Eintak - 15.09.1994, Síða 27
SJONVARP
:.2,T
Nafn: Erling Krístinsson Fæðingardagur: 30. ágúst 1951
Hæð: 190 cm Þyngd: 100 kg Háralitur: Dökkbrúnn
Augnlitur: Gulgrænn Sérkenni: Engin
Hver?
Erling Kristinsson
er huglæknir sem
starfar í Pýramídan-
um en það er „andleg
miðstöð" í Dugguvogi
2. Hann hefur stund-
að huglækningar í 13
ár og segir viðskipta-
vini sína bera þeim
gott vitni.
Hvað?
„Ef ég útskýri hug-
lækningar á einfaldan
hátt má segja að ég sé
millistykki fýrir lækna
fýrir handan til þess
að lækna og hjálpa
fólki hérna megin,“
segir Erling. Læknarn-
ir sem hann segir
vinna í gegnum sig
eru af ýmsum þjóð-
ernum og segir hann
þá viðstadda á stof-
unni þegar hann er að
störfum. „Þetta eru ís-
lenskir læknar, bresk-
ur læknir og þýskur,
Kínverji, arabi og ind-
íánar,“ segir hann.
„Það fer eftir því hvað
er að hjá viðkomandi,
hvaða læknar eru á
staðnum.“
Hvernig?
„Huglækningarnar
eru í raun og veru tví-
skiptar," segir Erling.
„Annars vegar er um
að ræða handaryfir-
lagningu og sjúkling-
urinn er þá lagður á
bekk þar sem hann
fær andlega og líkam-
lega yfirferð. Hins
vegar er það sem við
köllum fjarheilun eða
fjarlækningar og þá
hugsar maður til við-
komandi þar sem
hann er staddur. Það
sem mér hefur fundist
hvað merkilegast við
þessar lækningar er
þegar gerðar eru að-
gerðir á fólki en það
hefur komið áþreifan-
lega fram.“
Hvers^
vegna?
„Ég ætlaði nú aldrei
að velja mér huglækn-
ingar sem lífsstarf en
það voru ákveðnir
læknar fyrir handan
sem völdu mig til
þessara hlutverka. Ég
þráaðist lengi við og
spurði; af hverju ég?
Fyrir rest lét ég síðan
undan til að prufa
þetta og sé ekki eftir
því.“
Hvaðan? Hvert?
Erling er fæddur í
Álftafirði í Norður-
ísafjarðarsýslu en ólst
upp í Reykjavík.
Hann hefúr verið
skyggn frá barnæsku
en nam huglækningar
í tvö ár hjá læknasam-
tökum í Bretlandi.
Erling stefnir að því
að halda áfram á
sömu braut en auk
þess mun hann verða
með námskeið í hug-
lækningum í Pýram-
ídanum í vetur. „Þetta
er eiginleiki sem hver
og einn hefur í sér en
fólk þarf bara að læra
að þjálfa hann og
virkja ef það kærir sig
urn það.“
íslenski dansflokkurinn setur Danshöfundakvöld á svið
Dans er hreyfing
íslenski dansflokkurinn hefur
veturinn á Danshöfundakvöldi í
Tjarnarbíói og verður það frum-
sýnt á sunnudagskvöldið. Þrír nýir
ballettar verða þá sýndir og eru þeir
allir eftir dansara flokksins, þau
Láru Stefánsdóttur, Hany Ha-
daya og David Greenall.
„Það er mikilvægt að sköpunin
gerist innan dansflokksins. Því fleiri
sem prófa sig áfram því fleiri dans-
höfunda eignumst við,“ segir Mar-
ía Gísladóttir sem stjórnað hefur
íslenska dansflokknum síðustu tvö
og hálff ár. „Dans er hreyfing og
þegar sviðið er jafn lítið og í Tjarn-
arbíói verða dansararnir að hreyfa
sig meira upp og niður en út urn
sviðið. Danshöfundarnir vissu frá
upphafi hvaða húsnæði flokkurinn
fékk undir sýninguna og sömdu því
dansana með það í huga. Það er erf-
itt fýrir dansflokkinn að komast inn
í stóru leikhúsin og það vantar hús
fýrir bæði ballettinn og óperuna.“
Lára kallar verk sitt Kveik og
samdi það við vorkafla árstíðanna
eftir Vivaldi. Hún spann út frá
þeim kenndum og tilfinningum
sem vakna þegar vorið er í nánd.
Verk Hanys gerist aftur á móti í
Bretlandi á 17. öld og kallar hann
það Sine Nobilis. Notaðir eru
söngvar sem sungnir voru á krám
og kaffihúsum af karlmönnum úr
millistétt og eru kallaðir „catches"
og „rounds". Sönghópurinn Voces
Thules kemur fram í sýningunni.
Carpe Diem heitir verk Davids
og tekur hann þar á ýmsum þáttum
alnæmis og áhrifum þess á smitaða
sem og ósmitaða. Aðalpersónan
þarf að segja ástmanni sínum að
hann sé HlV-smitaður og fjallar
verkið um það álag og streitu sem
sjúkdómnum fýlgir fyrir báða aðila.
Þrátt fyrir alvarlegan undirtón hik-
ar David ekki við að velta upp
skoplegum hliðum á tilverunni.
Það er mikið á döfinni hjá ís-
lenska dansflokknum í vetur.
Dansarar hans taka til dæmis þátt í
sýningu Svöluleikhússins sem Auð-
ur Bjarnadóttir stendur fyrir, Ka-
barett hjá Borgarleikhúsinu og
West Side Story í Þjóðleikhúsinu.
Auk þess stefnir flokkurinn að því
að setja Hnotubrjótinn á svið um
jólin ásamt Listdansskóla ís-
lands. 0
f}
Ríkissjónvarpið Stöð 2________W
Fimmtudagur
18.15 Táknmálsfréttir
18.25 Töfraglugginn
18.55 Fréttaskeyti
19.00 Úlfhundurinn
19.25 Ótrúlegt en satt
Furður veraldar grafin upp og
sýnd í þessum breska mynda-
flokki.
20.00 Fréttir
20.35 íþróttahornið
21.05 Vegsemd föður míns
La gloire de mon pére ★-*
Frönsk bíómynd frá 1990 gerð
eftir endurminnigum Marcei
Pagnol. Aðalhlutverk: Philippe
Caubére, Nathalie Roussel,
Didiver Pain.
23.00 Ellefufréttir
17.05 Nágrannar
17.30 Barnaefni
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19.19
20.15 Eiríkur
20.35 Ættarsetrið
21.30 Seinfeld
22.00 Meðan bæði iifa
Till Death Us Do Part ★★ Treat
Williams, Ftebecca Jenkins og
Arliss Howard. 1991
23.35 Nashville taktur E
Nashville Beat ★★
01.00 í klóm flóttamanns E
Rearview Mirror ★★
02.35 Dagskrárlok
FÖSTUDAGUR
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 Barnaefni
18.55 Fréttaskeyti
19.00 Síðustu óbyggðirnar
Heimildamynd um náttúru og
dýralíf í Afríku
20.00 Fréttir
20.40 Feðgar
21.05 Derrick
22.10 Eins þótt móti blási
One Against the Wind ★★
Bandarísk bíómynd byggð á
sannri sögu um Mary Lindell,
enska konu sem bjó i Frakklandi
á striðsárunum og skipulagði
flóttaleiðir fyrir breska orrustu-
flugmenn. Aðalhlutverk: Judy
Davis og Sam Neill
23.50 Ofvitarnir
Kids in the Hall ★ Kanadískir
spaugarar bregða hér á leik í
mjög svo sérkennilegum grínat-
riðum
16.00 Popp og kók
17.05 Nágrannar
17.30 Barnaefni
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19.19
20.15 Eiríkur
20.45 Kafbáturinn
21.40 Frú Robinson
The Graduate ★★★★ Ógleym-
anleg gamanmynd með Dustin
Hoffman i sinu fyrsta megin-
hlutverki. I öðrum helstu megin-
hlutverkum eru: Anne Bancroft,
Katherine Ross og William
Daniels. Myndin er frá 1967
23.25 Löggumorðinginn
Dead Bang ★★ Don Johnson,
Penelope Ann Miller og William
Forsythe. 1989
01.05 Ofsahræðsla E
After Midnight ★
02.35 Fjárkúgun E
Blackmail ★
00.20 Útvarpsfréttir
Laugabpagur
09.00 Morgunsjónvarp barna
10.20 Hlé
14.00 íslandsmótið í knatt-
spyrnu
16.00 Mótorsport E
16.30 |þróttahornið E
17.00 íþróttaþátturinn
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 Völundur
18.55 Fréttaskeyti
19.00 Geimstöðin
20.00 Fréttir
20.35 Lottó
20.40 Hasar á heimavelli
21.10 Endurfundir
Peter’s Friends ★★★ Háskóla-
hópur hittist tíu árum eftir út-
skrift og verða þar fagnaðar-
fundir og ýmislegt fleira. Aðal-
hlutverk: Kenneth Branagh,
Emma Thompson, Rita Rudner
og Stephen Fry. Leikstjóri er
Kenneth Branagh. 1992
22.50 Ástarfjötrar
Victim of Love ★ Kona ein í
geðlaeknastétt kynnist glæsileg-
um manni og á með honum
ástarævintýri. Á hana renna
tvær grimur er hún kemst að því
að einn sjúklinga hennar hefur
komist íkast við hann. Aðalhlut-
verk: Pierce Brosnan, JoBeth
Williams, Og Virginia Madsen.
1991
09.00 Barnaefni
12.00 Sjónvarpsmarkaðurinn
12.25 Gott á griliið E
12.55 Bingó Lottó
13.15 Örlagavaldurinn
15.00 Stybba fer í stríð
Stinker goes to war
16.30 Reimleikar
Gamanmynd frá Walt Disney
um leikkonu sem er atvinnulaus
og á hrakhólum. 1988
17.45 Popp og kók
18.45 NBAmolar
19.19 19.19
20.00 Fyndnar fjölskyldu-
myndir
20.30 Bingó Lottó
21.45 Heiðursmenn
A few Good Men ★★★★ Ungur
lögfæðingur leggur sig allan
fram um að komast að sann-
leikanum á meðan á herréttar-
höldum stendur. Aðalhlutverk:
Tom Cruise, Jack Nicholson,
og Demi Moore. 1992
00.00 Tvöföld áhrif
Double Impacf ★ Jean-Claude
Van Damme er í hlutverkum tví-
buranna Chads og Alex sem
þurfa að berjast fyrir þvísem er
réttilega þeirra. 1991
01.45 Rauðu skórnir
02.15 Rauði þráðurinn E
Traces of Red ★
03.55 Bræður munu berjast E
The Indian Runner ★★★
SUNNUDAGUR
09.00 Morgunsjónvarp barna
10.20 Hlé
17.00 Þorsklaust
þorskveiðiland E
17.30 Skjálist E
17.50 Hvíta tjaldið E
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 Sagan um barnið
18.55 Fréttaskeyti
19.00 Úr riki náttúrunnar
19.30 Fólkið í forsælu
20.00 Fréttir og íþróttir
20.40 Heimskautafarinn
Vihjálmur Stefánsson
Hans Kristján Árnason ræðir við
eftirlifandi eiginkonu Vilhjálms
Evelyn Stefánssonar Nef, um líf
hans og störf
21.25 Öskutröð
Nýr breskur myndaflokkur gerð-
ur eftir sögu Catherine Cook-
son
22.20 Einn meðal kvenna
Allein unter Frauen Ný þýsk
sjónvarpsmynd um ungan og
efnilegan grobbgölt sem telur
sig eiga sæludaga i vændum er
hann flytur inn til þriggja
kvenna.
23.45 Útvarpsfréttir
09.00 Barnaefni
12.00 íþróttir á sunnudegi
13.00 Töfralæknirinn E
Mediciné Man ★★
14.50 Heimkynni drekanna
The Habitation of Dragons ★★
Frederick Forrest, Brad Davis
og Jean Stapleton. 1992
16.30 Sjónvarpsmarkaðurinn
17.00 Húsið á sléttunni
18.00 I sviðsljósinu
18.45 Úrvalsdeildin
19.19 19.19
20.00 Hjá Jack
20.55 Fyrr en dagur rís
Dead Before Dawn ★★ Cheryl
Ladd, Jameson Parker og Hope
Lange. 1993
22.30 Morðdeildin
23.20 Greiðinn, úrið og stóri
fiskurinn
The favor, the Watch and the
Very Big Fish ★★ Bob Hoskins,
Jeff Goldblum, Natasha Ri-
chardson og Michael Blanc.
1991
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994
27