Morgunblaðið - 31.03.2005, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 31.03.2005, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FYRIR skömmu var skýrt frá að búið væri að endurbyggja gam- alt rafstöðvarhús í Glerárgilinu á Akureyri. Rafstöð var sett þar ár- ið 1922 og sá bæjarbúum fyrir öllu rafmagni framan af. Húsið stóð fram yfir 1970 en var þá brotið niður. Einhverjir sáu eftir þessum menning- arminjum og svo var ráðizt í að byggja nýtt hús á sama stað og sem líkast því gamla, sem vera skal almenningi til sýnis og væntanlega verður sitthvað þar að sjá til fróðleiks, þótt ekki verði þar rafmagns- verk á ný. Það gerist oft, að merkileg mannvirki, ekki sízt byggingar, hljóta fyrr en varir þau örlög að verða brotin niður. Stundum er ákvörðun tekin í fljótræði og van- hugsuð. En svo sem tuttugu árum eftir að hluturinn er horfinn fara menn að tala um hann með eftirsjá, þetta er nánast lögmál. Þá er jafn- vel ráðizt í að smíða einhvers kon- ar eftirlíkingu af því horfna og reynt að sefa söknuðinn að ein- hverju leyti. – Dæmi má nú sjá við sunnanvert Aðalstræti í Reykja- vík. Þar er risið hús í eftirlíkingu framhliðar Fjalakattarins horfna og stóreflis hótel er komið á horn- inu og á að minna eitthvað á Upp- sali, sem þar stóðu. – Uppsalir voru rifnir, breikka átti Túngötu og leggja þar mikla umferðaræð, yfir Austurvöll og upp Amtmanns- stíg og inn Grettisgötu. Þetta var tillaga dansks umferðarfræðings. Hann hafði víst litlar taugar til söguminja á Íslandi, en borgaryf- irvöld gleyptu tillöguna og ýmis elztu og merkustu hús Reykjavík- ur sem lengi höfðu sett mikinn svip á miðbæinn voru nú miskunn- arlaust rifin. Nefna má þar lyfja- búðina gömlu við Austurvöll og Amtmannshúsið við enda Amt- mannsstígs. – Þessi hraðbraut var aldrei lögð en skaðinn var skeður. – Menn deildu lengi um Fjalakött- inn svonefnda. Eftirlíking hans er eins og í yfirbótarskyni. Nú á að setja upp sjóminjasafn við vesturhöfnina í Reykjavík. Staðurinn er vel valinn. Húsið þarf að laga en um- hverfið getur vart hentara verið. Hér verður safnið við fiskihöfnina gömlu, þar koma vonandi lengi enn fiskibátar að landi með afla. Menn beita enn línu fyrir fiskibáta í ver- búðum og hér eru slippirnir, gamla dráttarbrautin og Daníelsslippur fast við safnhúsið. Boðað er þó, að slippirnir fari innan tíðar og í staðinn komi fjöl- býlishús. Þegar það gerist mun eitt merkasta einkenni útgerð- arsögu Reykjavíkur hverfa. Slipp- urinn gamli var eitthvert mesta framfaraspor síns tíma. Nú var unnt að taka hafskip, togara og minni farskip til viðgerðar, mál- unar og viðhalds, og ekki þurfti að taka þau í slipp erlendis. Í Daní- elsslipp eru tekin upp tréskip og minni bátar til viðgerðar og ófáir fiskibátar voru smíðaðir þar. – Þessi fyrirtæki skiptu sköpum fyr- ir skipaflota landsmanna á sínum tíma. Það yrði sjóminjasafninu mikil stoð, ef áfram mætti verða til frambúðar lítill bátaslippur rétt við safnið. Þar ætti að vinna að viðgerðum trébáta og þar ættu einnig að geta staðið uppi bátar sem eru safngripir. Kjörið væri að Aðalbjörgin stæði þar. Hún stend- ur nú uppi í Árbæjarsafni, langt frá sjó og fer einhvern veginn ekki vel. Það væri skaði ef þessu gamla athafnasvæði yrði öllu jafnað út og í staðinn kæmu stórbyggingar. Hér mun vafalaust margur vilja búa, fallegt útsýni er yfir gömlu höfnina, þar sem skemmtibátar og langleguskip vagga og fiskibátar koma að, og skemmtiferðaskip leggjast við hafnarbakkana austar. Það væri þó til vinnandi að fækka um eitt hús og halda í stað- inn agnarögn af því eðlilega hafn- arsvæði og athafnasvæði sem hér getur enn að líta, minnisvarða þess sem gerði Reykjavík að borg öðru fremur. Hér á ekki að búa til leiktjöld fyrir augað, heldur varðveita örlít- inn part af raunveruleikanum, það sem enn er til og raunverulegt. Ef borgaryfirvöld vilja hlynna að þessu safni ættu þau að taka fyrri ákvarðanir til yfirvegunar. Líklegt er að sjóminjasafn á þess- um stað, í réttu umhverfi, muni auka enn fjölbreytni mannlífs í gamla borgarhlutanum. Þar yrði merkilegt fræðslusetur um sjó- mennsku og siglingar fyrr á tíðum og á líðandi stundu. Það var vel þegar höfnin réðst í að kaupa þetta húsnæði fyrir safn- ið. Þá var vel róið í fyrirrúmi en nú frýr skuturinn skriðar. Fyrrverandi borgarstjóri óskaði að það yrði lokaverk sitt í embætti að undirrita sáttmála um sjó- minjasafnið. Þökk sé honum fyrir það. Nú er komið að öðrum að sýna sinn hug. Sjóminjasafn og bátaslippur Þór Magnússon fjallar um söguminjar og skipulagsmál ’Það væri skaði efþessu gamla athafna- svæði yrði öllu jafnað út og í staðinn kæmu stór- byggingar.‘ Þór Magnússon Höfundur er fv. þjóðminjavörður. MARKAÐSTORG innlendrar ferðaþjónustu, sem ber nafnið Ferða- torg 2005, er haldið af Ferðamála- samtökum Íslands í fjórða sinn í Vetrargarði Smáralindar nú um helgina. Þar kynna fulltrúar ferðaþjónustu landsmanna hina fjöl- breyttu ferðamöguleika og afþreyingu sem í boði er á ævintýraland- inu Íslandi. Ferðatorgið hefur áunnið sér fastan sess meðal höfuðborg- arbúa, sem sækja það í síauknum mæli til þess að kynna sér allt það sem hægt er að gera í afþreyingu á landinu. Það hefur færst í vöxt að landsmenn eyði meiri og meiri tíma í að ferðast um landið til að njóta fjölbreyttra val- kosta ferðaflórunnar, sem blómstrar sem aldrei fyrr. Það er mikil uppbygging í ferða- þjónustu landsins. Stöðugt bætast við nýjungar sem höfða til almennings og sést það best í fjölda þátttakenda t.d. í menningartengdri ferðaþjónustu. Mig langar að nefna nokkur dæmi úr mínum landshluta, Vesturlandi, máli mínu til sönnunar. Bæjarhátíðir eru stöðugt vinsælli. Það má nefna Borgfirðingahátíðina, 10.–16. júní í sumar, Færeyska daga í Ólafsvík 1. til 3. júlí og Leifshátíð á Eiríksstöðum í Dölum 8.–10. júlí. Ekki má gleyma Grundarfjarð- ardögum 22.–24. júlí eða Dönskum dögum í Stykkishólmi 12.–14. ágúst. Í fyrra var haldin einstök hátíð í Borg- arnesi sem hlaut nafnið Sauðamessa og þar var sauðkindinni okkar hampað með sérstökum hætti sem vakti mikla ánægju fjölda þátttak- enda. Þá má ekki gleyma tónleikahaldinu sem verður í sumar í Reykholtskirkju, Borgarneskirkju, Stykkishólmskirkju og víðar í um- dæminu. Knattspyrnuveislur verða fyrir yngri kynslóðirnar á Akranesi og í Borgarnesi. Golfferðamennska eykst ár frá ári á landinu og er það orðin mikil skemmtun að spila á sem flestum völlum á einu sumri. Mikið er af góð- um golfvöllum á Vesturlandi og má þar nefna Akranes, Borgarnes, Húsa- fell, Stykkishólm, Grundarfjörð, Ólafsvík og Garðavöll undir Jökli. Í Borgarnesi er verið að byggja nýtt hótel inni á golfvellinum, sem golfarar sækja alls staðar af landinu. Það er einnig verið að stækka hótelið í Stykkishólmi og í Ólafsvík. Nóg er af gistiaðstöðu í bændagistingu, sum- arhúsum og hótelum. Árlega fjölgar fjölbreyttum veitingastöðum, kaffi- húsum og krám sem höfða til ferða- langa. Söfn og sýningar er víða að finna. Ekki má gleyma sundlaugunum sem eru ætíð jafnvinsælar og vel sótt- ar af sumarhúsagestum og ferða- mönnum. Þetta er aðeins brot af ferðaflórunni á Vesturlandi sem er sýnishorn af öllu því sem í boði er um- hverfis allt landið. Ég hvet alla til að heimsækja Ferðatorg 2005 til að fá upplýsingar um það sem í boði er á landinu okkar góða. Ferðaflóra landsmanna kynnt á Ferðatorginu 2005 Hjörtur Árnason fjallar um Ferðatorg 2005 ’Ferðatorgið hefuráunnið sér fastan sess meðal höfuðborgarbúa, sem sækja það í síaukn- um mæli…‘ Hjörtur Árnason Höfundur er formaður Ferða- málasamtaka Vesturlands, stjórnarmaður í Ferðamálasamtökum Íslands og rekur Shellstöðina við Brúartorg í Borgarnesi. Á FUNDI Samfylkingarinnar um skólamál um síðustu helgi voru foreldrar gagnrýndir samkvæmt frétt í Morgunblaðinu hinn 2. mars fyrir að hafa ekki nægan skilning á því að lær- dómur felst ekki ein- vörðungu í því að sita við borð allan daginn. Sagt var að það væri algengt viðhorf for- eldra að því lengur sem nemendur sætu við borð sín þeim mun betra og þeir hefðu til dæmis ekki skilning á vettvangs- ferðum sem mik- ilvægum hluta af skólastarfinu. Mismunandi sýn foreldra Foreldrar nemenda í grunnskólum eru fjölmennur hópur eða um 90.000 ein- staklingar. Þekking og viðhorf þessara einstaklinga er mis- munandi eins og gefur að skilja miðað við fjöldann. Áralöng reynsla mín af sam- starfi við skóla sem og seta í for- eldrafélagi og foreldraráði hefur kennt mér að stór hópur foreldra hefur skilning á mikilvægi fjöl- breyttra kennsluhátta, telur þá mikilvæga og finnst nám hér á landi jafnvel oft á tímum of ein- hæft og bóknámsmiðað. Þessir for- eldrar vilja að börn þeirra fái tækifæri til þess að vinna með námsefni á mismunandi hátt þar sem þeir vita að það skilar betri árangri, er líklegra til þess að höfða til fleiri nemenda, fyrir utan það hvað það verður miklu skemmtilegra í skólanum. For- eldrum finnst mikilvægt að börn- unum þeirra líði vel í skólanum og að þeim finnist viðfangsefni sín skemmtileg. Slík kennsla skilar betri árangri því börnin eru lík- legri til að skilja og meðtaka það sem þau eru að læra. Þessir for- eldrar vilja ekki bara sjá fjöl- breytt vinnubrögð á leikskólum og á yngsta stigi grunnskólans heldur vilja þeir að þau séu viðhöfð í 1.– 10. bekk sem og framhaldsskól- unum. Í hópi foreldra er líka fólk sem hefur aðra sýn. Líklegast má telja að þessum einstaklingum hafi gengið vel að læra á bókina þegar þeir voru í skóla, fyrir utan að það er líklegast sú kennslufræði sem þeir kynntust í eigin námi. Þessir foreldrar telja að sú aðferð sem hentaði þeim vel henti einnig þeirra eigin börnum. Spyrja má hvort það sé ekki á ábyrgð kennslufræðinganna að fræða for- eldra um þær kennsluaðferðir sem þeir nota, af hverju þessar aðferð- ir eru valdar og hverju þær eigi að skila? Samstarf heimila og skóla bygg- ist að miklu leyti á gagnkvæmu upplýsingaflæði. Því upplýstari sem foreldrarnir eru um það sem gerist innan veggja skólans því líklegri eru þeir til að hafa skiln- ing á mikilvægi kennarastarfsins og þeim aðferðum sem kennarar nota. Sá skilningur skilar líka frekar ánægðari foreldrum sem tala vel um skóla- starfið heima og efla þannig sjálfstraust barna sinna gagnvart námi sem og líðan þeirra í skólanum. Foreldrar þekkja börnin sín best og það er á þeirra ábyrgð að miðla upplýsingum um börnin til kennara. Því betri upplýsingar sem kennari hefur um barn því meiri líkur eru á að hann geti komið til móts við þarfir þess. Gildi náins og jákvæðs samstarfs fyrir nem- endur, kennara og for- eldra er ótvírætt. Rannsóknir hafa margsinnis sýnt að samstarf heimila og skóla skilar sér í betri líðan nemenda, bætt- um námsárangri, upplýstari og já- kvæðari foreldrum, sem og betri skólum. Á nýlegri ráðstefnu um drengja- menningu sem Morgunblaðið hef- ur gert góð skil undanfarna daga kynnti Inga Dóra Sigfúsdóttir rannsókn sína á umhverfi og að- stæðum grunnskólanemenda. Í er- indi hennar kom meðal annars fram að fjölmargir þættir utan skólans hafa áhrif á námsárangur. Áhrif jafningjahópsins eru þannig töluverð og einnig hafa væntingar foreldra, eftirlit, stuðningur þeirra, sem og tengsl við aðra for- eldra og vini barnanna mikil áhrif. Hún lagði áherslu á að öflugt for- eldrasamstarf skilar betri náms- árangri nemenda. Valfrelsi foreldra Við vitum öll að börn eru eins ólík og þau eru mörg. Þarfir þeirra sem nemenda geta því verið mjög ólíkar. Ef einungis er horft til þessa hlýtur það að vera gott fyrir foreldra að hafa val um það í hvaða skóla barn þeirra stundar nám. Slíkt valfrelsi hvetur auk þess foreldra til þess að kynna sér það starf sem skólarnir bjóða upp á og getur ýtt undir að þeir fylgist vel með skólastarfinu og vilji öfl- ugt samstarf. Hingað til hefur ekki verið auðvelt fyrir foreldra að fá upplýsingar um stefnu og áherslur einstakra skóla, slíkar upplýsingar eru að minnsta kosti ekki aðgengilegar á einum stað þar sem þær er helst að finna á heimasíðum skólanna sjálfra. Kynning á skólastarfi líkt og var í Garðabæ nýlega í annað sinn og það valfrelsi sem foreldrar í Garðabæ hafa er nýjung í skóla- starfi sem ber að fagna. Sýn foreldra á skólastarf Elín Thorarensen fjallar um kennsluaðferðir Elín Thorarensen ’… börn erueins ólík og þau eru mörg. Þarfir þeirra sem nem- enda geta því verið mjög ólík- ar.‘ Höfundur er framkvæmdastjóri Heimilis og skóla. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinnVOR 2005 Sölustaðir: sjá www.bergis.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.