24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 24stundir
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444
VITA er í eigu Icelandair Group
og flýgur með Icelandair
á vit ævintýranna.
VITA er lífið
Þú getur notað
Vildarpunktana hjá okkur
Skráðu þig í netklúbbinn - VITAferðir.is
Til Ítalíu
á skíði
hið ljúfa
la dolce líf
Madonna di Campiglio
og Canazei
Verð frá 109.900 kr.
og 15.000 Vildarpunktar
á mann í þríbýli, 2 fullorðnir og
1 barn, í 7 nætur, með hálfu fæði,
á Hotel Splendid, brottför 31. jan.
Almennt verð: 119.900 kr.
NÝTT!
Njóttu lífsins í fegurð ítölsku Alpanna.
Fylltu lungun af fersku fjallalofti áður en þú
svífur niður brekkurnar með roða í kinnum
af mjallhvítu fjöri og sól.
Fararstjórar: Anna og Einar
Beint morgunflug til Verona:
24. og 31. janúar og
7., 14., 21. og 28. febrúar.
Vetur 2009
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
42
12
6
08
.2
00
8
„Listaverkið er stundum kall-
að síðasti sjálfstæðismað-
urinn, þetta var upphaflega
grín í aðdraganda kosninga,“
segir íbúi í Hafnarfirði.
„Þetta er fyndið, maður verð-
ur að hafa húmor fyrir sjálf-
um sér,“ segir formaður ungra
sjálfstæðismanna í Hafn-
arfirði og bætir við að grínið
hafi átt við fyrir sinn tíma í
pólitík.
Verkið heitir sínu rétta nafni
Vaktin/The Watch og er eftir
Timo Solin frá árinu 1991. áb
Listaverk í Hafnarfirði
Misjafnt hvað
hann kallast
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
„Við gerum okkur vonir um að það
komi peningar fyrir þessu inn á
næstu fjárlög,“ segir Margrét Frí-
mannsdóttir, forstöðumaður Litla-
Hrauns, um fjármagn til byggingar
nýrrar byggingar við fangelsið. Ver-
ið er að teikna bygginguna og Mar-
grét telur að hún hljóti að verða
sett í forgang. „Fjárlaganefndin er
búin að koma hingað í heimsókn
og aðrir þingmenn hafa sýnt þessu
töluverðan áhuga. Þá höfum við
fundið fyrir miklum áhuga hjá
dómsmálaráðuneytinu fyrir því að
drífa þessar byggingar af stað, enda
hefur fangelsið á Litla-Hrauni ver-
ið yfirfullt frá áramótum.Við erum
í dag með fangaklefa í notkun, fyrir
afplánunarfanga og fanga í lausa-
gæslu, sem hafa ekki verið í þannig
notkun áður. Þetta hlýtur því að
vera í forgangi.“
Sjúkra- og meðferðardeild
Nýja byggingin mun innihalda
bæði sjúkra- og meðferðardeild.
Auk þess eiga að vera afplánunar-
rými fyrir 48 til 52 fanga sam-
kvæmt heimildum 24 stunda. Mar-
grét segir að um gjörbreytingu á
allri aðstöðu verði því um að ræða.
„Við erum mjög ánægð með þetta
og finnum auðvitað hvað þörfin er
mikil. Við erum að fá menn inn
með bæði mjög langa dóma sem
eiga líka við mjög alvarlega geð-
sjúkdóma að stríða. Það skiptir
okkur því mjög miklu máli að fá
bæði sjúkradeild og meðferðar-
deild. Meðferðardeildin mun gera
okkur kleift að vera með mjög öfl-
ugt meðferðarstarf og sinna því
með mun skipulegri hætti.“
Getur ekki tjáð sig núna
Gunnar Svavarsson, formaður
fjárlaganefndar, segist ekki geta
tjáð sig um það hvort fjármagn til
framkvæmdanna við Litla-Hraun
verði á nýjum fjárlögum á þessu
stigi. Hann telur drögin sem verið
er að leggja að nýrri byggingu þó
vera jákvætt skref í rétta átt. „Ég
fagna því að menn séu að skoða
stækkun og breytingar á aðbúnaði
á Litla-Hrauni. Ég hef verið tals-
maður þess í mörg ár að það eigi að
stækka fangelsið og hefði viljað sjá
aðbúnað fanga þar enn betri held-
ur en nú er. Ég held því að þetta sé
jákvætt skref.“ 24 stundir sögðu frá
því í síðustu viku að fangelsi lands-
ins hefðu verið yfirfull það sem af
er ári, að þungum dómum hefði
fjölgað mjög og að enn ætti eftir að
afgreiða alls 208 dóma.
Fangelsisbygging
verði sett í forgang
Margrét Frímannsdóttir vill fá fjármagn fyrir fangelsisbyggingu á næstu fjárlögum
Forstöðumaður
Margrét gerir sér
vonir um að fjár-
magn fáist til fram-
kvæmda á næstu
fjárlögum.
➤ Alls hafa 136 einstaklingarsetið í fangelsi að meðaltali á
hverjum degi það sem af er
ári.
➤ Fangelsisrými hérlendis erualls 137, þar af átta einangr-
unarrými.
➤ Þá hafa 148 manns verið boð-aðir til afplánunar til viðbótar
þessu og um 60 óskilorðs-
bundnir dómar til viðbótar
borist til fullnustu.
YFIRFULL FANGELSI
Um 65 mál eru á borði þjón-
ustumiðstöðvar vegna jarðskjálft-
anna sem urðu á Suðurlandi í lok
maí síðastliðins. Ólafur Örn Har-
aldsson verkefnisstjóri segist búast
við því að þeim muni fjölga eitt-
hvað en þó sé farið að fækka mál-
um sem koma inn á hans borð.
Umtalsvert tjón hefur komið í
ljós á Reykjum í Ölfusi hjá starfs-
stöð Landbúnaðarháskóla Íslands.
Þrýstingur á tveimur borholum
sem sjá skólanum fyrir heitu vatni
hefur minnkað svo mjög að bor-
holurnar eru ónothæfar. Guðríður
Helgadóttir, staðarhaldari á Reykj-
um, segir að um mikið tjón sé að
ræða. „Við erum með mikið undir
í gróðurhúsum hjá okkur en vegna
þessa er hætta á að sú ræktun geti
farið forgörðum. Við vonum hins
vegar að hægt verði að leysa úr
þessum málum sem fyrst.“ fr
Suðurlandsskjálftar draga enn dilk á eftir sér
Hitavatnsborholur
á Reykjum ónýtar
Starfsmannafélag SPRON hyggst
safna fé til kaupa á 5.000 skópör-
um handa börnum í Malaví. Átak-
ið var kynnt í gær í móttöku fyrir
biskupinn í Malaví. Í tilkynningu
segir að flest börn í Malaví gangi
skólaus, en með skóm fáist ágæt
forvörn gegn sýkingum.
Biskupinn færði félaginu þakkir
fyrir veitta styrki en SPRON og
Hjálparstarf kirkjunnar starfa
saman að verkefni til þriggja ára
þar sem markmiðið er að tryggja
aðgang fólks í Malaví að hreinu
vatni. aí
Söfnunarátak SPRON
Skór fyrir mala-
vísk skólabörn
Veiðitímabil á grágæs og heið-
argæs hefst á morgun. Blesgæs
er þó áfram alfriðuð. Helsingi
er friðaður til 25. september í
Skaftafellssýslum til að verja
varpstofninn en fuglinn verpir
eingöngu þar. bee
Gæsir í hættu
Skotveiðin hefst
Frumkvöðlaverðlaun Guðfinnu S.
Bjarnadóttur voru veitt í gær við
setningu Háskólans í Reykjavík.
Verðlaunin voru veitt fyrir bestu
viðskiptaáætlunina sem nefnist
Mídas fjármálaskóli ehf., en fyr-
irtækinu er ætlað að skipuleggja
og halda fjármálanámskeið fyrir
ungmenni á aldrinum 12-18 ára.
Hugmyndin er að fyrirtækið
hanni og þrói eigið kennsluefni
ásamt netleik sem byggður er á
viðfangsefnum sem tengjast efni
hvers námskeiðs. Netleikurinn er
sýndarheimur og á að kenna
ungu fólki að ráðstafa fjár-
munum á þann hátt að þeir
ávaxtist sem best og heildareignir
í lokin verði sem mestar. Á nám-
skeiðunum verða kennd helstu
atriði persónulegra fjármála,
hvað ber að varast og hvernig er
best að spara. bee
Unglingana í fjármálin
Fjármálaskóli
fær verðlaun