Morgunblaðið - 31.03.2005, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 31.03.2005, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 23 UMRÆÐAN Á að hreinsa út? Er eitthvað að á fréttastofu Út- varpsins? Ég veit ekki til þess. Þvert á móti. Þar vinnur góður og samstæður hópur. Starfsandinn er góður. Sumir hafa unnið þar lengi. Aðrir gert þar stuttan stans á frama- brautinni. Þeir þekkja fréttastofuna og hugsa flestir hlýlega til hennar. Fréttamenn líta ekki á sig sem heimaríka hunda. Þeir vilja veg fréttastof- unnar sem mestan. Það getur verið eðlilegt að fá stjórnanda utan úr bæ ef illa geng- ur, traust hefur rýrnað, afköst minnkað eða hneyksli skekið fyr- irtækið. Þá kann að vera skyn- samlegt að fá nýjan mann til þess að rétta skútuna við. En ef ekkert slíkt er að? Reksturinn rangtúlkaður Haft var eftir mér í blöðum á dögunum að ég hefði verið kallaður á stuttan fund vegna fjárhagsáætl- unar fréttastofu Útvarpsins fyrir árið 2005. Meira var það ekki. Út- varpsstjóri sagði í Kastljósþætti, sem fréttamenn fengu ekki að svara, að það væri léttúð að tala með þessum hætti. Er ekki fremur léttúð að bjóða upp á svona vinnu- brögð? Fyrrverandi fréttastjóri segist ekki heldur hafa komið ná- lægt fjárhagsáætlun ársins 2005. Útvarpsstjóri nefndi einnig halla á rekstri fréttastofunnar. Veit hann ekki að oftar en einu sinni hefur verið bent á skekkju í grunninum? Áætlun um launaliði er röng. Fréttasviðið, röng áhersla Útvarpsstjóri studdi stofnun fréttasviðs og árið 2002 var einn yf- irmaður settur yfir báðar frétta- stofur. Í vetur, fyrir áramót, kynnti forstöðumaðurinn tillögur sínar um breytingar á fréttasviðinu. Leggja átti niður stöður fréttastjóra. Skerða átti sjálfstæði fréttastof- anna í nafni hagræðingar og sparn- aðar. Á fjölmennum fundi frétta- manna Útvarpsins og Sjónvarpsins var þeim hafnað. Á fundi útvarps- ráðs skömmu síðar var þeim einnig hafnað. Þetta var fyrri að- förin að sjálfstæði fréttastofunnar í vet- ur. Hún mistókst og fréttasviðið er sem fyrr hvorki fugl né fiskur. Skynsamlegast væri að leggja það nið- ur. Skipa í staðinn góð- an rekstrarstjóra fyrir báðar fréttastofurnar, viðskiptafræðing eða talnaglöggan stjórn- unarfræðing sem héldi utan um fjárhagsáætl- anir, sinnti reikn- ingum og starfsmannahaldi. Rekst- urinn yrði gagnsærri og vitrænni, og þetta myndi létta mjög á frétta- stjórunum sem gætu einbeitt sér að hinu faglega starfi. Hætt yrði að sóa fé og það myndi skila sér í betri fréttaþjónustu Ráðningin Síðari aðförin er svo fréttastjór- aráðningin. Sannarlega er það sjón- armið að ráða ungan mann til starfa. Menn hafa bent á að ungt fólk hafi komist til æðstu metorða hjá stórfyrirtækjum, en geta þess ekki að viðkomandi hafði unnið sig upp í fyrirtækinu. Á fréttastofu Út- varpsins eru nýliðar ráðnir til skamms tíma. Ef þeir standa sig eru þeir ráðnir áfram. Við ráðningu fréttastjóra var menntun og reynsla höfð að engu, en settur á svið skrípaleikur. Öllum þeim sem helst þóttu koma til greina var hafnað, en ráðinn maður sem aldrei hefur unnið á fréttastofu Útvarps- ins og er með takmarkaða reynslu. Síðan er reynt að réttlæta gjörning- inn með því að vísa til rekstr- arreynslu, eins og það sé höfuð- atriði. Það er fjarstæða. Það þarf einmitt að losa fréttastjórana und- an rekstri. Eitt af mörgu Hin spurningin er svo, hvað er að á Ríkisútvarpinu? Það væri óneit- anlega kostur ef yfirmaður stofn- unarinnar nyti virðingar fyrir yf- irburði af einhverju tagi, t.d. fyrir að skara fram úr á menningarsvið- inu. Þegar svo er ekki þá hljóta aðr- ir kostir að vega þungt, svo sem að vera góður og styrkur stjórnandi. Hvað skyldi prýða góðan stjórn- anda? Menntun, lifandi áhugi á starfseminni, en umfram allt, færni í samskiptum við fólk. Dapurleg út- koma Ríkisútvarpsins í vinnustaða- könnunum VR sýnir að svo er ekki. Þær sýna lítið álit starfsfólks á æðstu stjórnendum. Samskipti þess og stjórnenda eru lítil, stirð og skila allt of litlu. Sumum er samráð ekki tamt og verða af góðum ráðum og frjóum hugmyndum. Miklar kröfur um menntun eru gerðar til millistjórnenda og stöð- ugt meiri til fréttamanna. Því vekur það nokkra undrun að æðsti stjórn- andi stofnunarinnar og sumir af þeim sem næstir honum standa hafa einna minnsta menntun allra í húsinu. Í þeim hópi gilda önnur lög- mál. Það kann að skýra lítinn skiln- ing á endurmenntun, sem er brýn nauðsyn fyrir fréttamenn í heimi sem verður stöðugt tæknilegri og flóknari. Menntun skilar sér jafnan, þótt hún ein og sér dugi ekki stjórn- anda. Hinn fullkomni stjórnandi er vafalaust ekki til, en þó er hægt að gera þá lágmarkskröfu að hann sé fær um eðlileg samskipti við starfs- fólkið. Hann þarf að geta haldið fram hlut stofnunarinnar af sann- færingu, með starfsmenn að baki. Þarf ekki sátt um Ríkisútvarpið, þarf ekki að endurskilgreina stöðu þess, þarf ekki að efla dagskrána? Hvað er að á fréttastofu útvarpsins? Hvað er að á ríkisútvarpinu? Friðrik Páll Jónsson fjallar um ráðningu fréttastjóra á útvarpinu ’Hinn fullkomni stjórn-andi er vafalaust ekki til, en þó er hægt að gera þá lágmarkskröfu að hann sé fær um eðlileg samskipti við starfsfólkið.‘ Friðrik Páll Jónsson Höfundur er starfandi fréttastjóri á fréttastofu Útvarpsins síðan í ágúst og einn umsækjenda. Með kveðju. Grétar, sími 696 1126. Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár EINBÝLI – STÓR- REYKJAVÍKURSVÆÐIÐ Mér hefur verið falið að leita eftir einbýlishúsi á stór-Reykjavíkursvæðinu fyrir ákveðinn kaupanda, lágmark fjögur svefnherbergi, bílskúr ekki nauð- syn. Verð allt að 35,0 millj. Um ríflegan afhendingartíma getur verið að ræða. Áhugasamir vinsamlegast hafi samband og ég mun fúslega veita nánari upplýsingar. www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli MÁLÞING um barnamenningu verður haldið í Menningarmiðstöð- inni Gerðubergi hinn 5. mars nk. Þar verða til umfjöllunar málefni barna í menningarlegu uppeldi á ýmsum stig- um og sviðum. Margir telja það nauðsynlegt að ala upp börnin með það fyrir augum að þekking á bókina sé aðalatriðið. En hvaða þekking skiptir máli? Þeirri spurningu eiga margir erfitt með að svara þar sem til eru margar hugmyndir um skil- greiningu á vits- munum. Hvað viljum við börnum okkar til handa þannig að þau verði heilbrigðar per- sónur, bæði á sál og líkama? Að hugsa af viti nær til fleiri þátta en tungumálsins því ekki verða aðskilin hugur og hönd. Oftast fá tilfinningar ekki sess sem vitsmunalegt ferli, hvernig sem á því stendur. Þroskandi er að fara í gegnum ferli list- sköpunar sem margir hafa áreið- anlega reynt t.d. í kórstarfi. Að njóta listar er að upplifa sjálfur til að kunna að meta hana. Listgreina- kennarar eiga að dýpka efnið til að nemendur geti notið þess sbr. ís- lenskukennari sem útskýrir ljóð og undirtón þeirra til þess að nemendur skilji þau betur. Hinn sjónræni heimur verður sífellt fyrirferð- armeiri í lífi okkar. Myndlistarkenn- arar leitast við að kynna samband lista og menningar. Engin önnur grein tekur á fag- urfræði og því þarf að skapa aðstæður í skóla- stofunni til að örva nemendur til frekari (myndræns) þroska. Það að skapa er ekki að apa eftir öðrum eða öðru, skapandi hugsun er grunnur að öllum framförum. Myndlistarkennsla hefur verið flokkuð með verkgreinum þótt hún sé frekar huglægs eðlis en þar sem ekki verða skilin í sundur hugur og hönd verður óhjá- kvæmilega fyrirferð- armikill þáttur námsins að túlka hugmyndir sín- ar með ýmsum efnum og áhöldum. Efnið verður miðill tjáning- arinnar og því er ár- íðandi að ná valdi á mis- munandi verklegri tækni. Á ofangreindu mál- þingi verður fjallað um barnamenningu í víðu samhengi, bæði í skóla- starfi og þvert á svið og geira. Megintilgang- urinn er að efla barnamenningu í landinu með því að koma fólki saman til að vinna að skapandi verkefnum með börnum þessa lands. Hvar er barnamenningin á Íslandi? Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir fjallar um barnamenningu Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir ’Hvaða þekkingskiptir máli? Þeirri spurn- ingu eiga marg- ir erfitt með að svara þar sem til eru margar hugmyndir um skilgreiningu á vitsmunum.‘ Höfundur er myndlistarkennari og verkefnisstjóri málþings um barnamenningu. ÞAÐ er gömul saga og ný að sam- göngur eru lífæð hvers samfélags. Greiðar samgöngur auka aðgengi og eftirspurn neytenda eftir vöru og þjónustu og opna framleiðendum nýja markaði. Sam- göngur eru því grund- völlur hagvaxtar og framþróunar. Það þarf því engan að undra að samgöngubætur eru á forgangslista allra stjórnmálaflokka. Eðlilegt er að skiptar skoðanir séu um for- gangsröðun fram- kvæmda, sérstaklega þegar um dýrar fram- kvæmdir eins og jarð- göng er að ræða. Eftir að samgönguráðherra staðfesti að fram- kvæmdir við Héðinsfjarðargöng myndu hefjast um mitt næsta ár hafa heyrst gagnrýnisraddir um að fram- kvæmdin sé óarðbær. Útreikningar þeirra sem fremstir fara í flokki gagnrýnenda byggjast á því að deila íbúafjölda á Siglufirði í áætlaðan framkvæmdakostnað og telja það sanna mál sitt. Útreikningur af þessu tagi er marklaus og segir ekkert um arðsemi Héðinsfjarð- arganga eða hvort framkvæmdin sé skynsamleg. Mælikvarði á svona framkvæmdir hefur þegar verið settur, sem er þjóðhagsleg arðsemi. Samkvæmt útreikn- ingum Vegagerð- arinnar á þjóðhagslegri arðsemi, sem fram koma í skýrslu um mat á umhverfisáhrifum, þá er arðsemi ganga á milli Siglufjarðar og Ólafs- fjarðar 14,5%. Til sam- anburðar má nefna að í sambærilegri skýrslu fyrir Fáskrúðsfjarð- argöng er arðsemin metin 4,3% miðað við að farið sé í stóriðjuframkvæmdir fyrir austan. Arðsemi Héðinsfjarðarganga er sambærileg þeirri sem vænta má af Sundabraut. Í útreikningum fyrir Héðinsfjarðargöng er gert ráð fyrir minni umferð en nú er um Ólafsfjarð- argöng og ekki tekið tillit til annars sparnaðar sem af framkvæmdinni hlýst, svo sem í opinberum rekstri og hagræðingarmöguleikum hjá ríki, sveitarfélögum og fyrirtækjum, íbú- um svæðisins og landsmönnum öllum til hagsbóta. Stækkun atvinnusvæðis er mikið hagsmunamál fyrir allan at- vinnurekstur á svæðinu og skapar aukið atvinnuöryggi fyrir íbúana. Göngin opna hringtengingu á Trölla- skaga sem gefur sóknarfæri í ferða- þjónustu á öllu svæðinu frá Skaga- firði til Eyjafjarðar. Ef lesendur vilja afla sér frekari upplýsinga um Héðinsfjarðargöng má benda á ágæta heimasíðu Vega- gerðarinnar. Héðinsfjarðargöng eru arðsöm Ólafur Helgi Marteinsson fjallar um Héðinsfjarðargöng ’Arðsemi Héðinsfjarð-arganga er sambærileg þeirri sem vænta má af Sundabraut.‘ Höfundur er framkvæmdastjóri. Ólafur Helgi Marteinsson Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.