Eintak

Tölublað

Eintak - 15.09.1994, Blaðsíða 31

Eintak - 15.09.1994, Blaðsíða 31
Nýjar baráttu- aðferðir Skíðasam- bandið í Skíðasamband Islands hefur ákveðið að halda úti sex manna æf- ingabúðum skíðalandsliðsins í borginn Schlaming í Austuríki fram á næsta vor. Þar hefur sam- bandið tekið íbúð_ á leigu fyrir landsiiðsmennina. Asta S. Hall- dórsdóttir verður áfram við nám í sænska bænum Östersund og sömuleiðis skíðagöngumaðurinn Daníel Jakobsson, þannig að nú ættu flestir okkar bestu skíðagarpa að æfa við góðar aðstæður og þá verður gaman að sjá hvort árangur þeirra á alþjóðavettvangi batnar ekki. 0 Stuðningsmenn Alvöru Valsmenn Stofnaður hefur verið klúbbur stuðningsnianna Knattspyrnufé- lagsins Vals. Klúbburinn hefur hlotið nafnið „Alvöru menn“ og er markmið hans að styðja vel við bakið á Valsmönnum í vetur og hefur klúbbnum verið úthlutað húsnæði fyrir starfsemi sína að Hlíðarenda. Klúbbfélagar fá ýmiss konar vild- arkjör og margt verður gert til efl- ingar starfseminni og héfur meðal annars verið ákveðið að hægt sé að kaupa aðgöngumiða á heimaleiki félagsins á vægu verði. Ennfremur munu félagsmenn hita upp fyrir hvern leik í klúbbhúsinu, í hálfleik og eftir leik með leikmönnum. Op- ið hús verður mánaðarlega þar sem leikmenn, þjálfari og stjórn hittast ásamt félögum í stuðningsmanna- klúbbnum. Fyrsti fundur félagsins verður í kvöld kl. 20 í félagsheimilinu og verður hann notaður til að kynna starfsemina og til að skrá nýja fé- laga í klúbbinn. Allar upplýsingar gefa Ómar í s. 77231/681944 og Guðmundur Rafn í s. 615945/644112. 0 Badminton Tryggvi annar Tryggvi Nielsen badminton- kappi varð annar á alþjóðlegu ung- lingamóti sem fram fór.í Svíþjóð um síðustu helgi. Mótið, sem var fyrir x8 ára og yngri, var fjölmennt og voru keppendur hátt á sjöunda tuginn. I' úrslitaleik tapaði Tryggvi fyrir Dananum Sören Hansen með einni lotu gegn tveimur. © Styrkleikalisti FIFA Topp tíu Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, birti á þriðjudag nýjan lista yfir þrjátíu sterkustu knattspyrnu- þjóðir Evrópu. Við íslendingar er- um ekki inni á þeim lista og enn á eftir að reikna út stöðu okkar en í júlí vorum við í sæti 42. Brasilíumenn eru taldir vera með sterkasta lið heims, enda heims- meistarar og næstu lið eru þessi: 2. I'talía, 3. Svíþjóð, 4. Þýskaland, 5. Holland, 6. Spánn, 7. Rúmenía, 8. Noregur, 9. Argentína, 10. Nígería. Athygli vekur staða mótherja okkar í undanriðli Evrópukeppn- innar. Þriðja besta lið heims hefur þegar unnið okkur, ellefta besta lið- ið, Sviss, mætir okkur ytra í nóv- ember og hin löndin tvö, Tyrkland og Ungverjaland eru með sömu stöðu og við, fyrir neðan topp þrjá- tíu. © Slappir Skagamenn áttu ekkert í menn keisarans Heppnir að sleppa með Ijögur möric Björn Ingi Hrafnsson skrifar Það er ekki ofsögum sagt að íslandsmeistarar Skaga- manna hafi hitt fýrir ofjarla sína á Laugardalsvellinum á þriðjudagskvöldið. Þýska liðið Kaiserslautern var betra á öllum sviðum knatt- spyrnunnar og þegar upp var staðið máttu Skagamenn teljast heppnir að fá „aðeins“ fjögur mörk á sig 1 leiknum. Byrjun íslandsmeistar- anna var þó með ágætum og fyrstu tuttugu mínúturnar náðu þeir nokkrum ágætum sókhum og svo virtist sem þýsku stórstjörnurnar hefðu verið slegnar út af laginu. Þó nýttust sóknirnar ekki og fyrir það hefndist á endan- um'. Áhugamenn hafa ekki éfni á að nýta ekki færin sín gegn topp-atvinnumönnum og brátt tóku þýsku leik- mennirnir öll völd á vellin- um. f fyrri hálfleik lék Ólafur Þórðarson best allra á vell- inum. Hann var sívinnandi og ógnáúdi og barátta hans skilaði miklu á upphafsmín- útunum. Það var einkar garnan að fylgjast með bar- áttu hans við stórstjörnuna Andreas Brehme og oft hallaði meira á milljónamæringinn í þeirri viðureign í fyrri hálfleiknum. Eftir um hálftímaleik leit fyrsta mark gestanna dagsins ljós. Þá slapp Matthias Hamman einn inn fyrir vörn Skagamanna og átti ekki í vandræðum með að leggja boltann framhjá Þórði Þórðarsyni í mark- inu. Skömniu síðar urðu Skaga- menn fyrir miklú áfalli þegar Sig- ursteinn Gíslason, þeirra besti maður í sumar, varð að fara meidd- ur af leikvelii og eftir þetta var sem meistararnir gæfust endanlega upp og nokkrum mínútum síðar var staðan orðin 0:2 eftir gott mark Anders Dirk. í seinni hálfleik varð einstefna gestanna meiri ef eitthvað var og mótsvör Skagamanna fá og afskap- lega ómarkviss. Mikið var um vafa- samar sendingar og mistök í vörn- inni. Oftsinnis urðu marksúlur Skagamönnum til bjargar en þó ekki í tveimur færum Þjóðverjanna til viðbótar og því endaði leikurinn 4:0 og hefði munurinn hæglega getað orðið mun stærri. Skagamenn hittu fyrir rniklu Sigurður Jónsson berst gegn ofurliði. betra lið og raunar frá- bært lið. Hvergi var veik- an hlekk að finna og sér- lega skemmtilegt var að fylgjast með því hvernig atvinnumennirnir réðu hraða leiksins algjörlega eftir eigin geðþótta. Margir leikmenn Skaga- manna áttu slæman dag og kömust seint eða ekki inn í leikinn. Má þar nefna Sigurð Jónsson sem oft var eins og úti á þekju og einnig varnar- mennina Ólaf Adolfs- son og Zoran Miljkovic, en þeir hafa þó þá löglegu afsökun að hafa ekki gengið heilir til skógar í leiknum vegna meiðsla. Helst bar á baráttujaxl- inum Ólafi Þórðarsyni og markverðinum efnilega, Þórði. Aðrir voru ekki svipur hjá sjón og vérður síðari leikurinn ytra áreiðanlega mjög erfiður. Sé leikurinn borinn saman við hinn gléesta sigur Skagamanna gegh Feyenoord í fyrra verður að gera það með tveimur stórum fyrjrvörum. Sá fyrri er sá að Kais- erslautern er mun sterkara og jafn- ara lið én það hollenska var og sá seinni er að það sama gildir um ís- landsmeistarana, munurinn á spili þeirra nú og í fyrra er gífurlega mikill og segir það kannski meira en mörg orð um hversu döpur deildin hefur verið í sumar. © Ummæli eftir leikinn Voru einfaldlega miklu betri Sigursteinn Gíslason Hrikalegt „Þetta var alveg hrikalegt," sagði Sigursteinn Gíslason eftir leikinn. „Við spil- uðum vægast sagt mjög illa ög þeir aftur á móti mjög vel. Þetta var bara ekki okkar dagur í boltanum og það verður bara að taka því, við getum ekki alltaf átt toppleiki. Við höfum ekki verið að spila sannfærandi að undanförnu, hvað sem því veldur. Leikurinn gegn Blikum var lélegur af okkar hálfu og sömuleiðis leikurinn gegn KR þrátt fyrir að við höfum bætt okkur í seinni hálfleik þá. Síðan var þessi leikur lélegur og kannski er ástæð- an sú að deildin er búin og pressan vegna hennar að baki.“ Ólafur Þórðarson Rosalega erfitt Þetta var rosal- ega erfiður leik- ur,“ sagð Ólafur Þórðarson, besti leikmaður Skaga- manna, eftir leik. Við byrjuðum reyndar ágætlega og fyrri hálfleikur- inn var nokkuð góður. En í seinni hálfleik skitum við alveg á okkur. Þeir voru rosalega fljótir í öllum sóknaraðgerðum og framherjarnir þeirra spiluðu frábærlega. Við réð- um ekkert við þá og misstum al- gjörlega dampinn. Það er svolítil þreyta í okkur og sumarið er búið að vera erfitt hjá okkur. En við hefðum átt að geta gert betur en þetta.“ Sigurður Jónsson Þeir voru bara mikið betri „Þeir voru bara einfaldlega mikið betri en við,“ sagði Sigurður Jónsson eftir leik. „Við spiluð- um aldrei sem ein heild í leiknum og vorum allan tím- ann að elta þá úti á vellinum. Þeir eru mjög hreyfanlegir og teknískir. Það er ljóst að þetta verður mjög erfiður útileikur.“ Friedel Rausch Gáfust strax upp Mér fannst byrjun Skagamanna í leiknum rnjög kröftug,“ sagði Frie- del Rausch, þjálfari Kaiserslaut- ern, eftir leikinn. „Þeir gáfust hins vegar upp eftir stuttan tíma og það kom mér helst á óvart. En við spil- uðum mjög vel og uppskárum eftir því. Við ætlum okkur stóra hluti í Evrópukeppninni og spiluðum eft- ir því og erum komnir áfram í keppninni. Ég held að Skagamenn eigi að geta gert mun betur en þetta og meiðsli lykilmanna settu strik í reikninginn. En munurinn á áhuga- og atvinnumönnum kom berlega í ljós og ég hlakka til úti- leiksins." Hörður Helgason Áttum von á erfiðum leik „Við gerðum allt of mörg mis- tök í Ieiknum,“ sagði Hörður Helgason, þjálfari ÍA, eftir leikinn. „Við töpuðum boltanum á mikil- vægum stöðum og það má ekki gerast gegn svona liði. Ég var ekki ánægður með leikinn en við vorum auðvitað að spila á móti mjög sterku liði sem varla var raunhæft að ætla að vinna.“ Andreas Brehme Létt fyrir okkur „Þetta var frek- ar létt fyrir okk- ur,“ sagði Andreas Brehme eftir leik- inn. „Við gerðum það sem til þurfti og eftir slappa byrjun small þetta saman hjá okkur. Við fengum færi til að gera mun fleiri færi. Þetta var rninn fyrsti leikur á íslandi og var reglulega gaman að koma eftir að hafa heyrt svo rnargt um landið. Ég er reglulega ánægður með að vera kominn aftur heim til Kaisers- lautern eftir dvöl á Ítalíu og Spáni og hér líður mér best. Mannskap- urinn, þjálfarinn og áhorfendurnir eru góðir og það er það sem máli skiptir. Við stefnum á að vinna Bundesliguna og Evrópukeppnina og í sannleika sagt tel ég það mjög raunhæft markmið." © IA Kaiserslautern 0:4 Matthias Hamman (33), Anders Dirk (43.), Stefan Kuntz (50.), Pavel Kuka (57.) IA: Þórður Þórðarson - Zoran Miljkovic, Ólafur Adolfsson (Bjarki Þétursson 71.), Sturlaugur Haraldsson, Sigursteinn Gfslason (Theodór Hervarsson 37.) - Alexander Högnason, Haraldur Ing- ólfsson, Sigurður Jónsson, Þálmi Haraldsson, Ólafur Þórðarson - Mi- hajlo Bibercic. Kaiserslautem: Ehrmann - Kadlec, Funkel, Ham- man, Roos - Brehme, Anders (Flock 75.), Heng- en (Haber 75.) - Sforza, Kuntz. Áminningar: Sigurður og Sturlaugur, ÍA. Maður leiksins: Ciriaco Sforza. 1. deild Staðan ÍA 15 28:6 36 FH 15 18:13 27 ÍBK 15 28:19 22 Valur 15 20:22 22 KR 15 23:15 21 Fram 15 23:24 19 ÍBV 15 18:20 18 Þór 15 21:28 14 Stjarnan 15 15:30 11 UBK 15 15:33 11 Markahæstir: Mihajlo Bibercic, ÍA: 11 Bjarni Sveinbjörnsson,Þór: 9 Ragnar Margeirsson, ÍBK: 9 Óli Þór Magnússon, ÍBK: 8 Sumarliði Ámason, ÍBV: 8 2. deild Staðan Grindavík16 Leiftur 16 Fylkir 16 Þróttur R.16 Víkingur 16 KA Selfoss HK ÍR 16 16 16 16 ÞrótturN. 16 33:10 41:19 43:22 29:17 27:24 25:30 17:37 13:30 17:35 17:38 35 32 29 28 27 18 17 13 13 10 € i IMJ7VK fyrir þá sem gera úlfalda úr mýflugu Láttu sannleikann V I M § < aldre' eyðileggja ^ ,yrírfrínfÓ‘‘ _ Ú 4" Michael Keaton JjfUþ Glenn Close ý Robert Duvall T H E liÉppÍ, jM| Frumsýnd á fí ||é ÍÍfl P A P .zr- • fFT: .-?r | L - E R FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994 •port

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.