24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 48

24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 48
24stundir ? Jóhanna af Örk var brennd af kirkj-unni fyrir að viðurkenna að hún heyrðiraddir í höfðinu á sér. Röddin í höfðiheimspekingsins Decartes fullvissaðihann um að hans eigin tilvera hlyti aðvera raunveruleg, eins lengi og hannheyrði endlaust röflið í sér. Er hægthugsa í sig vitleysuna? Frá því að ég byrjaði að muna eftir mér hefur alltaf einhver rödd inni í höfðinu á mér heimtað athygli frá augnablikinu. Þegar ég verð reiður á þessi rödd til að fara með heilu rökræð- urnar við þann sem mér finnst hafa gert á minn hluta, þó að viðkomandi sé víðs fjarri. Svo þegar ég loksins hitti mann- eskjuna, þá pirrast röddin alveg svaka- lega mikið yfir því að viðkomandi aðili skuli ekki fara eftir handritinu er var svo listalega spunnið af mínum eigin huga. Þetta veldur hugarangri og röddin í höfðinu afgreiðir málið með því að stimpla viðkomandi sem fífl og fávita. Eitt hugarangur breiðir svo úr sér og eykst, eins og krabbamein sem gerir sér ekki grein fyrir því að með tilvist sinni einni saman stefnir það hýsli sínum í hættu og þar með eigin tilveru. Þannig virkar hugur minn; ef ég fylgist ekki með honum tekur hann völdin og eitrar allt í kringum sig. Hljómar eins og vitfirring? Vissulega, en erum við ekki öll svona? Heyrum við ekki öll raddir, stanslaust? Þið eruð ekki hugur ykkar, hann er hluti af ykkur. Næst þegar leikritið hefst, finnið „off“-takkann, lítið í kringum ykkur og bara verið … í þögn. Inni í mér syngur vitleysingur Birgir Örn Steinarsson hugsar allt of mikið. YFIR STRIKIÐ Er rödd í höfðinu á þér? 24 LÍFIÐ Skrapp út, mynd Sólveigar Ans- pach, fékk Variety Piazza Grande- verðlaunin á Locarno- hátíðinni á laugardag. Skrapp út verðlaun- uð í Sviss »42 Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari hefur klárað barnaplötuna Sagan af Eyfa (bönnuð börnum) sem er ljót. Fremur grimmdarleg barnaplata »43 Það er mikið um að vera hjá Techno.is þessa dagana, sem flytur inn bæði Sander Klei- nenberg og Dj Lucca. Tímamótatörn hjá Techno.is »42 ● Myndrænt vín „Mér finnst það hafa mikið að segja hvaða mynd- ir eru á flöskunum þegar ég vel vín sem ég þekki ekki. Það var því spenn- andi að taka þátt í þessu verkefni,“ segir myndlist- arkonan Kristín Gunnlaugsdóttir. Klukkan 17 í dag verður vín- smökkun á Vínbarnum þar sem kynnt verða vín frá Sandhofer, en myndir Kristínar prýða flöskurnar. „Ekki spillti fyrir að ég þekki Hu- bert Sandhofer vel og gat því treyst á að vel yrði með verkin farið og ég yrði með í ráðum.“ ● Sér ekki eftir „Nei, það geri ég ekki, það er alveg á hreinu,“ segir Anna Krist- insdóttir, mann- réttindastjóri Reykjavík- urborgar, sem sagði sig úr Framsóknarflokknum síðastliðið haust. „Ég held að mín- um pólitísku afskiptum hafi lokið með úrsögn eftir 25 ár í Framsókn sem er líklega nógu langur tími. Ég hélt kannski að þetta gæti skilist sem svolítið vink um að flokkurinn þyrfti að breyta vinnubrögðum. En mér sýnist það vink ekki hafa haft nein áhrif, því miður,“ segir Anna Kristinsdóttir. ● Ástarvika á enda „Ástarvikan heppnaðist alveg frábærlega í alla staði og ekki skemmdi nú veðrið fyrir,“ seg- ir Soffía Vagns- dóttir, ástarviku- frömuður í Bolungarvík. Ástarvikan vakti athygli erlendis, en fjölþjóðlegur hópur á vegum Veraldarvina var staddur á svæð- inu og aðstoðaði við fram- kvæmdina. Aðspurð hvort vikan hafi borið árangur sagði Soffía: „Það kemur í ljós í kringum jólin. Við verðum bara að bíða og sjá.“ Ritstjórn Sími: 510 3700 ritstjorn@24stundir.is Auglýsingar Sími: 510 3700 auglysingar@24stundir.is Hvað ætlar þú að gera í dag? - kemur þér við www.itr.is sími 411 5000 Sundsumar! Nánari upplýsingar umafgreiðslutím a lauganna áwww.itr.is

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.