Morgunblaðið - 31.03.2005, Síða 25

Morgunblaðið - 31.03.2005, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 25 UMRÆÐAN FYRIR tæpum 27 árum gáfu þeir sem vildu umfram allt vernda og friða gömul hús í Reykjavík út rit sem bar nafnið Vina- minni, Blað um um- hverfisverndun, 1. tbl. 1.árg. – maí 1978. Rit- nefnd þessa blaðs skip- uðu þau Helgi Þorláks- son, Hjörleifur Stefánsson og Ingi- björg Sólrún Gísladótt- ir. Þessu blaði var dreift ókeypis í 12.000 eintökum í Reykjavík og í það skrifuðu marg- ir mætir menn sem töldu að það yrði mið- borg Reykjavíkur og gömlum hverfum í höfuðborginni helst til framdráttar að þar yrði mik- il áhersla lögð á verndun og nýting sem minnst aukin frá því sem þá var. Ekki hafa mér vitanlega verið gefin út fleiri hefti af þessu ágæta blaði, en í dag er vel þess virði að líta yfir þetta rit með hliðsjón af nýlegum til- lögum um endurbyggingu milli Laugavegar og Grettisgögu. Nokkru áður en ofangreint rit var gefið út höfðum ég og samstarfs- menn mínir unnið tillögur að skipu- lagi þessa svæðis undir vinnuheitinu „endurnýjun eldri hverfa“ þar sem við bentum m.a. á að líklegt væri að fyr- irtæki í miðbæ Reykja- víkur og við Laugaveg myndu lenda í harðri samkeppni við ný verslunarhverfi á höf- uðborgarsvæðinu á komandi árum og að við þessu væri æskilegt að bregðast bæði með því að vernda hús á ákveðnum svæðum, endurnýja núverandi hús á öðrum svæðum, byggja samkeppn- ishæfar byggingar, en binda miklar framkvæmdir við ákveðin svæði, að- allega í útkanti þess við Skúlagötu og á hafnarsvæðinu. Jafnframt bent- um við á leiðir til þess að ná þessum markmiðum og lögðum m.a. til að komið væri á laggirnar svokölluðum „endurnýjunarsjóði“ og að byggt væri upp að steyptum brunagöflum í þessum hverfum sem víða eru ennþá til mikilla lýta, m.a. við Ingólfstorg. Að frysta borgina í þáverandi mynd legði einungis dauða hönd á eðlileg- ar breytingar og endurnýjun þótt æskilegt væri að fara með gát í þeim efnum sem öðrum. Eftir allar skipulagsrannsóknir og tillögugerð innlendra sem erlendra sérfræðinga undanfarna áratugi á þessu svæði er það meira en lítið skrýtið að skipulagsyfirvöld í Reykjavík séu að komast að svipaðri niðurstöðu og við lögðum til fyrir tæpum 30 árum. Aldrei vorum við þó það stórtæk að okkur dytti í hug að búa til nærri því samfellda bygging- arlóð milli Hverfisgötu og Grett- isgötu, frá Lækjargötu að Snorra- braut. Evrópusamband skipulagsfræðinga hefur líka marg- varað við jafn stórfelldri endurnýjun í gömlum hverfum og þarna er verið að gefa undir fótinn með. Þetta er sérstaklega varhugavert ef viðkom- andi skipulagsfræðingar sýna ekki jafnframt fram á hverjar afleiðing- arnar verða t.d. á fólk, umhverfi, fyr- irtæki og umferð. Ég ber mikla virðingu fyrir þeim aðilum sem hafa verið að reyna að reka fyrirtæki í gömlum hverfum Reykjavíkur undanfarna áratugi. Þeir geta þó ekki axlað faglega ábyrgð á skipulagi þessara hverfa enda eru nútíma skipulagsvísindi talsvert flókið mál ef vel á að vera. Stjórnmálamenn geta heldur ekki borið faglega ábyrgð á því að eitt- hvert vit sé í skipulaginu þótt hægt sé að kalla sveitarstjórnir til ábyrgð- ar á fjögurra ára fresti. Skipulags- fræðingar geta hins vegar tekið fag- lega ábyrgð á skipulagi, en það vekur athygli að í auglýsingabækl- ingi um „uppbyggingu og verndun við Laugaveg“ er ekkert reynt að meta afleiðingarnar af þessari stefnu og enginn slíkur sem þar tek- ur faglega ábyrgð á skipulaginu. Íbúar Reykjavíkur eiga auðvitað heimtingu á að fá að vita milliliða- laust hver sé fagleg skoðun skipu- lagsfræðinga borgarinnar, sem eru á launum hjá okkur íbúunum, á jafn mikilvægum skiplagstillögum og hver þeirra taki á þeim faglega ábyrgð. Annars verða alltaf ein- hverjir til að leiða líkur að því að skipulag sé lítið annað en „díll“ milli stjórnmálamanna og peningaaflanna á viðkomandi stað. Sjálfur bý ég í gömlu húsi sem stendur í götustæði sem einn af er- lendum „sérfræðingum“ borg- arinnar lagði eitt sinn til. Löngu áð- ur en opinberum aðilum datt í hug að vernda þetta hús fyrir mér ákvað ég sjálfur að færa það sem mest í upprunalegt horf, en byggja við það svo öll þau tæki sem fylgja nútíman- um kæmust þar þokkalega fyrir. Með þessu móti var líf hússins lengt um hundrað ár eða meira og hugs- anlega má á svipaðan hátt endurnýja mörg þeirra húsa sem nú hefur verið gefin heimild til að rífa á ofan- greindu svæði. Hver er fagleg skoðun skipulags- fræðinga Reykjavíkurborgar? Gestur Ólafsson fjallar um skipulagsmál ’Íbúar Reykjavíkureiga auðvitað heimtingu á að fá að vita milliliða- laust hver sé fagleg skoðun skipulagsfræð- inga borgarinnar…‘ Gestur Ólafsson Höfundur er arkitekt og skipulagsfræðingur. Lið-a-mót FRÁ Extra sterkt H á g æ ð a fra m le ið sla Nr. 1 í Ameríku -fyrir útlitið Góð heilsa - Gulli betri SAMANTEKT bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í Kópavogi á fasteignagjöldum og öðrum gjaldskrám sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu hef- ur vakið athygli. Þær upplýsingar sem koma þar fram eru gagn- legar og nauðsynlegar bæði fyrir sveit- arstjórnarmenn og al- menning. Þó svo að samantekt okkar sé engan veginn tæmandi gefur hún mjög skýrar vísbendingar og er góður grunnur þegar taka á ákvarðanir um gjaldskrár. Þar kemur fram að leikskólagjöldin eru hæst í Kópavogi, þar er dýrast í sund, Kópavogsbúar borga lang- mest fyrir kalda vatnið og tekjulág- ir aldraðir Kópavogsbúar greiða hæstu fasteignagjöldin. Fimm manna fjölskylda borgar meira fyrir þjónustu sem hún notar í Kópavogi en byggi hún í öðrum sveit- arfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Gunnar I. Birgisson, bæj- arfulltrúi í Kópavogi, bregst hér í Morgunblaðinu við grein minni um þetta efni sem birtist hér fyrir rösk- um mánuði. Honum þykir miður að ég skuli dreifa upplýsingum sem virðist ætlað að skaða bæjarfélagið. Við Gunnar sitjum í bæj- arstjórn Kópavogs sem fulltrúar íbúa bæjarins. Það eru þeirra hags- munir sem við eigum að hafa að leiðarljósi í störfum okkar. Upplýs- ingar og samantekt okkar samfylking- armanna á að nota í efnislegri umræðu um gjöld og álögur á bæj- arbúa. Það skaðar ekki bæjarfélagið að ræða þessi mál, þeir sem valda bæj- arfélaginu skaða eru sjálfstæðis- og framsóknarmenn sem standa fyrir þessum hækkunum. Bæjarstjórnin og Tónlistarskólinn Gunnar bendir réttilega á að skólagjöld Tónlistarskóla Kópavogs séu ákvörðuð af stjórn Tónlistar- félagsins sem á skólann. Engu að síður hefur bæjarstjórnin afar mikil áhrif á rekstrargrundvöll skólans þar sem það er hennar að ákveða fjölda stöðugilda kennara við skól- ann og þar með hversu marga nem- endur hann getur tekið inn. Skólinn getur tekið við fleiri nemendum m.a. með því að efla þá hljóðfæra- kennslu sem hann er með nokkrum af grunnskólum bæjarins. Til þess þarf skólinn heimild frá bæjarstjórn um fjölgun stöðugilda. Fáist það nær skólinn meiri hagræðingu í rekstri sem minnkar vægi skóla- gjalda í rekstrinum. Af hverju sleppir Gunnar Seltjarnarnesi? Gunnar fullyrðir að fast- eignagjöld séu næstlægst í Kópa- vogi og styðst þar við töflu sem birt- ist í blaði sjálfstæðismanna í Kópavogi. Gunnar sleppir reyndar Seltjarnarnesi í samanburði sínum. Sé miðað við sveitarfélögin á höf- uðborgarsvæðinu eru fast- eignagjöldin alltaf lægri í Reykjavík og á Seltjarnarnesi og oft í Garða- bæ líka. Garðabær fer þó upp fyrir Kópavog ef lóðin í kringum húsið er mjög stór. Gunnar leggur mikla áherslu á að Kópavogur sé eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæð- inu sem býður upp á 5% stað- greiðsluafslátt borgi menn fast- eignagjöldin öll í einu lagi fyrir 12. febrúar. Það er vissulega góðra gjalda vert en fáir geta nýtt sér af- sláttinn enda lítið í buddunni hjá flestum svo skömmu eftir jólin. Þetta er því ekki raunhæfur val- kostur fyrir allan þorra bæjarbúa. Röng ákvörðun hækkaði vatnsverð Gunnari verður nokkuð tíðrætt um hið háa vatnsgjald í Kópavogi. Hann talar um okursamninga við Orkuveituna en minnist ekki á að vatnsgjaldið sem við erum að borga er afleiðing rangrar ákvörðunar í bæjarráði Kópavogs undir hans for- ystu um miðjan síðasta áratug þeg- ar menn vildu ekki ganga til samn- inga við Orkuveituna um vatnsverðið, heldur settu málið í gerðardóm. Þessi ákvörðun veldur því að Kópavogsbúar eru að borga miklu meira fyrir vatnið en íbúar annarra sveitarfélaga sem fá vatn sitt frá Orkuveitunni. Þetta á auð- vitað að vera búið að leiðrétta fyrir löngu. Meðan það er ekki gert borga Kópavogsbúar mest allra fyr- ir kalda vatnið. Á því bera Gunnar og meirihlutinn ábyrgð. Bæjarstjórnin skoði málið Það þarf að fara varlega í rekstri sveitarfélags eins og Kópavogs og gæta að jöfnuði milli íbúanna. Við bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi höfum sýnt fram á að barnafjölskyldur og tekjulágir elli- lífeyrisþegar greiða hærri fast- eignagjöld og gjöld fyrir þjónustu sem þeir þurfa að fá í Kópavogi en þeir gera í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta eru staðreyndir sem blasa við og ekki hafa verið hraktar Þessar stað- reyndir eiga auðvitað að vera öllum bæjarstjórnarmönnum í Kópavogi tilefni til að kafa vandlega ofan í málin og endurskoða allar gjald- skrár. Kópavogur á ekki að vera dýrasta sveitarfélagið á höfuðborg- arsvæðinu. Fasteignagjöld og álögur á Kópavogsbúa Hafsteinn Karlsson svarar Gunnari I. Birgissyni ’Það þarf að fara var-lega í rekstri sveitarfé- lags eins og Kópavogs og gæta að jöfnuði milli íbúanna.‘ Hafsteinn Karlsson Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi. ÁNÆGJULEGT er hversu vel hefur gengið að sam- eina jafnaðarmenn í einn flokk. Þetta hefði ekki tekist nema vegna þess að góðir menn lögðust margir á árar undir góðri leiðsögn. Undir forystu Össurar Skarphéðinssonar hef- ur tekist að yfirvinna gamlar deilur og flokkadrætti þannig að íslenskir jafnaðarmenn eru nú allir á sömu skútunni, innanborðs í Samfylkingunni. Þetta hefur yljað okkur gömlum jafn- aðarmönnum og við viljum áfram sigla þöndum seglum. Við réðum í upphafi ferðar til þess skipstjóra, Össur Skarphéðinsson, sem síðan hefur staðið í brúnni og stýrt skút- unni í gegnum brim og boða. Hann hefur reynst farsæll formaður, svo fylgi jafnaðarmanna á Íslandi er nú meira en nokkru sinni í sögunni. Nú hafa þau tíðindi borist yfir fjöll og sand að margir vilji kjósa annan formann. Þetta minnir á þá óein- ingu sem var í gömlu flokkunum, flokka- drættina sem ég hélt að við hefðum sagt skilið við með stofnun Sam- fylkingarinnar. Því hlýt ég að harma að hinn nýi og stóri flokkur jafnaðarmanna skuli ætla að taka þennan gamla arf frá litlu flokkunum, arfleifð flokkadrátta, sundr- ungardrauginn sem ég hélt að við ætluðum að skilja eftir á 20. öldinni. Að mínu mati hefur Össur staðið sig vel sem formaður, og því lítt skiljanlegt hvers vegna efnt skuli til framboðs gegn honum. Sú var tíð að menn lögðu mælikvarða á hvenær ætti að skipta um karlinn í brúnni. Ef illa fiskaðist misserum saman þótti réttlætanlegt að karlinn í brúnni tæki pokann sinn. Því er nú aldeilis ekki að heilsa, það fiskast vel og Samfylkingin er á góðum skriði. Jafnaðarmanna á Íslandi bíða mörg verkefni. Ég treysti Össuri til að leiða Samfylkinguna áfram til góðra verka. Karlinn í brúnni – fiskar vel Karvel Pálmason fjallar um Samfylkinguna ’Við réðum í upphafiferðar til þess skip- stjóra, Össur Skarphéð- insson, sem síðan hefur staðið í brúnni og stýrt skútunni í gegnum brim og boða. ‘ Karvel Pálmason Höfundur er fyrrv. alþingismaður jafnaðarmanna. smáauglýsingar mbl.is Úrslitin úr ítalska boltanum beint í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.