24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 30

24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 24stundir Einingahús Þetta er teikning að húsinu sem Guðmundur og félagar hyggjast setja upp meðan á Landbúnaðarsýningunni stend- ur. Húsið verður til sölu fyrir áhugasama. Tölt er fjögurra spora gangteg- und íslenska hestsins sem lýsir sér þannig að alltaf er einn fótur sem nemur við jörðina. Knapinn situr rólegur í hnakknum og virðist líða áfram. Töltið getur verið þó nokk- uð hratt og kallast þá yfirferðartölt. Afbrigði tölts eru nokkur, brokktölt er þegar hesturinn spyrnir vinstra afturfæti, þá hægra framfæti, þá hægra afturfæti og síðan vinstra framfæti. Hreinatölt (fetgangstölt) er sömu spor og við fetgang, en hraðari („hlaup- fetgangur), hesturinn spyrnir vinstra afturfæti, þá vinstra fram- fæti, þá hægra afturfæti og loks hægra framfæti. Skeiðtölt er þegar hesturinn spyrnir vinstra afturfæti, svífur svo, þá hægra afturfæti, síð- an hægra framfæti og svífur. dista@24stundir.is Brokktölt, hreinatölt, skeiðtölt Tölt á sér nokkur afbrigði Tölt Fjögurra spora gangtegund. Á landbúnaðarsýningunni munu Geysisfélagar standa að glæsilegri tölt- og skeiðkeppni sem gaman verður að fylgjast með. Helstu töltmeistarar hvaðanæva af landinu munu mæta og sýna listir sínar og peningaverðlaun verða veitt þeim er fara með sigur af hólmi. „Ómissandi viðburður á sýningunni,“ segir Ómar Diðriks- son, formaður Geysis, og lofar miklu fjöri. „Á föstudegi og laug- ardegi verður keppt í tölti, á laug- ardeginum klukkan fjögur er keppt í skeiði og á sunnudag er gangteg- undasýning.“ dista@24stundir.is Geysisfélagar standa að sýningarhaldi Töltmeistarar frá landinu öllu sýna leikni sína Þorvaldur á Hryðju Þorvaldur Þorvaldsson skeiðaði á Hryðju upp á tíu í einkunn á landsmóti. Geysisfélagar Ísleifur Jónasson og Guð- mundur Björgvinsson Landbúnaðarsýningin að Hellu er haldin í tilefni af 100 ára afmæli Búnaðarsambands Suðurlands og verður hún ein stærsta sýning sinnar tegundar sem haldin hefur verið hérlendis um árabil. Sýningin verður því án vafa fjölbreytt og viðamikil þar sem sýnd verða tæki, vélar, búfé, íslenskt handverk auk ýmissar þjónustu og vöru sem tengist landbúnaðinum. Sýningin hefst 22. ágúst klukkan 14:00. Viðamikil sýning Landbúnaðarsýningin verður opin föstudag, laugardag og sunnudag en áherslurnar eru mismunandi eftir dögum. Á föstudeginum verð- ur lögð áhersla á landbúnaðinn sem fag og athygli sýnenda mun beinast að bændum og búaliði. Á laugardegi og sunnudegi verður áherslan lögð á að kynna landbún- aðinn og þau afleiddu störf sem hann skapar handa öllum neyt- endum íslenskra landbúnaðarvara. Bændur og búalið Eftir Hauk Harðarson haukurh@24stundir.is „Fyrirtækið varð til fyrir tveimur árum, þá tóku núverandi eigendur við umboðinu. Þá vantaði ein- hvern til að stjórna fyrirtækinu og ég var fenginn í það,“ segir Guð- mundur Helgason, framkvæmda- stjóri Modulhus ehf. Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi á ein- ingum í einingahús. Fljótleg í uppsetningu „Helstu kostir einingahúsa eru að þau eru tiltölulega ódýr og fljótleg í uppsetningu þegar farið er af stað. Þau hafa það fram yfir steypuna. Það er nú einstaklings- bundið hvort fólk vill búa í steyptu húsi eða timburhúsi en timburhúsið er miklu hlýlegri og timbur í sjálfu sér veitir betri ein- angrun en steypa, en allar einingar frá okkur koma fulleinangraðar,“ segir Guðmundur og bætir við að nokkrir hlutir greini Modulhus frá öðrum einingahúsafyrirtækj- um. „Við bjóðum upp á hagstætt verð á mjög góðri vöru. Þetta eru einingar sem eru vottaðar hér á landi. Auk þess bjóðum við ekki upp á heildarpakka heldur bjóð- um við fyrst og fremst upp á skrokkinn af húsinu. Síðan hefur viðskiptavinurinn alveg frjálsar hendur um það að velja allt annað bæði utan- og innanstokks, t.d. klæðningar, gólfefni og innrétt- ingar. Auk þess er afgreiðslutím- inn mjög stuttur.“ Japönsk vara í Svíþjóð EFyrirtækið sem framleiðir vör- urnar úti í Svíþjóð er japanskt en með sænsku starfsfólki. „Framan af voru þeir aðeins á Japansmark- aði, en fyrir nokkrum árum f́óru þeir líka að beina sjónum sínum að Evrópu. Íslendingar hafa tekið þessari vöru vel og viðskiptavinir okkar eru undantekningarlaust yfir sig hrifnir af húsunum,“ segir Guð- mundur. Á Landbúnaðarsýning- unni á Hellu ætlar Guðmundur að láta smiði setja upp hús frá fyrirtæk- inu með- an á sýn- ingunni stendur sem verð- ur svo til sölu. Teikning- ar að hús- inu má sjá á myndinni fyrir neðan. „Ég þarf að reyna að halda aftur af smiðunum svo að þeir klári ekki of fljótt. Fólk verður að fá að sjá þá að verki yfir helgina,“ segir Guð- mundur í léttum tón. Modulhus ehf. flytur inn einingahús frá japönsku fyrirtæki í Svíþjóð Ódýr og frekar fljótleg í uppsetningu ➤ Modulhus ehf. flytur inn ein-ingar í einingahús og allar einingar koma fulleinangr- aðar. ➤ Einingarnar eru fluttar inn fráSvíþjóð en fyrirtækið er jap- anskt. ➤ Framkvæmdastjóri Modulhuser Guðmundur Helgason. ➤ Fyrirtækið er staðsett áHvammstanga. MODULHUS EHF. Einingahús hafa um ára- bil verið vinsæl hér á landi. Modulhus ehf. er tiltölulega nýtt í þessum bransa hér á landi en fyr- irtækið flytur inn ein- ingar frá Svíþjóð. Fyr- irtækið er með aðsetur á Hvammstanga. Guðmundur Helgason Framkvæmdastjóri Modul- hus ehf. Hús frá Modulhus ehf. sett upp Þetta hús stendur á Egilsstöðum og er byggt úr einingum frá Modulhus. Ein- ingahús eru tiltöluleg ódýr og fljótleg í uppsetningu.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.