Morgunblaðið - 31.03.2005, Side 20

Morgunblaðið - 31.03.2005, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Fjölmargir seðja hungur sittá degi hverjum með því aðskreppa í næstu versluneða í mötuneyti vinnustað- arins og tína saman í box grænmeti, ávexti, pasta og fleira úr salatbörum. Allur gangur er á úrvali á því sem boðið er upp á í slíkum salatbörum og miklu máli skiptir hvernig fólk velur í boxin sín þegar það fær sér máltíð úr salatbar. Anna Sigríður Ólafsdóttir matvæla- og næringarfræðingur segir að margir láti allt of lítið af „grænu“ þegar þeir velja í boxin sín. „Fólk heldur kannski að það hafi borðað salat í há- deginu af því það fékk sér eitthvað á salatbarnum, en það heitir ekki að borða salat þegar fólk fær sér kannski eingöngu pasta, túnfisk og kota- sælu, svo dæmi sé tekið. Salatbar getur verið frábær kostur með tilliti til hollustu en getur líka verið algjör kaloríubomba.“ Ekki drekkja salatinu í feitri sósu Anna Sigríður mælir með fjölbreytni og jafnvægi og að velja sem mest af fersku grænmeti og ávöxtum þegar fólk fær sér mat á salatbar. „Gott er að hafa grænmeti og ávexti sem grunn í boxinu hjá sér. Ágætt viðmið er til dæmis að fylla minnst þriðjung boxins með því. Baunir, túnfiskur, kotasæla, hnetur og egg eru próteinríkar vörur sem gjarnan mega fylla annan þriðjung. Loks er ágætt að setja kolvetnaríka fæðu í síðasta þriðjunginn. Mest ber á pastanu á salatbörum en það er oft olíulegið svo það er ágætt að gæta hófs, en vissulega gefur pastað góða fyllingu. Sós- urnar þarf að lesa vel utan á því lítið box (50 g) með feitri sósu geymir til dæmis heilar 200 kalorí- ur. Aðalatriðið er að drekkja ekki salatinu í feitri sósu því þá er holl- ustan farin fyrir lítið. Olíulegið græn- meti á borð við sólþurrkaða tómata og ólívur eða hummus sem er bauna- mauk, er líka sniðugt að nota í litlu magni sem bragðbót í stað sósu. Fyrir þá sem fylla boxið fyrst og fremst með fersku grænmeti, er um kaloríusnauða máltíð að ræða en þá er gott að bæta við grófu brauði til fyllingar eða jafnvel fá sér skyrdós eða súpu með.“ Hreinlætið skiptir miklu Ferskleiki og hreinlæti salatbarsins skiptir miklu máli og Ingólfur Giss- urarson fagstjóri á matvælasviði Umhverfisstofnunar segir að Um- hverfisstofnun og Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna hafi verið með eftir- litsverkefni frá árinu 2002 þar sem kannað er örveruástand á heitum og köldum hlaðborðum og falla salat- barir þar undir. „Í síðustu tveimur rannsóknum voru aðeins tekin um þrjátíu sýni úr salatbörum og það er því varla marktækt og segir frekar lítið um hvernig ástandið var. Þá fóru aðeins tvö sýni af þessum þrjátíu yfir viðmiðunarmörk Umhverfisstofnun- ar með tilliti til heildargerla við þrjátíu gráður, sem bendir til þess að kæling hafi ekki verið nægjanleg, varan hafi ver- ið orðin of gömul eða hafi legið of lengi í kælinum. Í þeim tilvikum snýst þetta ekki um hættulegar bakteríur heldur ferskleika og gæða- mál.“ Þeir sem voru á undan… „En það sem kannski helst þarf að setja spurningarmerki við í sam- bandi við salatbari er að þeir eru opnir og fjöldi fólks fær sér mat þar og fólk veit ekki hver var þar á undan og hvort sá hafi þvegið sér um hend- ur eða hvort hann hafi haft einhverj- ar veirur eða matarsjúkdómaörverur á höndunum, eða hvort hann notaði áhöldin eða berar hendur til að ná sér í matinn. Sá eða þeir sem voru á undan á salatbarinn geta hafa verið veikir og kannski hnerrað yfir mat- inn,“ segir Ingólfur. „Og eins veit viðskiptavinurinn ekki hvað matur- inn er búinn að vera lengi í kæliborð- inu. Ekki er vitað um nein tilfelli þar sem fólk hefur veikst við það að fá sér mat úr salatbar, en ég tek það fram að matvæli í slíkum börum eru viðkvæm vara og fólki ber að fara eftir ýtrustu leiðbeiningum þegar það nær sér í mat úr þeim.“ Þeir sem vilja kynna sér nánar niðurstöður úr rannsóknum Um- hverfisstofnunar geta farið inn á heimasíðuna www.ust.is og valið Matvæli og smellt þar á Eftirlits- verkefni UST og HES.  MATUR | Salatboxið getur ýmist verið algjör kaloríubomba eða alveg frábær hollusta Grænt skiptir miklu máli Morgunblaðið/Sverrir Anna Sigríður Ólafsdóttir, matvæla– og næringarfræðingur, segir að það heiti ekki að borða salat þegar fólk fær sér kannski eingöngu pasta, fituríka sósu og kannski örlítið af túnfiski úr salatbarnum. Aðalatriðið er að drekkja ekki salatinu í feitri sósu því þá er hollustan farin fyrir lítið Bónus Gildir 31. mars-3. apríl verð nú verð áður mælie. verð Bónus ferskir kjúklingabitar................... 269 359 269 kr. kg Bónus eplasafi 1 ltr. ............................. 59 79 59 kr. ltr Bónus ungnautaborgarar 10*115 gr. .... 999 0 869 kr. kg Bónus vöfflumix 500 gr......................... 159 199 318 kr. kg Bónus vatn 2 ltr. .................................. 79 99 40 kr. ltr KF lambahelgarsteikur.......................... 1099 0 1099 kr. kg KF sveitabjúgu..................................... 299 299 299 kr. kg Gillette rakvél ...................................... 999 1399 999 kr. stk. Colgate navigator tannburstar 2 stk. ...... 299 0 150 kr. stk. Fjarðarkaup Gildir 31. mars–2. apríl verð nú verð áður mælie. verð Nauta roastbeef, kjötborð..................... 1398 1898 1398 kr. kg Nauta gúllas, kjötborð .......................... 1198 1398 1198 kr. kg Kryddlegnar svínahnakkasneiðar ........... 858 1198 858 kr. kg FK grill svínakótelettur .......................... 972 1389 972 kr. kg FK reykt folaldakjöt .............................. 431 719 431 kr. kg Appelsínur .......................................... 95 135 95 kr. kg Bananar.............................................. 95 149 95 kr. kg Cheerios 992 gr................................... 398 489 401 kr. kg FK wc pappír 12 rúllur í pk. ................... 199 365 17 kr. stk. FK jurtakryddað lambalæri.................... 959 1599 959 kr. kg Hagkaup Gildir 31. mars–6. apríl verð nú verð áður mælie. verð SS lambalæri frosið ............................. 799 1178 799 kr. kg Holta heill ferskur kjúklingur.................. 396 695 396 kr. kg Fyrirtaks pizza pepperoni 400 gr............ 399 568 998 kr. kg Holta fersk kjúklingalæri ....................... 419 599 419 kr. kg Norðanfiskur ýsubitar brauðhjúpaðir ...... 599 659 599 kr. kg Fisksölusk. Ýsuflök roðlaus m/beini....... 489 699 489 kr. kg Nettó Gildir 31. mars–3. apríl verð nú verð áður mælie. verð 4 stk. Grillborgarar m. brauði ................ 299 499 299 kr. stk. Ungnautahakk..................................... 769 1098 769 kr. kg Ferskur kjúklingur................................. 359 598 359 kr. kg Nettó Hrásalat 800 gr........................... 198 268 198 kr. stk. Þurrkryddaðar lærisneiðar..................... 1139 1752 1139 kr. kg Ýsubitar 800 gr. ................................... 389 697 389 kr. stk. Grillkartöflur í álpappír.......................... 139 183 139 kr. stk. Pure Heaven ávatasafar – nýtt ............... 99 0 99 kr. ltr Rifflaðar franskar 700 gr....................... 99 259 99 kr. stk. Wagner pizzur ...................................... 298 369 298 kr. stk. Spar, Bæjarlind Gildir 31. mars–5. apríl verð nú verð áður mælie. verð Lambasaltkjöt, ódýrt ............................ 298 398 298 kr. kg Gulrófur, íslenskar................................ 98 169 98 kr. kg Grísakótilettur, léttreyktar...................... 998 1398 998 kr. kg Grísagrillsneiðar, kryddaðar .................. 498 698 498 kr. kg Nautahamborgarar 10 x 80 gr. frosnir .... 499 998 499 kr. kg Hunts tómatsósa 907 gr....................... 129 185 142 kr. kg Trúðakex 240 gr. .................................. 119 199 496 kr. kg Becks bjór 0,0% 33cl. flaska ................ 78 130 236 kr. ltr Helwa Franch Wafers kex 110 gr............ 89 148 809 kr. kg Kjúklingur, ýsa og nautahakk  HELGARTILBOÐIN | neytendur@mbl.is Í VIÐHALDSBÓKUM sem fylgja nýjum bíl- um er tekið fram hvenær eigi að koma með bílinn í smurningu og í handbók bílsins er tekið fram hvenær rétt sé að fara með hann í viðhaldsskoðun. Í nýjasta hefti Neytenda- blaðsins, er rakin frásögn manns sem keypti nýjan bíl og í viðhaldsbókinni var yfirlímd blaðsíða frá umboðinu, þar sem fram kom að bíllinn þyrfti að koma í smurningu á 7.500 km fresti. Hann hafði áður átt bíl sömu teg- undar sem fór í skoðun á 15.000 km fresti. Þegar hann leitaði skýringa fékk hann þau svör að verkstæðisformaður hjá umboðinu hefði ákveðið þetta, það færi betur með bíl- inn. Regluleg skoðun Fram kemur að Neytendasamtökunum berast oft fyrirspurnir um viðhaldsskoðanir og smurningu á nýjum bílum og einnig um ábyrgðarskilmála umboðanna, þar sem mörg þeirra gera kröfur um reglulega skoðun til að viðhalda ábyrgðinni. Tekið er fram að ekkert afdráttarlaust svar sé til við þessu. „Svarið fer í raun eftir því hvort seljandi hafi lofað kaupanda betri réttarstöðu en hann á samkvæmt lögum. Með nokkurri einföldun má segja að ef kvartað er vegna galla í bíl innan kvörtunarfrests (kvörtunarfrestur er frestur til að tilkynna galla á hlutum) beri seljanda samkvæmt lögum að bæta úr gall- anum. Skiptir þá ekki máli hvort kaupandi hafi komið með bílinn í smurningu á 15.000 km fresti eins og stóð í viðhaldsbók, nema bil- unin í bílnum verði hreinlega rakin til þess.“ Fimm ára frestur Tekið er fram að seljendur veiti kaupend- um oft meiri rétt en lög kveða á um, t.d. með því að lofa þriggja ára ábyrgð. „Kvörtunar- frestur var tvö ár þar til fyrir skemmstu en samkvæmt neytendakauplögum (sem tóku gildi í júní 2003) hafa kaupendur allt að fimm ára kvörtunarfrest ef hlutir hafa verulega lengri endingartíma en gengur og gerist. Neytendasamtökin telja að bifreiðir falli í þann flokk.“ Bent er á að seljendur geti sett ýmis skil- yrði t.d. skoðun eftir ákveðna km ef þeir veita aukin réttindi. Kaupendur verði að átta sig á hvað er í boði og meta hvort þjónustu- skoðanir hafi aukinn rétt í för með sér eða eingöngu aukin fjárútlát. Neytendasamtökin hafa kannað ábyrgðar- skilmála hjá bílaumboðunum og hversu oft þurfi að koma með nýja bíla í smurningu en það er nokkuð misjafnt eftir bílategundum, allt frá 7.500 km til 30.000 km fresti. „Bíla- umboðin fara oft fram á að bíllinn sé smurður oftar en framleiðandi gerir ráð fyrir vegna sérstakra aðstæðna hér á landi. Bílum er ekið styttri vegalengdir í einu og hitastig hér er lægra en víðast hvar í Evrópu.“  BÍLAR | Hvenær er rétt að fara með nýjan bíl í viðhaldsskoðun eða smurningu? Aukin réttindi eða fjárútlát? Morgunblaðið/Árni Sæberg Misjafnt er eftir bílategundum hversu oft þarf að fara með nýja bíla í viðhaldsskoðun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.