Vikublaðið - 17.12.1993, Síða 2
2
Viðhorf
VIKUBLAÐIÐ 17. DESEMBER 1993
-#\'iknl)laðið
LAÐ SEM VIT E R I
Útgefandi: Alþýðubandalagið
Ritstjóri og ábm.: Hildur Jónsdóttir
Blaðamenn: Páll Vilhjálmsson og Ólafur Pórðarson
Auglýsingar: Ólafur Þórðarson
Ritstjórn og afgreiðsla:
Laugavegur 3 (4. hæð) 101 Reykjavík
Sími á ritstjórn: (91)-17500
Útlit og umbrot: Leturval
Prentvinna: Prentsmiðjan Oddi hf.
Tæki til tekjujöfnunar
Ríkisstjórnin lagði af stað með fyriheit um aðgerðir í skatta-
og félagsmálum sem kæmu hinum tekjulægstu og barnafjöl-
skyldum að gagni. Efndirnar getum við nú skoðað í formi öf-
ugmælakvæðis í tíu erindum:
1. Barnabætur hafa verið lækkaðar um nálægt 600 milljónir
króna. 2. Sjóntannafrádráttur hefur verið lækkaður. 3. Endur-
greiðsla tannlæknakostnaðar barnaíjölskyldna hefur lækkað.
4. Ymiskonar gjaldtöku hefur verið komið á í heilbrigðiskerf-
inu. 5. Þátttaka sjúklinga í lyfjakostnaði hefur verið stóraukin.
6. Skólagjöld hafa verið lögð á. 7. Vextir hafa verið settir á
námslán og þau skert vemlega. 8. Tekjuskattur einstaklinga
hefur verið hækkaður um 1,5% almennt. 9. Skattfrelsismörk
hafa verið lækkuð um 5-6 þúsund krónur á mánuði. 10. Virð-
isaukaskattur hefur verið lagður á húshitun, afnotagjöld, bæk-
ur, blöð og tímarit.
Margt fleira mætti tína til en það er síður en svo að ríkis-
stjórnin láti staðar numið í „jafnaðarmennskunni". Framund-
an er enn frekari hækkun tekjuskatts einstaklinga og gæti
samanlögð skattprósenta einstaklinga á næsta ári orðið 41,9%
en var 39,85% þegar ríkisstjórnin tók við fyrir tveimur ámm.
Þá á að skerða vaxtabætur sem era hrein svik við fólk sem
treyst hefur á óbreyttan stuðning frá hinu opinbera við hús-
næðiskaup. Um áramótin leggst 14% virðisaukaskattur á
ferðaþjónustu, sem meðal annars mun gera almenningssam-
göngur dýrari. Skyldi það eiga að koma „hinum tekjulægstu
og barnafjölskyldunum að gagni?“ I fjárlagafrumvarpi og
öðrum tillögum stjórnarinnar er að fínna ýmislegt fleira sem
íþyngir þeim sem stjórnin þykist vilja styðja, svo sem sérstak-
an skatt á áfengissjúklinga, frekari skólagjöld og fleira.
Alþýðubandalagið hefur komið þeirri skoðun á framfæri á
Alþingi að róttæk endurskoðun á skattkerfinu sé nauðsynleg
vegna þess hvernig stjórnin hefur haldið á málum. Þar ber
hæst að útfæra og koma á raunvemlegum fjármagnstekju-
skatti og leggja á hátekjuskatt sem að hluta til yrði notaður til
þess að hækka skattfrelsismörk í því skyni að auka á ný tekju-
jöfnun í skattkerfinu. Breytingartillögur Alþýðubandalags-
manna á þingi við „skattabandorm“ stjórnarinnar snúast um
að:
1. Hækka persónufrádrátt og skattfrelsismörk.
2. Halda tekjuskatti fyrirtækja óbreyttum í stað ráð-
gerðrar lækkunnar.
3. Falla frá því að leggja virðisaukaskatt á fólksflutn-
inga innanlands og þjónustu ferðaskrifstofa.
4. Afnema bókaskattinn.
5. Matarskattur verði lækkaður en ekki fyrr en
1. mars 1994 vegna ónógs undirbúnings.
Niðurgreiðslur haldist þangað til.
6. Sérstakt hátekjuskattsþrep verði hækkað.
Tekjuöflun samkvæmt tillögum AJþýðubandalagsmanna er
talin verða rúmlega milljarður en útgjöld noklcru meiri eða
um 1,3 milljarðar. Gera má ráð fyrir að afkomubati þjóðar-
búsins og auknar tekjur ríkissjóðs sem fylgja í kjölfarið geri
meira en að brúa þetta bil.
Það hefur lengi verið afstaða Alþýðubandalagsins að beita
ætti hátekjuskatti og niðurfellingu skatts á matvælum sem
tækjum til tekjujöfnunar ásamt öðrum tekjujafnandi aðgerð-
um. I stjórnartíð þess 1978 var matarskattur feJIdur niður og
1987 barðist flokkurinn af hörku gegn upptöku matarskatts-
ins. Á árunum 1988 - 1991 beitti hann sér fyrir því að niður-
greiðslur á helstu matvörum voru auknar svo það jafngilti
lægra skattþrepi. Það er því í fullu samræmi við þessa haráttu
sem Alþýðubandalagsmenn á þingi styðja það að inatarskatt-
urinn verði lækkaður niður í 14%. Auðvitað getur það vafist
fyrir versluninni og innheimtumönnum ríkissjóðs að lækka
matarskattinn en úr því það er hægt að hafa þrep í virðisauka-
skatti í flestum ríkjum Evrópu ætti okkur elcki að vera vandara
um en þeim.
„Peir hafa steypt sér kálf úr gulli“
Nú eru jólin að ganga í garð
með slcrautí sínu, trjám og
dýrum jólagjöfum og
bráðum verða haldnar stórar veisl-
ur. Hin kristnu jól eru að breytast
og hafa verið að breytast í einhvers-
konar neysluhátíðir. Þannig hefúr
innihald þeirra rýrnað en umbúð-
irnar orðið glæsilegri og glæsilegri.
En kannski eru hér á ferðinni ný
trúarbrögð neyslunnar.
Guð þeirra var guð neyslunnar,
eklii veit ég hvað hann heitír en það
er við hæfi að skýra hann upp á
ensku, því nú á dögum sækjum við
öll okkar viðmið í sjónvarps- og bíó-
myndamenningu Bandaríkjanna og
Breta. Því ætla ég að kalla hann
Konsúmer, sem yrði að sjálfsögðu
að skrifast með c-i og engri kommu
yfir u-inu. Einhver rnyndi þó kalla
hann Mammon, eítir hinum sýr-
lenska guði ágirndar og auðsöfnun-
ar. Þetta er karlkyns guð en hvorki
kvenkyns né hvorugkyns. Nei, kyn
hans er skýrt, og hann er að rneira
að segja með lim einn inikinn ffant-
an á sér, sem er í laginu eins og
spjót, oddhvasst og ffekt. Þannig
getur hann þrengt sér í smæstu og
þrengstu rifúr mannsálarinnar og
hamast í þeim af ófullnægðri þrá
sinni. Honum kemur lítið við þó
hann gangi að dýrkendum sínum
dauðum. Þjónustumey hans
græðgin býr yfir vopni sem hcitir
auglýsing og getur alltaf gabbað tíl
sín nýja og nýja dýrkendur guðsíns
mikla. Ekki er hægt að steypa hon-
um af stalli sínum, því þar var hann
kyrfilega settur af dýrkendum sín-
um kaupmönnunum og peninga-
valdinu sem ræður fjölmiðlum og
stjórnar þeim með peningastreymi
auglýsinganna og þannig hafa áhrif
á hugi fólksins.
„Nei, vinur, þú ert ekki vinur
okkar og þá færð þú ekki peninga
ffá okkur,“ sögðu fúlltrúar inarkað-
arins við þá sem ekki vildu þýðast
guðinn. „Nei vinur, þú auglýsir ekki
hjá okkur, því erm okkur óviðkom-
andi“, sögðu fjölmiðlanir við þá sem
sertu sig uppá móti lögum markað-
arins. Sem á þessum tímum þjónaði
hlutverki lögmálsins.
Og allir voru dauðhræddir við að
minnast á þetta heldur þráðu að
komast í algleymis ástand og njóta
biessunar neysluguðsins. Allir
keppmst við að vinna sem mest og
best til þess að ná því takxnarki að
geta keypt sem mestan og dýrastan
varning. En þegar þeir höfðu keypt
hann komust þeir að því að vaming-
urinn veitti þeim ekki þá ánægju
sem þeir höfðu vænst eftír, því
þurftu þeir að fara af stað á ný og
kaupa nýjan varning, því guðinn
heimtaði blóð, nægilegt blóð fékk
hann frá áhangendum sínum og
prestar ríkiskirkjunnar í landinu
ýtm undir þessa trú.
1 trúarrimn kirkjunnar í landinu
var eitthvað talað um gullkálfa og
víxlara í musterum en prestar henn-
ar höfðu það að engu og flykkmst
um hina nýju trú á neysluguðinn og
heimmðu launahækkun sjálfum sér
til handa, til þess að geta tekið þátt í
leiknum. Talaði frelsarinn ekki eitt-
hvað uin guð og keisarann, ef við
fáum okkar þá erum við ánægðir,
við gemm ekki staðið á rnóti svona
öflugu valdi. Þetta gerðu þeir í sam-
ræmi við breskan inálshátt uin hinn
ósigranlega óvin sem best sé að
ganga í lið með.
Dýrkefidum nýja guðsins óx ás-
meginn og þeir sneru fornuin trúar-
hátíðum og siðvenjum kirkjunnar í
landinu uppí dýrkun hins nýja guðs.
Menn kepptust við að vinna, slá lán
til þess að geta gefið sem dýrastar og
flottastar gjafir, haldið sem dýrastar
veislur, neytt sem mest í kringum
þessar hátíðir þeirra.
Dýrkendur neysluguðsins þræl-
uðu fyrir höfðingja sinn alltaf jafn ó-
ánægðir; við viljum meira, við vilj-
um meira, en aldrei fengu þeir nóg
fyrr en þeir lágu örendir á stofugólf-
inu heima hjá sér búnir að vinna úr
sér heilann, kveikm á auglýsingun-
um í sjónvarpinu tíl þess að leita sér
að innblæstri fyrir sinn tóma haus
og lina þannig þjáningar síns ófull-
nægða lífs með draumum um nýrri
og betri varning sem gætí eytt von-
brigðum sem sá gainli olli. Þannig
var þetta, er og mun verða um aldir
alda.
Neytum!.
Höfúndur býr á Neskaupstað
SPIL
FYRIR
ALLA
SKÁKHÚSK) LAUGAVEGI118
ajwwæ SfMI 19768
éæBm* REYKJAVfK
SCRABBLE
VASA-SCRABBLE
MONOPOLY
FIMBULFAMB
MATADOR
PICTIONARY
RISK
TRIVIAL PURSUIT
QUARTO
RUMMIKUB
TRIOMINO
MASTERMIND
MEISTARI
V ÖLUNDA RH ÚSSINS
GO
ABALONE
DRAUGASPILIÐ
PYROMIS
SPRETTHLAUP
DÝRANNA
HAFMEYJUSPILIÐ
HNETURUGL
KAPPHLAUPID AÐ
KALDA BORÐINU
UNO
DOMINO RALLY
RALLY DRIVF.R
LÚDÓ
SLÖNGUSPIL
KlNASKAK
BINGÓ
STRADEGO
GAME OF THE YEAR
SCATFEGORIES
TOPSECRET
SCOTLAND YARD
BATTLESHIP
CLUEDO
TWISTER
NUMBER RUMBA
POI.TERGEIST
RAM’N SIAM
SF.GDU SÖGU
FATCATSo.fl o.fl.
Taflmcnn og borð,
4&-50 (egundir og margar
gcrðir af skákklukkum.