Eintak - 10.03.1994, Qupperneq 20
JÓHANNA SlGURÐARDÓTTIR
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA
Heilög Jóhanna malar hina ráð-
herrana nú sem endranær. Hún
hækkar meira að segja einkunn
sína úr 7,1 í 7,4. Þegar skipting-
in milli flokka er skoðuð má vart
greina íhvaða flokki Jóhanna
er. Þannig gefa fleiri Kvenna-
listakonur og fleiri Alþýðu-
bandalagsmenn Jóhönnu mjög
háa einkunn en kratar.
Halldór Blöndal
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA
Halldór hefur bætt stöðuna sfna
mikið á undanförnum tveimur
árum. Hann varþá í áttunda
sæti en er nú kominn íþað
þriðja. Hann er ekki lengur óvin-
sælastur ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins heldur sá næst vin-
sælasti. Hann sækir fylgi sitt
nokkuð jafnt til allra flokka og
það er einna helst að krötunum
sé illa við hann.
Guðmundur Árni
Stefánsson
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
Fylgismenn allra flokka hafa al-
mennt lítið álit á Guðmundi.
Hann fær flest núll allra ráð-
herra og sjaldnast háar ein-
kunnir. Aðeins 15 prósent krata
töldu hann eiga skilið að fá átta
eða meira í einkunn en nánast
enginn úr öðrum flokkum. Guð-
mundi hefur tekist að slá út met
Sighvats frá því fyrir tveimur ár-
um og fá enn lægri einkunn.
ÓLAFUR G. ElNARSSON
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
Álit fólks á Ólafi G. hefur hrunið.
Hann var áður þriðji hæsti ráð-
herrann og næst hæstur sjálf-
stæðismanna. Nú er hann
lægstur sjálfstæðisráðherra og
deilir öðru neðsta sætinu með
Jóni Baldvini Hannibalssyni.
Einhverra hluta vegna eru kratar
hrifnari af Ólafi en samflokks-
menn hans í Sjálfstæðisflokkn-
um.
Össur Skarphéðinsson
UMHVERFISRÁÐHERRA
Össur fellur á þessu fyrsta prófi
sínu sem ráðherra þótt hann fái
ekki jafn hlálega útreið og félagi
hans, Guðmundur Árni. Össur
fær 4,9 í meðaleinkunn en for-
veri hans, Eiður Guðnason, rétt
náði prófinu, fékk 5,1.
kunn. Það er ekki hægt að greina
mun á afstöðunni til Friðriks milli
þessara flokka. Það er hins vegar
ljóst að kratar eru nokkuð ánægðir
með hann. Tæpur þriðjungur krata
gefur honum háa einkunn en að-
eins ío prósent mjög lága.
Friðrik er vís með að safna til sín
atkvæðum frá hinum óákveðnu.
Næstum fjórðungur þeirra sem
ekki höfðu gert upp við sig hvað
þeir ætla að kjósa gáfu Friðriki
mjög háa einkunn en aðeins 13 pró-
sent mjög lága.
Sighvatur
Bjórgvinsson
5,3
Sighvatur Björgvinsson getur
tekið niðurstöðum þessarar könn-
unar fagnandi. Hann fær nú
fimmtu bestu einkunn ráðherranna
eða 5,3. Fyrir tveimur árum fékk
hann aðeins 3,7 í meðaleinkunn og
var lang lægstur ráðherranna.
Fyrir tveimur árum gaf rétt tæp-
ur helmingur Sighvati þrjá eða
minna í einkunn. Nú fær hann slíka
einkunn frá tæpum fjórðungi. Fyrir
tveimur árum gaf aðeins 15 prósent
þátttakenda Sighvati átta eða hærrí
einkunn. Nú gefur rétt tæpur fjórð-
ungur honum svo háa einkunn.
Það er því sama hvernig á það er Iit-
ið. Sighvatur er í góðum bata enda
hefur einkunn hans hækkað um
1,6.
Sighvatur fær að sjálfsögðu bestu
útkomuna meðal krata. 56 prósent
þeirra gefa honum mjög háa ein-
kunn og aðeins 7 prósent mjög
lága. Sjálfstæðismenn eru lika
hrifnir af Sighvati og gefur þriðj-
ungur þeirra honum háar einkunn-
ir og aðeins 10 prósent mjög lága.
Framsóknarmenn eru aðeins
minna hrifnir af Sighvati en
Kvennalistakonur og Alþýðu-
bandalagsmenn síst.
Meðal hinna óákveðnu gefur
tæpur fimmtungur Sighvati háa
einkunn og sömuleiðis tæpur
fimmtungur lága einkunn.
Aðeins einn samflokksmanna
Sighvats fá hærri einkunn en hann;
sjálf Jóhanna Sigurðardóttir. Hinir
þrír fá lægri einkunnir og falla í
raun allir á prófmu.
Þorsteinn PáissonÓyl
Álit fólks á Þorsteini Pálssyni
hefur ekkert breyst undanfarin tvö
ár. Nú fær hann 6,1 í meðaleinkunn
og er næst hæstur ráðherranna.
Fyrir tveimur árum fékk hann 6,0
og var næst hæstur ráðherranna.
Og þegar skoðað er'hvernig ein-
kunnir Þorsteins skiptast kemur í
Oftast hærri
einkunn en 8
264 Jóhanna Sigurðardóttir
146 Þorsteinn Pálsson
112 Sighvatur Björgvinsson
109 Halldór Blöndal
107 Friðrik Sophusson
106 Davíð Oddsson
68 Jón Baldvin
Hannibalsson
53 Össur Skarphéðinsson
29 Ólafur G. Einarsson
28 Guðmundur Árni
Stefánsson
ljós að þar er allt í jafnvægi. Fyrir
tveimur árum létu 11 prósent þátt-
takenda hann fá þrjá eða minna í
einkunn. Hlutfallið er það sama í
dag. Fyrir tyeimur árum létu 28
prósent þátttakenda hann fá átta
eða meira í einkunn. Hlutfallið er
það sama í dag.
Það sem er einkennandi fyrir
einkunnir Þorsteins er lítill stuðn-
ingur meðal sjálfstæðismanna. Að-
eins 44 prósent þeirra gefa honum
mjög háa einkunn. Það er aðeins
rétt rúmlega það sem hann fékk frá
Kvennalistanum en 34 prósent
þeirra gáfu honum mjög háar ein-
kunnir. Það er ekki hægt að greina
mikinn mun á afstöðu annarrra
flokka til Þorsteins. Um fjórðungur
stuðningsmanna þeirra gefur hon-
um mjög háa einkunn. Það er helst
að Alþýðubandalagsmönnum sé
illa við Þorstein en 18 prósent þeirra
gáfu honum mjög lága einkunn.
Þorsteinn er sá ráðherra sjálf-
stæðismanna sem kemur best út úr
þessari könnun. Hinir íjórir fá allir
lægri einkunn en hann, þar með
talinn maðurinn sem felldi hann úr
formannsembættinu.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir er í
sérflokki meðal ráðherranna, nú
sem endranær. Eftir síðustu könn-
un var henni gefið nafnið heilög Jó-
hanna og sannar nú að hún á það
skilið. Hún er langt hæst ráðherr-
anna og fær 7,4 í meðaleinkunn
sem er hærri einkunn en síðast, en
þá fékk hún 7,1.
Litlar breytingar hafa orðið á því
hvernig einkunnir Jóhönnu dreif-
ast. Þó hefur þeim fjölgað lítillega
sem vilja gefa henni mjög lága ein-
kunn. Þeir eru nú 6 prósent í stað 3
prósent þátttakenda. Á móti fær
hún nú mjög háa einkunn frá 52
prósent þátttakenda en fékk síðast
mjög háa einkunn frá 47 prósent.
Jóhanna nýtur stuðnings fólks úr
öllum flokkum. Enginn krati gaf
henni lága einkunn en fylgismenn
annarra flokka sem það gerðu voru
mjög fáir. Háu einkunnirnar koma
hins vegar alls staðar frá. Hæst var
hlutfallið meðal Kvennalistakvenna
en 66 prósent þeirra gáfu Jóhönnu
mjög háa einkunn, enda fékk Jó-
hanna hærri meðaleinkunn frá
stuðningsfólki Kvennalistans en
krötum eða 8,1 á móti 8,0. Þeir sem
voru verstir við Jóhönnu voru
framsóknarmenn og sjálfstæðis-
menn en hún fékk 7,2 í meðalein-
kunn frá þeim.
Það lýsir vel í hve miklum sér-
flokki Jóhanna er að hún hífir upp
meðaleinkunn krataráðherranna úr
4,5Í5’°' c A
Halldór Blöndal 5*®
Hér kemur annar hástökkvari;
Halldór Blöndal. Hann fær nú 5,6 í
meðaleinkunn en fékk 4,8 í könn-
uninni fyrir tveimur árum. Þeim
sem gefa honum mjög lágar ein-
kunnir hefur fækkað mikið og þeir
sem gefa honum rr^jög háar ein-
kunnir fjölgar lítillega.
Það sem er merkilegast við ein-
kunnir Halldórs er að hann fær
betri útkomu meðal framsoknar-
manna en sinna eigin flokksmanna.
Meðaleinkunn hans úr framsókn er
6,6 en sjálfstæðismenn gefa honum
6,2. Alþýðuflokksmenn eru ekki
eins hrifnir af Halldóri og gefa hon-
um lægstu einkunn af fylgismönn-
um einstakra flokka.
Það eru líka fleiri framsóknar-
menn sem gefa Halldóri mjög háar
einkunnir, eða 37 prósent stuðn-
ingsmanna flokksins. Aðeins 28
prósent sjálfstæðismanna telja
hann hins vegar eiga svo góðar ein-
kunnir skilið. Þriðjungur krata vill
gefa Halldóri þrjá eða minna í ein-
kunn og er það miklum mun hærra
hlutfall en meðal stuðningsmanna
annarra flokka.
Halldór Blöndal fær nú bronsið í
þessu vinsældarvali. Það er mikil
breyting síðan síðast þegar hann
lenti í áttunda sæti. Hann og Sig-
hvatur Björgvinsson eru því há-
stökkvarar þessarar könnunar.
Guðmundur Arni 5 r
Stefánsson Jv
Það er sama hvernig á niðurstöð-
ur þessarar könnunar er litið, þær
eru mikil ótíðindi fýrir Guðmund
Árna Stefánsson. Hann fær lang
lægstu einkunn ráðherranna og
lægri en þá sem Sighvatur Björg-
vinsson fékk fyrir tveimur árum
þegar hann var heilbrigðisráðherra
og fúx í sambærilegu ráðherraprófi.
Þá fékk Sighvatur3,7 en Guðmund-
ur slær það met út.
Það fær enginn ráðherra jafn
mörg núll og Guðmundur og hann
deilir botnssætinu með Ólafi G.
Einarssyni á listanum yfir hæstu
einkunnir. Það er nánast öllum jafn
illa við Guðmund og störf hans í
ráðuneytinu. Helmingur stjórnar-
andstæðinganna gefa honum mjög
lágar einkunnir, þrjá eða minna.
Hann fær svo sjaldan háar ein-
kunnir frá öðrum en krötum að
það mælist varla. Þeir kratar sem
vilja gefa honum átta eða meira eru
þó elcki fleiri en 15 prósent.
Kvennalistakonum er verst við
Guðmund og gefa honum 2,8 í
meðaleinkunn. Þar næst koma Al-
þýðubandalagsmenn, þá framsókn-
armenn, síðan sjálfstæðismenn og
loks kratar, sem gefa þessum ráð-
herra sínum 5,4 i meðaleinkunn.
Guðmundur á heldur ekki upp á
pallborðið hjá þeim sem hafa ekki
gert upp hug sinn gagnvart flokk-
unum. Rétt tæpur helmingur þeirra
vill ekki gefa honum meira en þrjá
og aðeins 5 prósent telja að hann
eigi skilið að fá átta eða meira fyrir
frammistöðuna.
Það segir sitthvað um óvinsældir
Guðmundar að ef kratar losnuðu
við hann úr ráðherraliði sínu
rnyndi meðaleinkunn þeirra hækka
úr 5,0 í 5,4.
Óiafur G.
Einarsson
4,i
Þessi könnun er heldur ekki góð
Oftast lægri
einkunn en 3
231 Guðmundur Árni
Stefánsson
197 Jón Baldvin
Hannibalsson
169 Ólafur G. Einarsson
117 Davíð Oddsson
114 Sighvatur Björgvinsson
111 Össur Skarphéðinsson
92 Friðrik Sophusson
92 Halldór Blöndal
57 Þorsteinn Pálsson
31 Jóhanna Sigurðardóttir
tíðindi fyrir Ólaf G. Einarsson.
Fyrir tveimur árum var hann þriðji
hæsti ráðherrann og númer tvö af
sjálfstæðismönnum. Þá fékk hann
5,3 í meðaléinkunn. Nú fær hann
aðeins 4,1 í meðaleinkunn og deilir
næst neðsta sætinu með Jóni Bald-
vini Hannibalssyni. Hann er kng
neðstur ráðherra Sjálfstæðisflokks-
ins.
Ólafur virðist ekki njóta mikils
stuðnings í eigin flokki. Sjálfstæðis-
menn gefa honum 5,3 i meðalein-
kunn. Einhverra hluta vegna telja
kratar hann eiga betra skilið og gefa
honum 5,8 í meðaleinkunn.
Það sem hefur gerst á þessum
tveimur árum er að þeir sem áður
töldu að Ólafur ætti skilið háa ein-
kunn fýrir störf sín hafa yfirgefið
hann. Þá gáfu næstum 30 prósent
honum átta eða hærri einkunn. Nú
gera það aðeins 6 prósent. Á sama
tíma hefur þeim fjölgað sem telja
að Ólafur eigi lága einkunn skilið,
úr 24 prósentum í 34 prósent.
Eitthvað í störfum Ólafs virðist
fara sérstaklega í taugar Alþýðu-
bandalagsmanna. Þeir gefa honum
aðeins 2,5 í meðaleinkunn og eng-
inn þeirra gefur honum hærra en
sjö.
Ólafur er heldur ekki ofarlega á
lista þeirra óákveðnu. Á meðan
þriðjungur þeirra gefur honum
þrjá eða minna vill aðeins 1 prósent
að hann fái átta eða meira.
Ólafur hefur því hrunið í áliti hjá
fólki, jafnt í eigin flokki og hjá
stjórnarandstöðunni.
Ossur A A
Skarphéðinsson 'tJj
össur Skarphéðinsson fellur á
fýrsta prófi sínu sem ráðherra, en
naumlega þó. Hann fær 4,9. Forveri
hans í starfi, Eiður Guðnason,
náði ívið betri útkomu, eða 5,1.
Aðeins fjórðungur krata telur að
Össur eigi skilið að fá átta eða
meira í einkunn. Hann nýtur því
ekki mikils stuðnings sinna flokks-
manna. Né annarra, því hann fær
tiltölulega lítið af háum einkunn-
um. Á móti kemur að hann fær
ekki mikið af mjög lágum einkunn-
um heldur.
Þetta sést ágætlega í afstöðu
hinna gömlu félaga Össurar, Al-
þýðubandalagsmanna. Aðeins einn
af þeim Iætur Össur fá tíu í einkunn
en sá næsti lét hann fá sjö. And-
staða þeirra við össur er hins vegar
ekki ýkja mikil. Aðeins fjórðungur
þeirra gefur honum þrjá eða lægri
einkunn. O
Hvemig skiptust
einkunnir ein-
stakrn fíokka?
Svona gáfu fylgjendur ein-
stakra stjórnmálaflokka ráð-
herrunum einkunnir..
6)2
Sjáifstæðisfiokkur
Sjálfstæðismenn gefa ráðherr-
um ríkisstjórnarinnar lítið eitt
lakari einkunn en kratar. Það
munar þó ekki miklu. Meðalein-
kunn sjálfstæðismanna til ráð-
herranna er 6,2.
Sjálfstæðismenn eru for-
mannshollir og setja Davíð
Oddsson í fýrsta sæti. Heilög
Jóhanna Sigurðardóttir kem-
ur þó fast á hæla hans. Síðan
kemur gamli formaðurinn, Þor-
steinn Pálsson, og varafor-
maðurinn, Friðrik Sophusson,
aðeins sjónarmun þar á eftir.
Það er athyglisvert við ein-
kunnir sjálfstæðismanna að
krataráðherrarnir skjóta sér á
milli þeirra eigin flokksmanna.
Þannig nýtur Sighvatur Björg-
vinsson meira trausts en þeir
Halldór Blöndal og Ólafur G.
Einarsson og Jón Baldvin
Hannibalsson kemst fyrir ofan
Ólaf G. Jón Baldvin fær þó ívið
lægri einkunn hjá sjálfstæðis-
mönnum en Davíð Oddsson
fékk hjá krötum.
Guðmundur Árni Stefáns-
son fær lága einkunn hjá sjálf-
stæðismönnum sem og öðrum
og er eini ráðherrann sem þeir
vilja fella á prófinu.
Einkunnir sjálfstæðis-
manna skiptust þannig:
7,7 Davíð Oddsson
7,2 Jóhanna Sigurðardóttir
7.1 Þorsteinn Pálsson
7,0 Friðrik Sophusson
6.4 Sighvatur Björgvinsson
6.2 Halldór Blöndal
5.5 Jón Baldvin Hannibalsson
5.3 Ólafúr G. Einarsson
5.3 Össur Skarphéðinsson
4,2 Guðmundur Árni
Stefánsson a a
Alþýðubandalagið 1
Alþýðubandalagsmenn eru
grimmastir allra og gefa ráðherr-
um ríkisstjórnarinnar lægstu
meðaleinkunn eða 4,4. Saman-
lagt fellur ríkisstjórnin á prófinu.
Það eru aðeins þrír ráðherrar
sem Alþýðubandalagsmenn fella
ekki. Það eru óþekku ráðherr-
arnir Jóhanna Sigurðardóttir
og Þorsteinn Pálsson og síðan
landbúnaðarráðherrann Hall-
dór Blöndal. Allir aðrir fá fall-
einkunn.
Verst er Alþýðubandalags-
mönnum við Ólaf G. Einars-
son og má án efa rekja það til
Hrafnsmálsins. Guðmundur
Árni Stefánsson getur því
huggað sig við að Alþýðubanda-
lagsmönnum er verr við ein-
hvern annan en hann. Það er þó
ekki mikil huggun því Alþýðu-
bandalagsmenn gefa honum
einna lægstu einkunn allra
flokka. Jón Baldvin Hanni-
balsson er heldur ekki í uppá-
haldi hjá allaböllum og þeir gefa
Davíð Oddssyni lægri einkunn
en fylgjendur annarra flokka.
Ef til vill vekur það forvitni
einhverra að sá gamli Alþýðu-
bandalagsmaður, Össur Skarp-
héðinsson, fær lægri einkunn
hjá sínum gömlu félögum en
hann fær frá stuðningsmönnum
annarra flokka.
Einkunnir Alþýðubanda-
lagsins skiptust þannig:
7,7 Jóhanna Sigurðardóttir
5.5 Þorsteinn Pálsson
5.1 Halldór Blöndal
4.6 Sighvatur Björgvinsson
4,5 Össur Skarphéðinsson
4.4 Friðrik Sophusson
3.7 Davíð Oddsson
3.1 Jón Baldvin Hannibalsson
2,9 GuðmundurÁrni
Stefánsson
2.5 Ólafur G. Einarsson
20
FIMMTUDAGUR 10. MARS 1994