Morgunblaðið - 31.03.2005, Page 37

Morgunblaðið - 31.03.2005, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 37 FRÉTTIR FULLTRÚAR atvinnulífsins og skóla munu ræða breytta námsskip- an og áhrif hennar á starfsmenntun á félagsfundi Menntar, sem haldinn verður í dag, 31. mars. Fundurinn verður haldinn á Hall- veigarstíg 1 og hefst kl. 13. Frum- mælendur verða Sigurjón Mýrdal deildarstjóri í menntamálaráðuneyt- inu, Ingi Bogi Bogason mennta- fulltrúi Samtaka iðnaðarins og Hall- dór Grönvold, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Alþýðusambands Ís- lands. Einnig verður kynnt evrópskt samstarfsnet í starfsmenntun sem opnar leiðir til upplýsingaöflunar og samstarfs fyrir íslenskt menntasam- félag. Í fréttatilkynningu um fundinn segir að stytting framhaldsskólans muni hafa víðtæk áhrif á skipulag starfsmenntunar og með þríhliða umræðum aðila vinnumarkaðarins og skólakerfisins á félagsfundi Menntar muni koma fram viðhorf hvers um sig til breytts skólaum- hverfis. Frummælendur kynna hvernig málið horfir við frá sjónar- hóli samtaka atvinnurekenda, laun- þega og menntamálaráðuneytisins. Einnig koma tveir fyrirlesarar frá CEDEFOP – Miðstöð Evrópusam- bandsins um þróun starfsmenntun- ar. Marc Willem yfirmaður upplýs- ingadeildar mun kynna sam- starfsnetið og Dóra Stefánsdóttir, íslenskur starfmaður CEDEFOP, mun kynna metnaðarfyllsta verkefni stofnunarinnar til þessa sem er heildstætt og samanburðarhæft yfir- lit menntakerfa allra Evrópuland- anna aðgengilegt á vefnum. Þessu tengt mun Gylfi Einarsson, frkvstj. Fræðslumiðstöðvar málmiðnaðar- ins, segja frá hvernig hann nýtir slík- ar upplýsingar í starfi. Hönnunarsamkeppni Ísland hefur nú tekið þátt í Leon- ardo da Vinci-styrktaráætlun ESB í 10 ár. Í fréttatilkynningu Menntar kemur fram að af þessu tilefni verð- ur efnt til samkeppni um hönnun gripa Leonardos meðal nemenda verkmenntaskólanna. Verðlaunin eru ferð til Parísar og heimsókn í Louvre-safnið til að berja handverk meistarans augum. Verður sam- keppnin einnig kynnt á félagsfund- inum. Fulltrúar atvinnulífs og skóla ræða breytta námsskipan STJÓRN Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík hefur samþykkt ályktun þar sem lýst er mikilli ánægju með áform borgaryfirvalda í Reykjavík um að fella niður leikskólagjöld fyrstu sjö stundirnar á dag á næstu árum. „Ungir jafnaðarmenn telja þó afar brýnt að tímagjald fyrir umfram- stundir hækki ekki frá því sem nú er þrátt fyrir þessa breytingu, enda er það ljóst að langflestir foreldrar munu áfram hafa börnin sín í 8–9 tíma vistun. UJR vona að lækkun leikskólagjalda sé byrjunin á enn betri leikskóla og í náinni framtíð sjá UJR fyrir sér að skólaskylda verði færð niður um eitt ár. Öll börn eigi kost á heilsdagsvistun Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík telja einnig að skilyrðislaust beri að stefna að því að allir foreldrar geti komið börnum sínum í heilsdagsvist- un ekki síðar en við eins árs afmæl- isdag þeirra. UJR benda sérstaklega á mikilvægi þess að hraða uppbygg- ingu leikskólaplássa í borginni til þess að ná megi þessu marki, en einnig til að koma til móts við þá fjölgun sem væntanlega mun verða á leikskólum í borginni samfara lækk- un leikskólagjalda. Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík telja að veruleg lækkun leikskóla- gjalda og áframhaldandi uppbygg- ing leikskólanna sé stórt framfara- spor fyrir íslenskt samfélag. UJR vona að samstaða náist meðal allra flokka um lækkun gjaldanna, eins og varð á Þingi unga fólksins 11.–13. mars síðastliðinn. Þá vonast UJR til þess að sam- komulag takist milli ríkis og sveitar- félaga með hvaða hætti sé hægt að tryggja að öll sveitarfélög hafi bol- magn til þess að lækka gjöldin og breyta íslensku samfélagi til hins betra.“ Fagna lækkun leik- skólagjalda ❖ Opið virka daga 10-18 ❖ Laugardaga 10-16 Nýbýlavegi 12 Kópavogi s. 554 4433 Föt fyrir allar konur Er löggiltur fasteignasali a› selja eignina flína? sími 530 6500fax 530 6505www.heimili.isSkipholti 29A105 Reykjavík opi› mánudagatil föstudaga 9-17 Hjá Heimili fasteignasölu starfa fjórir löggiltir fasteignasalar sem hafa áralanga reynslu af fasteigna- vi›skiptum. fia› er flví löggiltur fasteignasali sem heldur utan um allt ferli›, allt frá flví eignin er sko›u› og flar til afsal er undirrita›. Metna›ur okkar á Heimili er a› vi›hafa vöndu› og fagleg vinnu- brög› sem tryggja flér besta ver›i› og ábyrga fljónustu í samræmi vi› flau lög og reglur sem gilda um fasteignavi›skipti. Finbogi Hilmarsson lögg. Fasteignasali Einar Gu›mundsson lögg. Fasteignasali Anney Bæringsdóttir lögg. Fasteignasali Bogi Pétursson lögg. Fasteignasali Hafdís Björnsdóttir Ritari NÚ er nýlokið umfangsmiklum breytingum á allri 1. hæð útibús SPRON á Skólavörðustíg 11. Mark- miðið með breytingunum er að geta boðið viðskiptavinum enn betri þjónustu í björtum og glæsilegum húsakynnum, eins og segir í frétta- tilkynningu. Arkitektar að þessum breyting- um eru þær Heiða Elín Jóhanns- dóttir og Dóra Hansen á arkitekta- stofunni Innanhússarkitektar eitt A. Sparisjóðurinn hefur verið til húsa á Skólavörðustíg 11 frá árinu 1968 en það ár var starfsemin flutt frá Hverfisgötu. Höfuðstöðvar SPRON voru við Skólavörðustíg þar til í janúar 2002 er þær fluttust að Ármúla 13a, en eftir það hefur verið rekið þar stærsta útibú SPRON. Starfsfólk á Skólavörðustíg er um 20 manns í 17 stöðugildum. Þjón- ustustjóri er Sigríður Einarsdóttir. Útibúið tilheyrir s.k. vestursvæði og er útibússtjóri svæðisins Þorvaldur F. Jónsson. Endurbótum hjá SPRON lokið SKÍÐA- og útivistarnámskeið fyrir fatlaða verður haldið í Hlíðarfjalli við Akureyri dagana 14. til 17. apr- íl. Verkefnið er samstarfsverkefni Challenge Aspen, Íþróttasambands fatlaðra og Vetraríþróttamiðstöðv- ar Íslands. Fjórir sérþjálfaðir leiðbeinendur frá Aspen í Colorado í Bandaríkj- unum verða í Hlíðarfjalli þessa daga, stýra námskeiðinu og kynna nýjungar sem lúta að vetraríþrótt- um og alhliða útiveru fatlaðra. Námskeiðið er ætlað fyrir mænu- skaðaða, fjölfatlaða þroskahefta, hreyfihamlaða, sjónskerta og blinda og er bæði verklegt og fé- lagslegt. Fatlaðir íbúar á sambýlum, leið- beinendur, íþróttakennarar og áhugafólk um útiveru fatlaðra er sérstaklega hvatt til að taka þátt. Skráning á námskeiðið stendur yfir og lýkur 8. apríl næstkomandi. Útivistarnámskeið fyrir fatlaða í Hlíðarfjalli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.