Morgunblaðið - 31.03.2005, Side 1
STOFNAÐ 1913 85. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Í dynjandi
galsa …
Maxim Vengerov frumflytur
rússneskan víólukonsert | 21
Viðskipti og Íþróttir í dag
Stærra, efnismeira og öflugra 32
síðna Viðskiptablað Morgunblaðsins
KAST KRINGLU
Opið til
í kvöld21
31.mars - 3. aprílCedar Rapids. AP. | 78 ára bandarískur kylfingur, sem hefur verið úr-skurðaður blindur, hafði heyrt það áður og þess vegna trúði hann
ekki félögum sínum þegar þeir sögðu honum að hann hefði farið holu
í höggi.
„Þeir höfðu sagt þetta áður,“ sagði kylfingurinn, Joel Ludvicek. Í
þetta skipti voru þeir þó ekki að grínast við hann.
Ludvicek fór holu í höggi á elleftu braut, sem er 154 metrar, á
golfvelli í Iowa. Þrír félagar hans staðfestu að hann hefði náð
draumahögginu. „Þetta var hundaheppni,“ sagði Ludvicek sem
missti sjónina að mestu vegna sjóndepilsrýrnunar.
Blindur maður
fór holu í höggi
BAUGUR Group tilkynnti stjórn bresku
verslanakeðjunnar Somerfield síðdegis í
gær að Baugur hefði eindreginn vilja til
þess að kaupa keðjuna og hygðist leika leik-
inn til enda. Jón Ásgeir Jóhannesson, for-
stjóri Baugs, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að hann ætti von á því að
stjórn Somerfield ákvæði á fundi sínum nú
fyrir hádegi að opna bækur sínar fyrir til-
boðsgjöfunum þremur, þ.e. Baugi, hinum
írönsku Tchenguiz-bræðrum og bresku
bræðrunum Ian og Richard Livingstone.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
má búast við því að nýtt tilboð frá Baugi
verði á bilinu 190 til 210 pens fyrir hvern
hlut. Jón Ásgeir vildi ekki tjá sig um upp-
hæð tilboðsins sem Baugur væri nú með í
undirbúningi. „Við tilkynntum stjórn Som-
erfield þennan eindregna vilja okkar til
kaupa í dag og að við hygðumst leika leikinn
til enda. Jafnframt greindum við stjórninni
frá því að lokaverð myndi ráðast af þeim
upplýsingum sem við fáum þegar bækur fé-
lagsins hafa verið opnaðar,“ sagði Jón Ás-
geir, „og einnig að verðið yrði aldrei lægra
en það sem við buðum í febrúar.“ Upphaf-
legt óformlegt tilboð Baugs í Somerfield í
febrúarmánuði hljóðaði upp á 190 pens.
Von á að félagið opni bækur sínar
„Nú þegar þrír aðilar hafa lýst því yfir að
þeir séu tilbúnir til þess að bjóða í félagið
eigum við von á að það opni bækur sínar og
þá fari hið formlega uppboð á Somerfield af
stað,“ sagði Jón Ásgeir.
Jón Ásgeir vildi ekkert segja um það
hvort hann væri bjartsýnn á að Baugur
Group eignaðist Somerfield, en benti samt
sem áður á, að Baugur væri þriðji stærsti
hluthafinn í Somerfield, með 5% eignarhlut.
Frá því að Baugur Group gerði hið
óformlega tilboð sitt hafa átt sér stað mikil
viðskipti með hlutabréf í Somerfield, en um
150 milljón hlutir hafa skipt um eigendur.
Sérfræðingar á markaði í Bretlandi telja að
þar sé einkum um spákaupmennsku að
ræða þar sem skammtímafjárfestar hafi
keypt bréfin í þeirri von að verðið á Somer-
field hækkaði þegar yfirtökutilboð kæmu
fram. Samkvæmt þessu hafi margir þeir
sem til langs tíma hafi átt hluti í félaginu
selt og eigendasamsetning þess því breyst
mjög mikið.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins hafa sextán verslanakeðjur skipt um
eigendur á Bretlandseyjum síðan árið 2001
með yfirtökum og Baugur hefur eignast
átta þessara keðja.
Þrír um
hituna
Baugur tilbúinn að
greiða allt að 210
pens fyrir hvern hlut
Yfirtaka/27B
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
Somerfield
VERÐI niðurstaðan svipuð og núverandi staða í
svonefndum DOHA-viðræðum gefur til kynna
verða íslensk stjórnvöld að gera verulegar breyt-
ingar á styrkjakerfi landbúnaðarins. Styrkir og
aðrar aðgerðir, sem byggjast á framleiðslu eða
valda truflunum á viðskiptum með landbúnaðar-
afurðir, þurfa væntanlega að minnka um helming,
úr um 10,5 milljörðum í um 5–6 milljarða, fyrir ár-
ið 2012. Innflutningur á erlendum landbúnaðar-
afurðum mun auk þess aukast til muna.
Þetta er meðal þess sem kom fram á málþingi í
utanríkisráðuneytinu í gær um stöðuna í DOHA-
samningalotunni um aukið frelsi í alþjóðavið-
skiptum sem nú fer fram á vettvangi Alþjóða-
viðskiptastofnunarinnar, WTO.
Framleiðslutengdur stuðningur er m.a. bein-
greiðslur til mjólkurbænda og viðskiptatruflandi
stuðningur telst m.a. verðstýring og verndartoll-
ar. Í dag má Ísland, samkvæmt samningi WTO,
veita slíkan stuðning að hámarki um 13 milljarða,
þar af eru 8 milljarðar vegna mjólkurframleiðslu,
að því er kom fram í máli Guðmundar B. Helga-
sonar, ráðuneytisstjóra í landbúnaðarráðuneyt-
inu. Rétt er að ítreka að ekki er átt við beinan
fjárhagslegan stuðning eingöngu heldur eru toll-
ar og aðrar viðskiptahindranir einnig metnar til
fjár. Guðmundur sagði að þetta þýddi þó ekki
endilega að stjórnvöld yrðu að draga úr heildar-
stuðningi við landbúnað heldur yrði að gera það
með öðrum hætti, einkum með svokölluðum
grænum styrkjum. Þeir væru þó háðir stífum
reglum og WTO hygðist auka mjög eftirlit með
því að þær væru virtar.
Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Bændasam-
takanna, sagði að þegar núverandi samningur
WTO rynni sitt skeið á enda, árið 2007, mætti
gera ráð fyrir að framleiðslu- og markaðstrufl-
andi stuðningur Íslands við landbúnað næmi 10,5
milljörðum. Þó að enn væri margt óljóst um lyktir
DOHA-samningalotunnar benti allt til þess að
styrkirnir yrðu að lækka um helming og það hlyti
að valda verulegum breytingum á landbúnaðar-
kerfinu.
Stefnir í að DOHA-samningalotan hafi mikil áhrif á íslenskan landbúnað
Framleiðslustyrkir þurfa
að lækka um helming
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Samkeppni/4
Brussel. AFP, AP. | Paul Wolfowitz, að-
stoðarvarnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, verður að öllum líkindum
skipaður yfirmaður Alþjóðabankans
á fundi bankaráðs hans í New York í
dag eftir að Evrópuríki féllust á að
styðja hann.
Sú ákvörðun George W. Bush
Bandaríkjaforseta að tilnefna Wolfo-
witz í embættið vakti deilur í Evrópu-
sambandinu (ESB), einkum vegna
þess að hann beitti sér fyrir innrás-
inni í Írak og lagði grunninn að stefnu
stjórnar Bush í málefnum landsins.
Wolfowitz vann þó fjármála- og þró-
unarmálaráðherra ESB-landanna á
sitt band á fundi í Brussel í gær. Hann
fullvissaði þá um að Evrópusamband-
ið yrði áhrifamikið í Alþjóðabankan-
um og kvaðst ætla að setja saman
„fjölþjóðlega“ yfirstjórn í stofnuninni.
Wolfowitz hét því einnig að barátt-
an gegn fátækt í heiminum yrði for-
gangsverkefni sitt í bankanum.
Fulltrúi allra aðildarríkjanna
Talsmaður framkvæmdastjórnar
ESB sagði að hún væri ánægð með
loforð hans og stefnu í þróunarmálum,
einkum hvað varðar afnám viðskipta-
hafta og baráttuna gegn fátækt.
Heidemarie Wieczorek-Zeul, ráð-
herra þróunarmála í þýsku stjórninni,
sagði að afstaða ESB-ríkjanna til
Wolfowitz réðist af viðhorfum hans í
þróunarmálum en ekki af þætti hans í
Íraksstríðinu. Wolfowitz hefði tekið
skýrt fram að hann yrði ekki fulltrúi
Bandaríkjastjórnar, heldur allra
aðildarríkja Alþjóðabankans.
Reuters
STUÐNINGSMENN Roberts Mugabe, forseta Zimbabwe, halda á fán-
um á kosningafundi í höfuðborginni Harare í gær. Mugabe sagði að
ekki kæmi til greina að flokkur hans myndaði þjóðstjórn með stjórn-
arandstöðunni eftir þingkosningar sem fram fara í landinu í dag. /14
ESB-ríki
styðja Paul
Wolfowitz
Kveðst ætla að koma á fjölþjóðlegri
yfirstjórn í Alþjóðabankanum
Mugabe hafnar þjóðstjórn
Úlfur í Alþjóðabanka/6B