Lesbók Morgunblaðsins - 10.09.2005, Blaðsíða 5
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 10. september 2005 | 5
K
anadíski rithöfund-
urinn Margaret
Eleanor Atwood er
fædd í Ottawa árið
1939. Hún útskrif-
aðist með BA-gráðu
frá Toronto-háskóla og MA-gráðu frá
Radcliffe, Harvard.
Fyrstu ár ævinnar dvaldi Atwood í
óbyggðum Norður-Ontario og Que-
bec, þar sem faðir hennar, sem var
skordýrafræðingur, stundaði rann-
sóknir. Atwood býr nú í Toronto með
manni sínum,
Graeme Gibson,
sem einnig er rit-
höfundur, og eiga
þau uppkomna dóttur. Atwood er tal-
in standa fremst meðal samtímarit-
höfunda í Kanada. Aðeins fimm ára
gömul var hún byrjuð að skrifa og
hefur verið að allar götur síðan. Hún
er afkastamikill rithöfundur og ekki
aðeins hafa 11 skáldsögur hennar
verið gefnar út, heldur einnig barna-
bækur, ljóðabækur, smásögur og
bækur um bókmenntafræðikenn-
ingar og gagnrýni.
Skáldsögur Atwood eru eftirfar-
andi: The Edible Woman (1969), Sur-
facing (1972), Lady Oracle (1976),
Life Before Man (1979), Bodily Harm
(1981), The Handmaid’s Tale (1985),
Cat’s Eye (1988), sem hlaut margar
viðurkenningar og verðlaun, m.a. til-
nefningu til Booker-verðlaunanna,
The Robber Bride (1993), sem hlaut
jafnframt margar viðurkenningar,
Alias Grace (1996), Blind Assassin
(2000), en fyrir hana hlaut Atwood
Booker-verðlaunin, og Oryx and
Crake (2003), sem var tilnefnd til
Booker-verðlaunanna. Auk þess að
hafa unnið til margvíslegra verðlauna
og viðurkenninga fyrir verk sín hefur
Atwood margoft verið sæmd heiðurs-
doktorsnafnbót.
Atwood hefur einstaklega glöggt
auga fyrir mannlegum samskiptum
og verk hennar endurspegla þetta
áhugasvið, en hún tekur oft fyrir
valdatogstreitu milli fólks, og þá að-
allega kvenna. Rithöfundurinn Shan-
non Hengen segir að Atwood hafi eitt
sinn sagt að vald væri ekki raunveru-
legt heldur gæfi fólk það hvert öðru. Hengen
bendir á að það sé Atwood mjög hugleikið hver
það sé sem afsali sér valdinu til annarrar per-
sónu, hvers vegna hann eða hún geri það og
hvernig þeir sem nú fari með valdið beiti því. Í
skáldsögunum Cat’s Eye og The Robber Bride
sýnir Atwood á afgerandi hátt hvernig vald er
misnotað og verða söguhetjurnar fjórar fyrir
grófu einelti og kúgun. Einelti er einmitt gott
dæmi um afsal valds þar sem einn aðilinn fær
valdið í sínar hendur og tekur upp á að kúga
hinn. Í báðum skáldsögunum kannar Atwood
hlutverk kúgara og þolenda og varpar ljósi á
það af hverju persónurnar verða fórnarlömb
og hvort og þá hvernig þær ná yfirhöndinni í
lífi sínu aftur.
Í Cat́s Eye er fórnarlambið hin átta ára
gamla Elaine Risley, en hún er miskunn-
arlaust lögð í einelti af þremur öðrum litlum
stúlkum, Cordeliu, Grace og Carol. Eins og
Atwood sjálf dvelur Elaine fyrstu ár ævi sinn-
ar í óbyggðum með foreldrum sínum og bróð-
ur, þar sem faðir hennar, sem er skordýra-
fræðingur, eins og reyndar faðir Atwood
sjálfrar, stundar rannsóknir. Það er hins vegar
þegar herra Risley fær vinnu sem prófessor
við háskólann í Toronto sem fjölskyldan festir
rætur á einum og sama staðnum í fyrsta sinn.
En það eru mikil viðbrigði fyrir litla stúlku að
flytja til stórborgarinnar, hún hefur t.d. aldrei
umgengist aðrar litlar stúlkur og í raun er eina
vitneskja hennar um þær byggð á því sem hún
hefur lesið í bókum. Þegar hún svo eignast vin-
konur í fyrsta sinn er hún auðvitað mjög ham-
ingjusöm, en það er skammvinn sæla því vin-
konurnar nýju skynja að hún er öðruvísi en
þær vegna hins óhefðbundna lífs hennar fram
að þessu. Í þokkabót er Risley-fjölskyldan
ekki eins vel efnuð og fjölskyldur þeirra. Þar
með er jarðvegurinn fyrir einelti lagður.
Vinkonurnar taka upp á því að siða hana til,
þær ýmist refsa henni eða virða hana ekki við-
lits og þá á Elaine sjálf að finna það út hvað
hún hefur brotið af sér. Reynsluleysi hennar í
samskiptum við aðrar stúlkur gerir það að
verkum að hún trúir öllu sem þær segja henni
og finnst að hún eigi þetta allt saman skilið því
þær vilji henni svo vel. Þær beri hag hennar
fyrir brjósti. Eitt sinn eru stúlkurnar í leik og
leikurinn felur í sér að Elaine er látin ofan í
djúpa holu og plankar settir yfir. En svo koma
stúlkurnar þrjár ekki strax til baka og þessi
skelfilega lífsreynsla hefur svo djúpstæð áhrif
á Elaine að eftir þetta lokar hún á allt sem hef-
ur gerst og á eftir að gerast í samskiptum
hennar við vinkonurnar þrjár. Jafnvel sem
fullorðin kona man hún ekki neitt. Þetta
hrottalega einelti heldur áfram þar til Elaine
hefur næstum verið hrakin í dauðann af hinum
svokölluðu vinkonum sínum.
Í The Robber Bride hinsvegar eru það þrjár
konur, Tony, Charis og Roz, sem verða fyrir
einelti af völdum hinnar fjórðu, Zeniu, og er
Tony sú fyrsta af þeim sem verður fyrir
barðinu á henni. Tony ólst upp á ástlausu
heimili og afleiðingin er sú að hún hefur kosið
að blanda ekki mikið geði við aðra, en hún
kynnist West í háskólanum og þau verða
kunningjar. Hann býður henni heim til sín í
teiti og þar birtist Zenia allt í einu og líf Tony
verður aldrei samt aftur. Zenia og West eru
par og búa saman, en hin óvenjusnjalla Zenia
sér að hún getur haft not fyrir sitthvað hjá
Tony og leggur sig í líma við að kynnast henni.
Zenia notfærir sér hrekkleysi Tony og ein-
manaleika og hefur m.a. af henni peninga.
Seinna lætur Zenia sig hverfa og í sorg sinni
hallar West sér meira og meira að Tony, þau
verða ástfangin og giftast. Ári seinna kemur
Zenia aftur fram á sjónarsviðið og er ekki
nokkra stund að vefja West aftur um litla fing-
urinn á sér og hann yfirgefur Tony. Það er
skólasystir Tony, Roz, sem kemur henni til
hjálpar í neyð hennar.
Tíu árum seinna kemur Zenia inn í líf Char-
is, en hið rétta nafn hennar er Karen. Karen
átti hræðilega æsku, faðir hennar dó í seinni
heimsstyrjöldinni og móðir hennar var veik á
geði og endaði á hæli. Móðursystir Charis, Viv,
og hennar maður, Vern, tóku hana að sér.
Vern misnotaði barnið kynferðislega í mörg ár
og til að lifa af fór Karen úr líkamanum meðan
ofbeldið stóð yfir. Eins og Elaine varð Karen
að loka á það þegar ofbeldið stóð yfir og þess
vegna kom Charis fram á sjónarsviðið, en hún
var betur í stakk búin til að þola það sem var
að gerast. Charis flosnar seinna upp úr há-
skólanámi, enda frekar áhugalaus um fræðin,
en þegar hún kynnist jóga finnur hún að það á
vel við hana og hún gerist jógakennari. Zenia
birtist allt í einu í tíma hjá Charis og sú síðar-
nefnda ætlar varla að þekkja hana aftur því
hún lítur svo illa út. Zenia segist vera heltekin
af krabbameini, en það er aðeins brella hjá
henni því með þessari lygi er hún að höfða til
þeirrar þarfar hjá Charis að hlúa að þeim sem
eru minni máttar. Zenia hefur nefnilega allt
aðrar ástæður fyrir því að vilja komast inn á
gafl hjá Charis og áður en Charis veit af eru
Zenia og sambýlismaður Charis, Billy, horfin
úr hennar lífi. Það er þá sem Tony og Roz
koma inn í líf Charis henni til hjálpar.
Aftur líða um tíu ár þar til Zenia kemur
fram á sjónarsviðið á nýjan leik og nú er það
Roz sem er skotmarkið. Það er athyglisvert og
ber vitni um það hversu útsmogin Zenia í
rauninni er að þrátt fyrir að Roz hafi horft upp
á Tony og Charis þjást vegna hennar nær
Zenia samt að smokra sér inn í hennar líf. En
ástæðan er auðvitað sú að eins og vinkonur
hennar tvær átti Roz erfiða æsku.
Fyrstu ár ævinnar, meðan faðir
hennar barðist í seinni heimsstyrj-
öldinni, ólst hún upp undir kaþólsk-
um áhrifum frá móður sinni, en þegar
faðir hennar, sem var gyðingur, kom
til baka breyttist allt. Þetta ruglaði
barnið í ríminu og það vissi varla í
hvorn fótinn það átti að stíga og í
raun hefur Roz sem fullorðin kona
ekki enn fundið sinn stað í lífinu.
Zenia kemst inn fyrir skel Roz með
því að segjast hafa góðar fréttir af
föður hennar úr stríðinu, en ýmsar
sögusagnir höfðu verið á kreiki um
vafasamar gjörðir hans þar. En áður
en langt um líður hverfa Zenia og
eiginmaður Roz saman á braut og
Roz stendur allt í einu í nákvæmlega
sömu sporum og vinkonur hennar
tvær eftir viðureignir þeirra við Ze-
niu. Það er sannarlega ekki hægt að
segja annað en að allar konurnar
þrjár hafi fært Zeniu valdið yfir sér á
silfurfati, en hinsvegar var staða
Elaine gagnvart sínum vinkonum
öðruvísi því hún var aðeins lítið barn
þegar eineltið átti sér stað og ekki í
stakk búin til að bera hönd fyrir höf-
uð sér. Þar hefðu foreldrar hennar
þurft að vera meira vakandi yfir því
sem var að gerast.
Einelti og misnotkun á börnum
hafa verið mikið í umræðunni und-
anfarin ár, enda er oft sagt að skáld-
sagan endurspegli lífið sjálft, og auð-
vitað öfugt líka. Atwood fjallar af
næmum skilningi um þetta alvarlega
mál, hún fegrar ekkert heldur segir
frá hlutunum eins og þeir eru. Hún
varpar líka ljósi á það hvað ofbeldi
getur haft alvarlegar langtímaafleið-
ingar fyrir fórnarlambið. Jafnframt
undirstrikar hún að kúgararnir sjálf-
ir eru líka fórnarlömb, að oft er eitt-
hvað að hjá þeim sjálfum sem gerir
það að verkum að þeir hafa þörf fyrir
að fá útrás fyrir óhamingju sína með
því að kúga aðra.
Atwood segir í bók sinni, Survival:
A Thematic Guide to Canadian Liter-
ature, að ef einstaklingur skilgreini
sjálfan sig sem fórnarlamb, þá muni
hann alltaf finna til vanmáttar. Ef
hins vegar þessi sami einstaklingur
kastar af sér hlekkjum fórnarlambs-
ins þá getur hann komið á breyting-
um í sínu lífi til hins betra. Það er
ljóst af skrifum Atwood að það að öðl-
ast sjálfsstjórn og sjálfsvirðingu
skiptir öllu máli fyrir einstaklinginn,
því þá lætur hann ekki aðra skil-
greina sig sem persónu heldur er hann sjálfur
við stjórnvölinn og stjórnar sínu lífi. Söguhetj-
urnar fjórar koma allar að þeim tímapunkti í
lífi sínu að þær standa fyrir valinu sem Atwood
talar um, þær þurfa að velja hvort þær ætli að
halda áfram að vera þolendur og láta kúgara
sína vera áfram við stjórnvölinn, eða taka mál-
in í sínar hendur. Allar ákveða þær að segja
hingað og ekki lengra. Hin miðaldra Elaine
horfist í fyrsta sinn í augu við hina sársauka-
fullu barnæsku sína og það verður til þess að
hún getur loksins horft til framtíðar. Tony,
Charis og Roz ákveða að kveða drauginn Zen-
iu niður fyrir fullt og allt og ná þar með tökum
á sínu lífi. Atwood bendir nefnilega á að þrátt
fyrir allt mótlæti sé alltaf von ef fólk sé aðeins
tilbúið til að taka aftur stjórnina á eigin lífi.
Hún segir okkur lesendum sínum það að ef við
drögum lærdóm af því sem miður hefur farið í
fortíðinni getum við reynslunni ríkari snúið því
okkur í hag og orðið jafnvel betri manneskjur
fyrir vikið.
Margaret Atwood flytur erindi við setn-
ingu hátíðarinnar í Norræna húsinu á sunnu-
dag. Hún les upp í Iðnó þá um kvöldið kl. 20
og Kristján Kristjánsson ræðir við hana í
Norræna húsinu kl. 12 á mánudaginn.
Heimildir
Anna Karen Friðriksdóttir. (2005.) Bullying and Perse-
cution in Margaret Atwood’s Cat’s Eye and The Robber
Bride.
MA-ritgerð: Háskóli Íslands, Hugvísindadeild.
Atwood, Margaret. (1972.) Survival: A Thematic Guide to
Canadian Literature.
Toronto: Anansi.
Hengen, Shannon. (1993.) Margaret Atwood’s Power.
Toronto: Second Story.
Tekist á um völdin í skáldsögum
Margaret Atwood
Margaret Atwood er meðal fremstu
rithöfunda Kanada og þótt víðar
væri leitað. Í þessari grein er fjallað
um eitt af meginþemum verka henn-
ar, ofbeldi og vald.
Margaret Atwood „Atwood hefur einstaklega glöggt auga fyrir mannlegum samskiptum og verk hennar endurspegla þetta
áhugasvið, en hún tekur oft fyrir valdatogstreitu milli fólks, og þá aðallega kvenna.“
Höfundur er M.A. í enskum bókmenntum og skrifaði
lokaritgerð um Margaret Atwood.
Eftir Önnu Karen
Friðriksdóttur
annakarenf@isl.is