24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 40

24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 40
annað en að gera samherjana lé- legri, í stað þess að gera mótherjana betri. Fyrir aðdáendur ameríska fót- boltans þá er þessi leikur einn þétt- asti pakki sem völ er á. Þeir sem hafa lítið vit á sportinu gætu hins vegar lent í erfiðleikum með að ráða fram úr endalausum val- myndum og illskiljanlegum leik- kerfum og því síður notið leiksins. Það er þó ekki hægt að neita því að Madden NFL 09 skilar sínu ótrúlega vel og er leikurinn í algjör- um sérflokki hvað ameríska fót- boltann varðar. Eftir Viggó I. Jónasson viggo@24stundir.is Nú fer að styttast í að steraboltarnir í ameríska NFL-boltanum hefji leik á ný og líkt og lóan á vorin þá þýðir það bara eitt: nýjan Madden-leik. Madden-serían fagnar stór- afmæli um þessar mundir en tutt- ugu ár eru liðin síðan fyrsti Mad- den-leikurinn kom út. Madden NFL 09 lítur mjög vel út og er ein- staklega gaman að sjá hversu mikil vinna hefur verið lögð í hreyfingar leikmanna, fyrir utan þær róbóta- hreyfingar sem boðið er upp á þeg- ar snertimörk eru sýnd aftur. Tækl- ingar virðast vera til í óteljandi útgáfum og hrynja tæklaðir leik- menn til jarðar með sannfærandi hætti. Hvað spilunarmöguleika varðar hefur Madden upp á nóg að bjóða. Menn geta spilað á móti öðrum fótboltabullum í gegnum netið auk þess að geta valið úr fjölmörgum áhugaverðum spilunarformum einn síns liðs. Þar stendur upp úr Superstar-spilunarmöguleikinn sem gerir manni kleift að búa til sinn eigin leikmann og halda svo á braut frægðar og frama í NFL- deildinni. Helsti kosturinn við það er, að ef menn hafa leikmann sinn sóknarmann þá þarf maður ekki að spila hina gríðarlega leiðinlegu vörn. Ein nýjung í Madden NFL 09 er hin svokallaða Madden IQ sem gerir leiknum kleift að aðlaga sig að hæfni leikmannsins og bjóða þann- ig upp á mun áhugaverðari spilun. Útfærsla þessa kerfis er þó ekki fullkomin því það virðist gera lítið Tæklingar í öllum bragðtegundum Madden veitir aðdáendum sínum góðan skammt af öllu því sem fyrri leikir hafa verið þekktir fyrir. Tvítugt gamalmenni tæklar sem aldrei fyrr Grafík: 94% Hljóð: 73% Spilun: 76% Ending: 80% NIÐURSTAÐA: 81% Madden NFL 09 PS3, XBOX 360, Wii | 3+ 40 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 24stundir Spjallþáttadrottningin og grín- istinn Ellen DeGeneres gekk að eiga sína heittelskuðu, Portiu De Rossi, á laugardaginn, á heimili þeirra í Beverly-hæðunum. Aðeins um 19 gestir voru við athöfnina, sem þótti að sögn afar látlaus en einlæg og falleg. Skötuhjúin klæddust bæði hönnun Zacs Posen; kjóll De Rossi var baklaus og ljósbleikur en Ellen var í hvítum buxum, hvítri skyrtu og hvítu vesti. Hringarnir voru frá Neil Lane, að sögn People- tímaritsins. Ellen, sem er fimmtug, og De Rossi, sem er 35 ára, hafa verið saman síðan árið 2004, en Ellen hefur greitt götu samkynhneigðra í Hollywood síðan hún kom út úr skápnum árið 1997, í þætti Opruh Winfrey og sínum eigin þætti, Ell- en, sem þá var fyrsti og eini þátt- urinn sem skartaði samkyn- hneigðri aðalpersónu. Ellen var áður í sambandi með leikkonunni Anne Heche, frá 1997-2000. Þá tók hún upp sam- band við Alexöndru Hedison, sem varði til 2004, er hún kynntist De Rossi. 24 stundir óska brúðhjónunum innilega til hamingju. tsk DeGeneres giftist De Rossi FÓLK 24@24stundir.is a Nú fer að styttast í að steraboltarnir í ameríska NFL-bolt- anum hefji leik á ný og líkt og lóan á vorin þá þýðir það bara eitt: nýjan Madden-leik. fréttir Aðþrengdur Afsakið að ég er til! ÞÚ HEFÐIR ÁTT AÐ FANGA ÞESSAR TVÆR MEÐAN ÞÚ HAFÐIR TÆKIFÆRI TI L ÞESSÚTSALA Bizzaró Eins og við var að búast þá breyttist sætispúði KEITH’S í svífandi furðuhlut MYNDASÖGUR F i r ð i . H a f n a r f i r ð i . 2 . hæð . s ím i 5 5 4 . 1 2 0 0 ÚTSÖLULOK! 20% AUKA AFSLÁTTUR VIÐ KASSA Miðvikudaginn 20.ágúst frá kl. 16-18 býður Hreyfiland nýja og eldri viðskiptavini velkomna með hvorki meira né minna en 25% afslætti af öllum 16 vikna námskeiðum – • Mæðrafimi® • Salsa • GÞ-fimi® • Hreyfifimi® • FitKid®-sporterobikk ! Leikir og skemmtun í sal fyrir börnin! Námskeiðin hefjast laugardaginn 23. ágúst og lýkur laugardaginn 13. desember.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.