Vikublaðið - 17.12.1993, Page 10
10
VIKUBLAÐIÐ 17. DESEMBER 1993
>í I jl'JM
UAsV-C
Markmið taoista er m.a. að
komast sem greiðast í
gegnum tilveruna. Þeir
forðast sviðljósið og óttast jafnmikið
að vera lofaðir eða svívirtir vegna
þess það dregur athyglina að þeim og
gerir líf þeirra erfiðara og óvissara en
ella. Þeir meta líkainlegt öryggi sitt
meira en nokkuð annað, því hvers
virði eru öll auðæfi heimsins ef fólk
hefur ekki heilsu til að njóta þeirra?
Samkvæmt taoismm verður árang-
urinn af lausn hinnu ýmsu vandamál
best metinn af áhrifum þeirra á vel-
verð viðkomandi. Þeir telja þá ríkis-
stjómendur besta sem óska sér um-
fram allt langra og góðra lífdaga.
Þeir hljóti að forðast yfirgang og ó-
vinsælar ákvarðanir. Slíkir ríkis-
stjómendur leyfi öllu að hafa sinn
eðlilegan gang án boða eða banna
sem er einmitt grundvallarstefna ta-
oista í stjórnmálum.
13. brot úr Bókinni um
Veginn
Það er skelfilegt að vera bampað eða
niðurlægður.
Stórvandamál skulu metin að mikil-
vægi eins og líkaminn.
Hvað er átt við með þvt að það sé
skelfilegt að vera hampað eða niðurlægð-
ur? Það er lítibnótlegt að vera hampað;
það er skelfilegt að verðafyrir því og
skelfilegt aðfara á mis
viðþað. Þetta erþað
sem átt er við með því
að það sé skelfilegt að
vera hampað eða niður-
lægður.
Hvað er átt við með
því að stórvandamál
skulu metin að mikil-
vægi eins og líkaminn?
Eg hefstórvandamál af
því ég hef líkama. Ef ég
væri án líkama, hvaða
vandamál hefði égþá?
Þess vegna má
treysta þeimfyrir
beimsbyggðinni sem
tekur líkama sinnfram
yfir heiminn. Elski hann líkama sinn
meira en heiminn, þá máfela honum
umsjón hehnsbyggðarinnar.
Umritun þýðanda
Það er jafnkvíðvænlegt að vera
hampað eða niðurlægður. Það verður
að meta mikilvægi stórvandamála í
ljósi áhrifa þeirra á líf og limi.
Hvað er átt við með með því að
það sé jafnkvíðavænlegt að vera
hampað eða niðurlægður? Það er lít-
ilmótlegt að vera hampað án þess að
eiga það skilið. Sá sem verður fyrir
því óttast alltaf vera afhjúpaður og sá
sem glatar slíkuin forréttindum
vaknar upp við vondan draum.
Hvað er átt við með að mikilvægi
stórvandamála skuli metin í ljósi á-
hrifa þeirra á líf og limi? Ekkert
vandamál getur verið mikilvægara
fyrir mig en líf mitt og liinir af því að
ég hefði ekki þetta vandamál ef ég
væri ekki á lífi.
Þess vegna má treysta þeim fyrir
að stjórna heiminum sem girnist ekki
yfirráð heldur hugsar fyrst og ffemst
um eigið öryggi. Sá sem þykir vænna
um líf sitt en öll heimsins gæði yrði
góður stjómandi.
Þýðandi: Ragnar Baldursson
Áskriftarsími
Vikublaðsins er
17500
upplýsingar og skráning stofnenda
^Björgvin SI 05-22710 Ckl. 17-19)^
Það eru snillingar
í minni ætti
Afi og amma komu þessu öllu af staö. Þau
sögöu aö ég væri svo músíkölsk, aö ég yröi
aö eignast alvöru hljóöfæri. Samt trúöi ég
varla eigin augum þegar ég settist viö nýja,
fallega píanóið í stofunni heima.
Mér finnst mjög gaman að æfa mig, og
stundurn er ég kölluð litli snillingurinn f
fjölskyldunni. En þaö eru afi og amma sem
ég kalla snillinga. Þau gáfu mér þaö besta,
sem ég gat hugsaö mér.
*
LéIFS’ h. magnússonar
GULLTEIGI6 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI91 - 688611
Vandaö hljóöfæri
-varanleg ánægja
ta r<' /.J /f<n
Ólína víkur úr borgarstjórn
Kveður með tillögu
um fæðingarorlofsrétt
sveitarstj órnarkvenna
Olína Þorvarðardóttir,
borgarfulltrúi Nýs
vettvangs, hefur ákveð-
ið að hverfa úr borgarstjórn, en
hún er á leiðinni í fæðingarorlof.
Kveðja hennar til borgarstjómar
felst í tillögu sem hún lagði ffam
á síðasta borgarstjórnarfundi
sínum, sem haldinn var í gær,
fimmtudag, um að að borgar-
fulltrúum verði tryggður orlofs,
veikinda- og lífeyrisréttindi
sambærileg við það sem aðrir
launþegar njóta á vinnumarkaði.
Hvorki í samþykkt um stjóm
Reykjavíkurborgar þar sem
kveðið er á um réttindi og skyld-
ur borgarfulltrúa né í sveitar-
stjómarlögum em ákvæði sem
tryggja rétt sveitarstjórnarfull-
trúa að þessu leyti, en það þýðir
að t.d. konur í sveitarstjórnum
sem hafa starfa sinn þar að aðal-
starfi eiga ekki rétt á að halda
launum sínum í fæðingarorlofi.
Sama gildir reyndar um alþing-
iskonur, en fyrir alþingi liggur
fmmvarp ffá Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur og fleimm um
breytingar á lögum um þingfar-
arkaup þar sem tekið er á því at-
riði sérstaklega.
1 greinargerð með tillögu
sinni segir Olína að fæðingaror-
lofsréttur sveitarstjórnarkvenna
Ólína Þorvarðardóttir.
sé túlkunaratriði og hafi í
reynd verið háður pólitískum
og persónulegum vilja ráða-
manna sveitarfélaganna í
hverju tilviki.
„Það er mikilsvert fyrir
borgarfulltrúa að vita að
hverju þeir ganga þegar þeir
taka að sér störf í þágu sveit-
arfélagsins. Sanngirnissjónar-
mið krefjast þess að í því efhi
gildi eitt fyrir alla - og að það
sé ekki pólitísk eða embættis-
leg ákvörðun hverju sinni
hvernig með mál einstakra
Fyrsta barnabók Pórunnar
Klukkan Kassíópeia og hús-
ið í dalnum heitir nýút-
komin barnabók eftir Þómnni
Sigurðardóttur. Bókin er
byggð á leikriti sem flutt var í
Ríkisútvarpinu í haust og fjall-
ar um börn sem fara að grafast
fyrir um gamalt leyndarmál og
komast þá að óvænmm sann-
leika. Þegar farið er að gmfla í
fortíðinni kemur ýmislegt
spennandi í ljós og aðalpersón-
an, Halla, uppgötvar að lífið í
sveitinni hefur ýmsa kosti sem
ekki finnast í höfuðborginni
þar sem kapphlaupið við tím-
ann er allsráðandi.
Þómnn Sigurðardóttir, höf-
undur bókarinnar, er þekkt
fyrir störf sín við leikhús borg-
arinnar. Hún hefur bæði leikið
og leikstýrt mörgum verkum
og eftir hana hafa verið flutt
sex leikrit, m.a. Haustbrúður,
en leikritið var gefið út á bók af
Menningarsjóði árið 1989.
Klukkan Kassíópeia og húsið í
dalnum er fyrsta bamabók
Þómnnar. Katírn Sigurðar-
dóttir, systir höfundar, mynd-
skreytti bókina.
Bókin er 140 blaðsíður,
prentuð í Prentsmiðjunni
Odda og kostar úr úr búð kr.
1390.
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í
kaldavatnsdælu fyrir Nesjavallavirkjun.
Helstu kennistærðir:
Magn 450 l/sek.
Lyftihæð 140 m vatnssúlu.
Snúningshr. 1.490 sn/mín.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 18. janúar1994, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
fulltrúa er farið í veikindum eða
öðmm forfölluin þeirra," segir í
greinargerðinni.
Þá lagið Olína einnig fram til-
lögu um að borgarstjórn komi
upp fánamerkingum við Tjörn-
ina að vetrarlagi til að gefa til
kynna hvort ísinn sé mannheld-
ur eða ekki. Þetta verði gert í
samvinnu við lögreglu og ísinn
athugaður tvisvar á dag að
minnsta kosti.
Olína hefur tilkynnt að hún
mun ekki taka sæti á framboðs-
lista fyrir næstu borgarstjórnar-
kosningar.
íandófínu
pólsk nútímaljóð
Iandófinu er sýnisbók pólskra
nútímaljóða sem ljóðskáldið
Geirlaugur Magnússon hefur
þýtt og valið. Hér birtist á ís-
lensku úrval ljóða eftír mörg
helstu skáld Pólverja á þessari
öld, m.a. Zbigniew Herbert,
Tadeusz Rozewicz, Wieslawa
Szymborska og Ewa Lipska.
Pólsk ljóðlist minnir um
margt á bronsmynd sem fellir
dimman skugga á malarstíg í
leynduin garði, kraftmikil og
dulúðug í senn, vitnisburður
sem grimmd styrjalda og harð-
stjóra hefur ekki tekist að má
burt.
Þýðingar Geirlaugs Magn-
ússonar eru verk skálds, meitl-
aðar og áræðnar, ávallt með
sínum sérstæða tón.
Bókin er 74 blaðsíður og er
unnin í Odda. Hörpuútgáfan
gefúr út, en sú útgáfa hefur
sinnt því afburðavel fyrir þessi
jól að koma ljóðabókum á
markað.
Nýjar bækur
um siðfræði
Greinasafnið Erindi siðfræð-
innar og bókin Siðfræði lífs og
dauða - erfið-
ar ákvarðanir
í heilbrigðis-
þjónustunni
eftír Vilhjálm
Arnason eru
komnar út hjá
Rannsóknar-
stofnun í siðffæði við Háskóla
íslands.
Erindi siðffæðinnar geymir
valdar greinar um siðffæðileg
efni og meðal höfúnda eru
Björn Bjömsson guðffæðingur,
Páll Skúlason heimspekingur,
Atli Harðarson kennari og
Guðmundur Heiðar Frímanns-
son heimspekingur.
Bókin Siðffæði lífs og dauða
eftír Vilhjálm Amason heim-
speking tekur til ítarlegrar um-
fjöllunar þau siðferðilegu álita-
mál sem tengjast heilbrigðis-
þjónustunni. Vilhjálmur hefúr á
síðustu ámm víða flutt fyrir-
lestra um ýmsar hliðar siðfræði-
umræðunnar í heilbrigðiskerf-
inu. Bókin er aðgengileg al-
menningi enda fjallar hún utn
efni sem varðar líf allra og flest-
ir þekkja af eigin raun.