Eintak

Tölublað

Eintak - 27.01.1994, Blaðsíða 40

Eintak - 27.01.1994, Blaðsíða 40
Eftir allt sem Halldór Blöndal hefur gert fyrir islenskan landbúnað finnt mér að það eigi að jarða hann i þjóðargraf- reítnum á Þingvöllum. lika. Og það strax. Sá titringur sem skinka og kjúkling- alæri valda innan ríkisstjórnarinnar ætlar seint aö hætta. Langt fram á aðfaranótt laugardagsins sátu valdir sjálfstæðismenn á fundi heima hjá Davíð Oddssyni á Lynghaganum og funduöu hvernig bregðast ætti við dómi Hæstaréttar og þvermóðsku krata. Davíð hringdi síðan reglulega heim til Jóns Baldvins Hannibalssonar á Vestur- götunni þar sem hann sat einn. Kratar hafa ekki sömu áhyggjur af þessu máli. Tíminn og GATT-samningurinn vinnur með þeim á meðan sjálfstæðismemn virðast hafa gert það að sáluhjálparatriði að skinka verði ekki flutt inn... rátt fyrir prófkjör hafa sjálfstæðis- menn áhyggjur af kosningunum í vor. Sú hugmynd hefur komið fram að bjóða Albert Gudmundssyni heiðursæti á iistanum. Sérframboð hans yrði til að gera vonir sjálfstæðismanna um að halda meirihlutanum að engu. Albert er hins vegar metorðagjarn og gæti fallið fyrir boðinu um heiðurssætið... Eftiiiitsátak skattyfirvalda skilaði 500 milljónum króna Um 500 miljjóna króna skattsvik í skjóli húsfélaga Skattsvik tíðkast í skjóli þremur af hverjum fjórum húsfélögum. Sérstakt eftirlitsátak skattyfir- valda á öllu landinu á síðasta ári skilaði ríkissjóði 500 milljónum króna í auknum skatttekjum. Eftir- litið náði til um 1.400 fyrirtækja og við það störfuðu að jafnaði 35 skatt- eftirlitsmenn. Að sögn Ragnars M. Gunnarssonar forstöðumanns eftirlitsskrifstofu ríkisskattstjóra hefði örugglega mátt ná meiri ár- angri ef fleiri eftirlitsmenn hefðu unnið að verkefninu. Auk þessa gerði skatteftirlitið sérstaka könnun á bókhaldi 15 húsfélaga með tilliti til launamiðag- erðar vegna ársins 1992. Sú könnun leiðir í ljós að allar líkur eru á að þau rúmlega 4.000 húsfélög sem starfandi eru í landinu gefi ekki upp tekjur og hlunnindi til for- svarsmanna sinna svo nemur millj- örðum króna á ári hverju. f könn- uninni kom í ljós að nánast heyrði til undantekninga að greiðslur og hlunnindi til stjórnarmanna, gjald- kera eða húsvarða væru gefnar upp til skatts á launamiða. Þær 500 milljónir króna sem að framan er getið eru undanskot frá virðisaukaskatti, vantalinn tekju- skattur og vantalinn ökutækja- styrkur. Skipting milli þessara / E g h e f þ a ð f y r i r s a 11.,, Albert Guðmundsson er að reyna að sjóða saman lista fyrir borgar- stjórnarkosningarnar i vor. Hann vill ekki lenda í sömu vandræð- unum og þegar hann sat uppi með eintóma minniháttar spá- menn á framboðslistum Borgara- flokksins. Þess vegna hringdi hann i Ellert B. Schram, ritstjóra á DV, og bauð honum annað sæti á listanum. Ellert þakkaði gott boð en benti Albert á augljósa vankanta: „Alli minn, ég er sjálfstæðismaður, ég er flokksbundinn í Sjálfstæðis- flokknum og ég ætla mér að kjósa hann i vor.“ Albert lét sér hvergi bregða og svaraði að bragði: „Ellert minn, það kemur þessu máli ekkert við hvern þú ætiar að kjósa." Lalli Jones þriggja skatta er þannig að undan- skot frá virðisaukaskatti námu 356 milljónum króna, vantalinn tekju- skattur nam 61 milljón króna og vantalinn ökutækjastyrkur nam 89 milljónum króna. Ragnar segir að þessar tölur verði að taka með þeim fyrirvara að ekki liggur fyrir niðurstaða í kæru- málum þeim sem upp komu við auknar álögur á nokkurn fjölda fyr- irtækja en þeim málum var vísað til yfirskattanefndar. Meðal þeirra mála sem skatteft- irlitið hafði afskipti af og eru hluti fyrrgreindra 500 milljóna króna má nefna óuppgefin laun, afskrifuð lán til forráðamanna fyrirtækja, sala á bifreiðum og hlutabréfum til starfs- manna á undirverði og mismunur á innskatt og útskatt vsk. sem ekki samræmist gildandi lögum og regl- um. Skattabókhald húsfélaga í molum Á síðustu mánuðum liðins árs kannaði eftirlitsskrifstofa rikis- skattstjóra meðal annars bókhald 15 húsfélaga með tilliti til launamiðag- erðar vegna ársins 1992. Við þá at- hugun kom í Ijós áð nánast heyrði til undantekninga að gr'eiðslur og hlunnindi til stjórnarmanna, gjald- kera eða húsvarða væru gefnar upp til skatts á launamiða. Bráðab- irgðaniðurstaða þessarar könnunar er sú að þessi 15 húsfélög hafi vanrækt að gefa upp á launamiða greiðslur að fjárhæð rúmlega 20 milljónir króna vegna ársins 1992. Ragnar segir að það sé nánast regla, að ef menn vita að launagreiðslur til þeirra komi ekki fram á laun- amiðum setji þeir þær ekki heldur á skattframtal sitt. Meðal þeirra mála sem skatteft- irlitið hafði afskipti af hjá húsfélög- unum má nefna launagreiðslur til gjaldkera hjá stóru húsfélagi í borg- inni. Viðkomandi gjaldkeri þáði 100.000 króna mánaðarlaun hjá félaginu sem hvergi voru gefin upp til skatts. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni voru 4.161 húsfélag á skrá í september á síðasta ári. Stöðugt bætist við þennan lista og má áætla að fjöldinn nú sé um 4.250. Ef niðurstaða úr úttekt skatt- eftirlitsins er yfirfærð á þennan fjölda má áætla að vantaldar greiðslur til stjórnarmanna, gjald- kera eða húsvarða í þessum félög- um nemi um 4 milljörðum króna. Miðað við staðgreiðsluhlutfall af launum til skatts, eins og það er í dag, má reikna með að tekjutap rík- issjóðs nemi rúmum 1,5 milljarði króna. Ragnar M. Gunnarsson segir að úttekt skatteftirlitsins á húsfélög- unum hafi í fyrstu beinst að stærri félögunum á höfúðborgarsvæðinu og því beri að fara varlega í að yf- irfæra ástandið yfir á heildina. Hins vegar megi reikna með að ef það sé reglan í stærri félögunum að gefa ekki upp laun eða hlunnindi for- svarsmanna þeirra gildi slíkt hið sama einnig um smærri félögin þar sem um minni upphæðir sé að ræða. Þetta verði kannað í þeirri at- hugun sem skatteftirlitið fram- kvæmir á launamiðaútgáfunni í ár. „Það liggur alla vega Ijóst fyrir að ríkissjóður hefur tapað verulegum skatttekjum miðað við hvernig ást- andið virðist vera á þessu sviði,“ segir Ragnar. Átakið hófst í árslok 1992 Eftirlitsátak það sem hér um ræðir hófst á síðustu mánuðum ársins 1992 og náði yfir allt árið í fyrra. Að sögn Ragnars er átakið hluti af þeim breytingum sem eru að verða á skatteftirliti hérlendis og felast einkum í því að flytja eftirlitið í vaxandi mæli til skattstofanna sjálfra um land allt. „Með þeim mannskap sem við höfðum yfir að ráða í þessu eftirlit- sátaki komumst við ekki yfir nema brot af heildinni og það er öruggt að ef fleiri hefðu tekið þátt í þessari vinnu værum við að tala um mun hærri upphæð en 500 milljónir í auknar skatttekjur fyrir ríkissjóð," segir Ragnar. Á þessu ári mun eftirlitsátakið halda áfram en auk þess mun sé- rstök áhersla verða lögð á að kanna útgáfu á launamiðum en eftirlitið á síðasta ári sýndi að þar er víða pott- ur brotinn. Fyrirtæki vanrækja í sumum tilfellum uppgjöf á greiðslum til verktaka sem hjá þeim vinna í lengri eða skemmri tíma. Nokkuð er einnig um að ekki sé gerð grein fyrir fríðindum og hlunnindum ýmiss konar svo sem bifreiðahlunnindum, húsnæðis- hlunnindum, fæðishlunnindum og öðrum hiunnindum á launamiða. „Verkefni okkar í eftirlitinu eru nánast óþrjótandi og þvi verðum við að raða þeim upp í for- gangsröð", segir Ragnar. „Með þessum hætti reynum við að gæta sanngirnis- og jafnræðissjón- armiða.“0 Fréttir 6 Stjórar blankra lífeyrissjóða læra á erlend verðbréf aðeins nokkrum dögum eftir svarta skýrslu Verslunarráðs 9 Tollstjórinn og gjaldheimtan sameinuð 9 Halldór Blöndal leyfir útlent kjöt ofan í hunda eri ekki menn 12 Slegist um fegurðardraum ungra stúlkna Allt niður í fjögurra ára börn /_ Módelskólum Greinar 14 Karlímyndin Guðmundur Andri Thorsson skrifar um vandamál karla með ímynd sína 16-17 Neðanjarðarkúltúr í Reykjavík Hringar í augabrúnum, geirvört- um og kynfærum 22 Veröldin versnar stöðugt Gunnar Smárí Egilsson skrífar um versnandi blöð og daprari heim 25 Aðfangadagur á Hrauninu Hallgrímur Helgason fer í fylgd með Bubba Morthens, KK, Ein- ari Kára og fleiri listamönnum að heimsækja fangana á Litla Hrauni um jól 28 Ég og gæludýrið mitt Nokkrir stoltir gæludýraeigendur útskýra ást sína á kvikindunum 30 „Þetta er hið stóra“ Jón Proppé skrifar um för Matt- híasar Jochumssonar á heims- sýninguna i Chicago árið 1893 Viðtöl 4 Falleg, kynþokkafull og frábær kokkur Indverska prinsessan Leoncie 20 Alltaf í útláni Bragi Úlafsson ræðir við Ragga Bjarna, sem lenti í þreföldum veikindum og slysum en reis aft- ur upp raulandi sem fyrr Fólk 33 Popparar sem eru svo töff að þeir geta varla talað 34 Maggi Legó 35 Þorsteinn J. um áfengi, trúmál og kynlíf 36 Hártíska sumarsins frá Elsu í Salon Veh íslensk endurtryqginq Hagnaðurinn 1992 skilaði sér ekki til ríkissjóðs Hagnaður íslenskrar endur- tryggingar af rekstri ársins 1992 skilaði sér ekki til ríkissjóðs. Sem kunnugt er af frétt EINTAKS í síðustu viku var 40 prósenta hlut- ur ríkissjóðs í fyrirtækinu seldur tryggingarfélögunum í árslok 1992 með fyrirvara um samþykki Al- þingis sem fékkst í mars á síðasta ári. Hagnaður ríkissjóðs af árinu 1992 hefði numið 64 milljónum króna. Ríkisendurskoðun hefur ák- veðið að rannsaka þessa sölu á hlut ríkissjóðs í íslenskri endurtrygg- ingu sem framkvæmd var af eink- avæðingarnefnd forsætisráðherra og var eitt fyrsta verkefni nefndar- innar. Sú rannsókn mun verða hluti af úttekt Ríkisendurskoðunar á fleiri sölum einkavæðingar- nefndar. í EINTAKI var sagt að hluti af rannsókn Ríkisend- urskoðunar myndi beinast að því hvort hagnaður ríkissjóðs af árinu 1992 hefði skilað sér en nú er ljóst að slíkt gerðist ekki og ríkissjóður missti því af fyrrgreindum tekjum. Hagnaður af rekstri fyrirtækisins nam samtals 164 milljónum króna árið 1992 en til samanburðar má geta að kaupverð tryggingarfélag- anna á hlut ríkissjóðs nam 164 milljónum króna. O 37 Hver er Hafdís Jónsdóttir? 39 Eru Bubbi, Magnús Ver eða ívar Hauksson tilbúnir að mæta Hjalta Úrsus í hringn- um? KRITIK KARLAFRÆÐARINN * * * MOTORHEAD ' * * * SPK >F INGALÓ § PET SHOP BOYS * * „Aldrei hlegiðjafn- mikið í bíó. “ JÚLIUS kemp um mrs. DOUBTFIRE

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.