tólf ár frá því ég flutti. London er æðisleg borg, það er svo mikið um að vera og margt að gera og sjá.“ Maki/börn? „Já, sambýlismaður og hann á tvö börn frá fyrra stríði.“ Hver er þín fyrsta minning? „Þegar Bretar við- urkenndu 200 mílna fiskveiðilögsögu Íslendinga á þriggja ára afmælinu mínu. Enda pabbi skipstjóri. Það var sjálfsagt þá sem ég áttaði mig á því að á Bret- landi vildi ég búa.“ Hvað langaði þig til að verða þegar þú varst lítil? „Söngkona.“ Mesta skammarstrikið fyrr og síðar? „Skamm- astrikið … ég var alltaf frekar góð og ekki með mikið vesen. En ég mun aldrei gleyma því þegar ég var fjór- tán ára og ákvað að fara heim með strák úr skólanum eftir skólaball á miðvikudegi. Við vorum nýbyrjuð saman, ég ætlaði að vera algjör pæja og voða kúl og stelast heim með honum og horfa á vídeó. En það leið ekki á löngu þar til dyrabjöllunni var hringt. Í dyrunum stóð mamma, ekki hress, í náttfötunum, stígvélum og með hárið út í loftið og spurði mig hvað þetta ætti að þýða. Hvort ég vissi hvað klukkan væri. Það sem ég skammaðist mín þá. Sem betur fer var þessi strákur mjög skilningsríkur og dömpaði mér ekki alveg strax.“ Hvaða lifandi manneskju líturðu upp til og hvers vegna? „Svei mér þá, ég held að það sé móðir mín. Hún er svo æðisleg, skemmtileg, klár og hefur alltaf rétt fyrir sér.“ Stærsti sigurinn? „Stærsti sigurinn er sá að ég hef getað unnið við það sem mér finnst skemmtilegast að gera; að syngja og semja tónlist.“ Mestu vonbrigðin? „Mestu vonbrigðin voru í fyrra. Ég hafði fengið verkefni sem var 95% öruggt að yrði að veruleika, hélt því leyndu í fjóra mánuði svona til öryggis en var farin að eyða milljónum í huganum og hafa það mjög gott. Nú svo er auðvitað mikil pólitík í þessum bransa og á síðustu stundu breyttist staðan. Það var mikill grátur þá helgina.“ Hvernig tilfinning er ástin? „Hún er mismunandi. Áður fyrr tengdi ég spennu alltaf við ást en núna held ég að ég sé aðeins þrosk- aðri. Ástin er hlý tilfinning; maður fyllist vellíðan og öryggi og er alveg til í að gefa fótanudd þó maður sé drulluþreyttur.“ Erfiðasta lífsreynslan? „Ég hef verið lánsöm en fyrir utan að hafa sólbrunnið illa á baki og fótbrotn- að þá held ég að ástarsorgin hafi verið sú erfiðasta, enda hef ég sam- ið ansi mörg lög um hjarta mitt og ástina.“ Hvaða hluti í eigu þinni met- urðu mest? „Ætli það sé ekki kassa- gítarinn minn flotti sem ég keypti þegar ég fékk fyrsta plötusamning- inn minn.“ Hverjir eru styrkleikar þínir? „Bjartsýn, skapgóð og skemmtileg.“ Hvaða galla hefurðu? „Ég er næstum því gallalaus, nema kannski fyrir gervitennurnar mínar tvær. Nei, ég get verið viðkvæm, óörugg og hef ekki þolinmæði gagnvart því sem mér finnst leið- inlegt.“ Ef þú byggir yfir ofurmannleg- um hæfileikum, hverjir væru þeir? „Að geta flogið og stöðvað stríð og fátækt (svörin fundust í gömlum ungfrú Ísland-blöðum).“ Fallegasti staður á Íslandi? „Suð- urnes á Seltjarnarnesi og Snæfellsnes. Allt sem endar á nes.“ Skrýtnasta starfið? „Kannski þeg- ar ég þurfti að vera í Quality street- kjólnum og gefa Mackintosh́s. Langt, langt, langt síðan.“ Hvað myndi ævisagan þín heita? „Sko mína! Eða: Datt, dustaði af hnjánum og hélt áfram að hlaupa.“ Hver myndi leika þig í kvikmynd byggðri á ævi þinni? „Cate Blanchett. Eða Orlando Bloom, hann er svo flottur með ljósa hárkollu.“ Heiðrún Anna Björnsdóttir, tónlistarkona í London Ástarsorgin erfiðust Heiðrún Anna Björnsdóttir tónlist- arkona býr og starfar í London og er þessa dagana að leggja lokahönd á nýja plötu með hljómsveit sinni Ci- cada. Auk þess flytur hún í nýtt hús um helgina. „Heiðrún Anna er mjög góð dótt- ir,“ segir Guðrún Einarsdóttir, móðir hennar. „Hún er opin og jákvæð, blíð og góð. Það er ótrú- legt hvað hún hefur getað haldið út í því sem hún hefur verið að gera. Hún er mjög fylgin sér í þessum draumi sínum og hefur getað lifað af tón- listinni síðustu misserin. Heið- rún Anna heldur líka alltaf mjög góðu sambandi við mig og fjöl- skylduna sína hér heima.“ Heldur fast við drauminn Regína Bjarna- dóttir, vinkona Heiðrúnar Önnu, segir hana góðan og traustan vin. „Hún er mjög hugmyndarík, metnaðarfull og fylgin sér. Hún er mikil smekkmanneskja og ef maður þarf að breyta einhverju heima hjá sér þá leitar maður ráða hjá henni. Annað sem ein- kennir hana er að þrátt fyrir að henni gangi vel í tónlistinni er hún ekki alltaf að tala um það. Hún hefur báða fætur á jörðu. Svo er hún algjör stuðbolti líka!“ Með báða fætur á jörðu Tíu ár eru á milli Heiðrúnar Önnu og yngstu systur hennar, Önnu Lilju. „Hún pass- aði mig oft þegar ég var lítil, ég var litla barnið henn- ar. Svo flutti hún að heiman þegar hún var 17 en þá var ég bara átta ára,“ rifjar Anna Lilja upp. „Heiðrún Anna er ofsa- lega ljúf og góð og vill allt fyrir mann gera. Svo er hún mjög skemmtileg líka og mikil fé- lagsvera. Það er alltaf mikil gleði í kringum hana. “ Ljúf og góð systir LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Ástin er hlý tilfinning; maður fyllist vellíðan og öryggi og er alveg til í að gefa fótanudd þótt maður sé drulluþreyttur. yfirheyrslan

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.