24 stundir - 19.08.2008, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 24stundir
Pervez Musharraf hefur tilkynnt að hann muni segja
af sér embætti forseta Pakistans. Musharraf á yfir höfði
sér ákæru til embættismissis í þingi landsins, en segir
að ákærurnar muni ekki standast skoðun. Forsetinn er
sakaður um að hafa brotið gegn stjórnarskrá landsins
og stórfelld afglöp í embætti.
Musharraf hefur verið einn helsti bandamaður
Bandaríkjanna í stríðinu gegn íslömskum öfgamönn-
um. Hann hefur þó einangrast á síðustu mánuðum
eftir að pólitískir andstæðingar komust til valda í þing-
og sveitarstjórnarkosningum í febrúar síðastliðnum.
Mánuðirnir fyrir kosningarnar höfðu einkennst af
pólitísku þrátefli, tíðum ofbeldisverkum og morðinu á
fyrruverandi forsætisráðherranum, Benazir Bhutto.
Starfaði í góðri trú
Musharraf tilkynnti afsögn sína í klukkustundar-
löngu sjónvarpsávarpi til þjóðar sinnar. Sagðist hann
hafa tekið ákvörðunina með þjóðarheill í huga og eftir
að hafa ráðfært sig við helstu ráðgjafa sína og banda-
menn. Forsetinn, sem tók við embætti árið 1999 eftir
valdarán hersins, lagði áherslu á að hann hefði ávallt
haft hagsmuni Pakistans í fyrirrúmi og starfað í góðri
trú sem forseti landsins. atlii@24stundir.is
Sviptingar í pakistönskum stjórnmálum
Musharraf hyggst segja af sér
NordicPhotos/AFP
Afsögn Musharraf hefur einangrast á síðustu mánuðum.
Ungt fólk í Skandínavíu á erfitt
með að skilja hvað annað. Bertel
Haarder, menntamálaráðherra
Dana, telur að botninum sé náð
þegar ungmenni í Norð-
urlandaráði æskunnar tali saman
á ensku. Haarder hefur hótað að
skrúfa fyrir fjármagnið til hins
norræna samstarfs ungmenna ef
þau tali ekki saman á norrænum
tungumálum.
Lisbeth Sejer Gøtzsche, forseti
Norðurlandaráðs æskunnar, seg-
ist vel skilja afstöðu ráðherrans,
en bendir jafnframt á að hann
geti sjálfum sér um kennt þar
sem kennslu í öðrum norð-
urlandamálum sé ekki vel sinnt í
dönskum skólum. mbl.is
Ungmenni skilja
ekki hvert annað
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
Um 170 manns voru fluttir á brott
úr Miklagljúfri í Bandaríkjunum á
sunnudaginn eftir að stífla brast
vegna mikils úrhellis síðustu daga.
Úrkoma á svæðinu hefur mælst
um 20 sentimetrar síðustu þrjá
daga og leiddi það til flóða svo að
fjölda göngustíga, smærri göngu-
brúa og trjáa skolaði í burtu.
Afskekkt indjánaþorp
Meðal þeirra sem var bjargað
voru íbúar Supai, afskekkts ind-
jánaþorps í gljúfrinu, og ferða-
menn sem höfðu haft næturstað
nærri þorpinu.
Fólkið var flutt á brott með að-
stoð þyrlu upp á bílaplan þar sem
því var komið fyrir í rútum og ekið
í neyðarbúðir Rauða krossins í
Palm Springs. Leit var haldið áfram
í gær, þó að þegar væri búið að gera
grein fyrir ferðum flestra.
Talsmaður Miklagljúfurs-þjóð-
garðsins segir að vatn hafi flætt yfir
í eitt hliðargljúfrið við Redlands-
stífluna þar sem Supai er. Einungis
er hægt að nálgast þorpið, þar sem
um 400 Havasupai-indíánar búa,
fótgangandi, á hestbaki, eða þá
með þyrlu.
Fastir í gljúfrinu
Cedar Hemmings, einn þeirra
sem var bjargað, segir að göngu-
hópur sinn hafi verið fastur í
gljúfrinu, án gúmmíbáta sinna, og
ekki komist leiðar sinnar vegna
flóðanna. „Við höfðum engar
birgðir, engan mat og mjög lítið
vatn. Við misstum allt saman.“
Bjarga varð sextán manns sem
höfðu festst á klettasyllu í Colo-
rado-ánni, sem rennur um Mikla-
gljúfur, eftir að vatnsflaumurinn
hreif báta þeirra með sér.
Úrkomu spáð áfram
Íbúar Supai segja göngustíga og
fjölda brúa hafa eyðilagst í flóð-
unum. Annars hafi þeir sloppið við
eignatjón og ekki er vitað um að
neinn hafi slasast, þar sem bærinn
sjálfur er á lítilli hæð og slapp því
að mestu við flóðavatnið.
Flóðaviðvörun mun áfram vera í
gildi þar sem enn frekari úrkomu
er spáð næstu daga.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
flóð valda usla í Supai, en árið 2001
léstust tveggja ára drengur og for-
eldrar hans í flóðum nærri bænum.
Bjargað úr Miklagljúfri
Um 170 manns voru fluttir úr afskekktu indjánaþorpi í Miklagljúfri eftir að stífla brast
vegna mikils úrhellis síðustu daga Göngustígum, smærri brúm og trjám skolaði í burtu
Gljúfrið mikla
Úrhellisrigning
hefur verið í
gljúfrinu síð-
ustu daga.
➤ Miklagljúfur er árgljúfur,myndað af Colarado-ánni og
að mestu í Miklagljúfurs-
þjóðgarðinum í Arizona-ríki
og Nevada.
➤ Miklagljúfur er 446 kílómetralangt, 6,4 til 29 kílómetra
breitt og allt að 1.600 metra
djúpt.
➤ Áætlað er að um 5 milljónirferðamanna heimsæki gljúfr-
ið á hverju ári.
MIKLAGLJÚFUR
Rússar íhuga
að búa Eystra-
saltsflota sinn
kjarnorku-
vopnum til að
bregðast við
nýju eld-
flaugakerfi
Bandaríkjamanna í Póllandi.
Eystrasaltsfloti Rússa hefur ver-
ið laus við kjarnorkuvopn allt
frá lokum kalda stríðsins.
Breska blaðið Times hefur eftir
heimildarmönnum innan Rúss-
landshers að kafbátar, orr-
ustuþotur og orrustuskip
Rússa, sem staðsett eru í Kal-
iningrad, verði framvegis vopn-
uð eldflaugum með kjarnaodd-
um. aí
Kjarnorkuvopn
í Eystrasalti?
STUTT
● Fíkniefni Lögreglan í Búlgaríu
hefur lagt hald á rúm tvö tonn
af kannabisefnum í kjölfar lög-
regluaðgerða í nokkrum þorp-
um í suðurhluta landsins.
● Demókratar Barack Obama
mun væntanlega kynna í vik-
unni hver verður varafor-
setaefni demókrata í forseta-
kosningunum í vetur.
Landsþing demókrata hefst í
Denver í Colarado í vikunni.
Elizabeth Fritzl hefur afþakk-
að boð austurrískra yfirvalda
um að veita henni og börn-
unum nýjar persónuupplýs-
ingar til að auðvelda þeim að
hefja nýtt líf. Segist hún ætla
að láta nægja að fá nýtt eft-
irnafn.
Faðir Elizabethar, Josef Fritzl,
sem hélt henni nauðugri í
kjallaraholu í Amstetten í 24
ár og átti með henni sjö börn,
er enn í varðhaldi og hefjast
réttarhöld í desember. Að
þeim loknum mun Elizabeth
flytjast með börnunum á
leynilegan stað, um 100 kíló-
metra frá Amstetten. aí
Framtíð Fritzl-barnanna
Nýtt eftirnafn
Rússnesk stjórnvöld segjast
nú hafa hafið brottflutning
hersins frá Georgíu. Fréttir
bárust þó í gær af því að rúss-
neskar hersveitir væru enn
staðsettar í grennd við höf-
uðborgina Tibilisi.
Dmitri Medvedev Rússlands-
forseti hafði áður heitið því að
standa við vopnahléssam-
komulag ríkjanna sem fól
meðal annars í sér tafarlausan
brottflutning, en Rússar segj-
ast hafa rétt til að vera með
nokkra hermenn og frið-
argæsluliða að störfum um-
hverfis Suður-Ossetíu.
Frakklandsstjórn hefur hótað
því að boða til sérstaks leið-
togafundar ESB-ríkja, flytji
Rússar ekki hersveitir sínar úr
Georgíu án tafar. aí
Rússar enn í Georgíu
Óljósar fréttir