Morgunblaðið - 31.03.2005, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 13
ERLENT
Nias. AFP. | Talsmenn Sameinuðu
þjóðanna sögðu í gær að búið væri
að staðfesta að 518 manns hefðu
farist í öflugum jarðskjálfta í
Indónesíu sl. sunnudag. Þessi tala á
þó eftir að hækka, enn er verið að
leita að lifandi fólki í rústum húsa
sem hrundu í skjálftanum og það
verk gengur hægt vegna skorts á
tækjum og tólum til að lyfta og
færa til jarðveg og grjót úr húsum
sem hrundu. Víst er talið að meira
en 1.000 manns fórust í hamför-
unum.
Ekki eru nema þrír mánuðir síð-
an á þriðja hundrað þúsund manns
fórust í miklum náttúruhamförum í
Indónesíu og fleiri ríkjum Suðaust-
ur-Asíu. Hjálparstarfsfólk var þó
tekið að yfirgefa svæðin. Undan-
farna tvo daga hafa hjálparsamtök
hins vegar verið að senda fólk sitt
til baka í því skyni að bregðast við
jarðskjálftanum á sunnudag. Hann
átti upptök sín undan vesturströnd
Súmötru og mældist 8,7 á Richters-
kvarðanum.
Þá var ástralska herskipinu Kan-
imbla snúið við en það var statt ná-
lægt Singapore, á heimleið eftir að
hafa verið á hörmungasvæðunum í
Indónesíu síðustu þrjá mánuðina.
Ástralir hafa einnig lagt til flutn-
ingavélar og þyrlur til að flytja
hjálpargögn til bágstaddra. Stjórn-
völd í Japan og Malasíu hafa eins og
Ástralir heitið Indónesum að senda
hermenn, neyðarhjálparsveitir og
ýmsar vistir.
Þora ekki að
vera innandyra
Manntjón í skjálftanum á sunnu-
dag varð mest á eyjunni Nias og er
stærsti bærinn þar, Gunung Sitoli,
nánast í rúst eftir skjálftann. Vegir,
brýr og flugvellir skemmdust líka
mikið í jarðskjálftanum sem hamlar
björgunarstarfi.
Á eyjunni Simeulue, sem einnig
varð illa úti, höfðust tugir þúsunda
manna við í tjöldum. Margir höfðu
misst heimili sín í skjálftanum, aðrir
þorðu einfaldlega ekki að vera inn-
andyra af ótta við frekari skjálfta.
Skortur er á mat og lyfjum á bæði
Nias og Simeulue, að sögn AFP-
fréttastofunnar og hefur gengið
hægt að koma vistum til eyjanna.
Talsmenn Sameinuðu þjóðanna
greindu hins vegar frá því að yf-
irflug hefði leitt í ljós að ekki hefði
orðið mikið manntjón á Banyak-eyj-
um, sem liggja allra næst upptökum
skjálftans á sunnudag, en þar búa
um tíu þúsund manns.
Aðstæður
hamla öllu
hjálparstarfi
Reuters
Indónesísk kona gengur framhjá rústum nokkurra húsa í Gunung Sitoli á Nias-eyju í gær.
Vegir, brýr og flugvellir skemmdust
mikið í jarðskjálftanum í Indónesíu
! "#$ %"
%! &!
'& %
( #)$* + ,#%
( -. / , "+
,# " 011
/ , "+ ,#
"#$ +
#
V
æntanlegt hjónaband Karls rík-
isarfa í Bretlandi og heitkonu hans,
Camillu Parker Bowles, hefur
beint sjónum manna að hefðum og
lögum ensku biskupakirkjunnar
hvað snertir hjónaskilnaði, segir í frétt
Associated Press. Bæði eru fráskilin en kirkjan
hefur ávallt verið mjög andvíg skilnaði enda
þótt hlálegt sé í ljósi sögunnar: Hinrik VIII.
konungur fékk ekki leyfi páfa á 16. öld til að
skilja við konu sína og giftast ástmey sinni, þess
vegna stofnaði hann biskupakirkjuna og sagði
sig úr lögum við Róm.
Konungurinn er að nafninu til æðsti yfirmað-
ur biskupakirkjunnar í Englandi og því eru
margir hugsi yfir væntanlegu hjónabandi. Ekki
er víst hvernig túlka beri þá ákvörðun Elísabet-
ar drottningar að vera ekki viðstödd sjálfa
hjónavígsluna í Windsor-kastala 8. apríl en
sumir heimildarmenn telja að hún sé að lýsa yfir
vanþóknun sinni á ráðahagnum.
Verður drottning og þó …
Fyrrverandi eiginkona Karls, Díana prins-
essa, er að vísu látin og því ekkert því til fyr-
irstöðu að hann giftist á ný. En eiginmaður
Camillu, Arthur Parker Bowles, er á lífi, þau
hjónin skildu árið 1995. Því má bæta við að verði
Karl konungur mun Camilla gegna hlutverki
drottningar þótt hún fái að vísu ekki titilinn
sjálfan heldur verði nefnd „princess consort“
sem mætti þýða lauslega með heitinu kon-
ungsfrú.
Karl og Camilla láta duga borgaralega vígslu
en fá síðan blessun erkibiskupsins af Kant-
araborg. Þetta er millivegur sem margir bresk-
ir liðsmenn biskupakirkjunnar hafa fetað vegna
bannsins við að skilja og giftast á ný. En ást-
arsamband þeirra hefur verið alþekkt um langt
skeið. Að sögn Paul Handleys, ritstjóra Church
Times, telja flestir skömminni skárra að þau
hætti að lifa í synd og gifti sig. Frjálslyndir liðs-
menn kirkjunnar vona að giftingin verði til þess
að biskupakirkjan verði framvegis fúsari að
leyfa fráskildum að ganga aftur í hjónaband
þegar væntanlegur yfirmaður hennar verði for-
dæmi í þessum efnum.
Rowan Williams, erkibiskup af Kantaraborg
og æðsti klerkur ensku biskupakirkjunnar, hef-
ur í yfirlýsingu sagt að fyrirhugað hjónaband
verði „í samræmi við reglur ensku kirkjunnar“.
En íhaldssamir kirkjumenn eru á því að
hjónabandið sé aðeins enn eitt dæmið um að
grafið sé markvisst undan fornum hefðum og
siðferðisgildum. Meðal þeirra sem eru ósáttir er
David Stancliffe, biskup í Salisbury. Hann vill
að Karl iðrist og geri yfirbót vegna sambands
síns við Camillu áður en hún skildi við eig-
inmanninn. Margir hafa kennt framhjáhaldi
Karls um slitin á hjónabandi hans og Díönu
prinsessu.
Biskupinn bendir á að prinsinn og Camilla
taka eftir borgaralegu athöfnina þátt í iðr-
unarbænahaldi við athöfnina þar sem biskupinn
blessar samband þeirra. „Þegar fólk býr sig
undir slíkar bænir er meðal annars reynt að
bæta fyrir öll særindi sem fólk hefur valdið,
tengsl eru endurnýjuð og sérstök áhersla þá
lögð á sambönd sem hafa skaddast vegna ótil-
hlýðilegs framferðis,“ segir Stancliffe.
Aðrir gagnrýnendur Karls segja að hann eigi
einfaldlega að feta í fótspor frænda sína, Ját-
varðs sjöunda, sem sagði af sér konungdæmi ár-
ið 1936 til að geta gengið að eiga fráskilda konu.
Karl eigi að láta son sinn, Vilhjálm, taka við þeg-
ar Elísabet deyr.
Efasemdir um nýtt
hjónaband Karls
Ríkiserfinginn breski sagður eiga
að biðjast afsökunar á framhjáhaldi
AP
Karl, prins af Wales, og konuefni hans,
Camilla Parker Bowles, á leið til messu í
Didmarton í Englandi í febrúar.
kjon@mbl.is
Eftir Kristján Jónsson
Tókýó. AP. | Vaxandi mannfjöldi og
aukin efnahagsumsvif hafa valdið
miklu álagi á lífríki jarðar síðast-
liðna hálfa öld, segir í skýrslu sem
unnin hefur verið með aðstoð yfir
1.300 sérfræðinga. Sameinuðu þjóð-
irnar voru meðal þeirra aðila sem
stóðu fyrir skýrslugerðinni en verk-
ið tók fjögur ár og kostaði um 24
milljónir dollara, nær 1.500 millj-
ónir króna. Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri SÞ, hvatti ríki heims
til að notfæra sér niðurstöðurnar til
að breyta um stefnu.
Skýrsluhöfundar segja að búið sé
að eyða um 60% af graslendi og
skógum og spilla mjög lífi í ám og
vötnum. Aukið álag á lífríki og hrá-
efnabúskap jarðar geti komið í veg
fyrir að hægt verði að ná mark-
miðum sem sett voru fyrir fimm ár-
um á fundi SÞ í S-Afríku um að
lækka um helming hlutfall fólks
sem ekki hefur aðgang að hreinu
drykkjarvatni og bæta kjör fólks í
fátækrahverfum.
Yfir 16.000 gervihnattamyndir
„Taki þjóðir heims ekki upp vist-
vænni stefnu gæti farið svo að auk-
in þörf manna fyrir mat, vatn og
eldsneyti hraði enn eyðingu skóga,
fiskstofna og vatnslinda og valdi
tíðari farsóttum á næstu 50 árum,“
segir í skýrslunni. Sagði yfirmaður
háskóla SÞ í Japan, A. H. Zakri, á
blaðamannafundi í gær í tilefni af
útgáfu skýrslunnar að framleiðsla á
mat í heiminum hefði aukist en sú
þróun hefði kostað sitt.
Zakri sagði að hægt væri að
draga úr slæmum áhrifum manna á
umhverfið og minnka sóun auðlinda
með því að fella niður hömlur á al-
þjóðaviðskipti og niðurgreiðslur,
vernda skóga og strandsvæði, ýta
undir notkun vistvænnar tækni og
minnka losun svonefndra gróður-
húsalofttegunda en talið er að þær
valdi hlýnun andrúmsloftsins.
Vísindamenn notuðu yfir 16.000
bandarískar gervihnattamyndir af
jörðinni við gerð skýrslunnar auk
fjölmargra tölulegra gagna og
greina í vísindatímaritum.
Fram kemur að fimmtungi allra
kóralrifa í heiminum og þriðjungi
mangrove-skóga hafi verið eytt á
síðustu árum. Fjölda dýra- og
jurtategunda hafi verið útrýmt og
þriðja hver tegund sé í útrýming-
arhættu. Sjúkdómsfaröldrum hafi
fjölgað, flóð og skógareldar orðið
tíðari og hlutfall koldíoxíðs í and-
rúmsloftinu hafi aukist mikið síð-
ustu fjóra áratugi.
Mikið álag á lífríki jarðar
Viðamikil rannsókn leiðir í ljós að
stöðugt gengur á auðlindir jarðar
Meira á mbl.is/ítarefni
Washington. AFP. | Háttsettur
bandarískur herforingi í Írak
heimilaði að beitt yrði ógnunum
og þvingunum
við yfirheyrslur
á föngum þar.
Þetta kemur
fram í minnis-
blaði sem
mannréttinda-
samtök, ACLU,
hafa fengið að-
gang að.
Minnisblaðið er frá því í sept-
ember 2003 og undirritað af
Ricardo Sanchez sem þá var
yfirmaður Bandaríkjahers í
Írak. Heimilar Sanchez þar að
föngum sé gert að vera í erf-
iðum stellingum við yfir-
heyrslur, að gera megi föngum
að hlýða á háværa tónlist,
breyta megi lýsingu og raska
reglubundnum svefni þeirra.
Þá megi nota tjóðraða hunda
við yfirheyrslur til að nýta „ótta
Araba við hunda“. Sanchez seg-
ir samþykki hans jafnan hafa
þurft að liggja fyrir áður en að-
ferðum þessum væri beitt, til
þess hafi aldrei komið. Mánuði
eftir að minnisblaðið var gert
var fyrirmælunum breytt að
kröfu lögfræðinga hersins.
Sanchez
heimilaði
þvinganir
Sanchez