Eintak

Útgáva

Eintak - 27.01.1994, Síða 21

Eintak - 27.01.1994, Síða 21
það að vera í vinnunni, helst þegar tók að líða á seinni nokkrir frábærir söngvarar sem einnig koma við sögu. Sæbjörn Jónsson stjórn- ar þessu og svo eru gamlir skarfar eins og ég og Árni Elvar og Björn R. Einarsson, en annars eru þetta allt ungir strákar. Það er svo mikið um góða hljóðfæraleikara nú til dags, ég er viss um að ísland á hlutfallslega fleiri góða músíkanta en nokkur önnur þjóð. En það sem mig langar til að gera áður en ég hætti þessu, eða áður en röddin fer að gefa sig, er að taka upp plötu með stórri hljómsveit, og syngja þá ekki ósvipuð lög og Milljóriamæringarnir eru að spila, og kannski láta semja eitthvað íyrir mig sérstaklega.“ \ Wflér getur nú ekki annað en litist vel á þessa hugmynd. Þegar ég hugsa út í það er orðið ansi langt síðan Raggi gaf út plötu, að því leyti er hann ef til vill of afslappaður, en þegar ég hef orð á því, vill hann nú ekki al- veg taka fyrir möguleikann á plötuupptöku einhvern tíma í nálægri framtíð. „Svo er það Sumargleðin! Við erum að fara af stað aftur. Við vorum búnir að velta því mikið fyrir okkur hvort við ættum að setja hana í gang aftur, og svo var það ákveðið með Ólafi Laufdal að láta verða af því á Hótel Islandi. Miðaverð verður mjög skikkanlegt þannig að allir ættu að sjá sér fært að koma. En þarna verður öll gleðin eins og hún var hér áður, það er að segja ég, Ómar, Bessi, Maggi Óla, Þorgeir og Hemmi. Svo vill svo vel til að Sigga Bein- teins...“ Nú Iæðist að mér ljótur grunur. Á nú að fara að dusta rykið af trommuleikaranum litla! Læða honum inn í prógrammið svo lítið beri á, þar eð bæði Sigga og Raggi kunna lagið? „...já, Sigga Beinteins verður á Hótel íslandi nteð eigin hljómsveit, og úr því hún er á staðnum ætlar hún að hjálpa okkur svo- h'tið. Við vorum hér áður með Þuríði Sig- urðardóttur og síðan söng Diddú með okkur síðasta árið sem Sumargleðin starfaði. Ég held ég geti lofað þér mjög góðri skemmtun.“ Sumargleðin og Sigga Beinteins. Þetta stefnir í eitthvað mega, eins og kunningi minn á til að segja þegar mikið liggur við. Sami kunningi myndi líklega hrópa upp yf- ir sig: Það hálfa væri nóg!, en ég held reynd- ar að það eigi ekki við þarna. Ragnar talar urn fyrirhugaða Sumargleði af einlægum áhuga og ég þykist finna á honum að hann hlakki mikið til. Enda hefur hann oftar en einu sinni í spjalli okkar drepið á hve ljúft honum er að vinna með vinum sínum og hann talar um samstarfsmenn sína í gegn- um árin með mikilli hlýju. En Ragnar hefur ekki setið auðum hönd- um undanfarið, þrátt fyrir að örlaganorn- irnar hafi verið að stríða honurn svolítið. Hann hefur að vísu setið við vinnuna, ekki staðið eins og oftast áður, bæði á útvarps- stöðinni FM þar sem hann spilar sína uppáhaldsmúsík og ræðir við kollega og vini úr skemmtibransanum, í þættinum Tímavélin á sunnudagseftirmiðdögum, og á Naustinu um helgar við að skemmta mat- argestum. Ég verð nú að segja að mér finnst Fly me to the tnoon, og gera það svona vinsælt, sýnir bara að þessi gamla músík er sígild. Það fær ekkert grandað þessari tón- list, ekki nema kannski vondir flytjendur. En Milljónamæringarnir eru helvíti góðir, hugmyndaríkir og original og eiga heiður skilinn fyrir að endurvekja þessi görnlu lög.“ Eg segi Ragnari frá Jazzhljómsveit Konráðs Bé þar sem Bogomil steig sín fyrstu spor sem krúner, með þrettán hljóðfæraleikara á bak við sig, og spyr hann í framhaldi af því hvort hann gæti ekki hugsað sér að gera eitthvað slíkt. „Ég er að syngja einmitt núna með Stór- sveit Reykjavíkur og við verðum með tón- leika í Ráðhúsinu í lok febrúar. Ég hvet þig endilega til að koma þangað, það er virki- lega góð hljómsveit, líklega átján manns og það svolítið smart, að þessi vinsæli söngvari sem svo lengi hefur hrærst í ærslafengnum ballheiminum, skuli núna sitja við píanóið í Nauströkkrinu og spila og syngja það sem honum dettur í hug hverju sinni. En með það í huga sem stendur til hjá Ragga, eru kvöldstundirnar í Naustinu væntanlega aðeins stundir milli stríða, eins og Jón úr Vör myndi orða það. Ég sé ekki betur en að þegar hann sleppir hækjunum muni hann teygja sig í átt að míkrófónin- um og ganga óstuddur upp á sviðið. Nema hvað að hann er auðvitað studdur af vinum sínum. Bragi Ólafsson er Ijóðskúld sem hefur áhuga á bóklstri og djassi. LAUGAVEGI 49 Okkar vinsæia útsala á íþróttavörm er hafin. Meiri háttar úrval af ýmiss konar íþróttavörm á alla fjölskylduna. Allt nýjar og nýlegar vörur á frábæru verð. Hér eru örfá sýnishorn: Galli Renton Tvöfaldur galli með bómullarfóðri. Blár, nr. XS-XXL. Verð 2.390,- (áður 6.950,-) Smash alhliða innanhússkór. Nr. 31-46. Verð 2.290,- PUMA hlaupaskór. Svartir. Nr.42- 43-44-45. Verð 1.990,- Brooks, körfuboltaskór með mjúkpúða í hæl. Verð 5.990,- (áður 7.490,-) Puma uppháir skór Nr. 40-47. Verð 1.990,- (áður 3.490,-) Skíða- og kuldagallar Nr. 120-170. Verð 3.990,- (áður 5.990,-) ANNAÐ T. Töskur mikið úrval Stuttbuxur frá 290 Polo bolir - stuttermabolir - fótboltatreyjur 990 Ungbarnaskór - barnaskór Bakpokar Bulls - Lakers 1.990 íþróttagallar frá 1.990 Körfuboltaskór Nike - Reebok Bómullarfatnaður: Buxur og hettupeysur o.fl. o.fl. ATH! 10% afsláttur af öllum öðrum vörum verslunarinnar Við rúllum boltanum til þín. Nú er tækifærið til þess að gera góð kaup. Póstsendum SPORTVÖRUVERSLUNIN SPARTA Laugavegi 49-101 Reykjavik • síml 12024 -f- FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1994 21

x

Eintak

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.