Morgunblaðið - 31.03.2005, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 19
DAGLEGT LÍF
sími: 566 6103
isfugl@isfugl.is • www.isfugl.is
Umfjöllunarefni Ingibjarg-ar Lilju Ómarsdóttur íritgerðinni, sem lá tilgrundvallar meistara-
prófi hennar í atvinnulífsfélagsfræði
frá Gautaborgarháskóla sl. haust, er
sveigjanlegur vinnutími og mikil-
vægi hans fyrir jafnvægi á milli
vinnu og einkalífs hjá launþegum.
Sveigjanlegur vinnutími hefur mikið
verið í umræðunni undanfarin ár og
starfsfólki ýmissa fyrirtækja og
stofnana hefur verið gefinn kostur á
að inna vinnuskyldu sína af hendi
innan sveigjanlegs tímaramma og/
eða vinna heiman frá sér í ein-
hverjum mæli. Ýmislegt hefur bent
til þess að þetta auki vinnuálag á
starfsfólk en Ingibjörg komst að því
að jafnvel þótt svo sé, hafi fólk já-
kvæða sýn á það. Þess ber að geta
að niðurstöður hennar eru úr svo-
kallaðri eigindlegri rannsókn þar
sem hún tók viðtöl við átta starfs-
menn Íslandsbanka á síðasta ári,
fjórar konur og fjóra karla. Ingi-
björg valdi viðmælendur með skil-
yrðunum að þeir þyrftu að vera fjöl-
skyldufólk með a.m.k. eitt barn
undir níu ára aldri.
Aukin ánægja í starfi
Ingibjörg Lilja komst að því að
sveigjanlegur vinnutími virðist auka
ánægju starfsfólksins í starfi og
hollustu þess við fyrirtækið og
minnka starfsmannaveltu. Ánægja
starfsfólksins virðist auka metnað
þess sem speglast í aukinni afkasta-
getu fyrirtækjanna og það er í sam-
ræmi við fyrri rannsóknir.
„Ég spurði þriggja aðalspurn-
inga: Upplifir þú samræmi á milli
starfsmannastefnu og fyrirtækja-
menningar? Upplifir þú sveigjan-
leika í starfi sem gagnlegan til að
auka jafnvægi á milli vinnu og
einkalífs? Hvers konar áhrif hefur
sveigjanleikinn á starfið annars veg-
ar og heimilislífið hins vegar?
Íslandsbanki hefur lagt áherslu á
jafnvægi á milli starfs og einkalífs
starfsfólks og gefur starfsfólki kost
á sveigjanlegum vinnutíma. Bankinn
tók þátt í verkefninu Hið gullna
jafnvægi ásamt fleiri fyrirtækjum
árið 2000–2001. Í kjölfarið ákvað Ís-
landsbanki að bjóða öllum sínum
starfsmönnum upp á sveigjanleika á
einhvern hátt og hófst það formlega
árið 2003.
Eykur metnað í starfi
Að sögn Ingibjargar kom í ljós að
starfsmennirnir átta voru allir
ánægðir með sveigjanlegan vinnu-
tíma og fannst þeir ná fram auknu
jafnvægi á milli starfs og einkalífs,
jafnvel þótt þeir upplifðu aðeins
meira vinnuálag. Jafnvægið á milli
starfs og einkalífs varð þeim hvatn-
ing til þess að leggja sig fram í
starfi. Eins og einn viðmælandinn
orðaði það: „Ég upplifi þetta sem
sérréttindi að finna að vinnustaður-
inn finnst ég mikilvægur og að hann
er tilbúinn til að koma til móts við
mínar fjölskylduþarfir. Þá líður þér
eins á móti. Það er ekki eins og mað-
ur fari bara fyrr heim á daginn og
liggi uppi í sófa með tærnar upp í
loft heldur eykur þetta metnaðinn í
starfi. Ég er alveg viss um að þetta
auki hollustu við fyrirtækið, sérstak-
lega núna þegar vinnuumhverfið
einkennist af samkeppni.
Spurningum um starfsmanna-
stefnuna, þ.e. hvort starfsmennirnir
hefðu þekkingu á henni, upplifðu
hana í framkvæmd og hvort hún
hjálpaði þeim að öðlast jafnvægi á
milli vinnu og einkalífs, svöruðu
starfsmennirnir almennt játandi.
Einn viðmælandinn orðaði það sem
svo að í vinnunni væri líka lögð
áhersla á fjölskyldulífið. „Stjórn-
endur bankans leggja mikla áherslu
á að það eigi ekki að vera þykkur
veggur á milli vinnu og fjölskyldulífs
því við búum í samfélagi þar sem
þessir þættir hafa áhrif á hvor ann-
an og því þarf að taka tillit til þess.“
Unnið heima að hluta til
Ingibjörg segir að starfsfólk Ís-
landsbanka eigi kost á sveigjanleika
bæði í tíma og rúmi, þ.e. vinnutími
er breytilegur og það getur unnið
heiman frá sér að einhverju marki.
Hversu mikill sveigjanleikinn getur
verið fer eftir stöðu viðkomandi, en
jafnvel þótt ekki væri um að ræða
meira en hálftíma sveigjanleika í
vinnutíma, var litið á það sem mikil-
vægt, að sögn Ingibjargar. „Fólk í
æðri stöðum hefur oftar meiri
sveigjanleika,“ segir Ingibjörg, þar
sem hún situr og blaðar í ritgerðinni
sem var skrifuð á ensku og ber titil-
inn „Work-family balance – How do
Employees experience Work-family
Balance in Connection with Flex-
ibility?“ En öllum fannst það þess
virði að vinna jafnvel aðeins meira
fyrir sveigjanleikann. Fólki þótti
ekki neikvætt að finna fyrir auknu
vinnuálagi eða þurfa að grípa til
vinnunnar í frítímanum, bætir hún
við.
Spennandi verkefni
Í námi sínu stundar Ingibjörg nú
rannsóknir við Atvinnulífsfræða-
stofnun Gautaborgarháskóla og hef-
ur hafist handa við næsta rannsókn-
arverkefni þar sem hún tekur viðtöl
við karlmenn sem vinna hjá sænsku
fyrirtæki í byggingariðnaði. Mark-
miðið er að kanna hvernig þeir upp-
lifi ábyrgðarstöðu sína sem feður og
skoða reynslu vinnandi feðra af at-
vinnu- og fjölskyldulífi. Hvort
mönnunum þyki jafnvel óþægilegt
að taka feðraorlof, hvort þeirra
skoðanir á feðrahlutverkinu hafi
breyst á milli kynslóða og hvort þeir
upplifi aukna ábyrgð karlmanna á
fjölskyldu og heimili samþykkta á
vinnustað. „Þetta finnst mér mjög
spennandi verkefni. Hér í Svíþjóð er
mikið rætt um fjölskyldumál, vinnu
og einkalíf, en yfirleitt er allt ákveð-
ið með lagasetningum frekar en að
einstök fyrirtæki hafi starfsmanna-
stefnu sem kveður á um markmið í
þessum efnum,“ segir Ingibjörg sem
lagt hefur atvinnulífsfræðina fyrir
sig.
MEISTARARITGERÐ | Mikilvægi sveigjanlegs vinnutíma fyrir vinnu og einkalíf
Eykur ánægju í starfi og
hollustu við fyrirtækið
Enginn hefur átt and-
látsorðin: Ég vildi að ég
hefði lagt harðar að mér
á skrifstofunni. Þetta
eru lauslega þýdd upp-
hafsorð í meistararit-
gerð Ingibjargar Lilju
Ómarsdóttur þar sem
hún vitnar í Arlie Russel
Hochschild í bókinni
Time Bind eða Tíma-
snaran frá árinu 1997.
Morgunblaðið/Ómar
Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir segir að jafnvægið á milli starfs og einkalífs
hafi orðið starfsfólki hvatning til þess að leggja sig fram í starfi.
steingerdur@mbl.is