Eintak

Tölublað

Eintak - 15.09.1994, Blaðsíða 26

Eintak - 15.09.1994, Blaðsíða 26
oaBTd i[OBTa) £ sBea 15 = 02 Þ66T'6'Í’T MViNia OM £2 MYNDLIST Veggspjaldasýning hefst á veg um Amnesty International í myndlistarsal Hafnarhússins við Tryggvagötu í kvöld - fimmtudagskvöld. Vegg- spjöldin eru eftir listamenn víða úr veröldinni og hafa ver ið gefin út af Amnesty-deild- um. Snæfríð Þorsteinsdóttir opnar sýningu í Gallerí Greip á laugardaginn og sýnir graf- íska hönnun og iðnhönnun sem hún vinnur með ritlistina að leiðarljósi. VlD MÆLliM MEÐ Jenny Holzer hin heimsfræga bandaríska listakona hefur lánað Mokka 15 verk sem höfð verða til sýninga næstu vikur. Jenny er afar framarlega í hinum bandariska listheimi og er mikill feministi sem endurspeglar listsköpun hennar. Sýningu Sigurðar Árna Sig- urðssonar sem er í Vestursal Kjarvalsstaða lýkur um helgina. Sýningu Kristins Harðarsonar i Miðsal Kjarvalsstaða lýkur einnig um helgina. Alan Uglow sýnir verk sín á Ann- arri hæð að Laugavegi 37. Alan býr í New York og teflir saman ólíkum hefðum geometrísks mál- verks. Myndirnar þykja hlutlægar en þó tilfinningaríkar. Alan er vist mikill áhugamaður um fótbolta og gætir áhrifa þess beint eða óbeint i mörgum verka hans. Aðrar sýningar Marta María Hálfdánardóttir Hótel Holiday Inn. Pétur Gautur Galleri Borg. Spörri hfúsi Alnæmissamtakanna á Is- landi. Monika Larsen-Dennis Galleri Bláskjár. Björk Sigurðardóttir Setustofu Nýlistasafnsins. Rúna Þorkelsdóttir Efri sal Nýlistasafnsins. Ragnheiður Ragnarsdóttir Nneðri sal Nýlistasafnsins. Klaus B. Francker Sólon Islandus. Þórður Hall Norræna húsinu. Jóhanna Boga Hafnarborg. Hildur Inga Björnsdóttir Portinu. Susanne Christensen Gallerii Sævars Karls. Inga Svala Þórsdóttir Gerðubergi. Kristján H. Magnússon Stöðlakoti við Bokhlöðustiginn. Anna Maria Osipow Gallerí Úmbru á Bernhöftstorfu. Guðmundur Rúnar Lúðvíksson Veitingastaðnum 22. srefnumórolínon „Ég er rúmlega miðaldra karl- maður utan aflandi og langar til að kynnast ungum mönnum sem símavinum, með skemmti- legu hugarfari til að rabba um skemmtilega hluti.“ Þetta eru góðar og vandaðar kvikmyndir. Vel leiknar. Vel kvikmyndaðar. Og öll umgjörðin glæsilegri og nostursamlegri en maður á að venjast. Hængurinn er bara sá hvað allt er slétt og fellt, þarna er ekki pláss fyrii neitt óvænt, nýtt eða djarft. „Bók Thors Vilhjálmssonar er í raun eins konar leynilögreglusaga þar sem lesandinn er löggan, persónurnar og atvikin vísbendingar, höfundurinn hinn seki og sagan sjálf fórnarlambið.“ Vönduð og kurteis meðalmennska Allir heimsins morgnar Tous LES MATINS DU MONDE Regnboganum ★★★ Það verður seint sagt að rjúki af franskri kvikmyndagerð síðari árin. Þrátt fyrir mikinn hávaða sem Frakkar hafa gert um að vernda evrópska (les: franska) kvikmynda- gerð fyrir amerískum yfirgangi, þá verður varla séð að þeir eigi neitt ýkja mikið eða merkilegt að vernda. Auðvitað er framlag Frakka til kvikmyndalistarinnar ómetanlegt: þeir hafa tíðum haft meiri og betri skilning á þessari listgrein en aðrar þjóðir og erfitt að þræta fyrir að ýmsir mestu og bestu kvikmynda- leikstjórar sögunnar séu franskir. Nú er hins vegar svo komið að franskur almenningur kýs ameríska kvikmyndagerð með fótunum og flykkist í bíó til að sjá Stallone og Schwarzenegger Og fyrir það er varla hægt að lá almúganum, enda virðast Frakkar núorðið geta talið sig lánsama ef þeir eignast þokka- lega handverksmenn í kvikmynda- gerð. Eða er það ekki einmitt þetta sem hefur einkennt hinar stærri og að- sóknarmeiri franskar bíómyndir síðari ára, myndir á borð við Cyr- ano de Bergerac, Germinal og nú síðast Alla heimsins morgna? Handverkið er óaðfmnanlegt, en myndirnar eru alveg gjörsamlega lausar við að vera brilljant. Það örl- ar sjaldnast á neinu hugarflugi, hvað þá snilld. Þar með er ekki sagt að þetta séu vondar kvikmyndir, þvert á móti. Þetta eru góðar og vandaðar kvik- myndir. Vel leiknar. Vel kvikmynd- aðar. Og öll umgjörðin glæsilegri og nostursamlegri en maður á að venjast. Þær eru byggðar á frægum og viðurkenndum skáldverkum. Þær hafa góðan boðskap að flytja. Það er engin ástæða til annars en að mæla með þeim - að minnsta kosti upp að vissu marki. Hængurinn er bara sá hvað allt er slétt og fellt, þarna er ekki pláss fyrir neitt óvænt, nýtt eða djarft. Allir heimsins morgnar byggja á skáldsögu eftir Pascal Quignard sem kom út á íslensku fyrir tveimur árum. Þetta er afar giæsileg bók, stutt og hnitmiðuð, þar sem einföld frásagnartækni kallast á við flókið viðfangsefni sem að vissu leyti er það sama og í bíómyndinni Ama- deus: fyrst og fremst músík, en líka snilligáfa, brjálsemi og einsemd, listin, lífið og ástin. Um þetta fjallar bókin með slíkum ágætum að hún kemst auðveldlega í flokk helstu skáldverka síðustu ára, enda er sambandið milli kvikmyndar og bókar afar kurteist; myndin gerir í raun ekki annað og meira en að myndskreyta bókina - og tekst það mjög samviskusamlega. Það er engu sleppt og engu bætt við - nema auðvitað tónlistinni. Jordi Savall heitir Katalóníu- maður sem fenginn var til að gefa tónlist bókarinnar hljóm sem hefur varla verið auðveit viðfangsefni, enda er tónlist sögunnar svo mögn- uð að hún er notuð til að kalla fram mynd látinnar ástvinu. Savall leysir þetta verk af slíkum glæsibrag að hann stendur uppi sem hetja myndarinnar; hann er sá eini (fyrir utan Quignard bókarhöfund) sem rís upp úr hinni vönduðu meðal- mennsku. Músíkin er varla þessa heims. O ffiyndlist i HANNÉSLÁRUSSON Endurvinnsla Inga Svala Þórsdóttir GeRÐUBERG, 4. SEPT.-2. OKT. Fólksfjölgun er eitt af helstu vandamálunum, sem heimurinn stendur frammi fyrir. Með auknum fjölda fólks er ekki aðeins að þrengjast um hag manna heldur og um hagi flests þess, dýra og dauðra hluta, sem menn geta með ein- hverju móti beygt undir eigin neyslu sjálfum sér til viðhalds. Samfara því að auðlindir þverra eykst vægi endurvinnslu, smám saman kemur að því að menn þríf- ist eingöngu á úrgangi hvers ann- ars. í (lista)heimi þar sem virðist of- gnótt af listamönnum bregðast þeir gjarnan þannig við að helga sér ein- hvern persónulegan og hæfilega sérviskulegan reit og eins og gefa út yfirlýsingu um að þennan reit ætli þeir að þaulrækta þar til yfir lýkur. Allt frá upphafi módernismans fram til okkar daga eru þessa mörg dæmi, þó fæstum hafi tekist í raun að ná rækt í reitinn, sem fyrr en varir lendir í órækt og týnist. Á reitnum, sem Inga Svala Þórs- „Þaö er ekki óeðlilegt aö Inga Svala, sem um skeið hefur dvalið í paradís endurvinnsl- unnar, Þýskalandi, hafi gert endurvinnslu að höfuðviðfangsefni í verkum sínum.“ dóttir hefur helgað sér, er fengist við að mala niður hluti og gera að dufti og hefur hún meira að segja sett á fót það sem hún kallar „duft- unarþjónustu". Hún gæti því sagt með töluverðu sjálfsöryggi: „Á Is- landi og þótt víðar væri leitað er enginn listamaður að mala og dufta eins og ég“. Og við ættum því að segja næst þegar við sjáum gler- krukku með salla eða dufti á mynd- listarsýningu: „Ef þetta verk er ekki eftir Ingu Svölu þá er það í hennar stíl, því enginn á landinu hefur fram að þessu veðjað á duftið og mélið nema hún“ Og hugmynd Ingu Svölu er á margan hátt góð því jafnstór gler- ílát eru einingar, sem gefa ýmsa sjónræna möguleika í formrænni framsetningu, burt séð frá inni- haldinu; enda er hin formalíska snyrtimennska aðaleinkenni, ef ekki aðalstyrkur sýningarinnar. En hin formræna framsetning getur samt ekki verið aðalkeppikefli Ingu Svölu. Til þess eru nöfn verkanna furðulega „Popplistarskotin" og jafnvel væmin: til dæmis þegar hún duftar niður tvo gullhringi og kallar verkið „Loforð“, eða þegar bolli og undirskál eru duftuð og verkið er kallað „Spáðu í minn“. En aðferð Ingu býr líka yfir möguleikum ádeilu og háðs eins og þegar hún duftar Lögbirtingarblað- ið, Morgunblaðið og Hustler, eða þá þegar hún duftar gervipíku og gervilim og nefnir „Homage a Bar- bie“. Athöfnin að taka hluti og dufta hefur einnig hugmynda- fræðilegar, tæknilegar og siðferði- legar takmarkanir. Hvað er hægt að ganga langt í duftuninni? Er til dæmis hægt að dufta land, menn eða skinnhandrit? Og eins má spyrja hvort kjötfars sé ekki duftuð kind, hveiti sé duftuð planta og sandur duftað fjall. Þegar öllu er á botninn hvolft þá er það ekki óeðlilegt að Inga Svala, sem um skeið hefur dvalið í paradís endurvinnslunnar, Þýskalandi, hafi gert endurvinnslu að höfuðvið- fangsefni í verkum sínum og þegar hún malar niður dagblöð, spegil, gúmmipíku, horð og stóla sé hún í rauninni að búa til áburð eða skarna sem meiri not gætu verið fyrir annars staðar en á listaakri borgarinnar. Og til að undirstrika þennan náttúrlega tón hefur Inga málað veggi Gerðubergs græna í til- efni sýningar sinnar - en þegar bet- ur er að gáð er duftið í glösum Ingu Svölu kannski ekkert annað en lita- duft sem bíður þess að fernisol- íunni verði hellt út í og hún dragi fram penslana. Q Bækur hóN PROPPÉ Sagan fórnarlambið Thor VilhjAlmsson TvIlýsi 140 BLS. MáL OG MENNING Tveir menn draga lík upp úr höfninni. Mannfjöldi horfír á. Lík- inu er ekið burt. Annar mannanna gengur aftur fram á bryggjuna. Hann er með derhúfu. Þessi saga, sem hér er í skeytastíl, er sögð aftur og aftur í Tvílýsi, nýrri bók Thors Vilhjálmssonar, en með nýjum áherslum, túlkunum og útúrdúrum í hvert skipti, líkt og sagan í Stílæfingum Queneaus. I öðrum köflum fléttast svo saman við söguna stutt frásagnarbrot af öðrum persónum sem í fyrstu virð- ast aðeins hálfmótaðar og jafnvel alls ótengdar hver annarri. Þegar líður á bókina fara þessar persónur að skýrast, en um íeið vakna með lesandanum grunsemdir um frá- sögnina sjálfa. Sagan reynist geyma flækjur sem fýrstu kaflarnir gefa litla vísbendingu um. Bókin byrjar eins og í miðri sögu á „Og“ og frásögnin framan af er ómarkviss og flöktandi. Slitróttar setningar hökta áfram eins og þær séu að fálma eftir merkingu — tíðir brenglast, fallstjórnun bregst og frumlög týnast. Persónur eru að- eins kynntar sem „hann“, „konan", eða „heyrnarlausi maðurinn“ svo að lesandinn veit vart um hvern hann er að lesa og verður að leggja sig allan fram við að grípa þær fáu vísbendingar sem höfundurinn lætur falla hér og þar líkt og fyrir tilviljun. Fljótlega fara þó iínur að skýrast. Nokkrar persónanna ná yfirhönd- inni og lifna við í frásögninni, en þá er allt orðið á reiki um sögusviðið og tímaröð viðburða. Sömu atvikin gerast aftur, en þá er sjónarhornið svo breytt að þau virðast gerólík. Ein persóna les um aðra. Samræður karls og konu reynast vera atvik sem þriðja persónan hafði orðið vitni að mörgum köflum áður, án þess að heyra hvað sagt var. Stund- um er frásögnin svo hröð að það vinnst ekki tími til að móta hana í heilar setningar, en stundum svo hæg að jafnvel minnstu smáatriði eru krufín. Textinn verður hnitmiðaðri og fastari eftir því sem á líður, en um leið losnar frásögnin upp frá per- sónunum og verður flóknari og óræðari. Á einum stað grípur höf- undur inn í til að benda á mögulega úriausn á frásögn sem þegar hefur lyktað á allt annan hátt og skömmu síðar þarf hann að taka aftur til máls til að svara fyrirspurn lesanda um ósamræmi í sögunni. I bókar- lok finnst reyndar lausn á flækj- unni, en þá hefur lesandinn von- andi lært nóg til að taka ekki nema hæfilega mikið mark á lausnum — hann veit orðið að lausnir eru að- eins hlutar af enn stærri flækjum. Thor tekst hér að láta söguform- ið fjalla um sjálft sig og það hefur vart tekist betur í íslenskri bók. Þetta er jafnframt heilsteyptasta verk Thors sjálfs. Allir þættir text- ans þjóna þessum tilgangi, jafnvel málfar höfundar og greinarmerkja- setning. Tvílýsi er í raun eins konar leynilögreglusaga þar sem lesand- inn er löggan, persónurnar og at- vikin vísbendingar, höfundurinn hinn seki og sagan sjálf fórnar- lambið. O EGILL HELGASON Schwarzenegger kann ekki tangó Sannar lygar True Lies HAskólabIói ★★ Það er hægt að kaupa margt fyrir tíu milljarða. Til dæmis er hægt að koma sér upp Harrier-þotu, nota nýjustu tölvutækni til að setja Am- old Schwarzenegger undir stýrið og hengja stelpu á táningsaldri og arabískan terrorista utan á hana. Það er hægt að sundursprengja hraðbrautir og setja eins og eina kjarnorkusprengju út í andrúms- loftið - en það er ekki hægt að kenna Arnold Schwarzenegger að dansa tangó. Það kostar meira, eða réttara sagt, slíkir tangótímar verða ekki keyptir fyrir peninga. Þess vegna er Schwarzenegger álíka fimur og Frankenstein, ann- að germanskt tröllmenni, þegar hann dansar tangó. Fyrir tíu milljarða er sjálfsagt hægt að kaupa ágætis piott. Það hefur hins vegar ekki verið talið henta í þetta skiptið. Kvikmyndin Sannar lygar hefur ekkert plott. I upphafsatriðinu er Arnold í gríð og erg að skjóta og sprengja mús- limska heittrúarmenn og vitorðs- fólk þeirra - sem er fínt, það er aldrei nóg sprengt upp af svoleiðis liði. Svo fær Arnold þá flugu í höf- uðið að eiginkona sín sé sér ótrú. (Af hverju þarf að láta hann eiga konu? Aldrei átti James Bond konu. Hann átti margar. Stafar þessi munur kannski af langvarandi steraneyslu Arnolds?). Þá gleymir hann terroristunum og upp frá því fjallar myndin aðallega um vand- ræði Arnolds í hjónabandi - það er næstum eins og Ingmar Bergman hafi verið fenginn til að leikstýra Schwarzeneggermynd (í hjóna- böndum Bergmanmynda var beitt nær óskiljanlegri andíegri grimmd, hér er notaður hátæknibúnaður amerísku leyniþjónustunnar til að niðurlægja konuna). Eftir öll þau leiðindi birtast terroristarnir aftur, án þess þeir geri nokkur boð á und- an sér, og ekki vonum seinna. Tek- ur Arnold þá aftur til við að sprengja þá og skjóta líkt og fýrr, en eftir öll hjónabandsmálin hefur það gerst að áhorfandinn er búinn að fá leið á Arnold og vill helst að heitt- trúarmönnunum takist nú ætlun- arverk sitt — að setja hann á kjarn- orkusprengju og kveikja svo í. En auðvitað tekst þeim það ekki, því fyrr en varir er Arnold mættur á Harrier-þotunni og þá er liðsmun- urinn milli hans og terroristanna (sem eru svo aumir og vitlausir að þeir kunna varla að skjóta úr byssu) orðinn svo mikill að maður er far- inn að vorkenna þeim og eiginlega öllum Arabaheiminum líka, að íran meðtöldu. Q 26 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.