Morgunblaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þormóður Hauk-ur Jónsson fædd- ist í Reykjavík 31. desember 1919. Hann lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 22. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Guðrún Jónsdóttir, f. 17. nóvember 1891, d. 14. mars 1986, og Jón Guðmundur Þor- leifsson sjómaður, f. 11. september 1893, d. 3. nóvember 1925. Systir Þormóðs sam- mæðra var Svava Jónatansdóttir, f. 15. september 1912, d. 17. októ- ber 2000. Haukur ólst upp á Morastöðum í Kjós hjá hjónunum Einari Jónssyni og konu hans Guðrúnu Jónsdóttur ásamt fimm uppeldissystkinum. Haukur kvæntist 31. desember 1944 Laufeyju Svanbergsdóttur, f. 4. maí 1923. Foreldrar hennar voru Svanberg Sigurgeirsson, vatnsveitustjóri á Akureyri, f. 14. júní 1887, d. 11. júní 1961, og kona hans Guðrún Sigurðardótt- ir, f. 7. nóvember 1899, d. 4. febr- úar 1926. Haukur og Laufey eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Guðrún Erla, f. 7. nóvember 1945, d. 24. júní 1982. Hún var gift Benedikt Benediktssyni. Þau eignuðust tvö börn: a) Laufeyju, gift Tómasi Tómassyni, þau eiga þrjú börn, Erlu Mjöll, Tómas Aron og Hauk Má. b) Benedikt, í sam- búð með Rut Þor- geirsdóttur, þau eiga tvö börn, Ást- rós Erlu og Bene- dikt. 2) Eygló, f. 14. apríl 1950, gift Árna Matthíasi Sigurðssyni, þau eiga tvö börn: a) Sigurð Örn, í sambúð með Mar- gréti Valdimarsdóttur. b) Ernu Geirlaugu, í sambúð með Bene- dikt Heiðari Sigurðssyni. 3) Svanur Heiðar, f. 22. janúar 1956, kvæntur Hrefnu Guðna- dóttur. Haukur starfaði sem bifreiða- stjóri, lengst af hjá Bifreiðastöð- inni Hreyfli. Hann sat í stjórn fé- lagsins og gegndi trúnaðar- störfum þar um árabil. Útför Hauks verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. Haukur tengdafaðir minn er horf- inn yfir móðuna miklu, kominn yfir á lendur þar sem eilífur friður og ham- ingja ríkir. Haukur var traustur vinur og félagi. Það er mikill missir að slík- um manni. Kynni okkar hófust um 1962 þegar ég á unglingsaldri fór að venja komur mínar á heimili Hauks og Laufeyjar konu hans en Erla elsta dóttir þeirra, sem síðar varð eiginkona mín, var ástæða þessara tíðu heimsókna minna. Frá því að ég kom fyrst inn á heim- ili Hauks og Laufeyjar fann ég þá miklu væntumþykju, hlýju og ein- lægni sem þau hafa sýnt mér alla tíð í gegnum gleði og sorg. Haukur var alltaf léttur í skapi og hafði góða nær- veru. Því fékk ég að kynnast í dag- legum samskiptum og ekki síður á þeim mörgu ferðalögum sem við fór- um saman bæði innanlands og utan. Það er mikill og góður sjóður minn- inga að leita í þegar hugsað er til baka. Ég minnist þess þegar við Erla með börnin Laufeyju og Benna ásamt afa Hauki og ömmu Laufeyju ferð- uðumst saman á moldarvegum um landið og seinna þegar þau heimsóttu okkur til Danmerkur og fóru með okkur á vit ævintýranna. Enn síðar var farið á suðrænni slóðir og alltaf var gleðin yfir að vera saman það sem upp úr stóð þegar heim var komið. Gleðistundanna sem við áttum saman í Galtarlundi í Borgarfirði ber að minnast. Þá var oft glatt á hjalla og mikið sungið. Haukur hafði undur- þýða lýríska tenórrödd og við þessi tækifæri fengum við að heyra rödd hans óma. Ég hafði oft á orði við hann hvers vegna hann gerði ekkert með þessa miklu Guðs gjöf, en því tali eyddi hann á sinn hógværa hátt. Haukur var góður skákmaður og við tefldum oft mikið og lengi og gat þá oft orðið mikill darraðardans og fjör þegar spilað var eftir klukku. Haukur var óspar á frístundir sínar þegar kom að skákinni og gerði sitt til að miðla þessari þekkingu til afkom- enda sinna. Hann sat þolinmóður löngum stundum við að kenna þeim mannganginn og hina ýmsu klæki skáklistarinnar. Þessar samveru- stundir verða þeim öllum drjúgt veganesti þegar þau fara að takast á við lífið. Stundirnar með afa og lang- afa verða þeim nú enn dýrmætari þegar komið er að kveðjustund. Í kvæði Tómasar Guðmundssonar segir: Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Nú er Haukur lagður af stað í sína hinstu ferð yfir móðuna miklu eftir stutt en ströng veikindi þar sem hann tók örlögum sínum á sinn hóg- væra hátt studdur dyggilega af Lauf- eyju sinni. Börnin þeirra Eygló og Heiðar hafa misst ástríkan föður, afa- börnin og langafabörnin elskulegan afa og langafa. Við Helga vottum Laufeyju og öðrum ástvinum okkar dýpstu samúð. Ég þakka Hauki tengdaföður mín- um samfylgdina í gegnum meira en fjóra áratugi. Góður drengur er genginn. Benedikt Benediktsson. Í dag er til moldar borinn tengda- faðir minn og vinur Haukur Jónsson bifreiðarstjóri. Kynni okkar hófust er ég kynntist dóttur hans Eygló fyrir hartnær fjörutíu árum. Mér var vel tekið á heimili þeirra Laufeyjar og Hauks og var örlæti þeirra og ást á fjölskyldunni ávallt í fyrirrúmi. Hauk- ur ólst upp í sveit og talaði oft um lífið í sveitinni á þeim tíma þegar hann var að alast upp, hann hafði alla tíð mikið dálæti á skepnum og hélt kindur hér áður fyrr inn við Elliðaár og eru ófáir staðirnir sem hún Eygló hefur bent á og sagt: „Hérna vorum við í heyskap, við pabbi.“ Það hefur örugglega verið glampi í augum ungs manns sem fékk vörubíl til umráða hjá vegagerðinni fyrir miðja síðustu öld og tók þátt í að leggja veg yfir Hellisheiðina, þá var handmokað á bílana og hafst við í tjöldum niðri á Sandskeiði. Þar var lagður grunnur að ævistarfi sem hann leysti af hendi með lipurð og öryggi en hann ók lengst af á Bifreiðastöð- inni Hreyfli. Haukur var áhugamaður um íþróttir og var ekki að sjá neitt kyn- slóðabil þegar hann ræddi boltann við barnabörnin, það var sama hvar stungið var niður, alltaf var afi með skoðun eða lausn á málinu, hann las mikið, gat vitnað í Kiljan hvar og hve- nær sem var, kunni Íslendingasög- urnar utan að svo unun var á að hlusta þegar að hann setti sig inn í bardaga og lýsti leiknum. Það er margs að minnast og marg- ar glaðar stundir. Haukur átti afmæli á gamlársdag og eru veislurnar sem haldnar voru af þeim hjónum við þau tækifæri ógleymanlegar þar sem öll fjölskyldan var samankomin. En allt tekur enda og nú er komið að kveðjustund. Elsku Haukur, ég þakka þér fyrir samfylgdina, minn- ingin um þig mun fylgja mér um ókomin ár. Árni. Með tárin í augunum sest ég niður til þess að þakka fyrir liðna tíð. Þakka fyrir kærleikann og stuðninginn í þau ár sem við höfum verið samferða. Það er svo margt sem hægt væri að segja frá. Atvik og aðstæður sem gerðu líf okkar auðugra. Þið hjón svo gestrisin og samhent í öllu því sem þið tókuð ykkur fyrir hendur. Hvernig þið þjón- uðuð öðrum af svo mikilli fórnfýsi eins og hægri höndin vissi aldrei hvað sú vinstri gjörði. Yndislegar línur úr ljóði eftir móður mína komu upp í huga minn og læt ég þær fylgja hér: Svo bráðnar ólíkt efni að engin mæti sér í lífsins djúpu deiglu að Drottins vilja hér. Er lít ég yfir árin á okkar genginn stig, þá vil ég að þú vitir hve vænt mér finnst um þig. (j.f.k.) Til þín Laufey mín og allra þeirra sem syrgja í dag er svo gott að minna sig á það sem Jesús sagði. „Ég lifi og þér munuð lifa.“ Þess vegna segi ég bara: Sjáumst síðar, elsku vinur. Hrefna Guðnadóttir. Fallinn er frá hann afi minn Hauk- ur. Það er svo stutt síðan haldið var upp á 85 ára afmæli afa. Þann dag áttu amma og afi einnig 60 ára brúð- kaupsafmæli, en þau amma giftust á afmælisdaginn hans, gamlársdag árið 1944. Það sást að afi var orðinn þrek- minni en áður, en þó hafði góða skapið og áhugi á íþróttum ekki látið bilbug á sér finna. Það rifjast svo margt upp þegar komið er að kveðjustund. Þær verða seint taldar allar dagsferðirnar sem við barnabörnin fórum í með afa og ömmu, ófáar ferðir upp í Heiðmörk eða austur á Þingvelli að skoða haust- litina. Þegar við systkinin fórum að stálpast var mikil áhersla lögð á íþróttir og var afi vel inni í öllum mál- um þar. Hans mestu áhyggjur voru þær að hvorugt okkar var í KR og bauðst hann til að sjá um ferðir fram og til baka á allar æfingar bara ef við færum í rétt félag. Ekki varð þó úr því að við systkinin þægjum þetta kosta- ÞORMÓÐUR HAUKUR JÓNSSON Erfidrykkjur Salur og veitingar Félagsheimili KFUM & KFUK Holtavegi 28, 104 Reykjavík. Upplýsingar í síma 588 8899. www.kfum.is Elskuleg móðir mín, KATRÍN BJÖRNSDÓTTIR, Ljósheimum 8a, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudag- inn 1. apríl kl. 11.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsam- legast bent á Hjartavernd. Ólafía G. Ragnarsdóttir. Ástkær bróðir okkar, GUNNAR SÍMONARSON, lést á Hrafnistu í Reykjavík aðfaranótt þriðju- dagsins 29. mars. Svava Símonardóttir Guttadaro, Njáll Símonarson og fjölskyldur. Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, SVERRIR P. JÓNASSON vélstjóri, Hátúni 4, Reykjavík, lést mánudaginn 21. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð. Sigrún Magnúsdóttir, Reynir Sverrisson, Vilborg Jóhannsdóttir, Símon Björnsson, Helgi Sverrisson, Björg Guðmundsdóttir, afa- og langafabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HELGA ENGILBERTSDÓTTIR, Ísafirði, sem andaðist miðvikudaginn 23. mars sl., verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju laugar- daginn 2. apríl kl. 14.00. Ingibjörg Jónsdóttir, Hulda Jónsdóttir, Jón Kristmannsson, Vignir Jónsson, Lára Helgadóttir, Jón Þór Jónsson, Guðmundur Ingi Guðnason, Margrét Jónsdóttir, Guðni Geir Jóhannesson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg föðursystir mín, ÞÓRA ÞORKELSDÓTTIR, elliheimilinu Grund, áður Grenimel 8, Reykjavík, andaðist þriðjudaginn 29. mars. Þorkell Jónsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR SIGURÐSSON, Leirulækjarseli, lést á Sjúkrahúsi Akraness að kvöldi páska- dags 27. mars. Jarðarförin fer fram frá Borgarneskirkju laugar- daginn 2. apríl kl. 14:00. Jarðsett verður að Borg á Mýrum. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins í síma 543 3724. Jóna Einarsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Skemmuvegi 48, Kópavogi. Simi 5576677 www.steinsmidjan.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.