Lesbók Morgunblaðsins - 10.09.2005, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 10.09.2005, Blaðsíða 12
12 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 10. september 2005 Suðurríkin hafa lengi gegnt dálítið sér-kennilegu hlutverki í ímyndunarafliBandaríkjanna. Ástæðurnar fyrir þvíþarf svo sem ekki að sækja langt, en það er einkum á tuttugustu öldinni sem land- rýmið í suðri hefur fengið á sig blæ sem kannski má kalla gotneskan, og tengist það framsetn- ingaráherslum bæði í bókmenntum og kvik- myndum. Hvað bókmenntirnar varðar voru það höfundar sem rætur áttu að rekja til suðurríkj- anna sem af hvað mestum krafti hófu að endurtúlka menningarlegt landakort Bandaríkjanna með því að smíða sögur úr og um suðrið. Faulkner bjó sér til sýslu sem í gegnum bæði skáldsögur og smásög- ur varð að heilum heimi, veröld þar sem sér- kennilegir og óhugnanlegir atburðir leystu gjarnan dagfarslegan veruleika af hólmi. Flannery O’Connor og aðrir höfundar juku við arfleifð Faulkners og sérstök undirgrein got- neska skáldverksins varð til, undirgrein sem grundvallaðist í þeim hefðum og menningu sem einkenndu suðurríkin. Samtímahöfundar á borð við Joyce Carol Oates og Cormac McCarthy hafa viðhaldið þessarar frásagnarhefð, þó á ólík- an máta sé. Á ofanverðum sjöunda áratugnum og þeim áttunda tók ameríska kvikmyndin við sér og uppgötvaði nýjar hryllingslendur. Myndir á borð við Deliverance eftir John Boorman, Joe eftir John G. Avildsen og TheTexas Chainsaw Massacre eftir Tobe Hooper hófu nýja ímynd- unarsköpun á suðurríkjunum; ímyndunarsköpun sem var um margt ólík þeirri bókmenntahefð sem áður var nefnd, enda þótt ýmsar staðal- týpur hafi svo sem lifað ágætu framhaldslífi. Þá var þeim kynferðislega hryllingi sem undir- byggir gotneska rómantík viðhaldið, þó því sem áður var komið á framfæri á óbeinan hátt hafi nú verið sett í forgrunn. Ýft upp og öfgað. Breytingin felst hins vegar fyrst og fremst í því að í kvikmyndum tímabilsins tóku suðurríkin að gegna áþekku hlutverki og kistan góða í Pulp Fiction, kistan þar sem leðurklædda gimpið var geymt. Líkt og framandi og frekar ógnandi kenndir voru leystar úr læðingi þegar kistan var opnuð í kvikmynd Tarantinos reyndist suðrið ágætis sviðsetning og geymslustaður fyrir hneigðir, þrár og ótta sem menningarbólin í norðri jafnan bældu en brutust fram annað slag- ið. En líkt og kistan, sem aðeins var opnuð einu sinni, hætti Hollywood sér ekki nema með góð- um millibilum inn í þetta ókennilega rými hvata- lífsins. Suðurríkin hafa þó, held ég, dottið dálítið útaf radarnum, eða allt þar til Bush yngri varð for- seti. Þá er sem Norðlendingar ýmsir hafi ekki einvörðungu enduruppgötvað suðrið sem tákn- ræna sviðsetningu heldur hafi einhvers konar andúð á því sem þaðan kemur brotist fram. Í kjölfarið hafa kvikmyndir oltið frá Hollywood sem staðsetja hryllinginn á ný í „framandi“ suðrinu, og er þar athyglisverðust endurgerðin á Keðjusagamorðunum í Texas, en utan við út- litslegar breytingar ber mest á aukinni áherslu á spilltar ríkisstofnanir og illgjarna erindreka hins opinbera. Þetta eru þættir sem voru fjar- verandi í upprunalegu myndinni og gefa til kynna vantraust þeirra menningarstofnana í norðri, sem ríkja yfir ímyndarmótun þjóðar- innar á hvíta tjaldinu, á því sem úr suðrinu kem- ur. Eða kannski, ef maður vill vera nákvæmur, því sem kemur frá Texas. Þá hafa síðastliðnar tvær vikur sýnt svo ekki verður fram hjá því komist að hryllingur á sér enn kraftmikla uppsprettu í suðrinu. Þær skelfi- legu fréttir sem borist hafa dag eftir dag frá Louisiana og öðrum nágrannaríkjum eru vitn- isburður um fleira en það gríðarlega mannfall og eignartjón sem þar hefur átt sér stað. Mynd- irnar á forsíðu New York Times undanfarna daga hafa sýnt fórnarlömb harmleiksins í ólík- um kringumstæðum: örvæntingarfullt fólk uppi á þaki byggingar þar sem skilaboð höfðu verið máluð í steypuna; annað fólk í hnapp við sjúkra- bíl; gríðarlega mannþröng sem illa haldin hélt til í innanhússíþróttaleikvangi sem um stundar- sakir hafði breytt um hlutverk og var nú líknar- miðstöð. Sem ekki stóð undir nafni, svo vægt sé til orða tekið. Það sem allar ljósmyndirnar áttu sameiginlegt var að fórnarlömbin voru blökku- menn. Harmleikurinn í New Orleans hefur dregið fram, líkt og ekkert annað hefur gert síð- an réttindabaráttan var í hámarki á sjötta og sjöunda áratugnum, þá risavöxnu gjá sem skilur milli þeirra sem hafa réttan og rangan húðlit í Bandaríkjunum. Þeir sem gátu voru löngu farn- ir, og það var í miklum meirihluta hvíta fólkið. Þess vegna má segja að suðurríkin, hvort sem þau eru framsett á hvíta tjaldinu eða birtist okk- ur í fréttaflutningi, haldi áfram að sýna í víð- mynd það sem alla jafnan er hulið sjónum í sam- félagsgerðinni. Í þessu tilviki er það hið gríðar- lega óréttlæti sem mótar líf þeirra sem ekki tilheyra réttri stétt eða kynþætti. Og ef marka má þá gríðarlegu gagnrýni sem fram hefur kom- ið undanfarna daga á frammistöðu Bush forseta í aðdraganda og eftirköstum hamfaranna á hryllingurinn enn og aftur rætur að rekja til Texas. Það gerðist í Texas ’Suðurríkin hafa þó, held ég, dottið dálítið útaf radarnum,eða allt þar til Bush yngri varð forseti. ‘ Sjónarhorn Eftir Björn Þór Vilhjálmsson vilhjalmsson@wisc.edu F jölbreytt viðfangsefni setja svip sinn á starfsemi Kvikmyndasafns- ins í vetur, þar verða m.a. á boð- stólum margvíslegar samstæður mynda frá ólíkum heimshornum og tímum. Allt frá skeiði þöglu myndanna á fyrstu áratugum síðustu aldar til hrollvekja, og nokkrum goðsögnum af stjörnu- hvelfingunni eru gerð skil. Sýndar verða myndir í eigu safnsins sem notið hafa vinsælda en dag- skránni lýkur að vori með íslenskum náttúrulífs- myndum. Þá er fátt eitt talið en starfsemin hefst 6. og 10. september, með sýningum á Síðustu Grænlands- för Alfreds Wegeners – Das Grosse Eis, stórmerkri, þýskri mynd frá 1936. Í henni er fylgst með leiðangri prófessors Wegeners á Grænlandsjökul 1930. Hann hafði m.a. viðkomu á Íslandi, þar sem hann tók með sér bæði menn og hesta. Áfram er haldið á Grænlandsfarinu Diskó, kannað hversdagslíf í litlu þorpi og að lokum lagt á jökulinn þar sem stundaðar eru margvíslegar rannsóknir. Veður öll válynd og varð prófessorinn úti á jöklinum, þar sem hann var lagður í hinstu hvílu. Stjörnuskin Ósviknar Hollywoodstjörnur af gamla skólanum verða heiðraðar með þremur sýningum á haust- dögum. Það gneistar á milli Audrey Hepburn og Cary Grant, sem fara með aðalhlutverkin í spennumyndinni Charade, hálfgleymdri klassík eftir leikstjórann Stanley Donen. Sýnd 13. og 17. sept. Woman of the Year (’42), markaði upphafið að samvinnu frægasta og snjallasta kvikmyndapars sögunnar, Katherine Hepburn og Spencer Tracy. Þau eru ógleymanleg í krassandi gamanmynd George Stevens um vinnufélaga á dagblaði sem elda löngum grátt silfur saman. Woman of the Year er ein fremsta myndin þeirra. Sýnd 20. og 24. sept. Risinn – The Giant (’56) er annað stórvirki eftir Stevens, að þessu sinni með stjörnur innanborðs sem gerast vart stærri: Elizabeth Taylor og James Dean. Taylor, sem oft var kölluð „fegursta kona heims“ var skærasta kvenstjarna Hollywood í áratugi. Aðra sögu er að segja af Dean, átrún- aðargoðið lést aðeins 24 ára gamall, árið 1955, en Risinn var þriðja og síðasta myndin á hans stutta en ótrúlega ferli. Sýnd 27. sept. og 1. okt. Pólskar kvikmyndir Pólverjar eru mikil og merk kvikmyndaþjóð og eiga einn virtasta kvikmyndaskóla í heimi og ófáa snillinga í leikstjórastétt. Menn á borð við Andr- zej Wajda, Krysztof Kieslowski, Roman Polanski og Krzyysztof Zanussi, en tveir þeir síðastnefndu voru á sínum tíma gestir Kvikmyndahátíðar Listahátíðar. Verk þeirra allra hafa verið í stóru hlutverki á íslenskum kvikmyndahátíðum, m.a. er minnisstæð Kieslowski-hátíð sem Kvikmynda- safnið hélt í Bæjarbíói. Safnið sýnir þrjár myndir leikstjóranna þriggja í vetrarbyrjun. Járnmaðurinn – Czlowiek z zelaza (’81) segir sögu þjóðar sem gengur í gegnum miklar breyt- ingar, kveikjan að myndinni er hvernig samstaða varð til, einn af hornsteinum síðbúins frelsis aust- antjaldsþjóðanna undan oki sovétsins. Hún er í aðra röndina ástarsaga og uppgjör á milli feðga. Sýnd 4. og 8. okt. Áhugamaður – Amator (’79) eftir Kieslowski var eitt fyrsta verkið til að vekja athygli á leik- stjóranum, en hann var verðlaunaður fyrir það í Moskvu ’79. Segir af ungum manni sem kaupir kvikmyndatökuvél þegar hann á von á fyrsta barni sínu en kvikmyndagerðin tekur óvænta stefnu. Sýnd 11. og 15. okt. Hnífur í vatni – Nóz w wodze (’62) var fyrsta mynd Polanskis og kom honum samstundis á al- þjóðakortið, var m.a. tilnefnd til Óskars en tapaði fyrir 8 ½ Fellinis. Ómissandi öllu kvikmynda- áhugafólki og er sýnd 18. og 22. okt. Uppáhaldsmyndir Friðriks Þórs Friðrikssonar Kvikmyndasafnið leitaði til kvikmyndaleikstjór- ans og frumkvöðulsins Friðriks Þórs Friðriks- sonar og bauð honum að velja þrjár myndir á sýningarskrána. Þær eru: Árshátíð slökkviliðsmannanna – Horí, má panenko. Milos Forman. Tékkóslóvakía 1967. Sýnd 25. og 29. okt. Gabbeah. Mahsen Makhmalbaf, Íran 1996. Sýnd 1. og 5. nóv. Themrock. Claude Faraldo. Frakkland 1973. Sýnd 8. og 12. nóv. Ásgeir Long Kvikmyndasafnið mun kynna þennan sjálf- menntaða kvikmyndagerðarmann sem skilur eft- ir sig mætar myndir og var virkastur á árunum 1966–78. Tunglið, tunglið, taktu mig (’55). Leikin mynd. 51 mín. Gilitrutt (’57). Leikin mynd. 60 mín. Sýndar saman 15. og 19. nóv. Sjómannalíf, á veiðum með b/v Júlí 1951. Heimildarmynd, 30 mín. Labbað um Lónsöræfi (’65). Heimildarmynd, 30 mín. Virkjun (’70). Heimildarmynd, 45 mín. Saga um Lágmynd. Heimildarmynd, 10 mín. Myndirnar fjórar eru sýndar saman 22. og 26. nóv. Úr fórum safnsins Í nóvemberlok og í desember mun Kvikmynda- safnið sýna þrjár myndir, ólíkar að efni og upp- runa en eiga það sameiginlegt að hafa notið á sín- um tíma mikilla vinsælda á sýningarstaðnum Bæjarbíói: Kvennalæknirinn dr. Sibelius – Frauenarz Dr. Sibelius. Rudolf Jugert, Þýskaland 1962. Gekk við húsfylli á sjöunda áratugnum, enda í mikið að sælast – eins og fram kemur í pró- gramminu: „Stórfengleg læknamynd um skyldu- störf þeirra og ástir … Sýnd 29. nóv. og 3. des. Darling. John Schlesinger, Bretland 1965. Meinfyndin ádeila á breskar myndir þessa tíma- bils, segir af upprennandi fyrirsætu (Julie Christie), sem er í eilífum svefnherbergjaflutn- ingum í þeim tilgangi að pota sér áfram. Stór- snjöll mynd sem færði Christie Óskarinn og var farseðill Schlesingers (1926–2003) vestur um haf, þar sem hann hélt áfram að afreka um langt skeið. Sýnd 6. og 10. des. Pelle sigurvegari – Pelle erobreren. Billie Aug- ust, Svíþjóð/Danmörk 1987. Átakanlegt stórvirki Augusts segir af kröppum kjörum feðga, sænskra farandverkamanna sem fá vinnu í fyrirheitna landinu, Danmörku, á hörmungarárunum á ofan- verðri 19. öld. Snilld, hvert sem litið er, ein besta mynd Norðurlandabúa síðustu áratugina sem ánægjulegt verður að upplifa á upprunalegum slóðum. Sýnd 13. og 17. des. Vetrardagskrá Kvikmyndasafnsins Sýningar Kvikmyndasafns Íslands á vetrardag- skránni hefjast í Bæjarbíói í vikunni og kennir að venju ýmissa grasa úr mörgum áttum. Eftir Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is Kvikmyndagoðsagnir Audrey Hepburn og Cary Grant fara með aðalhlutverk í í spennumyndinni Charade, hálf-gleymdri klassík eftir leikstjórann Stanley Donen. Hún verður sýnd 13. og 17. sept. í kvikmyndasafninu. Orlando Bloom leikur í kvik-myndinni Elizabethtown sem frumsýnd var á Kvikmyndahátíð- inni í Feneyjum, sem nú er að ljúka. Myndin er í leikstjórn Camerons Crowe og fær Bloom tækifæri til að leika samtíma- mann. Við erum búin að sjá hvað hann getur gert með boga og örv- um og sverði en núna er hann í nú- tímaumhverfi. Hann leikur hönnuðinn Drew en nýjasta uppfinn- ing hans er al- veg mislukkuð. Hann hugleiðir sjálfsmorð en fær þá hringingu og fréttir að faðir hans er látinn. Drew ferðast til heimilis gamla mannsins í Kentucky og hittir á leiðinni flug- freyjuna Claire (Kirsten Dunst). „Drew skilgreinir sjálfan sig út frá vinnunni sinni. Hún er það sem líf hans hefur snúist um. Hann hef- ur verið aðalgæinn og er á leiðinni á toppinn en myndin fjallar að hluta til um hvað gerist þegar fótunum er kippt undan þér. Hún er líka um persónu Claire, sem í raun lífgar hann við,“ sagði Bloom í viðtali við októberhefti Empire.    Nú styttist í frumsýningu nýj-ustu Harry Potter-myndar- innar en það gleymdist næstum því í æðinu yfir nýjustu bókinni Harry Potter og blendingsprinsinn. Harry Potter og eldbikarinn verður heimsfrumsýnd um miðjan nóvem- ber. Fanginn frá Azkaban í leik- stjórn Alfonso Cuarón þótti mjög vel heppnuð þannig að Mike Newell þurfti að setja markið hátt. Sumum þykir Eldbikarinn vera besta bókin því í henni kynnist Harry hinu kyn- inu og alvöru hræðslu við dauðann. „Þessi er virkilega öðruvísi. Hún er ólíkt öllu sem ég hef nokkru sinni gert áður, sem er að hluta til hug- myndin á bakvið þetta. Í raun er þitt eigið hugarafl það eina sem takmarkar hvað hægt er að gera,“ sagði leikstjórinn Newell í samtali við nýjasta hefti Empire. Newell hafði gaman af því að mynda helstu spennuatriðin úr bókinni eins og þegar Dan Radcliff í hlutverki Harry þarf að berjast við eldspúandi dreka áður en hann fer á móti óvinunum Lord Volde- mort (Ralph Fiennes). „Fyrstu tvær myndirnar eru bjartar,“ bætti Newell við. „Það er engin fullorðins áskorun. Alfonso kom með eitthvað svoleiðis inn og ég fer með það lengra. Sannleik- urinn er sá að það sem þú gerir með 11 ára eða 15 ára er mjög ólíkt.“    The Producers er væntanleg íkvikmyndahús í Bandaríkj- unum um jólin. Í helstu hlutverkum eru margir skemmtilegir leikarar, Nathan Lane, Matthew Broaderick, Uma Thurman og Will Ferrell. Myndin er byggð á söng- leik eftir Mel Brooks, sem er nýbúinn að vera á fjölunum í Broadway og gekk vel. Leikstjóri myndarinnar er Susan Stroman. Myndinni er spáð velgengni á verðlaunahátíðum. Matthew Broderick Daniel Radcliffe og Alfonso Cuarón. Orlando Bloom Erlendar kvikmyndir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.