Morgunblaðið - 31.03.2005, Page 28

Morgunblaðið - 31.03.2005, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Þ að féllu mörg gullkorn í beinni útsendingu fréttastofu Stöðvar 2 frá komu Bobbys Fischers til Íslands í síðustu viku. „Þetta var glæsileg lending hjá flugmanninum,“ sagði Ingólfur Bjarni. „Geturðu veifað okkur Páll [út um glugga flugvél- arinnar]. Við sjáum vel inn um gluggann,“ sagði Kristján Már Unnarsson. Guðmundur Steingrímsson, pistlahöfundur Fréttablaðsins, tal- aði um að hann hefði fengið „bjána- hroll“ við að horfa á þessa útsend- ingu. Hann var ekki einn um það. „Og hann er væntanlega á leið- inni í rúmið núna,“ sagði Ingólfur Bjarni. Fékk Fischer þó til sín aftur nokkru síðar, þá höfðu stöðvarmenn ekið um með hann stundarkorn til að hrista af sér aðra fréttamenn. Var Bobby Fischer raunverulega frjáls maður meðan á þessum bíltúr stóð? Vissi hann hvað til stóð, þ.e. að það átti að aka honum aftur út á flugvöll þar sem fréttamaður Stöðv- ar 2 beið? Ef hann vissi það ekki, ef hann áttaði sig ekki á því að það var alls ekkert verið að aka honum heim á hótel; má þá ekki halda því fram að völdin hafi verið tekin af honum? Ef Fischer vissi ekki hvað til stóð var hann þá ekkert undrandi yfir því að vera kominn aftur á sama stað, þ.e. út á Reykjavíkurflugvöll, þrátt fyrir að hafa verið inni í bíl í dágóða stund? Maður skyldi ætla það. Ég fullyrði ekkert um svör við þessum spurningum en þær leita á mig. Mér þætti alvarlegt ef Bobby Fischer hefði verið leystur úr prís- und í Japan til þess eins að vera gerður að sirkusdýri íslenskrar sjónvarpsstöðvar. Í vinstra horni sjónvarpsskjásins í útsendingu Stöðvar 2 stóð „Fisc- her kemur heim“. Þetta var yf- irskrift hinnar beinu útsendingar. „Welcome home, Bobby,“ stóð líka á spjöldum sumra þeirra sem voru komnir út á flugvöll til að fagna skáksnillingnum fyrrverandi. En var Bobby Fischer að koma heim? Hefur hann einhvern tímann átt heima á Íslandi? Hefur hann yf- irhöfuð í hyggju að eiga heima á Ís- landi? Auðvitað tengist íslenskur ríkisborgararéttur mannsins ekkert heimili hans – nema ríkisborg- ararétturinn hafi verið skilyrtur því að hann byggi á Íslandi. Svo var auðvitað ekki. Það berast fréttir af því að Bandaríkjamenn muni hugsanlega kefjast framsals Fischers af íslensk- um stjórnvöldum. Fram kom raun- ar í Morgunblaðinu í gær að Davíð Oddsson utanríkisráðherra hefði sagt að Íslandi bæri ekki skylda til að verða við framsalskröfu nema brotið sem krafan beindist að væri jafnframt brot gegn íslenskum lög- um. En hvað ef Bandaríkjamenn ákæra Fischer fyrir brot á skatta- lögum eða lögum um pen- ingaþvætti, eins og kom fram að væri til skoðunar vestra; hvað gerist þá? Spyr sá sem ekki veit. Er kannski hugsanlegt að Fisch- er muni þurfa að setjast að í ein- hverju landi, sem hefur alls engan framsalssamning við Bandaríkin? Flest Evrópuríki hafa að vísu slíkan framsalssamning við Banda- ríkin, það á þó ekki við um Rússland og Úkraínu, svo dæmi séu tekin. Þessar vangaveltur eru kannski út í hött, um þetta veit ég ekkert og kemur í sjálfu sér ekki við. Bobby Fischer er opinber persóna, hann á samt rétt á einhverju einkalífi eins og aðrir. Það er hans mál að ákveða hvar hann á heima, ekki okkar Ís- lendinga. Jafnvel þó að Bobby Fischer til- heyri nú hinni íslensku þjóð skv. laganna hljóðan. Það má annars segja að timb- urmenn þeirrar ákvörðunar Alþing- is, að veita Bobby Fischer rík- isborgararétt, séu hafnir. Ákvörðunin fordæmd í leiðara The Washington Post, hvorki meira né minna. Erlendir fjölmiðlar leitast svo við að útskýra hvers vegna Ís- lendingar leggi slíka lykkju á leið sína til að hjálpa þessum manni. Skilja ekki neitt í neinu, víðast hvar annars staðar hafi Fischer komið sér út úr húsi. Þvílík upphefð fyrir litla Ísland. Öll upphefð kemur að utan, eða svo segir sagan. Mig grunar að okkur líði bara vel yfir allri þessari athygli, okkur þyk- ir bara gaman að geta storkað stór- veldinu. Bobby Fischer kom okkur á kortið 1972 og nú hefur hann gert það aftur. Persónulega er ég samt ekki á þeirri skoðun að þetta sé eitt- hvert sérstakt fagnaðarefni. Menn segja að íslensk stjórnvöld og Alþingi hafi ákveðið að hjálpa Bobby Fischer af mannúðarsjón- armiðum. Vissulega var undarlegt að hon- um skyldi haldið í fangelsi í Japan í marga mánuði án ákæru. Það var í sjálfu sér gott að geta bjargað hon- um þaðan. Ég hef hins vegar skömm á þeim sjónarmiðum sem hann hefur látið í ljós og vona að það eigi við um flesta Íslendinga. Á Íslandi gildir skoðanafrelsi. Skoðanafrelsi þýðir samt ekki að mönnum sé frjálst að segja hvað sem er. Frelsi fylgir ábyrgð. Það gengur sannarlega ekki að segja, líkt og Guðrún Ögmunds- dóttir, þingmaður Samfylking- arinnar, gerir í viðtali við Frétta- blaðið sl. þriðjudag að sjálfur sé Bobby Fischer gyðingur og að þess vegna gildi það einu „hvaða skoð- anir hann hefur á eigin kynþætti“. Kynþáttafordómar eru kynþátta- fordómar, svo einfalt er það. Bobby Fischer getur ekki sagt hvað sem hann vill um gyðinga bara út af því að hann er sjálfur gyðingur (muna ber í þessu sambandi að Fischer neitar sjálfur að kannast við að vera gyðingur). Það kemur ekki til greina að menn horfi í gegnum fing- ur sér með það, að hann viðhafi ærumeiðandi ummæli, gerist sekur um kynþáttafordóma, bara af því að hann er Bobby Fischer og af því að hann tefldi nokkrar skákir við Borís Spasskí hér á Íslandi fyrir þrjátíu árum eða svo. Upphefð Íslendinga Það má annars segja að timburmenn þeirrar ákvörðunar Alþingis, að veita Bobby Fischer ríkisborgararétt, séu hafnir. Ákvörðunin fordæmd í leiðara The Wash- ington Post, hvorki meira né minna. david@mbl.is VIÐHORF Davíð Logi Sigurðsson ÍSLANDSVINURINN hefur rétt fyrir sér í þessu efni eins og svo mörgum öðrum. Hins- vegar ber að skoða það að skömmtunin er samskonar hvort sem hún er mæld í klukku- stundum eða kílóum. Öll stjórnun sem lýtur að skerðingu er skömmtun, e.t.v. væri nær að tala um hafta- stefnu. Þegar út í það er farið er öll stjórnun argasti sósíalismi horft frá sjónarhóli yfirlýs- ingaglaðs stjórnleys- ingja. Nafnið skiptir ekki höfuðmáli þegar eðlið er eitt og hið sama. Hvort sem um er að ræða aflamark eða sókn- armark, þá er hámark til staðar sem ekki er skynsamlegt að virða að vett- ugi. Það má vera ljóst að rígur og tog- streita hverfa ekki eins og dögg fyrir sólu við nafnbreytingu, á fisk- veiðistjórnuninni einni. Þó að hlutföll eða hlutverk breytist verður úlfúð ekki eytt. Nýir menn í nýrri aðstöðu kunna að segja nýja hluti en tor- tryggni verður sennilega enn til stað- ar. Þeir eru margir sem fundið hafa aflamarkskerfi margt til foráttu. Of oft er gagnrýni á vinnubrögð og fiski- fræði Hafrannsóknastofnunar, hér eftir Hafró, blandað saman við gagn- rýni á fiskveiðistjórnarkerfið. Fisk- veiðistjórnarkerfið er ekki hugarsmíð fiskifræðinga á Hafró. Tillaga um kvótaskiptingu við þorskveiðar kom fyrst fram á Fiskiþingi 1978. Fyrir liggur og auðsýnt er að frumvarp um aflamarkskerfi var ekki samþykkt á Alþingi fyrr en að lokinni umræðu á Fiskiþingi. Ári síðar kom fram ósk frá hagsmunaaðilum um framleng- ingu kerfisins. Komist fróðir menn, hvort sem þeir vinna hjá Hafró eða á eigin veg- um, að því hve stórir fiskistofnarnir eru, má gera ráð fyrir að þeir hinir sömu telji að veiða megi eitthvert ákveðið hlut- fall hvers stofns fyrir sig án þess að ganga of nærri stofninum. Þá er einfaldara að gefa ráð- leggingu sem miðar við massa fremur en tíma. Vilji menn stjórna fisk- veiðum, takmarka að- ganginn, er hentugra að nota eina og sömu að- ferð við að stýra veiðum í sama stofn sem og stofna sem svamla um á sama tíma um sömu svæði. Líkt og með fjöl- breytt fyrirkomulag skattlagningar virkar fjölbreytt form fiskveiðistjórn- unar illa. Líkur á undanskotum og lögbrotum aukast með auknum fjölda undanþága. Það kynni ekki góðri lukka að stýra þorskveiðum út frá lönduðum lífmassa en ýsu miðað við tíma lengd sem skip væru að veiðum. Ef menn eru yfirhöfuð ásáttir um það að útlitið fyrir sjávarútveginn hafi ekki verið bjart þegar auðsýnt þótti að flotinn var stærri en nokkru sinni áður og sóknargetan meiri, á svig við fyrirheit um útfærslu land- helginnar til verndunar fiskistofn- anna hafi sókn aukist, Hafrann- sóknastofnun gaf út svarta og kolsvarta skýrslu um ástand fiski- stofnanna, Íslenskur sjávarútvegur hafði brennt sig á ofveiði síldar, sam- fara kólnun sjávar. Þá hljóta menn að sjá að eitthvað þurfti að gera fyrr en síðar. Þá reyndu menn að komast að sam- komulagi, það var ekki hlaupið að því, en meiri hluti þingmanna studdi upp- hafleg áform um aflamarkskerfi þá sagði þáverandi sjávarútvegs- ráðherra markmiðið vera að „kapp- hlaupið yrði sem minnst um að ná afl- anum, kostnaðurinn sem minnstur og áhuginn fyrir því að gera sem mest verðmæti úr þessum afla verði sem mestur“. Þannig hófst 20 ára törn hvar reynt var að breyta og bæta fiskveiðistjórnkerfið, að því ferli hafa margir komið og sennilega hafa enn fleiri einhverja skoðun á því. Lífið í hafinu er líkt og á landi marg- breytilegt og illmögulegt að segja með fullri vissu hvað komi til með að gerast á morgun. Við þurfum eftir sem áður að búa sem best í haginn fyrir morgundaginn, það gerum við ekki með ásökunum um landráð eða algjöru afskiptaleysi gagnvart þeim sem eru á öndverðum meiði heldur með samstarfi. Sínum augum lítur hver á silfrið, ef menn stunda skot- grafahernað þá er hætt við að stríð- andi aðilar fjarlægist sannleikann fremur en að nálgast hann, á því þurf- um við ekki að halda. Kílógramm eða klukkustund Arnljótur Bjarki Bergsson fjallar um stjórnun fiskveiða ’Lífið í hafinu er líkt ogá landi margbreytilegt og illmögulegt að segja með fullri vissu hvað komi til með að gerast á morgun.‘ Arnljótur Bjarki Bergsson Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og formaður Hins íslenzka sjáv- arútvegsfræðafélags. „Kvótaskipan er skammtan, skammtan er sósíalism og sósíalism er tað svarta búskaparliga.“ Óli Breckman, þá þingflokksformaður Fólkaflokksins, maí 2001. Ellegar í lauslegri yfirfærslu: Kvótakerfi er skömmtun, skömmtun er sósíalismi og sósíalismi er svart- hol hagfræðinnar. FÓLK sem ég hitti segir stundum við mig „ég er alltaf á leiðinni að fara að hreyfa mig … en það er bara eitt ...“ og svo kemur afsökun fyrir því af hverju viðkomandi er ekki nú þegar byrjaður að hreyfa sig reglulega. En hverjar eru helstu afsak- anirnar fyrir því að æfa ekki reglulega og að hægt sé að taka þessar afsakanir gildar? Hér á eftir fara vin- sælustu afsakanirnar fyrir því að æfa ekki reglulega. Þetta eru lé- legar afsakanir og greinarhöfundur tekur undir orð Covert Bai- ley sem er mikill sér- fræðingur á sviði heilsuræktar í Bandaríkjunum. Hann segir „Það er ekki til nein gild afsökun fyrir því að æfa ekki reglu- lega!“ 1. Ég er slæm/ur í baki: Lykillinn að sterku baki eru nokkrir djúplægir kviðvöðvar sem liggja eins og korselett um miðjuna á okkur. Þess- ir vöðvar eru undirstaða styrks í baki og vernda gegn bakmeiðslum. Ef þú ert með veikt bak ættirðu að vinna að því að styrkja þessa vöðva. Ef þú þjáist vegna meiðsla er ekki endilega nauðsynlegt að hætta öllum æfingum heldur kann að vera að nauðsynlegt sé fyrir þig að breyta um áherslur í æfingunum í samræmi við ráðleggingar læknis. 2. Ég er of þreytt/ur: Svo fram- arlega sem þú ert ekki verulega van- svefta eða nýkomin(n) úr fjarlægu tímabelti er engin ástæða til að sleppa æfingu þegar þú finnur fyrir þreytu. Þjálfun mun einmitt hressa þig við. Rösk ganga í 10 mínútur get- ur gefið þér allt að tvær klukku- stundir af aukinni orku. Ef þú átt kost á er gott að æfa á morgnana því þá er orkan mest hjá mörgum eftir góða næturhvíld. Gættu líka að því að þú borðir nóg. Láttu ekki líða marga tíma á milli máltíða og fáðu þér kolvetnaríka fæðu klukkustund fyrir æf- ingu, t.d. banana. Drekktu einnig nóg af vatni, það getur hresst þig við 3. Ég hef ekki tíma: Margir æfa ekki því þeir telja sig ekki hafa tíma í annríki dagsins. En góð æfing fram- kallar aukna orku og framkvæmdagleði. Þú finnur fyrir minni streitu, ert skýrari í kollinum og færð skýr- ari sýn á hlutina. Þú einfaldlega kemur meiru í verk ef þú æfir. For- gangsraðaðu því betur, finndu tíma til að hreyfa þig og þú afkastar meiru. 4. Ég hef ekki efni á því að æfa: Hreyfing þarf ekki að kosta krónu. Farðu út að ganga, skokka eða hjóla. Hitt er annað mál að æfingar í lík- amsræktarstöð setja ákveðinn aga á viðkomandi og þar er mests árang- urs að vænta. Kaup á langtímakorti í líkamsræktarstöð eru bestu kaupin og geta auk þess verið tímarammi utan um sett langtímamarkmið. Þú getur einnig fjárfest fyrir lítinn pen- ing í æfingamyndbandi og gert æf- ingar heima í stofu. Finndu fastan tíma, 30–60 mín. 5x í viku, og láttu ekkert hafa áhrif á að þú svíkist und- an! Þegar viðkomandi segjast ekki hafa efni á því að fara í líkamsrækt- arstöð mættu viðkomandi einnig velta fyrir sér forgangsröð varðandi eyðslu. 5. Ég fæ alltaf eymsli og lík- amlega vanlíðan eftir æfingar: Þá er ástæðan sú að þú byrjar of geyst. Þú átt ekki að þurfa að ofreyna þig til að ná árangri. Þegar þú stundar þolþjálfun er þumalputtareglan sú að þú getir haldið uppi samræðum við aðra á meðan. Þú átt ekki að vera móð(ur) og másandi við æfingarnar. Í styrktarþjálfun er nauðsynlegt að þú takir á – öðruvísi nærðu ekki ár- angri. Notaðu þyngstu lóð sem þú getur lyft 12–16 sinnum. Það er góð- ur mælikvarði á þyngd til að nota. Þú átt að finna til smávægilegs bruna eða hita í vöðvum en alls ekki stingandi sársauka. 6. Ég sá engan árangur og hætti: Þjálfun er lífsstíll. Þú breytir ekki lífi þínu á einum degi. Byrjaðu með lítil markmið. Fljótlega ferðu að finna þá auknu vellíðan sem fylgir því að æfa reglulega. Eftir 2–3 mán- uði ferðu svo að sjá verulegar breyt- ingar á líkama þínum. Þú verður að gefa þér tíma til að sjá árangurinn. En líttu á útlitsbreytingar sem bón- us. Besti ávinningurinn fyrir þig er bætt heilsa og betri líðan. Já, það er ljóst að afsakanirnar fyrir því að æfa ekki reglulega halda illa eða alls ekki. Það er ekki ástæða til annars en að drífa sig af stað og byrja að stunda reglubundna þjálfun í dag! Topp 6 afsakanir fyrir að æfa ekki Ágústa Johnson fjallar um gildi líkamsþjálfunar ’Það er ekki til nein gildafsökun fyrir því að æfa ekki reglulega!‘ Ágústa Johnson Höfundur er framkvæmdastjóri Hreyfingar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.