24 stundir - 19.08.2008, Page 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 24stundir
Tveir siðir eru allsráðandi í
trúarbrögðum Japana. Það er ann-
ars vegar shinto, sem er sérjap-
anskur siður, og hins vegar búd-
dasiður sem kemur hingað frá
Kína. Og á flestum heimilum er að
finna eitt altari að hætti beggja
siða.“
Að lokum segist hann aðspurð-
ur að hann muni helst sakna alls
þess úrvals sem lífið í stórborginni
hefur upp á að bjóða.
„Það er svo ótrúlega mikið í
boði. Ef ég vildi þá gæti ég farið á
sinfóníutónleika á hverju einasta
kvöldi. Eða út að borða á perúskan
stað. Það eru svo ótrúlega margir
möguleikar og það er einhvern
veginn þannig að hvað sem þú vilt
gera þá stendur það til boða. Og ég
held ég eigi eftir að sakna þess.“
Ungur íslenskur guðfræðinemi eyðir sumrinu í Tókýó
Það er einhvern
veginn allt í boði
Grétar Halldór Gunn-
arsson guðfræðinemi
hefur eytt meirihluta
sumarsins í höfuðborg
Japans, Tókýó. Honum
hefur þótt einkar áhuga-
vert að kynna sér siði
Japana en jafnframt hef-
ur hann notið hins mikla
úrvals afþreyingar í borg-
inni.
Á strætum stórborgar
Grétar sker sig nokkuð úr
á götum Tókýó.
➤ Um 32 milljónir manna búa íog við Tókýó.
➤ Um 84 prósent Japana aðhyll-ast búddisma og shinto en
einungis 0,7 prósent eru
kristin.
➤ Um 1,6 prósent íbúa í Japaneru aðfluttir útlendingar.
TÓKÝÓ
Eftir Hauk Johnson
haukurj@24stundir.is
„Það er mjög gaman að fá tækifæri
til að koma hingað. Ég bjóst svo
sem aldrei við því að ég myndi fara
til Tókýó. En einhvern veginn gerð-
ist þetta og ég er búinn að vera hér
í tæpar fimm vikur núna,“ segir
Grétar Halldór Gunnarsson guð-
fræðinemi. Hann er staddur í Tók-
ýó í heimsókn hjá íslenskri unn-
ustu sinni sem starfar tímabundið
hjá íslenska sendiráðinu þar í borg.
„Dagleg samskipti við Japana
eru yfirhöfuð mjög áhugaverð. Það
er rosalega sterk hefð fyrir kurteisi
hér. Og mér hefur gengið ágætlega
að endurgjalda þá kurteisi, að því
leyti sem ég þekki siðvenjurnar.“
Mikil Vesturlandavæðing
Sem guðfræðinema hefur Grét-
ari þótt athyglisvert að kynna sér
siði Japana en innan við eitt pró-
sent þeirra er kristið.
„Mér finnst ótrúlega skemmti-
legt að skoða japanska menningu
og siðvenjur. Og það kom mér
mjög á óvart að Japan er undir
miklum vestrænum áhrifum að
nær öllu leyti. Fólk er klætt að
hætti Vesturlandabúa og öll menn-
ing er eins og hún er í hverri annari
stórborg. Hvort sem það er í Lond-
on eða í Bandaríkjunum. En þegar
þú skyggnist undir yfirborðið
sérðu að þau líta á sjálf sig og sið-
venjur sínar með allt öðrum hætti
en við. Og mér finnst það svolítið
merkilegt. Að sjá hvernig Vestur-
landavæðingin hefur ekki gengið
alla leið.
Þorleifur Arnarsson leikari þarf
ekki að hugsa sig tvisvar um þegar
hann er spurður hvaða borg sé í
uppáhaldi hjá honum. Það mun
vera Berlín en þar hefur hann ein-
mitt búið um margra ára skeið.
„Það sem er heillandi við Berlín
er andinn í borginni og krafturinn
sem liggur í henni. Og það byggist
að hluta til á þessari mögnuðu
sögu og hvernig borgin var tví-
skipt. En í kjölfarið á falli múrsins
varð hún að suðupotti og vegna
lágs húsnæðisverðs flykktist til
hennar fólk; listamenn, arkitektar
og hönnuðir, og það varð til of-
boðslega sterk grasrót í borginni.
Þarna er ofsalega margt ungt
fólk og maður upplifir Berlín eins
og borg tækifæranna þar sem allt er
hægt og allt má.“
Einnar evru kaffihús
Þegar Þorleifur vill gera sér glað-
an dag byrjar hann á því að fara út
að borða í Mitte-hverfinu en færir
sig síðan á kaffihúsin í Prenzlauer
Berg. Hann á sér líka uppáhalds-
staði til þess að sýna gestum sínum.
„Þegar ég fæ gesti þá fer ég yf-
irleitt með þá á kaffihús sem heitir
Weinerei, í Prenzlauer Berg, en þar
kostar allt eina evru. Svo förum við
líka oft og grillum í einum af görð-
um borgarinnar eða bara leggjumst
á bakka Spree-ár.“
En tekur þú undir þá fullyrðingu
margra að Berlín sé gerólík restinni
af Þýskalandi?
„Við skulum orða það þannig að
þegar kaþólskir foreldrar vinar
míns frá Suður-Þýskalandi komu í
heimsókn þá sögðu þau að þeim
liði meira eins og þau væru í út-
löndum þegar þau voru í Berlín
heldur en þegar þau voru í Frakk-
landi.“
haukurj@24stundir.is
Þorleifur Arnarsson leikari segir frá uppáhaldsborginni sinni
Berlín er borg tækifæranna
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is
Suðurlandsbraut 50
(Bláu húsunum Fákafeni)
www.gala.is • S:588 9925
Opið 11-18 og 11-16 lau.
Útsala
út vikuna.
70% afsláttur
Sérfræðingar
í saltfiski
466 1016
- Útvatnaður saltfiskur án beina til suðu
- Sérútv. saltfiskur án beina til steikingar
- Ýsa, þorskur, gellur, kinnfiskur, rækjur
- Einnig fjölbreytt úrval tilbúinna rétta
www.ektafiskur.is
pöntunarsími:
frumkvöðlafyrirtæki ársins - viðurkenning frá matur úr héraði - localfood
Jafnréttisviður-
kenning 2008
Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum
til jafnréttisviðurkenningar fyrir
árið 2008.
Viðurkenningu geta hlotið fyrirtæki,
stofnanir, sveitarfélög, hópar eða
félagasamtök, sem á einn eða annan
hátt hafa skarað fram úr eða markað
spor á sviði jafnréttismála.
Tilgangurinn er að verðlauna fyrir
vel unnin störf í þágu jafnréttis
kvenna og karla og hvetja um leið
til frekari dáða.
Tilnefningum skal skilað eigi síðar
en 14. september n.k. til
Jafnréttisráðs, Borgum, 600
Akureyri, í síma 460 6200, bréfsíma
460 6201 eða í tölvupósti
jafnretti@jafnretti.is
Í sérblaði 24 stunda um skóla og námskeið
sem út kemur fimmtudaginn, 21. ágúst,
er meðal annars rætt um gildi mennt-
unar, spjallað við fólk sem hefur lagt að
baki sérhæft nám sem nýtist í starfi, ýmis
góð ráð varðandi það að byrja í skólanum
og kíkt á skólabækurnar. Fjölbreytt og
skemmtilegt skólablað fyrir allan aldur.
Skóla & námskeið
Hafðu samband og fáðu gott pláss fyrir auglýsinguna þína
Auglýsingasímar:
Katrín Rúnarsd. 510 3727
kata@24stundir.is
Kolbrún Dröfn 510 3722
kolla@24stundir.is
Sé
rb
la
ð
fylgir 24 stundum fimmtudaginn 21. ágúst
um
ferðalög