Morgunblaðið - 31.03.2005, Page 2

Morgunblaðið - 31.03.2005, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Wolfowitz í Alþjóðabankann Paul Wolfowitz, aðstoðarvarn- armálaráðherra Bandaríkjanna, verður að öllum líkindum skipaður yfirmaður Alþjóðabankans í dag. Ríki Evrópusambandsins féllust í gær á að styðja hann þrátt fyrir efa- semdir um hann vegna þáttar hans í skipulagningu innrásarinnar í Írak. Mikið álag á lífríki jarðar Vaxandi mannfjöldi og aukin efna- hagsumsvif hafa valdið miklu álagi á lífríki jarðar síðastliðna hálfa öld, að því er fram kemur í skýrslu sem unnin var með aðstoð yfir 1.300 sér- fræðinga. Neikvæð gagnvart nýbúum Viðhorf íslenskra unglinga til ný- búa hafa þróast í afar neikvæða átt á mjög stuttum tíma. Fulltrúar RKÍ segja nauðsynlegt að efla forvarna- starf og fræðslu gegn fordómum Minni landbúnaðarstyrkir Íslensk stjórnvöld þurfa að öllum líkindum að draga mjög úr styrkjum til landbúnaðarframleiðslu á kom- andi árum, ef fer sem horfir með svonefnda DOHA-samningalotu. Baugur vill Somerfield Baugur Group hefur lýst yfir vilja sínum til að taka yfir bresku versl- anakeðjuna Somerfield og býður allt að 210 pens á hlutinn. Y f i r l i t Kynning – Morgunblaðinu í dag fylgir bæklingur frá Vero Moda. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " #        $         %&' ( )***                            Í dag Sigmund 8 Forystugrein 26 Fréttaskýring 8 Viðhorf 28 Erlent 13/15 Bréf 30 Minn staður 15 Minningar 31/36 Akureyri 16 Myndasögur 40 Höfuðborgin 17 Dagbók 40/42 Austurland 18 Listir 43/45 Landið 18 Leikhús 44 Daglegt líf 19 Bíó 46/49 Neytendur 20 Ljósvakamiðlar 50 Menning 21 Veður 51 Umræðan 22/30 Staksteinar 51 * * * HALLDÓR Ásgrímsson forsætis- ráðherra sagði á ársfundi Seðlabank- ans í gær að það hlyti að koma til skoðunar þegar sveiflur gengis væru brotnar til mergjar hvort taka ætti upp evruna. „Með þessu er ég ekki að segja að upptaka evrunnar myndi leysa öll vandamál,“ sagði Halldór. Hún gerði það ekki að hans dómi. Halldór sagði af þessu tilefni að ís- lenskt efnahagslíf hefði goldið fyrir það hve íslenskur fjármálamarkaður væri lítill í samanburði við alþjóða- markaðinn, og tiltölulega litlar fjár- magnshreyfingar inn og út úr land- inu gætu skapað miklar sveiflur í gengi íslensku krónunnar. Halldór sagði eðlilegt að Seðla- bankinn mæti hvort frekari vaxta- hækkanir væru nauð- synlegar og væru líklegar til að stuðla að því að verðbólgumark- mið næðist. „Ég hef heyrt rök Seðlabankans fyrir þeim vaxtahækkunum sem hann hefur þegar beitt sér fyrir. Þau eru góð og gild svo langt sem þau ná. En ég hef líka átt viðræður við fjölmarga fulltrúa at- vinnulífsins og fleiri sem hafa efasemdir um að stýritæki Seðla- bankans virki eins og til er ætlast. Ég ætla mér ekki að gerast dómari í þessu máli. Hins vegar finnst mér eðlilegt að hlusta á öll sjónarmið.“ Ráðherra sagði mik- ilvægast að ræða á þessari stundu hvaða verðbólgumælikvarði gæfi besta mynd af stöðu efnahagsmála og hvaða viðmiðun gagn- aðist Seðlabankanum best. Forsætisráðherra benti á að vísitala neysluverðs hefði hækkað um 4,5% á síð- ustu tólf mánuðum, þar af stafaði meira en helmingur hækkunar- innar af hækkun hús- næðisverðs. „Það er því eðlilegt að spurt sé hvort vísitala neysluverðs gefi rétta mynd af stöðu verðlags- mála við þessar aðstæður. Í þessu samhengi hefur verið bent á að vísi- tala neysluverðs endurspegli ekki nægilega vel breytingar á almennum framfærslukostnaði heimilanna þar sem lækkun á vöxtum að undanförnu og minnkandi greiðslubyrði húsnæð- islána hafi ekki að fullu komið inn í vísitöluna,“ sagði forsætisráðherra. Hann teldi því að full ástæða væri til að ræða opinskátt hvort Seðla- bankanum væri of þröngur stakkur sniðinn með því að miða verðbólgu- markmiðið alfarið við tólf mánaða breytingar vísitölu neysluverðs. „Ég tel sjálfgefið að Seðlabankinn horfi til fjölmargra þátta efnahagslífsins þeg- ar hann tekur sínar vaxtaákvarðanir, þar á meðal til þróunar fasteigna- verðs. Mér finnst hins vegar fast- eignaverðsþátturinn hafa of mikið vægi eins og staðan er í dag og tel nauðsynlegt að láta skoða þetta atriði vandlega,“ sagði forsætisráðherra. Upptaka evrunnar hlýtur að koma til skoðunar Halldór Ásgrímsson Eftir Kristján Geir Pétursson kristjan@mbl.is STARFSMANNASAMTÖK Rík- isútvarpsins hafa boðað til starfs- mannafundar í matsal Rík- isútvarpsins í dag kl. 12.30. Umræðuefnið er ástandið sem skapast hefur innan stofnunar- innar eftir að Auðun Georg Ólafs- son var ráðinn í stöðu fréttastjóra útvarps. „Á þessum fundi ætlum við að ræða stöðuna í þessu máli akkúrat eins og hún blasir við okkur,“ seg- ir Jóhanna Margrét Einarsdóttir, formaður starfsmannasamtaka RÚV. „Einhver úr stjórn félags fréttamanna verður með framsögu á fundinum og svo verða almennar umræður í kjölfarið um hvað fólki hér í húsi finnst. Væntanlega verður fólk bæði með og á móti. Ég vænti þess að stuðningsmenn Auðuns Georgs láti einnig í sér heyra.“ Samtökin munu svo samþykkja ályktun í kjölfar fundarins, en texti hennar liggur ekki fyrir að sögn Jóhönnu. Félag fréttamanna fundaði í gær, þar sem m.a. var rætt um hvað við tæki næstu daga. Segir Jóhanna menn mjög reiða og „ekki tilbúna að kyngja þessu“. Bogi Ágústsson, forstöðumaður fréttasviðs Ríkisútvarpsins, segir gert ráð fyrir því að Auðun Georg komi til starfa á morgun, 1. apríl. „Þegar menn koma inn á nýjan vinnustað þurfa þeir að kynnast fólki og starfsháttum, en hann er fréttastjóri frá fyrsta degi.“ Bogi segir Friðrik Pál Jónsson, starf- andi fréttastjóra útvarps, hafa óskað þess að fara aftur í Speg- ilinn og muni hann taka aftur við þeirri stöðu sinni á morgun. Auðun Georg til starfa á morgun FIMMTÁN aðildarfélög BHM, sem notuðu rafræna atkvæðagreiðslu til að afgreiða samkomulag við ríkið um breytingar og framlengingu á kjarasamningum sínum, hafa öll samþykkt samkomulagið með afger- andi meirihluta greiddra atkvæða. Áður höfðu þrjú aðildarfélög BHM samþykkt samkomulagið í atkvæðagreiðslu. Aðildarfélög BHM, sem und- irrituðu nýtt samkomulag við ríkið 28. febrúar síðastliðinn, voru 24 talsins. Þau sex, sem enn eiga eftir að taka afstöðu til samkomu- lagsins, eru staðbundin félög há- skólakennara, leikarar og sálfræð- ingar. Afgerandi niðurstaða Að sögn Halldóru Friðjónsdóttur, formanns BHM, eru kennarafélögin jafnframt að ganga frá stofnana- samningum við sína skóla og bjóst hún við atkvæðagreiðslum hjá þeim í næstu viku. Fengu félagsmenn upplýsingar sem þurfti að hafa til að greiða at- kvæði sendar í pósti. Að meðaltali neytti helmingur atkvæðisbærra einstaklinga réttar síns í rafrænu atkvæðagreiðslunni, eða 1.188 af 2.374. Minnst þátttaka í einstöku fé- lagi var 35%, en mest 75%. Þegar litið er til félaganna allra voru tæplega 90% þátttakenda fylgjandi samkomulaginu, tæp 10% sögðu nei og innan við 1% skilaði auðu. Í einu félagi var samkomulag- ið samþykkt með öllum greiddum atkvæðum, en lægsta hlutfallið var tæplega 78%. „Niðurstaðan er mjög afgerandi, mikill meirihluti þeirra sem greiddu atkvæði er jákvæður gagnvart sam- komulaginu,“ sagði Halldóra Frið- jónsdóttir, formaður BHM, í samtali við Morgunblaðið í gær. Þátttakan í rafrænu atkvæðagreiðslunni olli henni samt nokkrum vonbrigðum. „Með því að hafa rafræna atkvæða- greiðslu héldum við að við fengjum meiri þátttöku,“ sagði Halldóra. 18 aðildar- félög BHM samþykktu samkomulag við ríkið Halldóra Friðjónsdóttir ALLS hafa nítján sótt um stöðu safnstjóra Listasafns Reykjavíkur, en umsóknarfrestur rann út 22. mars sl. Staðan var auglýst alþjóðlega og sækjast alls tólf íslenskir og sjö er- lendir safnstjórar, sýningarstjórar, listamenn og aðrir einstaklingar eft- ir starfinu. Erlendu umsækjendurn- ir eru starfandi í Evrópu, Bandaríkj- unum, Kanada og Asíu. Þeir sem sóttu um starfið eru: Aldo Castillo, Chus Martinez, Dieter Buchhart, Hafþór Yngvason, Halldór Björn Runólfsson, Hannes Sigurðsson, Hilde Teerlinck, Kinga Araya, Kristinn E. Hrafnsson, Leon- hard Emmerling, Margrét Sigfús- dóttir, María Rut Reynisdóttir, Njáll Sigurðsson, Ólöf K. Sigurðardóttir, Rakel Pétursdóttir, Rebekka Rán Samper, Sólveig Þórisdóttir, Yean Fee Quay og Æsa Sigurjónsdóttir. Í fréttatilkynningu segir að tekin verði viðtöl við umsækjendur sem uppfylla öll skilyrði auglýsingar, sem m.a. kvað á um framhaldsmenntun á háskólastigi sem tengist viðfangs- efnum safnsins, þekkingu á myndlist og reynslu af lista- og menningar- starfi auk reynslu og hæfileika á sviði stjórnunar, starfsmannahalds og rekstrar. Jafnframt voru gerðar kröfur um reynslu af alþjóðlegri samvinnu á vettvangi myndlistar og að viðkom- andi umsækjandi gerði grein fyrir framtíðarsýn sinni fyrir Listasafn Reykjavíkur. Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar ræður nýjan safnstjóra Listasafns Reykjavíkur að fenginni tillögu sviðsstjóra. Alþjóðlegur áhugi á stöðu safn- stjóra Listasafns Reykjavíkur MIKIL þensla hefur verið á byggingarmarkaði undanfarin misseri og hef- ur hún meðal annars birst í gríðarlegri eftirspurn eftir lóðum á höfuðborg- arsvæðinu og einnig í Fjarðabyggð. Í Borgartúninu starfa byggingarverktakar nú í djúpum og víðum grunni, þar sem áður voru Trésmiðjan Sögin og tækjadeild Reykjavík- urborgar. Enginn vafi er á að viðamikil bygging mun rísa á þessum verð- mæta reit. Morgunblaðið/Þorkell Grunnurinn treystur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.