Eintak

Tölublað

Eintak - 10.03.1994, Blaðsíða 36

Eintak - 10.03.1994, Blaðsíða 36
Big Chill lyrir þá sem þaö vilja. Dönskukennarar segja hana góöa. Ys og þys út af engu Much Ado About Not- hing ★★ Ágælt ieikrit en miklu verrimynden við var aö búast Addams fjölskyldugildin Addams Family Values ★★ Meira lyrir börnin en lyrri myndin. Peir sem sáu Addams í Kananum verða íyrir vonbrigðum. LAUGARÁSBÍÓ Dómsdagur Judgment Night ★ Hópurlrið- elskandi manna, sem eru helvílinu harðari et á þá er ráðist, taka vitlausa beygju og lenda í nið- urníddu stórborgarhverfi þar sem manniítinu helur verið splæsað aftur á sleinöld og hitta þar (yrir samviskulausa hverlisbaróna sem kæra sig ekkert um að aðrir kássisl upp á þeirra jússur eða kássist yfirleitt. Það er þessi lormúlan. Banvæn móðir Mother's Boys ★ Sállræöitrill- ir sem treystir mest á dramatískaog lymskululla tónlist og gamlar tæknibrellur með temmilega löngu millibili. Hinn eini sanni Mr. Wonderful ★★ Ánægju- legar ástir í New York. REGNBOGINN Arizona Dream ★★★ Sérstæð ogskemmti- leg mynd ettir Emir Kusturica. Far vel, frilla mín Farwell My Concubine ★★★ Vönduð, sterk, glæsileg. Kryddlegin hjörtu Como Aqua Para Chocol- ate ★★★ Matreiðslan er olt girnilegri en ást- irnar. Flótti sakleysingjans la Corsa dell'lnno- cente ★ Átakalítil og um fram allt þreytandi ferð eltir Ítalíu endilangri. Píanó ★★★ Átta verðskuldaðar Óskarsverð- launatilnefningar. STJÖRNUBÍÓ Morðgáta á Manhattan Manhattan Murder Mystery ★★★ WoodyAllan-mynd. Ekkisú besta en eins góð afþreying og WoodyAllen- myndir verða. Hann stendursig sérdeilis vel í hasaratríðunum og bilaeltingarleiknum. Fleiri pottormar Look Who's Talking Now ★ Kristie Alley er jalnvel feitari og Travolta frussar sem aidrei lyrr. Og atlt talar. Næst verður það brauðrístin. Börnum geturþó lundislgaman al þessu. í kjölfar morðingja Striking Distance ★★ Bruce Willis. SÖGUBÍÓ Nóttin sem við aldrei hittumst The Night We Never-Met ★ Eitthvað sem áað vera róman- tísk gamanmynd í anda When Harry Meet Sally. og ótal eftirgerða hennar, en endar sem væmin og hjákátleg. Svalar ferðir Cool Runnings * Hugmyndinað baki þessari mynd er ekki einu sinni fyndin. Og nógu vitlaus til að vera hafnað — Hka afáhort- endum. Halldór Ómar Sigurðs- son er yfirmóttökustjóri kvikmyndahússins Regnbog- ans. í starfmu klæðist hann glæsilegum einkennisbúningi með gylltum hnöppum sem ýtir undir hátíðarstemmning- una þegar bíógestir ganga í húsið. Halldór segir að fram- kvæmdastjórinn, Ingvar Þórðarson, hafi gefið sér „júníformið“ eins og hann kallar það, því hann sé andlit bíósins út á við og hafi verið það lengi. Halldór var áður yfirdyra- vörður í Regnboganum en ný- verið var hann hækkaður í tign og gerður að yfirmót- tökustjóra. Hann segir þó að starfssvið sitt hafi ekki breyst mikið en helsta verk hans er að rífa af aðgöngumiðum bíógesta og bjóða þá vel- komna. „Ég hef verið fastráðinn hjá Regnboganum í fimmtán ár,“ segir Halldór. „Fyrri eigandi bíósins, Jón Ragnarsson, bauð mér þessa vinnu á sín- um tíma en þegar hann seldi kvikmyndahúsið Jóni Ólafs- syni í Skífunni, tylgdi ég með í kaupunum. Það er góður starfsandi hjá okkur og við vonum að gestir okkar verði hamingjusamir eins og við árið 1994.“ „Mér líkar móttökustjórn- in vel en fer sjaldan inn í sal- ina að horfa á myndirnar. Þetta er orðin gífulegur fjöldi af kvikmyndum sem ég hef séð i gegnum árin en minnis- stæðust þeirra er sennilega Hrói Höttur. Ég fór í viðtal á Bylgjunni þegar byrjað var að sýna hana og bíóið fylltist gjörsamlega á eítir og myndin setti nýtt aðsóknarmet.“ Halldór er fæddur á Fæð- ingarheimilinu í Reykjavík. Hann bjó lengi á Eskifirði en fluttist síðan til Reykjavíkur. „Ég verð áfram í Regnbog- anum eins lengi og ég get,“ segir Halldór. „Þegar ég er ekki að vinna, stunda ég íþróttir með íþróttafélaginu Öspinni en mér finnst einnig gaman að ferðast, innan lands sem utan. Ég kynni mér líka hvað er að gerast í öðrum kvikmyndahúsum í borginni og fæ frítt inn í Háskólabíó því þar eru góðir drengir við stjórnvölinn en í hinum bíó- unum eru skepnur sem ætlast til að kollegi þeirra borgi sig inn.“ EIN MEÐ OLLU FIMMTUDAGUR 10. MARS 1994 Leifsi beib er víst abbó vegna þess að ég talaði við ingó niðurá hól. Hann sá okkur. Leifur sér víst Ingó. Ég trúi því rétt mátulega. Hann er ekki hrifinn af því að vera skilinn út- undan. Það er kalt á toppnum, en komdu niður Leifsi beib og leikum okkur. Ég nenni ekki lengur að eltast við svona leiðindagaura. Það þýðir ekkert að vera í fýlu allan tímann og það á lýðveldisári. Þú getursjálfum þér um kennt! Ekki var það mér sem datt í hug að finna hana Amerígu! Ég erfarinn, blauturog kaldur. Það er slítandi að leika sér í snjónum. Veistu það, Leifur? Það er líka helvíti kalt. Eða þá að ég geri snjóhús fyrir okkur.

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.