24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 15

24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 15
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 15 Almar Örn Hilmarsson hefur aft- ur tekið við starfi forstjóra danska flugfélagsins Sterling. Al- mar steig úr forstjórastólnum fyrr á þessu ári en í millitíðinni gegndi Bandaríkjamaðurinn Reza Taleghani starfi forstjóra. Á vef danska viðskiptablaðsins Börsen er haft eftir fréttatilkynn- ingu að endurkoma Almars komi í kjölfar breytinga á eignarhaldi Sterling, en fjárfestirinn Pálmi Haraldsson situr nú einn að baki eignarhaldsfélaginu Northern Travel Holding, félaginu sem á Sterling. Í tilkynningu frá Sterling segir að Almar Örn Hilmarsson sé vel þekktur meðal starfsmanna, sam- starfsaðila og viðskiptavina Sterl- ing frá því að hann gegndi stöðu forstjóra frá sumrinu 2005 til mars 2008. Breytingin muni styrkja áframhaldandi starfsemi. Samhliða þessu muni Pálmi færa aukið fé inn í Sterling í tengslum við yfirtökuna. mbl.is Almar aftur forstjóri Sterling Skarpur samdráttur var á vöru- skiptahalla evrusvæðisins í júní. Nam hann 101 milljón evra, eða 12,2 milljörðum króna, sam- anborið við 3,9 milljarða evra halla í maí síðastliðnum. Greinendur áttu sumir hverjir von á jákvæðum vöruskiptajöfn- uði, en olíuverðhækkanir ýttu m.a. undir hallann. Þá dróst eft- irspurn frá Bandaríkjunum sam- an, en þau eru næststærsti út- flutningsmarkaður svæðisins. Evran hefur styrkst mikið að undanförnu á kostnað dollarans sem gerir varning á borð við þýskar bifreiðar töluvert dýrari fyrir bandaríska neytendur. bó Vöruskiptahalli umfram spár Skuldbindingar bresku versl- unarkeðjunnar Woolworths vegna eftirlauna starfsmanna voru verðlagðar á 48,2 milljónir punda í ársskýrslu fyrir árið 2007. Það jafngildir um 737 millj- ónum króna miðað við gengi krónunnar í gær. Baugur gerði tilboð í verslanir félagsins að líf- eyrisskuldbindingum undan- skildum. Stjórn Woolworths hafnaði til- boði Baugs, sem sagt var hlaupa á tugum milljóna punda, en mark- aðsverðmæti félagsins á föstudag- inn var um 100 milljónir punda eða um 15 milljarðar íslenskra króna. Þrátt fyrir að stjórnin hafi hafnað tilboði Baugs er ekki úti- lokað að samningar takist. hþ Samningar ekki útilokaðir „Eignaverð lækkaði að nafn- verði um 0,3 % í júlí samkvæmt eignaverðsvísitölu Kaupþings. Árslækkun eignaverðs er því 6,2% og mælist neikvæð aukning þriðja mánuðinn í röð. Raunbreyting eignaverðs í júlí var neikvæð sem nemur 1,2% en breyting raun- verðs hefur mælst neikvæð í öll- um mánuðum síðan í júlí á síð- asta ári.“ Þetta segir í hálf fimm fréttum, vefriti greiningardeildar Kaupþings. Eignaverðsvísitalan samanstendur af breytingum í verði hlutabréfa, skuldabréfa og fasteigna sem vegnar eru eftir hlutdeild í eignasöfnum heimil- anna. Segir í vefritinu að þróun eignaverðsvísitölunnar gefi því vísbendingu um almenna þróun á virði eigna heimila. Viðsnúningur að undanförnu Þá segir greiningardeild Kaup- þings að á síðustu árum hafi orð- ið mikil hækkun raunverðs eigna þar sem árshækkunin hafi numið allt að 30%. Viðsnúningur hafi hins vegar orðið á síðustu mán- uðum og mælist tólf mánaða raunbreyting eignaverðs nú nei- kvæð sem nemur 17,4%. Hækk- andi eignaverð hafi jafnan í för með sér svokölluð auðsáhrif, en neytendur telji sig ríkari er eignir hækki í verði og þeir auki því neyslu sína af þeim sökum. Þegar eignaverð lækki séu áhrifin á hinn veginn og samdráttar gæti í einkaneyslu almennings. Þróunin eignaverðsvísitölunnar varpi ljósi á samdrátt í einkaneyslu. gjg Eignaverðsvísitala Kaupþings lækkar Neikvæð breyting Samdráttur Þegar eigna- verð lækkar gætir sam- dráttar í einkaneyslu. 24stundir/Frikki MITT HLAUP, MINN TAKTUR, MINN EINKAÞJÁLFARI ÍMYNDAÐU ÞÉR ÞINN EIGIN EINKAÞJÁLFARA miCoach er sími með MP3-spilara, en umfram allt er þetta sími með þitt eigið æfingaprógramm. Er púlsinn of hár? Þá segir miCoach þér að hægja aðeins á þér. Ef þú slakar á hraðanum þá segir miCoach þér að auka hann. Hvort sem þú vilt hlaupa 5 eða 10 km, eða bara komast í gott form, þá mun miCoach hjálpa þér að ná markmiðum þínum. Það er ekki eftir neinu að bíða, settu þér markmið, hækkaðu í græjunum og hlauptu af stað! Nú er ekkert sem stoppar þig. • Mp3 spilari • Skrefamælir • Púlsmælir • Heilsubókhald á netinu Heildsöludreifing og þjónusta: Tæknivörur, Skútuvogi 12cFæst hjá Vodafone og Símanum. EINN TVEIR OG BYRJA 73 1,25 KAL KM ÁFRAM NÚ 145 2,5 KAL KM ÞETTA ER AÐ HAFAST 218 3,75 KAL KM H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -1 4 6 1

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.