Eintak - 15.09.1994, Side 9
? * « 4
111/ ’ 1
V 1' § il i m
Guðjóns þáttur Bjama-
sonar
„Þá hefur Guðjón Bjarnason,
þáverandi framkvæmdastjóri
Barnaverndarráðs Islands, sam-
band við lögregluyfirvöld í Noregi
og lýsir mér beinlínis sem hættu-
legum glæpamanni,“ segir Grímur.
„A hvaða forsendum veit ég ekki,
því hann á að hafa skýrslurnar frá
barnaverndarnefndum á Egilsstöð-
um og Hafnarfirði undir höndum.
Hann byggir hins vegar málflutn-
ing sinn á orðrómi og það kemur
orðrétt frá föður Birgittu um að ég
sé hættulegur maður. Guðjón er
ekki hæfari í starfi sínu en það að
hann étur þetta bara upp. Ég hef
aldrei hitt hann eða heyrt í honum
en mér þætti mjög vænt um að geta
talað við þennan mann. Og ég vona
að hann geti útskýrt fyrir mér
hvernig hann getur sett sig í eitt-
hvað hásæti og haldið slíku frarn á
meðan að augljóst er á gögnum
barnaverndanefnda að það er eng-
inn fótur fyrir þessum orðrómi.“
Grímur leggur fram afrit af bréfi
Guðjóns máli sínu til staðfestingar.
Þar kemur fram meðal annars:
„Barnaverndarráð hefur þungar
áhyggjur af börnum Gríms og Birg-
ittu sem nú eru fimm talsins og tel-
ur fulla ástæðu til að fylgst verði
með fjölskyldunni og málefni
hennar verði rannsökuð ítarlega
með tilliti til þarfa og hagsmuna
barnanna. Barnaverndarráð fer hér
með þess á leit að lögregluyfirvöld í
Lillehammer hafi upp á núverandi
dvalarstað fjölskyldunnar og til-
kynni viðeigandi barnaverndaryfír-
völdum um hann svo unnt verði að
leggja mat á aðstæður barnanna og
hugsanlega grípa til viðeigandi ráð-
stafana í framhaldi af því. Sam-
kvæmt upplýsingum sem barna-
verndaryfirvöldum hafa borist
virðist móður barnanna vera um
megn að gæta hagsmuna þeirra og
ekki vera í stakk búin til að mæta
þörfum þeirra. Faðir þykir ofbeld-
issinnaður og beinlínis geta talist
hættulegur. Báðir foreldrar þykja
koma vel fyrir við fyrstu sýn.
„Hvernig hann leyfir sér þetta,
skil ég ekki,“ segir Grímur.
„Þá er bréfið skrifað á íslensku en
Birgir Guðsteinsson þýddi þetta
fyrir lögregluna.
Guðjón sendi það til Lillehamm-
er af því að Birgir tengdafaðir minn
býr þar. Af hverju sendi hann þetta
ekki til Osló þar sem flugvélar frá
fslandi lenda? Svarið er að þetta
komi frá föður Birgittu og að best
væri að senda þetta þangað. Þannig
að hann gæti líka verið með putt-
ana í þessu eins og öll þessi ár.
Skömmu síðar var ég stoppaður
af lögreglu þar sem ég var að keyra
og var umsvifalaust settur í hand-
járn og fluttur á lögreglustöð. Þar
var mér haldið í 5 tíma á meðan
bíllinn minn var gegnumlýstur því
upplýsingar um að ég væri með
skammbyssu höfðu komið frá
Birgi. Ég hef aldrei átt skambyssu
og kann ekki á svoleiðis verkfæri."
I kjölfar handtökunnar segir
Grímur barnaverndaryfirvöld í
Noregi hafa fengið málið til um-
fjöllunar.
„Ég fæ síðan vinnu í janúar 1993
og eftir tvo tíma var mér sagt upp,“
segir Grímur. „Tengdafaðir minn
hafði þá hringt og er með óhróður
og læti. Mér skilst að einhver frá fé-
lagsmálayfirvöldum á fslandi hafí
verið með ásakanir á mig. Ég var
því beðinn um að fara því ég væri
með falska pappíra og allt væri í vit-
leysu.
í febrúar fæ ég aðra vinnu í öðru
sveitarfélagi við ráðgjafarstörf í
menntakerfinu. Við sögðum fólki
Birgittu ekkert frá hvar ég var að
vinna en ákváðum síðan að athuga
hvort það borgaiði sig ekki að reyna
að fyrirgefa þessu fólki. Við heim-
sóttum þau í maí og þá verður mér
á að segja hvar ég vinn. í lok maí
var ég kallaður fyrir og sagt upp af
því ég væri með falska pappíra og
þeir væru mjög svekktir yfir að ég
skyldi koma þarna á fölskum for-
sendum.
Ég reyndi að sanna mál mitt með
því að koma með prófskírsteini
mín en þegar svo var komið var bú-
ið að ná í nefndina sem sá um
stöðuveitinguna. Þetta eru allt sam-
an nefndir nákvæmlega eins á
Sauðárkróki.“
Gæsluvarðhald í Noregi
Grímur heldur sögu sinni áfram.
„LJm sunrarið búum við í litlum
sumarbústað og ég vinn í eldhúsinu
á veitingastað við að smyrja snittur
og skúra og svona til að hafa eitt-
hvað að gera,“ segir hann. „Ég vann
fyrir mat og húsnæði. Meira feng-
um við ekki.
Þá kemur kæra til barnaverndar-
nefndar því nú sé hægt að sanna
að við geturn ekki séð fyrir okkur
og þá er elsti strákurinn tekinn af
okkur og farið með hann á barna-
heimili en hin börnin skilin eftir.
Ég hef ekki séð drenginn síðan.
Þann 1. febrúar síðastliðinn segja
barnaverndaryfirvöld í Noregi síð-
an konu minni á fundi að nú verði
hún að velja á milli mín eða barn-
anna sinna nreð því að skilja við
mig.
Þau sögðust hafa áreiðanlega
heimildir frá Guðjóni Bjarnasyni
þess efnis að ásakanirnar á mig
hefðu við rök að styðjast. Mér var
kastað út af þessum fundi.“
Að sögn Gríms valdi Birgitta að
vera með börnunum og höfðu þau
leynilegt aðsetúr.
„Mánuði síðar kemur hún mín
til mín aftur' og um hvítasunnuna
ræðst lögreglan inn á heimili okkar
og ég er Séttur í járn, leiddur fyrir
dómara og krafist 6 vikna gæslu-
varðhalds yfir mér vegna meintra
kynferðisafbrota gagnvart börnum
mínum og hugsanlega annarra
barna líka. Úrskurðurinn var
byggður á sögusögnum og á meðan
ég var í varðhaldinu voru börnin
rannsökuð en þar kom ekkert fram
sem benti til þess að þetta ætti við
rök að styðjast. Mér var sleppt eftir
þrjár vikur úr gæsluvarðhaldinu og
ekki einu sinni beðinn afsökunar.
Ég var orðin húsnæðislaus og alls-
laus. Ég húkkaði mér far til Osló og
spilaði á trompet fyrir smápeninga
á götunum þar. Þannig safnaði ég
fyrir fari hingað heim og fékk vinnu
hér í sumar sem leiðsögumaður
fyrir Japani.
EINTAK hafði samband við lög-
fræðinga Gríms í Noregi og sögðu
þeir að ekkert benti til þess að hann
hefði beitt börn kynferðislegu of-
beldi. Hann hafi ekki hlotið neina
dóma tengda slíku þar í landi og
læknaskýrslur sem gerðar hafi verið
þar bendi ekki til að neinar af þeim
ásökunum sem bornar hafa verið á
hendur honum eigi við rök að
styðjast.
Varðandi aðdraganda þess að
hann missti starfið á Sauðárkróki
segir Grímur:
„Mér skilst að Guðjón Bjarnason
hafi hringt í Fjölbrautarskólann á
„Grímur kom
mjög vel fýrii41
segir Björn Sigurbjörnsson skóla-
meistari sem leysti
Er það rétt að Guðjóti Bjarnason
hafi hringt í Fjölbrautarskólann á
Sauðárkróki og talað utn ákveðið atvik
í sambandi við Grím Vilhelmsson setn
cetlaði að fara að vinna fyrir ykkur, og
síðan hafi það setn Guðjón sagði kvis-
ast út utn bœitut?
„Ég vil ekki tala um það á þessunr
nótum, mér finnst það ekki rétt.“
En er það ekki dálítið stórt atriði að
þetta Itaft kvisast svona út en ekki farið
beint til þín?
„Guðjón Bjarnason sem vinnur í
félagsmálaráðuneytinu og sér um
málaflokkinn sem snýr að börnum og
unglingum hringdi. Hann hafði grun
um það að Grímur væri kominn
hingað til Sauðárkróks og það sem
hann þekkti til Gríms var það að
hann hefði kennt við framhaldsskóla
eins og Menntaskólann á Egilstöðum.
Þannig að það er ekkert óeðlilegt
að hann hringi í fjölbrautarskólann
og ræði við Jón Hjartarson sem
segir honum að Grímur sé ekki kenn-
ari hjá honum heldur kenni hann við
gagnfræðaskólann. Þá spyr Guðjón
Jón að því hvort henn geti ekki náð í
mig og mér skilst að honum hafi ver-
ið sagt að svo sé. En svo kemur það í
ljós að ég er ekki staddur á Sauðár-
króki heldur á Siglufirði.
Ég fæ hins vegar skilaboð þangað
um að hafa samband við Jón Hjartar-
son og konuna mína. Stuttu seinna
hringir Guðjón til mín en ég vil ekk-
ert tala um það sem gerðist meðan ég
var ekki á Sauðárkróki.
Síðan þegar ég kem á Krókinn
byrjaði ég að vinna í þessu máli og
það fyrsta sem mér datt í hug var að
fá staðfestingu á því að Guðjón þessi
vinni í ráðuneytinu því Grímur var
búinn að segja mér frá því að hann
hefði lent í erfiðu skilnaðarmáli og ég
gat alveg eins búist við því að einhver
óvinur hans hefði hringt til að bera út
um hann lygar og óhróður. Ég fór svo
og sannreyni sögur og þegar ég hafði
unnið þetta mál í nokkra klukkutíma
þá var ég ákveðinn i því að óska eftir
því við Grím að hann tæki sér frí
næsta dag sem var þriðjudagur. Eftir
því sem leið lengur á daginn var ég
ákveðinn í því að segja honum upp.“
Þúfékkst setn sagt einhver ný gögn í
hendurnar?
„Samkvænrt samningi sem ég gerði
við manninn get ég sagt honum upp
með þriggja mánaða fyrirvara eða
eins mánaðar fyrirvara meðan
reynslutíminn varir. Og í sjálfu sér
hann frá störfum.
hefði ég ekki þurft að gefa honum
neinar skýringar af hverju ég segi
honum upp. En ég var ákveðinn í að
segja honum upp og það gerði ég í
fullu samráði við skólanefndarfor-
manninn. Þar sem við vorum búnir
að heyra í mönnum sem báru honurn
ekki gott orð. Síðan ber ég þetta und-
ir fulltrúa í menntamálaráðuneytinu
og þeir óska eftir því að ég fái skóla-
nefndina til þess að óska eftir því við
menntamálaráðuneytið að hann
verði leystur frá störfum vegna gruns
um saknæmt athæfi.“
Hverjir voru það fleiri en Guðjón
Bjarnason sem báru Grími illa söguna?
„Ég hafði samband bæði við Rann-
sóknarlögreglu ríkisins og saksókn-
araembættið. Einnig hafði ég sam-
band við menntamálaráðuneytið og
aðila á Egilstöðum sem höfðu kennt
með honum við menntaskólann. Þær
sögur sem þeir sögðu urðu til þess að
þessi ákvörðun okkar var tekin."
Samkvœmtþeitn gögnutn sem ég hef
í höndum hefur Grítnur aldrei verið
sakfelldur?
„Þó menn séu ekki kærðir þá hafa
þeir kynnst urmul af fólki og allir þeir
sem ég hef talað við ber saman um að
þetta sé ekki akkúrat sú týpa sem ætti
að vera að kenna í grunnskóla. Og þó
hann hafi sýnt mér hreint sakavott-
orð liggur mál inni hjá saksóknara
sem á að fara að birta honum. En ég
viðurkenni það að ég hef ekkert í
höndunum um að hann hafi verið
kærður.“
En voru þetta ekki einketmilegar að-
ferðir hjá Guðjóni að koma upplýsing-
unutn um Grítn á framfæri með þess-
um hœtti?
„Nei það finnst mér ekki, hann
vissi af Grími hér og tengir Grím við
Fjölbrautarskólann því hann hafði
verið að kenna við menntaskólann á
Egilstöðum. Þannig að mér finnst
ekkert óeðlilegt að hann hafi hringt í
fjölbrautarskólann.
En þetta kvisaðist útutn bœitm, ekki
rétt?
„Ég veit nú ekki hversu mikið, en
allavega vissi Jón af þessu því hann og
Guðjón töluðu sig saman um þetta.
Skólanefndarformaðurinn vissi af
þessu líka enda mjög eðlilegt því mál-
ið var mjög alvarlegt."
En kom Grítnur vel og eðlilega fyrir?
„Hann kom mjög vel fyrir og ég
kvarta ekki yfir framkomu hans af því
sem ég kynntist af honum.“ ©
Sauðárkróki og talað við starfs-
mann á kennarastofu og útskýrt
fyrir honum að ég sé glæpamapur
og með hæpin próf. Hann segir frá
þessu á kennarastofunni og sagan
kvisaðist þannig út. Ég var hins
vegar að vinna í gagnfræðaskólan-
um sem er í allt annarri byggingu.“
Heimilislaus og allslaus
„Mér finnst einkennilegt að
rnaður sem vinnur hjá félagsmála-
ráðuneytinu og undir sömu launa-
deild og ég skuli hringja í einhverja
stofnun með þessa sögu í stað þess
að hafa beint samband við launa-
deildina eða starfsmannahald og
finna út hvar ég væri á launaskrá.
Gat Guðjón ekki verið sá maður
að halda trúnaði oinbers starfs-
manns og hringt í viðkomandi að-
ila fyrst ég var svo rnikill glæpa-
maður eins og hann taldi að þurfti
að vara við? Á hvaða forsendum
setur hann í gang einelti eina ferð-
ina enn og hjálpar til við þetta ein-
elti með þessum aðferðum? Hefði
ekki verið einfaldara fyrir hann að
tala við starfsmannastjóra mennta-
málaráðuneytisins því hann vissi að
ég var leiðbeinandi og ráðningar
þeirra þurfa að fara í gegnum
starfsmannastjórann? Eða þá að
hringja í fræðsluskrifstofuna fyrir
norðan sem er með gögnin líka?
Hefði það ekki verið einfaldara fyr-
ir hann? Hver er ástæðan fyrir því
að hann er að senda kærur þótt það
standi í öllum gögnum að ekkert
athugavert sé við þessa íjölskyldu?
Það er augljóst mál að þarna var
um persónulega aðför að ræða.“
Grímur á í forræðismáli í Noregi
út af börnurn sínum.
„Niðurstaða forræðismálsins
sem lauk nú í síðustu viku var sú að
lögfræðingurinn minn spurði hvort
ég væri ekki bara tilbúinn til að
samþykkja að börnin okkar yrðu
sett á fósturheimili saman," segir
hann aðspurður um gang málsins.
„Ég samþykkti það en síðan verður
það mál kært áfram. Móðirin býr
hjá foreldrum sínum í Noregi en
hjónaband okkar er búið og það er
kannski fyrir bestu.
Mér líður djöfullega því það er
búið að eyðileggja mannorð mitt
fullkomlega. Ég stend uppi slyppur
og snauður, rúinn mannorði mínu
og er heimilislaus og allslaus."
Fyrir utan annan skaða segist
Grímur hafa misst yfir 40 störf
vegna þeirra ásakana sem honum
eru bornar á hendur.
Þegar hann er spurður um hvort
þær ásakanir sem komið hafi fram
á hendur honum vegna skjalafals
éigi við rök að styðjast, segist hann
ekkert hafa að fela.
Þetta gerðist þegar við bjuggum á
Eyrarbakka og við vorum í miklurn
greiðsluerfiðleikum. Ég skrifaði
nöfn foreldra minna og systkina á
framlengingarvíxla og skuldabréf.
Það er skjalafalsið mitt. Ég fór
meira að segja að fyrra bragði til
Rannsóknarlögreglunnar til að láta
vita hvað ég hefði gert.
Ég vissi að ég gerði rangt þegar ég
skrifaði upp á framlengingarvíxl-
anna og þess vegna fór ég og talaði
við RLR. Það mál kemur því ekki
við að ég átti að fara að kenna raun-
greinar við grunnskóla. Þetta eru
hiutir sem ég er búinn að taka á mig
og hef þegar viðurkennt og ástæðu-
laust að stimpla mig að eilífu sem
hættulegan glæpamann af þeim
sökum.“ ©
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994
9