Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.2005, Blaðsíða 1
Laugardagur 21.5. | 2005
[ ]Fado-tónlist | Portúgalska söngkonan Mariza fer frjálslega með fado-hefðina | 10Hljóðfæri hugans | Í ljóðlistinni rís hljóðfæraleikur hugans hæst | 6–7Dómar um Dieter | Ögrandi húmor, léttúð og róttækni 8–9
LesbókMorgunblaðsins 80ára19252005
Morgunblaðið/Golli
Hraðfleygum ferðalöngum nútímans þykir
langur aksturinn gegnum Húnavatnssýslur.
Um það bil á miðri leið er skilti við veginn,
sem upplýsir á nokkrum tungumálum að þar
liggi stígur að Þrístöpum kippkorn norðar,
en þar var árið 1830 framkvæmd síðasta af-
taka á Íslandi. Þá voru hálshöggvin þau
Agnes Magnúsdóttir og Friðrik Sigurðsson
fyrir morð og morðbrennu á Illugastöðum á
Vatnsnesi tæpum tveim árum fyrr. Hinir
myrtu voru Natan Ketilsson, húsbóndi á Ill-
ugastöðum, og Pétur Jónsson sem þar var
næturgestur.
Eftir Sigrúnu Huld Þorgrímsdóttur
sighuld@hotmail.com
Agnes og
Friðrik –
fyrir og
eftir
dauðann
M
orðin og aftaka
þeirra Agnesar og
Friðriks höfðu á
sínum tíma áhrif
um allt land, en
eðlilega hvergi meir
en í Húnavatns-
sýslum. Morðið var
hroðalegt, framið á sofandi og varnarlausum
mönnum og bærinn brenndur. Allt málið var
rekið heima í héraði, þar sátu fangarnir í haldi
á sveitabæjum, deildu kjörum með heimafólki
og gengu til verka með því. Loksins var svo
sjálf aftakan, með hætti sem okkur nútíma-
fólki finnst hrein villimennska: sakamennirnir
hálshöggnir opinberlega og afhöggvin höfuðin
síðan fest upp á stengur og andlitin látin snúa
að alfaraleið. Auk þess voru allir bændur sýsl-
unnar skikkaðir til að vera viðstaddir eða
senda fullgildan karlmann í sinn stað. Um 150
manns voru á Þrístöpum 12. janúar 1830.
Slíkir atburðir verða ekki án eftirmála.
Sumir þeirra eru geymdir á bókum embættis-
manna: hvað var gert við öxina, hver borgaði
hverjum hvað og fyrir hvað, rétt eins og alltaf
hefur þurft að skrá og skrifa. Um önnur atriði
ríkir þjóðsagan ein.
Morðin á Illugastöðum
Aðfaranótt 14. mars árið 1828 var vakið upp
á bænum Stapakoti á Vatnsnesi. Þar var kom-
in Agnes Magnúsdóttir, 33 ára vinnukona á
Illugastöðum, næsta bæ, og sagði þau
válegu tíðindi að bærinn á Illuga 4