24 stundir - 19.08.2008, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 24stundir
VÍÐA UM HEIM
Algarve 26
Amsterdam 17
Alicante 28
Barcelona 29
Berlín 21
Las Palmas 25
Dublin 18
Frankfurt 25
Glasgow 16
Brussel 17
Hamborg 17
Helsinki 19
Kaupmannahöfn 19
London 19
Madrid 31
Mílanó 27
Montreal 21
Lúxemborg 23
New York 24
Nuuk 8
Orlando 24
Osló 17
Genf 25
París 24
Mallorca 31
Stokkhólmur 15
Þórshöfn 11
Spáð er vestlægri eða breytilegri átt, 3-8 m/s,
og víða verður bjart með köflum eða lítils-
háttar væta NV-til í fyrstu. Hæg vestlæg átt
eða hægviðri á morgun, víðast þurrt. Hiti 12 til
18 stig að deginum, hlýjast inn til landsins.
VEÐRIÐ Í DAG
10
12
9
11
10
Hæg vestanátt og sumarblíða
Á morgun er áfram spáð hægviðri. Þá verður
skýjað með köflum, en hætt við síðdeg-
isskúrum. Hitastigið fer þó heldur lækkandi
og verður hitinn víða 10 til 15 stig á morgun.
VEÐRIÐ Á MORGUN
10
10
9
12
9
Hæglætisveður og skúrahætta
„Fyrst og fremst er þetta afar dap-
urlegt og alls ekki til eftirbreytni,“
segir Stefán Pálsson, formaður Sam-
taka hernaðarandstæðinga um um-
fjöllun Morgublaðsins um her-
mennsku. Í sérblaði
Morgunblaðsins um menntun 15.
ágúst síðastliðinn var umfjöllun um
möguleika Íslendinga til að ganga til
liðs við erlenda heri og nýta sér þá
þjálfun sem þar fæst til menntunar
og starfsframa.
Stefán segir að lengi hafi það ver-
ið talinn einn þeirra kosta sem ís-
lenskt samfélag hefur til að bera að
vera laus við hernaðarbrölt. „Þetta
er ákaflega aumt og enn ömurlegra
er að það sé verið að fjalla um her-
mennsku undir þeim formerkjum
að þetta standi jafnfætis því að fólk
geti með því móti orðið sér úti um
góða menntun í lífinu.“
Ekki ómerkilegt starfsval
Ögmundur Jónasson, þingflokks-
formaður Vinstri grænna, tekur í
sama streng og Stefán. „Maður þarf
nú eiginlega að klípa sig í handlegg-
inn til að trúa þessu. Það er góðra
gjalda vert að menn skuli vilja hafa
allan heiminn undir þegar fjallað er
um menntun en mér finnst um-
hugsunarefni hvort Morgunblaðið
sjá ekki verðugri viðfangsefni en að
koma íslenskum ungmennum til
starfa hjá frönsku útlendingaher-
kost. Þó að við Íslendingar séum
ekki með her er þetta ekki ómerki-
legra starfsval en hvað annað og mér
finnst ekkert óeðlilegt við að kynna
þessa leið í blaði tileinkuðu mennt-
un.“ freyr@24stundir.is
sveitinni, einhverju alógeðfelldasta
batteríi sem fyrirfinnst.“
Ólafur Stephensen, ritstjóri
Morgunblaðsins, segir blaðið alls
ekki vera að hvetja til hernaðar.
„Það er ekki oft fjallað um þennan
Formaður SHA um herumfjöllun Moggans
„Afar dapurlegt“
Hermennska
Formaður SHA
gagnrýnir
Morgunblaðið
fyrir að hvetja til
hernaðar.
„Vinningshafarnir eru taílensk
hjón úr Fellahverfinu í Breiðholti,“
segir Stefán Smári Konráðsson,
framkvæmdastjóri Íslenskrar get-
spár. „Konan er íslenskur rík-
isborgari og er búin að búa hér-
lendis í tíu ár og maðurinn hennar
í fimm ár,“ segir hann og bætir við
að þau eigi þrjú börn. Hjónin spila
reglulega í Lottó en miðinn var
keyptur 12. ágúst síðastliðinn. „Þau
keyptu sér miða þennan dag því
dagurinn mæðradagur í Taílandi og afmælisdagur drottningar,“ segir
Stefán en tekur fram að miðinn hafi verið sjálfvalsmiði.
Vinningurinn verður afhentur eftir mánuð en Íslensk getspá leggur til
fjármálaráðgjöf hjá KPMG. „Hjónin hafa bæði verið í tvöfaldri vinnu
til þess að ná endum saman,“ segir Stefán og tekur því fram að vinn-
ingurinn muni koma að góðum notum.
áb
Unnu 65 milljónir í Lottó
Lögreglan á Hvolsvelli rannsakar
nú ólöglegan flutning á farþegum
milli Bakkafjöru í Landeyjum og
Vestmannaeyja um versl-
unarmannahelgina. Nokkrir
verða yfirheyrðir á næstunni.
Lögreglan telur ljóst að fólk hafi
verið flutt á milli án leyfa og sett í
stórfellda hættu. bee
Hættulegar
ferðir til Eyja
„Forsetinn tjáir sig ekki um rang-
færslur af þessu tagi sem koma
fram í einhverju tveggja manna
tali.“ Þetta segir Örnólfur Thors-
son forsetaritari um dagbók-
arfærslu Matthíasar Johannessen,
fyrrverandi ritstjóra Morg-
unblaðsins. Í henni segir Matt-
hías að reikningur frá Bandaríkj-
unum til íslenska sendiráðsins í
Washington vegna læknismeð-
ferðar Guðrúnar Katrínar Þor-
bergsdóttur heitinnar hafi valdið
Davíð Oddssyni, fyrrverandi for-
sætisráðherra, áhyggjum. Læknir
Guðrúnar Katrínar segir hana
enga sérmeðferð hafa fengið. ibs
Tjáir sig ekki um rangfærslur
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
„Þetta er ekki fyrsta lygin sem hefur
komið frá honum síðan á fimmtu-
daginn. Hann er að reyna að
höggva eitthvað í okkur og gera
okkur tortryggileg með því að kasta
einhverju fram og láta okkur neita
því,“ segir Þorbjörg Helga Vigfús-
dóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins og formaður leikskóla-
ráðs, og vísar þar til ummæla Ólafs
F. Magnússonar, fráfarandi borgar-
stjóra, um að hann hafi komið í veg
fyrir að hún ræki sviðsstjóra leik-
skólasviðs.
„Með algjörum ólíkindum“
„Þetta er algjörlega með ólíkind-
um að maðurinn skuli haga sér
svona. Í fyrsta lagi eru þessi mál,
það er starfsmannamál, ekki þann-
ig vaxin að þau eigi að fara í fjöl-
miðla. Hann er mjög ósanngjarn
gagnvart sviðsstjóranum með
þessu.
Í öðru lagi þá koma upp ágrein-
ingsmál reglulega og þau eru leyst á
mismunandi hátt. Og hann á eng-
an heiður skilinn fyrir það,“ segir
Þorbjörg Helga. Hún segist ekki
ætla að opinbera hvaða ágreining-
ur hafi átt sér stað á milli hennar og
sviðsstjórans. „Hann var leystur og
við erum núna í mjög góðu sam-
starfi.“
„Brengluð forgangsröðun“
Ólafur F. gagnrýnir ekki bara
Þorbjörgu Helgu fyrir störf hennar
í borginni.
„Maður hefur stundum haft þá
tilfinningu í þessu samstarfi að for-
menn fagráðanna í meirhlutanum,
sem koma auðvitað allir úr Sjálf-
stæðisflokknum, séu dálítið upp-
teknari af næsta prófkjöri flokksins
heldur en fjármálastjórn borgar-
innar og það finnst mér mjög vont
mál,“ segir Ólafur. Aðspurður
hvort um hagsmunárekstra sé að
ræða segir hann: „Ég vil ekki nota
svo stórt orð. En brengluð for-
gangsröðun.“
Skipanir frá ráðherrum?
„Það virðist vera þannig með
marga borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins að þeir taka við fyrirmæl-
um frá ráðherrum úti í bæ frekar
en forystunni í borgarstjórn, hvort
sem er eigin oddvita eða borgar-
stjóranum. Þá á ég við að það er
ekkert launungarmál að Jórunn
Frímannsdóttir er í miklu betra
sambandi við heilbrigðisráðherra
heldur en borgarstjóra,“ segir Ólaf-
ur F.
Jórunn segir miður að Ólafur
kjósi að draga umræðuna niður á
svo lágt plan og hún muni ekki taka
þátt í því. „Ég leitaðist við að halda
honum upplýstum um starfið sem
unnið var inni á velferðar- og
framkvæmdasviðum,“ segir hún.
Ólafur sagður
síljúgandi
Borgarstjóri ber margar sakir á borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks
Þeir segja borgarstjóra ljúga og vera á lágu plani
➤ Ólafur F. Magnússon var skip-aður borgarstjóri af fulltrúum
F-lista og Sjálfstæðisflokks
24. janúar síðastliðinn.
BORGARSTJÓRINN
Að slá frá sér? Ólafur F.
Magnússon er sagður ljúga.
STUTT
● Úr Framsókn í minnihluta
Marsibil Sæmundardóttir eini
varaborgarfulltrúi Framsóknar
sagði sig úr flokknum í gær.
Hún er áfram varamaður Ósk-
ars Bergssonar, þótt hún fari úr
flokknum. Marsibil ætlar að
starfa með minnihlutanum sem
óháð. Óskar telur þetta litlu
skipta. Hann ætlar að velja í
nefndir út fyrir lista Fram-
sóknar.
● Meira úr borgarpottinum
Borgarstjórnarflokkur F-listans
efnir til blaðamannafundar í
fyrir hádegi í dag um stöðu og
stefnu framboðsins og um sam-
starfsslitin af hálfu Sjálfstæð-
isflokksins.
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Meðalkonan ver um 3.276
klukkustundum af ævi sinni í
að hafa sig til, áður en farið er
út úr húsi. Þetta er niðurstaða
breskrar rannsóknar, en tím-
inn jafngildir þeim tíma sem
tekur geimfara að fara til
tunglsins og aftur heim 22
sinnum. Til samanburðar seg-
ir að meðalkarlmaður verji
um 1.100 stundum af ævi
sinni við sömu iðju. aí
Tímafrekt að hafa sig til
3.276 stundir
SKONDIÐ
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
42
04
0
04
.2
00
8