24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 28

24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 24stundir Eftir Sigurð Boga Sævarsson sigbogi@simnet.is „Að hafa góðar tengingar skiptir miklu máli í því embætti sem ég gegni. Það er heldur ekki nýtt að sóknarprestar komi að mik- ilvægum framfaramálum sinna byggðarlaga. Mér finnst því kær- komið að geta sinna þessu verk- efni. Góð fjarskipti eru mikilvægur hluti af samfélagi dagsins í dag, ekki síst til sveita,“ segir sr. Axel Árnason, sóknarprestur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Axel hefur mörg undanfarin ár jafnhliða prestskap starfrækt tölvu- og fjarskiptafyrirtækið Ábótann ehf. Fyrsta verkefni þess var hönnun og þróun á gagna- grunninum Kapellán, sem er sér- sniðinn fyrir presta, sem vilja halda utan um prestsverk sín, helgihald og sóknartal auk þjóðskrár. Í dag segir Axel að um þriðjungur presta landsins, sem þjóna 75 prósent þjóðarinnar, noti þetta tæki sem hafi verið í sífelldri notkun og þró- un undanfarin 15 ár í samræmi við óskir notenda. Endurvarp um allt Suðurland Á Landbúnaðarsýningunni á Hellu mun séra Axel kynna Wi- max-örbylgjutengingar, sem hafa fengið mjög góðar viðtökur að undanförnu og eru víða notaðar í heiminum. „Að dómi vísra manna er þetta næsta kynslóð þráðlausra hráhraðafjarskipta. Þetta er starf- rækt á tíðnisviðinu 3,5 Ghz sem er úthlutuð tíðni frá Póst- og fjar- skiptastofnun og þar með lokuð tíðni sem truflast ekki af annarri starfsemi. Burðargetan er mikil og stöðugleikinn hár og því ekki ósvipað ADSL-tengingunum sem nú eru mikið notaðar, sérstakalega í þéttbýlinu,“ segir Axel sem í heimaranni er með móðurstöð fyr- ir Wimax-kerfið. Þar nær hann tengingu við ljósleiðara Lands- virkjunar sem liggur með há- spennulínum frá Búrfelli. Úr ljósleiðaranum er umferð í Wimax-kerfið beint í endurvarps- stöðvar í uppsveitum Árnessýslu, Flóa og Landeyjum, á fjórum stöð- um alls. Þannig er orðið til þétt- riðið gagnaflutningskerfi sem skapar íbúum á Suðurlandi mikla möguleika og í raun allt annars konar sambönd en hefur verið á boðstólum áður. Fjarvinnsla og fjósið Hvergi sem á Suðurlandi er í sveitum jafn öflugt gagnaflutnings- kerfi. Afkastageta bakbeinis þess er óskert 155 -200 megabitar á sek. og með því ættu notendur að komast í samband hvar sem er,“ að sögn Axels. „Mörgum er mikilvægt að vera með trygga og öfluga tölvuteng- ingu heima og sömuleiðis færist stöðugt í vöxt að fólk stundi ein- hvers konar fjarvinnslu í sveit- unum. Þá er Wimax mjög góður kostur, enda fjölgar notendum jafnt og þétt eftir því sem fólk áttar sig á því hvað er verið að bjóða. Fyrir bændur sem stunda venjuleg- an búskap er sömuleiðis mikilvægt að vera með tölvutengingar, því í hátæknifjósum er hægt að fylgjast með öllu utan frá sé góður tölvu- búnaður til staðar. Satt að segja gerir tölvutæknin og öflugir gagnaflutningar sveitirnar margfalt byggilegri en ella væri,“ segir sr. Axel. Sr. Axel Árnason Hann starfrækir tölvufyrirtæki og segir ekki nýtt að prestar komi að ýmsum framfaramálum í sveitum landsins. Sóknarprestur hannar hátæknibúnað til notkunar í sveitum Tæknin gerir sveitir byggilegri ➤ Hannaði Kapellán, gagna-grunn fyrir presta. ➤ Wimax-örbylgjutengingar erunæsta kynslóð þráðlausra samskipta. ➤ Í hátæknifjósum er fylgstmeð öllu utan frá sé góður tölvubúnaður til staðar TÆKNINPrestur í Árnessýslu, Axel Árnason, starfrækir tölvu- og fjarskiptafyr- irtæki. Hann býður ör- bylgjutengingar sem tryggja hraða gagna- flutninga í dreifbýlinu. Fyrirtækið Sagamedica- Heilsujurtir ehf. verður með kynn- ingu á vörum sínum á landbún- aðarsýningunni á Hellu. Að sögn Þráins Þorvaldssonar, fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins, er til- gangur þess að þróa og framleiða hágæðaheilsuvörur og síðar nátt- úrulyf úr íslenskum lækn- ingajurtum. „Upphafsmaðurinn að fyrirtækinu var dr. Sigmundur Guðbjarnason prófessor en hann fór að rannsaka ætihvönnina og ís- lenskar lækningajurtir og það var upphafið að fyrirtækinu,“ segir hann. „Íslenskir bæir voru með ætihvannargarða fram eftir öldum, enda hjálpaði hún fólki varðandi ýmiss konar lungnavandamál og er því seld í dag til að fyrirbyggja kvef og auka kraft. Vörurnar sem við ætlum að kynna eru í fyrsta lagi Angelica, sem eykur kraft og fyr- irbyggir kvef, Saga Pro, sem meðal annars dregur úr tíðum þvaglátum á nóttunni, og svo Voxis-hálstöfl- urnar. Allt eru þetta afar vinsælar vörur hér á landi og við erum að vinna að því að koma þeim á markað erlendis.“ Sagamedica-heilsujurtir verða á kynningarbás með Þorvaldseyri, sem er samstarfsaðili þeirra. „Við ætlum að vera með sýnishorn af vörum okkar og frekari upplýs- ingar fyrir þá sem hafa áhuga,“ segir Þráinn að lokum. Sagamedica-Heilsujurtir ehf. kynnir starfsemi sína Náttúruleg heilsubót Íslensk ætihvönn Hefur mikinn lækningamátt. R. Sigmundsson ehf. er öflugt og sérhæft fyrirtæki í innflutningi, sölu og þjónustu á fjölbreyttum búnaði fyrir sjávarútveg, iðnað og verktaka og fyrirtækið verður því á landbúnaðarsýningunni. Enn- fremur býður R. Sigmundsson fjölbreytt úrval af frístundarvörum s.s. skemmtibátum og staðsetning- artækjum. Með sameiningu R. Sig- mundssonar, Vélasölunnar og Ra- diómiðunar árið 2006 undir nafni R. Sigmundson ehf. varð til eitt öflugasta fyrirtæki landsins í sölu og þjónustu á vél- og rafeindabún- aði fyrir sjávarútveg og iðnað. Styrkur R. Sigmundssonar ehf. liggur í rúmlega 68 ára gæfuríkri og traustri þjónustu við íslenskt at- vinnulíf. Á síðasta ári var öll starf- semi fyrirtækisins flutt í nýtt 3400 fermetra húsnæði í Klettagörðum 25, með stórglæsilegum sýning- arsal, ásamt fullkomnu rafeinda- og vélaverkstæði. Fyrir landbúnaðinn getur R. Sigmundsson ehf. meðal annars boðið Orlaco-eftirlitsmyndavélar og kerfi sem henta vel í gripahús, við mjaltaþjóna og fjárhús, Cummins- og Lister-rafstöðvar sem eru þekktar fyrir gæði og áreiðanleika enda vinsælar til sjáv- ar og sveita og dráttarvél- arafstöðvar frá Worms, sem hægt er að tengja við aflúrtak og beisli dáttarvélarinnar. Eins má þar finna mikið úrval af dælum til allra nota. Gúmmíkefladælur og hakkavélar frá Vogeslang fyrir lífrænan áburð, sláturhús, lífmassaframleiðslu og almenna dælingu fyrir bændur og verktaka. Dælurnar er hægt að fá rafdrifnar, með glussamótor eða til að tengja við aflúrtak og beisli dráttarvélar. Líklegast er R. Sig- mundsson þekktast fyrir sölu á Garmin GPS-staðsetning- artækjum, ómissandi tæki sem geta sparað smalamönnum sporin. Glæsilegur sýningarsalur í Klettagörðum Traust þjónusta í 68 ár Hvað ætlar þú að gera í dag? - kemur þér við

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.