Vikublaðið - 24.03.1994, Side 23
VIKUBLAÐIÐ 24MARS 1994
23
Kvikmyndaeftirlitið
í lagalegu tómarúmi
E
vikmyndaeftirlit ríkisins starf-
ar í lagalegu tómarúmi sam-
rvæmt svörum Olafs G. Ein-
arssonar menntamálaráðherra við fyr-
irspurn Guðrúnar Helgadóttur. Olaf-
ur viðurkenndi að þegar lög um vernd
barna og unglinga frá 1992 tóku gildi
féllu úr gildi ákvæði laga ffá 1966 um
Kvikmyndaeftirlitið, sem aftur starf-
aði áfram á grundvelli reglugerðar frá
því 1989. Guðrún gagnrýndi þetta
harðlega í umræðum á Alþingi fyrir
sköminu, en Ólaíúr sagði að nýtt
frumvarpi væri í lokavinnslu.
I máli Guðrúnar kom fram að það
virtust engin takmörk fyrir [wí hvers
konar inyndir væru á boðstólum,
einkum á myndbandaleigum. Það
væri gustukaverk að taka á málum,
einmitt nú á ári fjölskyldunnar. Nú
blasti hins vegar við að Kvikmynda-
eftirlitið starfaði í lagalegu tómarúmi.
Menntamálaráðherra sagði að sér
væri það fyllilega ljóst að lögin ffá
1966 hefðu fallið úr gildi með lögun-
um frá 1992. Starfsemi Kvikmynda-
eftirlitsins hefði hins vegar haldið
óbreytt áfram og nyti trausts hans.
Hann sagði þessi mál í endurskoðun,
sérstök nefnd hefði skilað áliti í frum-
varpsformi í lok árs 1992, sem Knúti
Hallssyni hefði verið falið að yfirfara.
Niðurstaða hans hefði borist í upphafi
þessa árs og væri afstöðu ráðuneytis-
ins brátt að vænta.
Guðrún innti ráðherra eftir því
hvort rétt væri að enn einn aðilinn
væri að fara yfir þessar tillögur og að
það væri Auður Eydal. Hún spurði í
því santbandi hvort ráðherra teldi þá
hættu myndast á hagsmunatengslum,
þar eð eiginmaður Auðar væri um-
svifamikill í fjölmiðlaheiminum (eig-
inmaður hennar er Sveinn R. Eyjólfs-
son stjórnarformaður DV og stór
hluthafi í Stöð 2/Bylgjunni - innskot
Vikublaðsins).
Ráðherra sagði rétt að Auður hefði
verið beðin um að tjá sig um tillög-
urnar, hún hefði mikla reynslu í þess-
um inálurn og teldi hann ekki hættu á
hagsmunatengslum.
Skóverslun Kópavogs
Svartir\brúnir
Verð kr.
5.480
Svartir
Æskulýðsfylkingin í Keflavík Alþýðubandalagið í Garðabæ
LISTAKVOLD
Listakvöld ÆF verður haldið í nýuppgerðu húsnæði Al-
þýðubandalagsins í Keflavík (Hafnargötu 26) laugar-
dagskvöldið 26. mars.
Dagskráin hefst kl. 22:00 með því að Ingó les Ijóð en síð-
an koma fram Hinir demonísku Neanderdalsmenn,
Sovkhoz (ný hljómsveit Heiðu trúbadors), Stingandi Strá,
Texas Jesús og Kolrassa Krókríðandi. Þeir sem vilja
hafa samráð um ferðir frá höfuðborgarsvæðinu geta skil-
ið efíir skilaboð í síma 17500 á skrifstofutíma eða í sím-
boðanúmer 984-53083.
Mætum og skemmtum okkur!
Kolrassa Krókríöandi
Æskulýösfylking Alþýöubandalagsins í
Reykjavík
Félagsfundur
í ÆFR verður haldinn mánudaginn 28. mars kl. 20:00 að
Laugavegi 3, efstu hæð.
Dagskrá:
1. Staða ÆFR
2. Tillögur um breytt lög ÆFR
3. Önnur mál
Aðalfundur
Aðalfundur ÆFR verður haldinn fimmtudagskvöldið 7.
apríl kl. 20:30 að Laugavegi 3, efstu hæð.
Dagskrá:
1. Pólitísk umræða í dag - breyttir tímar
eða sama tuggan?
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Önnur mál.
Stjórn ÆFR
Alþýðubandalagið Akureyri
Félagsfundur verður haldinn mánudaginn 28. mars, kl.
20:30 í Lárusarhúsi.
Dagskrá: Inntaka nýrra félaga
Framboðslisti til bæjarstjórnarkosninga
lagður fram.
Kosningaundirbúningurinn.
Önnnur mál.
Fjölmennum - Stjórnin.
Félagsfundur
Alþýðubandalagið í Garðabæ boðar til félagsfundar
laugardaginn 26. mars nk. kl. 13:30 í Safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli
Dagskrá:
1. Framboðslisti vegn'á bæjarstjórnarkosninganna.
2. Önnur mál.
Alþýðubandalagið í Reykjavtk
Föstudagskvöldið 18. mars
sl. hélt Alþýðubandalagsfé-
lagið í Reykjavík framboðs-
fagnað í Risinu á Hverfis-
götu 105. Fjölmennt var og
gleði mikil og greinilegt að
það er hugur í ABR-mönn-
um. Meðfylgjandi myndir
voru teknar umrætt kvöld,
þegar menn tóku bakföll af
hlátri yfir mjög svo
skemmtilegri ræðu Árna
Þórs Sigurðssonar og Ein-
ar Gunnarsson formaður
ABR lét ekki sitt eftir liggja og söng glæsilega til Guðrún-
ar Ágústsdóttur „Þú ert..“ eftir Þórarinn Guðmundsson,
án undirleiks.
Alþýðubandalagið í Borgarnesi og
nærsveitum
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn 29. mars á
Hótel Borgamesi kl. 20.00.
Fundarefni:
Inntaka nýrra félaga
Ákvörðun um framboð
Önnur mál
Mætum vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Birting Reykjavík
ATVINNULEYSI
- ábyrgð og úrræði -
6. apríi
Fundur miðvikudaginn 6. apríl kl. 20:30
á Kornhlöðuloftinu
Fundarstjóri: Kristín Á. Ólafsdóttir
Frummælendur:
Ari Skúlason
Hörður Bergmann
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Már Guðmundsson
Rannveig Sigurðar-
dóttir
Rannveig Siguröardóttir
Kristín Á. Olafsdóttir
VERÐANDI Reykjavík
Úr Dagatalinu
Föstudagur 25. mars kl. 17:00 í húsnæði Verðandi
Austurstræti 10a
Svavar Gestsson, alþingismaður ræðir um stjórnskip-
unarmál: Kjördæmamál, persónukjör, starfshætti lög-
gjafarvaldsins og fleira.
Miðvikudagur 30. mars kl. 17:00 í húsnæði Verðandi,
Austurstræti 10a
Opin fundur um verkalýðsmál. Gestir fundarins verða
m.a. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB og Ingólfur
V. Gíslason, félagsfræðingur.
Laugardagur 9. apríl kl. 14:00
LANDSFUNDUR VERÐANDI
í Iðjusalnum, Skipholti 50c 4. hæð, gengið inn að austan-
verðu.
Dagskrá:
Kosning stjórnar.
Lagabreytingar.
Málefnagrundvöllur.