Vikublaðið - 24.03.1994, Síða 13
VIKUBLAÐIÐ 24. MARS 1994
Gerum bæinn betri!
13
Unglingarnir eru vanrœktir í Kópavogi:
Öfluga félagsmið-
stöð í miðbœinn
Hvað vilja unglingar í Kópa-
vogi að gert sé í þeirra
málum? Við ákváðum að
heyra í nokkrum krökkum um
þeirra óskir og kröfur, en fyrst varð
þó fyrir svörum Hrafhhildur Ast-
þórsdóttir forstöðumaður félags-
miðstöðvarinnar Ekkó sem stað-
sett er í Þinghólsskóla.
„Unglingarnir hafa sett það skýrt
fram hvað þeir vilja. Það hafa þeir
meðal annars gert á sérstökum ung-
lingadegi. Þessir krakkar eru gjarnan
vanmemir, en þeir hafa uppi mjög
raunhæfar óskir og kröfur,“ segir
Hrafnhildur.
Fyrir síðasta unglingadag var sett á
laggirnar neínd unglinga á aldrinum
13 til 16 ára, tveir úr hverjum skóla.
Krakkarnir settust niður og hófu
nefhdarstörf þremur vikum fyrir ung-
lingadaginn ásamt Hrafnhildi og
Onnu Sigurbjörgu unglingafulltrúa.
„En það voru þau sjálf sem mótuðu
vinnuna, þessir fulltrúar tæplega 800
unglinga á þessum aldri í Kópavogi.
Það kom í ljós að krakkarnir eru mjög
hlynntir einni stórri félagsmiðstöð
ntiðsvæðis, ásamt því að halda starfinu
óbreytm áfrarn í skólunum og sam-
starfi þarna á rnilli. Þá eru þau gáttuð
á því að vera látin borga fullorðins-
gjald í strætó og sundlaugar frá 12 ára
aldri, en síðan horfa þau á útivistar-
reglurnar og eru þar talin börn fram
að 17 ára aldri,“ segir Hraffiildur.
Hún sagði að það sem vanti sé
stefnumótun í unglingamálum. „Það
er ótrúlegt hverju við gemm þó kom-
ið til leiðar með okkar litla fjármagn
og satt að segja hristir maður höfuðið
ansi oft á ári. Það virðist ekki skiljast
hvað felst mikil forvörn í félagsmið-
stöðvum og hvað þetta á að vera sjálf-
sögð þjónusta,“ segir Hrafnhildur.
Þrjár 15 ára stúlkur sám fyrir svör-
um um ósldr og kröfur unglinga í
Kópavogi, þær Sigríður H. Guð-
mundsdóttir, Bryndís Yngvadóttir og
Elfa María Magnúsdóttir.
Sigríður: Við viljurn að byggð verði
félagsmiðstöð í miðbænum sem er
sameiginleg fyrir alla unglinga í
Kópavogi og að áfram verði félagslíf í
skólunum eins og hér í félagsmiðstöð-
inni Ekkó.
Elfa: Strætógjaldið hefur hækkað úr
70 í 110 krónur og við erum látin
borga fullorðinsgjald ffá 12 ára aldri
og fáum ekki einu sinni skiptimiða
sem gildir í Reykjavík. Við viljum að
fullorðinsgjaldið rniðist við 16 ára,
helst 18 ára.
Btyndís, Sigríður og
Elfa: Fullorðinsgjald i
strtetó og sund á að
miðast við 16-18' ára
aldnr. Myndir: Ol.Þ.
Hrafnhildur Ástþórsdóttir forstöðu-
maður félagsmiðstöðvarinnar Ekkó:
Maður hristir höfuðið ansi oft á ári.
Bryndís: Þetta er mikill peningur
fyrir okkur. Við erum talin börn þeg-
ar talað er um útivistarmál og hvers
vegna borgum við þá ekld barnafar-
gjald? Eða sérstakt unglingagjald
þarna á milli?
Sigríður: Þetta er líka svona með
sundið. Börn borga 60 krónur en full-
orðnir 120 eða 140 krónur. Og við
borgum fullorðinsgjald 12 ára.
Elfa: Það er alltaf svo neikvæð um-
ræða um okkur unglingana.
Sigríður: Það er ailtaf verið að al-
hæfa um okkur. Ef eitthvað kemur
upp á hjá einu okkar þá er sagt: Sjáið
þessa unglinga hvernig þeir eru. Hin-
ir fullorðnu eru ekkert betri en ung-
lingarnir.
Bryndís: Verri!
Sigríður: Það er fullorðna fólldð
sein er fullt og að slást.
Bryndís: Við eigum síðan að fara
eftir einhverjum útivistarreglum, en
það fer enginn eftir þeim. Til hvers að
hafa reglur ef enginn fer eftir þeirn?
En nú skilst mér að það eigi að fara
meira eftir reglunum. Og þá erum við
orðin börn sem má reka heim, þótt
við séurn talin nógu stór til að borga
eins og fullorðnir í strætó og sund.
Hvernig eigum við að geta sótt félags-
lífið í skólunum ef það á að fara að
reka okkur heirn klukkan 10 á kvöld-
in?
Elfa: Auðvitað verða að vera ein-
hver mörk á útivistartímanum og við
erum tilbúin að skoða það mál. Til
dæmis að hafa mörkin kl. 11 á virkum
dögum og hálf eitt um helgar, eins og
lagt var tíl á unglingadeginum.
Bryndís: Það fer lítill peningur í fé-
lagslíf unglinga í
Kópavogi. Það er á-
gætís starf hér í Ekkó,
en ég hef heimsótt
Garðalund í Garðabæ
og þar fá unglingarnir
miklu meira. Þau ei/u
að fara að halda stór-
glæsilega árshátíð og
árshátíð skiptír mjög
mildu máli. Þau eru
að fá til sín vinsælustu
hljómsveitírnar. Við
fáum ágætís hljóm-
sveitír, en ekki stóru
nöfnin. Það er ekki
hægt að líkja satnan
hvað það eru miklu
meira gert fyrir
krakkana þar.
Sigríður: Maður
skilur ekki af hverju
þessu er skipt svona
misjafnt. Munurinn er
svo mikill.
Guðrún Gunnarsdótlir leikskólastjóri innan um nokkra fulltrúa yngstu kynslóðanna í sólskini ogstillu.
Leikskólinn Grænatún í
Kópavogi verður 10 ára 11.
maí næstkomandi og þegar full-
trúar Vikublaðsins mættu í
heimsókn um daginn var ekki
annað að sjá en að öll bömin
væm þegar komin í hátíðarskap.
En það var svo sem ástæða til að
vera í góðu skapi, því úti var sól,
snjór og stilla og allir nýbúnir að
borða. Og bömin geisluðu af
gleði.
Grænatún er þriggja deilda leik-
skóli fyrir tveggja til sex ára börn og
eru þau í fjögurra til níu tíma vistun
í sveigjanlegu kerfi. Börnin eru ails
96 talsins og lúta þau umhyggju-
samri handleiðslu átta fóstra, tólf
aðstoðarstarfsmanna auk tveggja í
eldhúsi.
Leikskólastjóri er Guðrún
Gunnarsdóttír og sagði hún í sam-
tali við Vikublaðið að í starfinu væri
byggt á markmiðum uppeldisáætl-
unar menntamálaráðuneytisins um
leikskóla. „Og með vísan tíl hennar
viljum við stuðla að gagnkvæmri
virðingu barna og starfsfólks og að
börnin viti hverju þau eigi von á.
Við leggjum okkur fram um að
þekkja þarfir og einkenni hvers
barns fyrir sig og koma tíl móts við
þau. Virkni og áhugi barnanna eru í
fyrirrúmi og reynt að örva
frumkvæði og sjálfstæði í
starfi og leik,“ segir Guðrún.
Hún nefhir enn ffemur að
leitast sé við að halda góðri
samvinnu við foreldrana.
„Foreldrafélagið er virkt og
við reynum að gæta þess að
góð samvinna ríki á milli
heimilanna og leikskólans."
Vikublaðið óskar börnun-
um, foreldrunum og starfs-
fólkinu að Grænatúni tíl
hamingju með 10 ára affnæli
leikskólans.
iyÓI'Á'JHLJOMS VEITlfv
ÍL. 14.30
Wu ára .‘s&smur ttmðsiras
Ktor þátt í íátnilditaimiiaffl
Miðasala á skrifstofu hljómsveitarinnar í Háskólabíói
alla virka daga kl. 9 - 17 og við innganginn
við upphaf tónleikanna.
SIMFÓMÍl HLJÓMSVEITI M sími 622255
mmm