24 stundir - 19.08.2008, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 24stundir
554 7212 / 865 5890
Trommuskóli Gunnars Waage
Innritun stendur yfir fyrir byrjendur og lengra komna
Undirbúningsdeild
Diplomanám á háskólastigi
t ro m m u s k o l i n n . i s
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Ég hef þurft að halda einbeitingunni og hef æft gríðarlega vel. Í
raun hef ég ekki getað gert neitt annað en að ferðast á milli staða
og æfa einn eða með liðinu. Ég þarf að vera í toppformi ef kallið kemur
Sigur Rós og hipphopptónlist
jöfnum höndum. Bjarni er í þeirri
einkennilegu stöðu að vera fyrir
utan leikmannahóp íslenska
landsliðsins í Peking en hann hef-
ur verið til taks ef eitthvað kæmi
upp á í leikmannahópnum. Á
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
í Peking
seth@24stundir.is
Bjarni leikur með St. Raphael í
Frakklandi en hann er 28 ára
gamall sálfræðingur sem hlustar á
morgun, miðvikudag, er síðasti
dagurinn þar sem liðin geta gert
breytingar á leikmannahópnum
og er allt eins líklegt að Bjarni fari
frá Peking án þess að hafa leikið
eina einustu mínútu.
Tek öllu með jafnaðargeði
„Ég er með í öllu sem liðið gerir
fyrir utan það að ég má ekki sofa í
ólympíuþorpinu. Á hverju kvöldi
þarf ég að fara á SAS-hótelið og
gista þar. Og strax að morgni er ég
mættur í ólympíuþorpið og tek
þátt í næstum því öllu sem liðið
gerir. Ég tek þessu öllu saman
með jafnaðargeði og ég hef ekki
hugmynd um hvort ég fæ að vera
áfram á hótelinu þegar fresturinn
rennur út á miðvikudag,“ sagði
Bjarni en hann er sálfræðingur að
mennt og er því með faglegu hlið-
ina á hreinu þegar kemur því að
„tækla“ kraftmikinn húmor
landsliðshópsins þar sem enginn
fær grið.
Má ekki fara inn í byggingar á
sama stað og hinir
„Þetta gæti eflaust verið kallað
einelti af einhverjum sérfræðing-
um en ég fæ ekki að gera alveg allt
sem liðið fær að gera. Ég má
borða með þeim í matartjaldinu
en ég þarf að vera með matarmiða
en ekki þeir. Og ég þarf að nota
aðrar inn- og útgönguleiðir en
þeir í öllum byggingum. Mér er
alls ekki strítt og ég hef bara feng-
ið stuðning frá félögum mínum,“
sagði Bjarni og á sama tíma kem-
ur Guðjón Valur Sigurðsson
hlaupandi af blaðamannafundi og
faðmar Bjarna að sér og segir:
„Þessi maður á heiður skilinn.
Hann ferðast mest af okkur, hann
sefur minnst, en Bjarni sér um að
setja standardinn á æfingum okk-
ar á hærra stig. Hann tekur alltaf
mest á af okkur á æfingum og gef-
ur tóninn. Bjarni er stuðnings-
maður Íslands númer eitt,“ sagði
Guðjón og hélt áleiðis í búnings-
klefann eftir 32:32-jafnteflið gegn
Egyptum aðfaranótt mánudags.
Eins og ég sé rosalega frægur
Bjarni gistir á hóteli eins og áð-
ur segir en hann telur að eini
kosturinn við hótegistinguna sé
að hann fái einkabílstjóra til og
frá æfingum. „Þetta er næstum
því eins og ég sé alveg rosalega
frægur. Ég væri miklu frekar til í
að vera með í hópnum en ég verð
að líta á kostina við þetta. Reynd-
ar skil ég ekki a fhverju þeir leyfa
ekki bara 15 leikmenn í ólympíu-
þorpinu í stað 14 eins og regl-
urnar eru í dag. Það er þvílíkt ves-
en fyrir ólympíuhópana að vera
að ferðast með okkur frá a til b á
hverjum einasta degi. Algjört rugl.
Ég hef þurft að halda einbeiting-
unni og hef æft gríðarlega vel. Í
raun hef ég ekki getað gert neitt
annað en að ferðast á milli staða
og æfa einn eða með liðinu. Ég
þarf að vera í toppformi ef kallið
kemur,“ sagði Bjarni Fritzson og
einn af 400.000 sjálfboðaliðum
ÓL bregður sér í eftirlitshlutverk-
ið sem henni var úthlutað.
„Því miður þá má ekki taka
nein viðtöl hér,“ sagði stúlkan og
bendir okkur á að fara þrjá metra
í burtu þangað sem viðtalið má
fara fram. Það er nefnilega allt í
röð og reglu hér í Kína.
Afslappaður í stúkunni
Hlutskipti Bjarna Fritzsonar á
ÓL í Peking er að vera til taks
ef einhver meiðist í íslenska
liðinu.
„Stuðnings-
maður Íslands
númer eitt“
Handknattleiksmaðurinn og sálfræðingurinn Bjarni Fritzson er 15. maðurinn á ÓL í Peking Er með
einkabílstjóra og gerir lítið annað en að ferðast og æfa Má ekki gista í ólympíuþorpinu og býr á hóteli
„ÉG þoli ekki að horfa á handbolta ef ég er ekki að
spila sjálfur. Þetta hefur því verið ansi erfitt á köflum
og sérstaklega þegar við erum að jafna á lokasekúnd-
unum í tveimur leikjum í röð. Þegar maður er vanur
því að spila handbolta þá er það gríðarlega erfitt að
sitja og geta ekki haft áhrif,“ sagði handknattleiks-
maðurinn Bjarni Fritszon við 24 stundir í Peking en
hann er hinn „leyndardómsfulli“ 15. leikmaður Ís-
lands sem fær ekki að vera með.
➤ Bjarni er 15. maðurinn í ís-lenska hópnum en fjórtán
leikmenn eru í hópum lið-
anna á ÓL í Peking.
➤ Hann getur aðeins komið inníhópinn ef einhver meiðist, og
í síðasta lagi á morgun.
➤ Bjarni er 28 ára gamall horna-maður, menntaður sálfræð-
ingur, og leikur sem atvinnu-
maður með St Raphael í
Frakklandi
BJARNI FRITZSON
24stundir/Brynjar Gauti