Morgunblaðið - 31.03.2005, Síða 18

Morgunblaðið - 31.03.2005, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AUSTURLAND LANDIÐ Eskifjörður | Sævar Guðjónsson á Eskifirði verður að teljast til hand- laginna heimilisfeðra. Þegar hann og kona hans Berglind Steina Ingv- arsdóttir áttu von á sínu fyrsta barni, ákváðu þau að smíða vöggu undir barnið sjálf. Að sögn Sævars sinnti hann smíðunum en Berglind bróderaði. Undurfalleg vagga varð útkoman úr smiðju þessara hand- lögnu hjóna sem nú reka gistiheimili á Mjóeyrinni á Eskifirði. Sævar segist hafa verið að snigl- ast úti í garði og var að bera til hreindýrshorn sem þar voru í nokkrum mæli, þegar hann fékk hugmyndina að smíði vöggunnar. Efniviðurinn eru þrjú stór hrein- dýrshorn sem Sævar sneið til og setti saman og gegna þau nú hlut- verki undirvagns vöggunnar. Yfirbyggingin er gerð úr blárri síldartunnu, reyndar tveimur sem eru settar saman. Því næst bróder- aði og yfirdekkti Berglind tunnuna með leðursútuðu hreindýraskinni. Þegar vaggan var fullgerð eign- uðust þau hjónin dreng sem heitir Anton Berg og eyddi hann frum- bernsku sinni í þessari haganlega smíðuðu vöggu. Þó reyndist einn galli á gjöf Njarðar. Þegar drengurinn var orð- in sjö mánaða var hann vaxinn upp úr vöggunni og hefur sofið í rúmi síðan og sannast þar hið fornkveðna að barnið vex en brókin ekki. Nú er ekki annað til ráða, til að þessi fagri smíðisgripur nýtist sem best, en að bíða eftir að annað barn komi í heiminn til að velgja vögguna þá arna. Aðspurður sagði Sævar þó, að ekki væri búið að leggja drög að nýju barni í vögguna, þó þau hjónin væru alltaf að æfa sig. Eskfirsk vöggugerð úr hreindýrs- hornum og síldartunnum Barnið vex en brókin ekki Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Búa sér í haginn Vaggan sem hjónin Sævar Guðjónsson og Berglind Steina Ingvarsdóttir á Eskifirði bjuggu barni sínu. Egilsstaðir | Lúðrasveit Reykja- víkur heldur tvenna tónleika á Austurlandi um næstu helgi. Bára Sigurjónsdóttir, saxófónleikari og tónskáld frá Egilsstöðum, á verk á efnisskrá Lúðrasveitarinnar og hefur spilað með henni undanfarin ár. „Við landsbyggðarfólk tengjum nafn Lúðrasveitar Reykjavíkur jafnan við höfuðborgina eins og vera ber. Þar er heimili hennar og starfsvettvangur. Allir landsmenn hafa hins vegar notið flutnings hennar í fjölmiðlum við öll meiri háttar tækifæri í þau 83 ár sem hún hefur starfað,“ segir Bára. Hún segir Lúðrasveitina ekki hafa gert víðreist síðustu ár- in, en nú hafi hún ákveðið að heiðra Austfirðinga með tvennum tónleikum, sem haldnir verða á Egilsstöðum laugardaginn 2. apríl og í Neskaupstað sunnudaginn 3. apríl nk. „Gestur á hvorum tveggju tón- leikunum verður Berglind María Tómasdóttir, einn af færustu flautuleikurum landsins, sem reyndar er ættuð frá Neskaup- stað. Þá munu nokkrir austfirskir lúðraþeytarar taka þátt í tónleik- unum, en við hér fyrir austan eig- um blásara, sem jafnast á við þá bestu í landinu. Þar má nefna Gillian Haworth, Einar Braga Bragason og Tristan Willems.“ Bára segir Lúðrasveit Reykja- víkur hafa gengið í gegnum mikla endurnýjun undanfarin ár. Á með- an eldri meðlimir hafi verið að hverfa af vettvangi einn og einn hafi ungir félagar fyllt skörðin og aldursbreiddin sé nú allt frá 12 og upp í 80 ára. „Meðal hinna yngri félaga eru nokkrir Austfirðingar sem hafa notið góðrar leiðsagnar Lárusar H. Grímssonar hljómsveitarstjóra og haft góðan félagsskap af sér eldri hljóðfæraleikurum. Má þar auk mín nefna Sóleyju Þrast- ardóttur flautuleikara og Daníel Friðjónsson klarínettuleikara sem mun leika einleik á hinum aust- firsku tónleikum.“ Efnisskrá verður í líflegri kant- inum en þar á meðal verður tón- verkið „Hver tók ostinn minn?“ eftir Báru og „Óður“ eftir Lárus H. Grímsson hljómsveitarstjóra. Brugðu sér austur Lúðrasveit Reykjavíkur hélt austur til tónleikahalds. Blásið í lúðra á Egilsstöðum og í Neskaupstað Lúðrasveit Reykjavíkur með tónleika á Austurlandi í fyrsta sinn í 83 ár Til Hafnar á einkaþotu | Lítil einkaþota af gerðinni Challander 604 í lúxusútfærslu lenti á Horna- fjarðarflugvelli annan dag páska og hafði þar viðdvöl meðan eigendur hennar, ensk hjón með þrjú börn ásamt íslenskum fararstjóra, skoð- uðu sig um og fóru að Jökulsárlóni. Frá þessu segir á vefnum hornafjor- dur.is. Guðbrandur Jóhannsson fór með fjölskylduna að lóninu og sagði hann að það hefði verið mikill áhugi hjá þeim að fræðast um allt og mikið spurt um James Bond-kvikmynd- unina. Fólkið hafði farið á Mýrdals- jökul á páskadag, dorgað niður um ís, flogið norður fyrir Grímsey og 66 gráðurnar og fundið einn hafísjaka þar fyrir norðan. Síðan fóru þau frá Akureyri í Kverkfjöll og svo var flogið í björtu fögru veðri yfir jökl- ana til Hornafjarðar. Fjölskyldan ætlar að koma aftur í sumar og líka um áramótin til að skoða norðurljósin. Þegar þotan hélt frá Hornafjarðarflugvelli tók flug- maðurinn hring og flaug lágflug fyr- ir flugvöllinn og vaggaði þotunni í kveðjuskyni. Hlaðhús | Landsvirkjun hefur ákveðið að taka tilboði Fosskrafts sf. í hlaðhús Kárahnjúkavirkjunar, þjónustubyggingar sem rísa mun í Fljótsdal. Fosskraft átti lægsta til- boð í verkið, um 349 milljónir króna að meðtöldum virðisaukaskatti, sem er um 70% af kostnaðaráætlun. Hlaðhúsið verður reist við munna aðkomuganga að stöðvarhúss- hvelfingunni og mun hýsa stjórnstöð, verkstæði og starfs- mannaaðstöðu Kárahnjúkavirkj- unar. Það verður tvær hæðir og kjallari, alls um 1.800 fermetrar, og fellt inn í fjallshlíðina. Arkitekta- stofan OÖ hannaði hlaðhúsið, verk- fræðilegir ráðgjafar eru samsteypan KEJV. Fosskraft sf. er í eigu fjögurra fyrirtækja: E.Phil & Sön í Dan- mörku, Hochtief í Þýskalandi, Ís- lenskra aðalverktaka hf. og Ístaks hf. Fyrirtækið hefur unnið und- anfarin misseri að umfangsmiklum verkþætti Kárahnjúkavirkjunar, þ.e. að gera þrenn jarðgöng inn í Valþjófsstaðarfjall í Fljótsdal, bora tvenn fallgöng lóðrétt úr að- rennslisgöngum niður að stöðvarhúsinu og grafa hellana miklu sem hýsa munu vélar og spenna virkjunarinnar. Jarðvinnu er lokið en Fosskraft vinnur nú að því að steypa upp stöðvarhúsið og tilheyrandi mannvirki. Frá þessu greinir á vefnum karahnjukar.is.    Hveragerði | Íslenskir aðalverktakar eru að reisa nýj- ar íbúðir við Heilsustofnun og hefur gatan fengið nafnið Lækjarbrún. Íbúar þeirra geta nýtt sér þá þjónustu Heilsustofnunar sem þeir óska og hafa þörf fyrir. Þegar hafa nokkrir keypt sér íbúðir og eru að flytja inn eða eru fluttir. Nú rétt fyrir páska komu hjónin Guðlaugur Ragnar Nílsen og Erla Gústafsdóttir og fengu afhenta sína íbúð. Ólafur Sigurðsson framkvæmdastjóri Heilsu- stofnunar og Guðrún Friðriksdóttir móttökustjóri mættu til að bjóða nýju íbúana velkomna og færðu þeim blómvönd og ávaxtakörfu af því tilefni. Aðspurð um ástæðu þess að flytja í Hveragerði benti Erla á mann sinn og sagði að hann ætti hug- myndina að þessu. Þau hjón hafa búið í Reykjavík í stóru húsi og sögðu að kominn væri tími til að minnka við sig. Erla sagði að þau hefðu lengi átt sumarbústað austur í Grímsnesi og þ.a.l. oft keyrt hér í gegn og alltaf fundist bærinn fallegur og gam- an að koma hingað. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Nýir bæjarbúar Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri HNLFÍ, og Guðrún Friðriksdóttir, móttökustjóri HNLFÍ, færðu Guðlaugi Ragnari Nílsen og Erlu Gústafsdóttur blóm og ávaxtakörfu þegar nýja íbúðin var afhent. Fluttu úr borginni í nýja íbúð Stykkishólmur | Ekki stóð til að hafa til frambúðar aukaferð á föstu- dögum á leið ferjunnar Baldurs frá Stykkishólmi að Brjánslæk, með við- komu í Flatey, að sögn vegamála- stjóra. Hann segir það hafa legið fyr- ir lengi að þessi aukaferð verði felld niður frá og með 1. apríl. Ferjan Baldur gengur einu sinni á dag samkvæmt vetraráætlun, og hefur undanfarna tvo vetur verið farin aukaferð seinnipart dags á föstudögum, sem nú hefur verið ákveðið að fella niður frá 1. apríl. Sagt var frá því í Morgunblaðinu í gær að sveitarstjórn Vesturbyggðar hafi mótmælt þessu harðlega, ekki síst vegna stóraukinnar nýtingar at- vinnufyrirtækja á ferjunni. „Það lá fyrir samkvæmt áætlun að þetta yrði bara út mars og við höfum ekki heyrt nokkurn skapaðan hlut um þetta og ekki heyrt af áhuga frá nokkrum aðila um að þessu verði haldið áfram fyrr en í [gær]morgun,“ segir Jón Rögnvaldsson, vegamála- stjóri. Hann segir aukaferðina hafa verið hugsaða til þess að bæta upp erfiða færð eftir vegum yfir vetrar- mánuðina, en slíkt hafi varla verið nein fyrirstaða síðan í janúar. Engin ósk um frestun Ekki hefur verið ákveðið hvort seinni ferðin á föstudögum yfir vetr- armánuðina verður felld út fyrir fullt og allt, eða hvort hún verður tekin upp aftur næsta vetur, segir Jón. Að óbreyttu verður í það minnsta aðeins ein ferð á dag með ferjunni frá 1. apríl, þar til sumaráætlunin tekur gildi hinn 1. júní nk. Gunnar Gunnarsson, aðstoðar- vegamálastjóri, segir að kostnaður ríkisins við hverja ferð ferjunar seinnipart dags séu rúmar 200 þús- und krónur, sem séu beinn styrkur við rekstraraðilann. Upphaflega hafi átt að hætta aukaferðunum á föstu- dögum í janúar, en vegna óska rekstraraðilans hafi því veri frestað fram í apríl. Nú hafi ekki borist frek- ari beiðnir um frestun og því verði ferðin felld niður. Ferðum ferjunnar Baldurs fækkað Aukning ekki hugs- uð til frambúðar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.