24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 33

24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 33
Sýningin Vatnsberi verður opn- uð í Ásmundarsafni næstkomandi föstudag, þann 22. ágúst, klukkan 17. Um er að ræða sýningu á tæp- lega sjötíu vatnslitamyndum eftir ellefu íslenska listamenn, og verð- ur verkunum stillt upp með sýn- ingu á verkum Ásmundar Sveins- sonar, Lögun línunnar, sem nú stendur yfir í safninu. Sýningar- stjóri er Aðalsteinn Ingólfsson. Í texta sem fylgir með sýningunni segir Aðalsteinn meðal annars: ,,Með reglulegu millibili hefur hópur sérsinna listamanna komið saman til sýninga á vatnslita- myndum. Samsetning þessa hóps er aldrei sú sama frá ári til árs, enda er markmiðið mikilvægara en hópeflið, nefnilega að halda á lofti merki vatnslitanna, sennilega elstu listgrein mannkyns að und- anskildu steinhöggi.“ Sýningin Vatnsberi opnuð í Ásmundarsafni á föstudag Ein elsta listgrein mannsins Vatnslitamynd Eftir Önnu Hallin. 24stundir ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 33 LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is menning Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Íslenska Hreyfiþróunarsamsteypan frumsýnir dansverkið DJ Hamingja á sviðslistahátíðinni ArtFart næst- komandi fimmtudag. Um er að ræða íburðarmesta verk hópsins til þessa og er það meðal annars styrkt af Reykjavíkurborg og Ungu fólki í Evrópu. Eins og nafnið gefur til kynna er sögusviðið partí. „Engu að síður fjallar það um einmanaleik- ann í öllum sínum myndum. Það skapast oft svo sérstök stemming í partíum, þar sem maður er staddur með öðru fólki en er samt alltaf eitt- hvað svo einn með sjálfum sér. Þetta sést oft vel í bænum á kvöldin og um helgar. Fólk er oft svo meðvitað um sjálft sig,“ segir Ásgerður Gunn- arsdóttir, einn fimm meðlima hóps- ins. „Við erum líka að varpa fram ákveðnum spurningum. Til dæmis varðandi sjálfstæðið. Flestir vilja vera sjálfstæðir en um leið í sam- bandi með öðrum. Spurningin er hvernig hægt er að ná jafnvægi þar á milli,“ bætir Melkorka Sigríður Magnúsdóttir við. Sjálfstætt leikhús Íslenska Hreyfiþróunarsam- steypan varð til sumarið 2005 og var þá einn af skapandi sumarhópum Hins hússins. Síðan þá hefur hóp- urinn unnið að margvíslegum verk- efnum og hlaut nýlega inngöngu inn í Sjálfstæðu leikhúsin. „Við er- um fimm stelpur og meðalaldur hópsins er 22 ár,“ segja Ásgerður og Melkorka. „Við erum allar útskrif- aðar úr Listdansskóla Íslands og tvær úr hópnum eru í dansnámi í Listaháskóla Íslands. Svo var ein að útskrifast úr danshöfundanámi í Hollandi, en ég er líka búin að vera í slíku námi þar í landi undanfarin tvö ár. Í haust ætla ég þó að söðla um og flytja til Belgíu þar sem ég ætla aftur í dansnám,“ segir Mel- korka. Ásgerður stundar hins vegar nám á námsbrautinni Fræði og framkvæmd við Leiklistardeild LHÍ. DJ Hamingja Sögusviðið er partý. Íslenska Hreyfiþróunarsamsteypan frumsýnir verkið DJ Hamingja Einmanaleikinn í öllum myndum Íburðarmesta sýning Ís- lensku Hreyfiþróunar- samsteypunnar fjallar um einmanaleikann í öllum sínum myndum. Engu að síður er sögusviðið gleð- skapur seint um kvöld. ➤ Meðlimir hópsins eru, aukMelkorku og Ásgerðar, Katrín Gunnarsdóttir, Vigdís Eva Guðmundsdóttir og Ragnheiður S. Bjarnason. ➤ Tónlistina samdi belgískilistamaðurinn Benjamin Do- usselaere. ➤ Verður sýnt í gamla nem-endaleikhúsinu við Sölvhóls- götu 21. ágúst klukkan 18 og 22. ágúst klukkan 20 og 23. ágúst klukkan 17. DJ HAMINGJA 24stundir/Kristinn Það er meira í Mogganum Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800 í dag Þriðjudagur 19. ágúst 2008  Karen Axelsdóttir er í brjálæðislega góðu formi. » Meira í Morgunblaðinu Tapsár  Sigurvegari úr þættinum So You Think You Can Dance? í fyrra kennir Íslendingum að dansa. » Meira í Morgunblaðinu Kanntu að dansa?  Fluttir verða rúmlega 500 þúsund rúmmetrar af grjóti og um 1.100 þúsund rúm- metrar af fyllingarefni. Þetta samsvarar því að fjall- ið Stóri-Dímon verði flutt í heilu lagi niður í Bakkafjöru. »Meira í Morgunblaðinu Landeyjahöfn  Samsýning listmálara á vatnslitamálverkum. » Meira í Morgunblaðinu Eldri og yngri

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.