Morgunblaðið - 31.03.2005, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 31.03.2005, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞEGAR skákheimurinn varð vitni að því, að upp væri að vaxa í Banda- ríkjunum drengur sem líklegur var til stórræða á þessum sviðum, byrj- uðum við að bíða þess að hann yrði fær um að taka til við að vinna stór- veldið USSR sem lengi hafði haldið á og einokað heimsmeistaratitilinn. Þetta var á árabilinu 1950 til 60 og drengurinn Róbert Fischer varð skákmeistari Bandaríkjanna aðeins fjórtán ára gamall og síðan höfum við sem dáðum hann strax sem lít- inn dreng og undrabarn, fengið að fylgjast með ferli hans, meðal ann- ars sjá hann vinna snillinginn Spasskí árið 1972 í Reykjavík. Og síðan er langt um liðið og að- eins örsjaldan hafa heimsbyggðinni borist fréttir um líf hans og starf og oftast í heldur svona neikvæðum tón. Víst er þó um það að hann virðist hafa lent í einhverjum útistöðum við stjórnvöld heima fyrir, sem með öðru leiddu til þess að hann sleit öll bönd við sína landa og hefur verið í einhvers konar útlegð á annan tug ára og fátt af honum frést fyrr en hann tók áskorun um að tefla í landi í Evrópu sem USA lagði bann við. Man nú enginn að pólitík og íþróttum á ekki að blanda saman? Þessi mesti skáksnillingur allra tíma hlýtur að eiga betra skilið. Hann er sagður hafa alist upp við heldur kuldaleg kjör og við getum ímyndað okkur að hann hafi misst af því að menntast, reyndar er ekki ljóst hver menntaganga hans var en heldur vafasamt að hann hafi getað misst tíma frá skákpælingum til langrar skólaveru og líklegt að hann hafi ekki einu sinni lært þá sjálfsögðu mannasiði sem fólk að- lagast við það að umgangast annað fólk og því sé framkoma hans svo óhefluð. Og þess vegna verðum við að treysta á að þessir heiðursmenn sem áttu þátt í að bjarga honum núna, geti kannski leitt hann til betri vegar á þessum sviðum. En nú vil ég brydda upp á einum leik sem ég bið menn að íhuga. Maður er nefndur Ragnar Að- alsteinsson og er þekktur lögfræð- ingur og ekki síst fyrir skelegga baráttu í ýmsum málum er varða mannréttindi. Gæti verið mögulegt að einhver voldugur aðili hér á landi myndi bjóða fé til að reyna að senda Ragn- ar til USA og að kynna okkur lönd- um Fischers hvernig mál hans standa og kannski athuga hvað á bak við býr þann haturshug sem hann virðist bera til fyrrum landa sinna þar og þá um leið, ef mál reynast eitthvað á þann veg sem Fisher heldur fram, að hann hafi verið rændur eignum sínum, að reyna þá að fá þau mál lagfærð. Verðum við ekki að leita leiða til að leysa þessi mál friðsamlega? HELGI ORMSSON, Hlynsölum 5, Kópavogi. Mesti skáksnillingur allra tíma hlýtur að eiga betra skilið Frá Helga Ormssyni: Í TVÍGANG hefur Rás 1 útvarpað „hagyrðingamóti á Vetrarhátíð“ frá 17. febrúar sl. Margt var þar hnytti- lega sagt, þótt annað væri bæði ósmekklegt og ómerkilegt. Ekki ætla ég að gera mótið að umræðu- efni í heild né hegðan og framkomu einstakra hagyrðinga. En því skrifa ég þessar línur að mér blöskraði framkoma þáttarstjórnanda og þátt- takenda í garð Kristjáns Jóhanns- sonar óperusöngvara. Virðist hressi- leg gamansemi og einlæg framkoma hans ætla að endast fjölmiðlum og fréttamönnum furðu lengi, og er greinilegt að sumum mörlandanum geðjast ekki að því að vera kallaðir sveitalubbar og amatörar, þótt þeir eigi það skilið, enda verður hver sannleikanum sárreiðastur. Sem sveitadreng austan af landi hefur mér oft orðið hugsað um ein- elti sem birtist í furðu mörgum myndum í þjóðfélaginu og margir hafa gaman af. Áður var einelti kall- að stríðni, en stríðni hefur ásamt níði lengi verið þjóðaríþrótt Íslendinga, sérstaklega þeirra sem eru litlir inni í sér. Svo rammt kvað raunar að þessari áráttu Íslendinga, að í elstu lögum landsins, Grágás, er sér- stakur kafli um níð. Varðaði skóg- gang, ef menn ortu níð um annan og gátu menn fallið óhelgir, er mæltu orð til háðungar öðrum ellegar ortu um annan illmæli. Gott er hagyrðingum á Vetr- arhátíð að ákvæði Grágásar eru ekki í gildi. Hins vegar stendur Kristján Jóhannsson jafn réttur eftir sem áð- ur, þrátt fyrir öfund íslenskra sveitalubba og amatöra, og það er trú mín að afrek hans eigi eftir að lifa lengur en rógur og níð sem um hann hefur gengið. TRYGGVI GÍSLASON, Blásölum 22, Kópavogi. Íslendingar, sveita- lubbar og einelti Frá Tryggva Gíslasyni: BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Pétur Steinn Guðmundsson: „Þær hömlur sem settar eru á bíla- leigur eru ekki í neinu samræmi við áður gefnar yfirlýsingar fram- kvæmdavaldsins, um að skapa betra umhverfi fyrir bílaleig- urnar.“ Guðmundur Hafsteinsson: „Langbesti kosturinn í stöðunni er að láta TR ganga inn í LHÍ og þar verði höfuðstaður framhalds- og háskólanáms í tónlist í landinu.“ Hjördís Ásgeirsdóttir: „Ég er ein af þeim sem heyrðu ekki bankið þegar vágesturinn kom í heim- sókn.“ að án þeirrar hörðu rimmu og víð- tæku umræðu í þjóðfélaginu sem varð kringum undirskriftasöfnun Umhverfisvina hefði Eyjabökkum verið sökkt.“ Ásthildur Lóa Þórsdóttir: „Vilj- um við að áherslan sé á „gömlu og góðu“ kennsluaðferðirnar? Eða viljum við að námið reyni á og þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og sjálfstæða hugsun?“ Bergþór Gunnlaugsson: „Ég hvet alla sjómenn og útgerð- armenn til að lesa sjómannalögin, vinnulöggjöfina og kjarasamn- ingana.“ Vilhjálmur Eyþórsson: „For- ystumennirnir eru undantekning- arlítið menntamenn og af góðu fólki komnir eins og allir þeir, sem gerast fjöldamorðingjar af hug- sjón. Afleiðingar þessarar auglýs- ingar gætu því komið á óvart.“ Jakob Björnsson: „Mannkynið þarf fremur á leiðsögn að halda í þeirri list að þola góða daga en á helvítisprédikunum á valdi óttans eins og á galdrabrennuöldinni.“ Jakob Björnsson: „Það á að fella niður með öllu aðkomu forsetans að löggjafarstarfi.“ Ólafur F. Magnússon: „Ljóst er Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar MENNTAMÁLARÁÐHERRAR Sjálfstæðisflokksins síðustu 14 árin hafa valdið íslensku menntakerfi miklum skaða. Skólastigunum hefur verið haldið í fjársvelti og til dæmis má nefna að grunn- skólinn hefur bók- staflega sprungið út eftir að hann var færð- ur til sveitarfélaganna sem hafa staðið vel að rekstri hans og veita til hans miklu meiri fjármunum en ríkið gerði áður með metn- aðarfulla framtíðarsýn að leiðarljósi. Framtíð- arsýn sem ekki örlar á hjá menntamála- yfirvöldum eða forystu hægriflokkanna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur valdið menntakerfinu ómældum skaða og til að nefna dæmi þá verjum við inn- an við 1% af þjóðarframleiðslu til háskólastigsins, samkvæmt skýrslu OECD, um leið og Norðurlanda- þjóðirnar gera allt að þrefalt betur og Bandaríkin fimmfalt. Þetta er dæmalaust skilningsleysi á mik- ilvægi öflugrar menntunar sem und- irstöðu fjölbreytts þekkingarsam- félags framtíðarinnar. Framsókn lætur þetta yfir sig ganga og kvittar með þögninni upp á skaðann sem Sjálfstæðisflokkurinn vinnur á menntakerfinu. Framganga Sjálfstæðisflokksins í menntamálum er á meðal stærstu vandamála þjóðfélagsins enda fjölg- ar stóriðjustrompunum í samræmi við sveltistefnuna í menntamálum sem eru dapurlegir minnisvarðar um framtíðarsýn Sjálfstæðisflokks- ins á umhverfi og atvinnumöguleika ungra Íslendinga. Það verður eitt helsta verkefni nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingarinnar að efla skóla- kerfið með miklum fjárfestingum í framtíðarskólanum. Frelsa hann úr svelti Sjálfstæðisflokksins. Skerðing á stúdentsprófinu Menntamálaráðherra fékk í arf frá forverum sínum það verkefni að stytta stúdentsprófið. Samkvæmt tillögunum sem fyrir lágu átti að skerða það einhliða með þeim afleið- ingum að menntunin gengisfélli og talsverðir fjármunir spöruðust. Þeim til- lögum var sópað undir teppið og nýjar lagðar fram sem nú er unnið eftir. Þar er margt var- hugavert að finna og hefur Félag framhalds- skólakennara t.d. skor- að á ráðherra að aft- urkalla tillögurnar og vinna vitrænt að mál- inu í samráði við skóla- samfélagið sjálft. Það markmið að ís- lenskir nemendur út- skrifist fyrr er gott og við eigum að stefna að því. Öllu skiptir hins vegar hvernig er staðið að breytingunum og markmiðið hlýtur að vera að námið verði betra en fyrir breyt- ingu. Það verði stytt en ekki skert. Ef markmiðið er að spara, fækka störfum og skera niður er eingöngu verið að vinna illa bætanlegt tjón á framhaldsskólanum með þeim af- leiðingum t.d. að kennsla í þriðja máli minnkar umtalsvert og prófið sem slíkt gengisfellur. Sérstaðan við íslenska framhaldsskólann er fjöl- breytileiki og hann á umfram allt að varðveita. Takist það ekki hefur styttingin mistekist. Margt annað verður að vera í for- grunni við styttingu á námstíma til stúdentsprófs; samþættingu skóla- stiga, endurmenntun kennara, námsframboð, umfang kjarna og valgreina og fjölda margt annað mætti tína til. Samþætting skóla- stiganna fjögurra er markmið út af fyrir sig og stytting á námstíma gef- ur gott færi á því ef rétt er að stað- ið. Það þarfnast hins vegar aðlög- unar og endurskoðunar á menntun kennara. Of fáir grunnskólakenn- arar eru með stærðfræði sem aðal- kjörsvið og þá má stytting á náms- tíma alls ekki verða til þess að skerða kennslu í þriðja máli einsog lítur út fyrir að verði. Fjölda annarra atriða þarf að gæta að til að markmiðið náist sem hlýtur að vera betra skólakerfi, öfl- ugra verknám, viðvarandi fjöl- breytileiki skólanna og betra stúd- entspróf. Sveltistefnan í mennta- málum er samfélagsvandi Björgvin G. Sigurðsson fjallar um menntamál ’Framganga Sjálfstæð-isflokksins í mennta- málum er á meðal stærstu vandamála þjóðfélagsins enda fjölg- ar stóriðjustrompunum í samræmi við svelti- stefnuna í mennta- málum.‘ Björgvin G. Sigurðsson Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. ATVINNUÁSTAND undanfarin ár hefur verið með slakara móti hér á höfuðborgarsvæðinu. Til að mynda hefur ungt fólk átt mjög erfitt með að fá sumarstörf, einkum þeir sem eru 17 og 18 ára, og tengist það einnig hækkuðum sjálfræð- isaldri í 18 ár. Reykja- víkurborg hefur brugð- ist við ástandinu og undanfarin þrjú ár hef- ur borgin veitt aukafé til að unnt sé að veita ungu fólki sumarvinnu. Í fyrra fór svo að það náðist að veita öllum þeim ungmennum sem sóttu um störf vinnu í a.m.k. sex vikur. Í tengslum við þetta hef- ur starfsemi Vinnumiðlunar ungs fólks verið efld mjög og starfar hún nú allan ársins hring. Á sama tíma hefur verið starfandi Samráðshópur um atvinnumál ungs fólks þar sem fulltrúar borgarstofnana koma sam- an og stilla saman strengi um at- vinnumál. Nú í sumar má sjá fram á aðeins betra atvinnuástand og er það fagn- aðarefni. En atvinnuleysi er ekki að- eins vandamál á sumrin. Hér í borg- inni er nokkur hópur af ungu fólki sem hefur verið atvinnulaus um nokkurt skeið. Í desembermánuði síðastliðnum voru 173 ungmenni á aldrinum 16-24 ára sem höfðu verið þrjá mánuði eða lengur á atvinnu- leysisskrá. Þetta ástand er áhyggjuefni enda er það vel þekkt atvinnuleysi hefur mjög neikvæð áhrif á fólk. Sam- kvæmt rannsókn sem Vinnumiðlun ungs fólks lét gera er ungt atvinnu- laust fólk líklegra til að reykja en ungt fólk í námi eða starfi, áfeng- isneysla þess er meiri og það á frekar við sál- ræn vandamál að stríða. Ungt atvinnu- laust fólk er að auki lík- legra til að verða at- vinnulaust síðar á lífsleiðinni en aðrir. Samstarf um framtíðarlausnir Samráðshópurinn leitaði eftir samstarfi við Vinnumálastofnun í því skyni að ráðast í átak til að aðstoða þau ung- menni sem hafa verið atvinnulaus í lengri tíma og rjúfa þar með þann vítahring sem langvarandi atvinnu- leysi getur orðið. Vinnumálastofnun var mjög áhugasöm um verkefnið og er verið að ýta því úr vör þessa dag- ana. Reynt er að finna störf sem henta áhugasviði viðkomandi ungmenna. Ennfremur er lögð mikil áhersla á að öll ungmennin hljóti lágmarks starfsþjálfun og að á vinnustaðnum séu tengiliðir sem þau geti leitað til á starfstímanum. Vinnumálastofnun greiðir stærstan hluta launakostn- aðar eða sem samsvarar þeirri bóta- upphæð sem viðkomandi ungmenni á rétt á en Reykjavíkurborg leggur svo viðbótarframlag ofan á það. Að starfstíma loknum verður reynt eftir fremsta megni að sjá til þess að ung- menni haldi áfram að vinna, fái ný störf eða fari í nám. Reiknað er með því að um 30 ung- menni fái störf í því átaksverkefni sem er nú að hefjast. Ljóst er að svona verkefni getur skipt miklu máli til að rjúfa vítahring atvinnu- leysis og því verður vonandi hægt að halda þessu áfram ef vel tekst til að þessu sinni. Rjúfum vítahring atvinnuleysis Katrín Jakobsdóttir ræðir um atvinnuleysi ’Samráðshópurinn leit-aði eftir samstarfi við Vinnumálastofnun í því skyni að ráðast í átak til að aðstoða þau ung- menni sem hafa verið atvinnulaus í lengri tíma og rjúfa þar með þann vítahring sem langvar- andi atvinnuleysi getur orðið. ‘ Katrín Jakobsdóttir Höfundur er formaður Samráðshóps um atvinnumál ungs fólks.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.