24 stundir - 26.07.2008, Side 44
44 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 24stundir
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Hvernig væri að safna fyrir hlut-
unum sem þig langar í og eiga fyrir
þeim áður en þú kaupir þá?
spjallið
Sparar þú eða ertu eyðslukló?
„Ég var mikil eyðslukló en hef náð ágætis jafnvægi í peningamálum í dag. Ég lifi mjög góðu
lífi núna.“
Finnurðu fyrir „kreppunni“?
„Nei, ég tek auðvitað eftir hækkandi bensín- og matarverði, eins og aðrir landsmenn, en hef
ennþá ráð á því að fylla á tankinn. Það breytir því ekki að mér hefur alltaf þótt bensín og
matarverð alltof hátt á Íslandi. Það er svartur blettur á annars yndislegu landi.“
Lumarðu á góðum sparnaðarráðum?
„Íslendingar eru unglingar þegar kemur að fjármálum. Það er svo auðvelt að sannfæra Ís-
lendinga um að kaupa drasl sem þeir hafa ekkert efni á til að ganga í augun á einhverju fólki
sem er nákvæmlega sama. Mitt sparnaðarráð er þetta: Hvernig væri að safna fyrir hlutunum
sem þig langar í og eiga fyrir þeim áður en þú kaupir þá? Í fyrra tók ég t.d. eldhúsið hjá mér í
gegn, lagði fyrir á sérstakan eldhúsreikning og viti menn – þegar kom að framkvæmdum fékk
ég staðgreiðsluafslátt alls staðar og eldhúsið reyndist ódýrara en ég átti von á. Nú á ég ógeðs-
lega töff eldhús, skuldlaust. Engir bakreikningar eða bréf frá Intrum. Lífið er yndislegt. Þetta
er bara spurning um að hinkra aðeins og forgangsraða rétt.“
Páll Óskar Hjálmtýsson tón-
listarmaður.
Safnaði fyrir eldhúsinu
Sparar þú eða ertu eyðslukló?
„Ég reyni að spara en það er enginn vandi að
vera eyðslukló!“
Finnurðu fyrir „kreppunni“?
„Nei, ég get ekki sagt það. Ég finn aðallega
fyrir bensínhækkuninni.“
Lumarðu á góðum sparnaðarráðum?
„Já, ég myndi til dæmis vilja benda fólki á að
kaupa ekki mikið af tilbúnum mat og
skyndimat. Það er mikill peningaþjófur. Fólk
er ekkert lengur að elda mat en að hita til-
búna matinn. Svo mætti fólk vera duglegra
að nota kartöflur. Það er vel við hæfi því árið
2008 er ár kartöflunnar hjá Sameinuðu
þjóðunum. Það er hægt að gera svo margt úr
kartöflum og elda alla mögulega rétti. Þær
þurfa ekki bara að vera soðnar eða bakaðar.
Gott er að nota kartöflur, pasta og hrísgrjón
til skiptis en kartöflurnar hafa það fram yfir
pastað og hrísgrjónin að þær gefa C-vítamín
og innihalda mjög mikið af steinefnum. Þær
vaxa alls staðar og hafa bjargað mörgum í
gegnum tíðina. Sumum finnst gamaldags að
nota kartöflur en þær má útbúa á marg-
víslegan hátt, t.d. rífa þær á pönnu og bæta
pylsum út í.“
Margrét Sig-
fúsdóttir hús-
stjórnarkennari.
Kartöflurnar hafa
bjargað mörgum
Sparar þú eða ertu eyðslukló?
„Fyrir svona tveimur árum var ég alger
eyðslukló. Ég keypti ekki bara fullt af ónauð-
synjum heldur trassaði ég að borga reikn-
inga, yfirdrátt og fleira sem orsakaði enn
frekari útgjöld og eyðslu. Svo tók ég mig til,
hætti að trassa og minnkaði ónauðsynleg
kaup til muna. Nú keppist ég við að fylla
sparibaukinn á ný.“
Finnurðu fyrir „kreppunni“?
„Get ekki sagt það. Allir sem ég þekki lifa í
nær allsnægtum og eru ekki enn atvinnu-
lausir. Ég hef ekki ennþá séð fréttir í blöð-
unum um aukna aðsókn í súpueldhúsin og
ef einhverja ályktun má draga af fjölda nýrra
Range Rover-jeppa á götum Reykjavíkur þá
hefur fólk það bara mjög gott. Það þarf bara
að vera aðeins skynsamara núna en áður.“
Lumarðu á góðum sparnaðarráðum?
„Já, ég luma á þónokkrum. Á skotsilfur.com
síðunni minni eru sparnaðarráð, bæði frá
mér og lesendum síðunnar. Eitt þeirra er að
staldra alltaf við og spyrja sjálfan sig hvort að
maður þurfi virkilega á hlutunum að halda.
Þ.e. að aðskilja langanir og þarfir og versla
eftir þörfum.“
Ragnar Freyr, graf-
ískur hönnuður og
sparnaðarbloggari.
Bloggar um
sparnað
Sparar þú eða ertu eyðslukló? „Ég spara
langmest í gegnum lífeyrissjóði og viðbót-
arlífeyri. En annars á ég það til að safna mér
og það eru mörg ár síðan ég keypti eitthvað á
raðgreiðslum. Þær eru upphaf alls ills þegar
fjárhagur stórrar fjölskyldu er annars vegar.“
Finnurðu fyrir „kreppunni“?
„Andlega, já. Ég held að við hjónin förum
sjaldnar í Bónus. Og maður er var um sig.
Líka út af verðbólgunni. Maður hugsar sig
tvisvar um hvort verðið á þessu eða hinu sé
rétt. Maður er líka alltaf dapur þegar maður
keyrir frá bensíndælunni. Sem mér þykir
leiðinlegt því ég hef persónulega gaman af
bensínstöðvum. Eða þótti það. Innst inni er
maður líka feginn. Maður vill fá að taka út
þynnkuna eftir góðærið.“
Lumarðu á sparnaðarráðum?
„Úff. Nei. Manni er varla sjálfrátt þegar
kemur að peningum. Það er svo gaman að
eyða þeim. Eina ráðið sem ég luma á er að
vingast við þjónustufulltrúann sinn. Minn er
algjört æði. Kenndi mér að spara. Lætur mig
alltaf borga meira í heimilislínuna. Annars
er maður bara eins og Íslendingar allir. Við
kunnum ekki að spara. Ef við kynnum það
værum við að hlæja að kreppunni.“
Mikael Torfason
rithöfundur.
Keyrir dapur frá
bensíndælunni
Sparar þú eða ertu eyðslukló?
„Bæði já og nei. Það fyrsta sem ég geri um
mánaðamót er að leggja fyrir 10% af útborg-
uðum launum því það er lykillinn að því að
ná tökum á fjármálunum. Þannig er ég alltaf
með varasjóð sem ég get gengið í ef óvænt
útgjöld koma upp á.“
Lumarðu á sparnaðarráðum?
„Já, að spara þessi 10% af útborguðum laun-
um og verða nískur á þann sparnað. Þetta er
neyslusparnaður og maður notar hann ef
mánuðurinn gengur ekki upp. Svo er mjög
sniðugt að taka út peninga til neyslu um
mánaðamót. Skipta fjárhæðinni í 4 hluta,
setja hvern hluta í lokað umslag og merkja
umslögin vika 1, vika 2 o.s.frv. Síðan notar
maður aðeins þann pening sem er í umslag-
inu í neyslu. Ef hann er búinn á fimmtudegi
þá verður bara hafragrautur eða eitthvað
slíkt fram á sunnudag. Þá er nýtt umslag
opnað. Þegar afgangur verður má gera eitt-
hvað sérstakt fyrir þann pening. Til dæmis
mætti safna afgangi hverrar viku saman yfir
mánuðinn og fara síðan út að borða eða
leggja inn á ferðabók.“
Guðrún K. Jónsdóttir
hjá spara.is.
Sniðugt að nota
umslagakerfi
Hvernig
spara þau?
Mánaðamótin nálgast og ísskápurinn er jafntómur og banka-
reikningurinn. Kvíðahnúturinn í maganum fer stækkandi í jöfnu
hlutfalli við hækkandi íbúðalán og allt í einu verður auðveldara
að skilja af hverju afi og amma hentu aldrei neinu, gerðu við allt,
bruðluðu ekki með neitt. Þetta var ekki sérviska, heldur sjálfs-
bjargarviðleitni. Eða bara ákveðinn lífsstíll. Fimm Íslendingar lýsa
því hvernig þeir spara og spandera.
heiddis@24stundir.is