Morgunblaðið - 31.03.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 41
DAGBÓK
Barnaheill eru frumkvöðlar í því aðberjast fyrir réttindum barna á Ís-landi og eru aðilar að Save theChildren Alliance sem eru með verk-
efni í þágu barna í rúmlega 120 löndum segir
Kristín Jónasdóttir, framkvæmdastjóri Barna-
heilla. Í ljósi hörmunganna í Suðaustur-Asíu
hafa Barnaheill þýtt 10 hollráð fyrir þá sem
annast börn, um hvernig auðvelda megi börn-
um að takast á við hörmungar. Kristín segir
þessi hollráð hafa verið til í nokkurn tíma en
þau voru samin í kjölfar hryðjuverkaárásanna í
Bandaríkjunum 11. september 2001. „Hollráðin
voru yfirfarin af sálfræðingafélagi í Ástralíu,“
segir Kristín.
Hollráðin eru 10 talsins og er ætlað að
hjálpa börnum að horfast í augu við hamfarir.
Hollráðin eru eftirfarandi: 1) Slökktu á sjón-
varpinu. 2) Hlustaðu vel á barnið. 3) Veittu
barninu öryggi og andlegan stuðning. 4) Leit-
aðu aðstoðar fagfólks (þegar við á). 5) Vertu
við öllu búin/n. 6) Verðu auknum tíma með
barninu þínu. 7) Vertu barninu þínu góð fyr-
irmynd. 8) Sýndu samhug. 9) Komdu lífinu aft-
ur í réttar skorður. 10) Hvettu barnið til að
láta gott af sér leiða.
Kristín segir hollráðin eiga við aðstæður
hérlendis. „Þetta eru almenn hollráð til for-
eldra og forráðamanna barna,“ segir Kristín og
heldur áfram: „Oft eru fréttir svo sláandi, ekki
bara í þessum hörmungum eins og núna, þ.e.
flóðunum, eða í hryðjuverkaárásunum 11. sept-
ember heldur er stöðugt áreiti frá fjölmiðlum
og samtökin sáu þörf fyrir að semja hollráð
sem kæmu forráðamönnum og foreldrum að
gagni. Því þessar hörmungar hljóta að hafa
áhrif á börn,“ segir Kristín og bætir því við að
henni þyki fyrsta hollráðið oftast best þar sem
foreldrar eru einfaldlega hvattir til þess að
slökkva á sjónvarpinu. Hún segir að foreldrar
verði að vera meðvitaðir um það að fréttaflutn-
ingur geti haft mjög djúpstæð áhrif á ung
börn.
„Sérstaklega ef þetta er síðan ekkert rætt,“
segir Kristín og bendir á að það sé afar mik-
ilvægt hvernig umræða um slíka hluti sé innan
veggja heimilanna. Þó sé ljóst að það sé ekki
einfalt mál að útskýra fyrir ungu barni af
hverju tvíburaturnarnir féllu eða þá að flóð-
bylgja hafi skollið á land með geigvænlegum
afleiðingum.
„Ég man eftir því sjálf sem barn hvað ég var
hrædd við að stríð bærist til Íslands.
Ég held að þetta sé eitthvað sem mjög
margir kannast við og það skiptir máli hvern-
ig þetta er rætt við börn,“ segir Kristín og
bendir á að hollráðin séu stuðningur í þeirri
umræðu.
Hægt er að nálgast hollráðin 10 á vefsíðu
Barnaheilla en slóðin er www.barnaheill.
Börn | Barnaheill gefa út 10 hollráð til foreldra og forráðamanna barna
Horfst í augu við hamfarir
Kristín Jónasdóttir
er félagsfræðingur frá
Háskóla Íslands og frá
Háskólanum í Minne-
sota.
Hún hefur verið fram-
kvæmdastjóri Barna-
heilla – Save the Childr-
en á Íslandi síðan 1994.
Kristín tók þátt í stofn-
un Mannréttinda-
skrifstofu Íslands og
var stjórnarmaður þar í mörg ár.
Kristín er fædd og uppalin í Kópavogi en býr í
Reykjavík ásamt tveim dætrum sínum, þeim
Ingunni Önnu og Guðnýju Rögnu Ragn-
arsdætrum.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
50 ÁRA afmæli. Í dag, 31. mars, erfimmtugur Finnbogi Leifsson,
bóndi og bæjarfulltrúi, Hítardal,
Borgarbyggð. Af því tilefni tekur hann
og fjölskylda hans á móti gestum í Fé-
lagsheimilinu Lyngbrekku föstudags-
kvöldið 1. apríl frá kl. 20.
70 ÁRA afmæli. Í dag, 31. mars, ersjötug Hulda Elísa Ebenesers-
dóttir, hjúkrunarheimilinu Eir. Hún
tekur á móti gestum í sal Sjálfsbjarg-
arhússins, Hátúni 12, milli 17 og 20 á
afmælisdaginn.
Íslandsmótið.
Norður
♠ÁD102
♥96 A/Enginn
♦D1096
♣KD5
Vestur Austur
♠G95 ♠K863
♥DG1072 ♥Á4
♦Á32 ♦74
♣63 ♣109874
Suður
♠74
♥K853
♦KG85
♣ÁG2
Í fyrstu umferð Íslandsmótsins átti
vestur út gegn þremur gröndum á öll-
um borðunum tólf, oftast eftir þessar
sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
– – Pass 1 tígull
Pass 1 spaði Pass 1 grand
Pass 3 grönd Allir pass
Hjartadrottningin er nokkuð sjálf-
gefið útspil, því hjartalengd suðurs er
ekki þekkt. Tíu sagnhafar fengu út
hjartadrottninguna og það dugði þeim
til vinnings. Austur yfirdrap með ás og
spilaði hjarta áfram, sem sagnhafi
dúkkaði til vesturs. Nú mynda K8 suð-
urs gaffal á G7 vesturs og þar með er
allt bit farið úr vörninni. Það þarf lítið
hjarta út til að hnekkja geiminu.
Sigurbjörn Haraldsson fann litla
hjartað út eftir þessa sagnþróun:
Vestur Norður Austur Suður
– – Pass 1 tígull
1 hjarta Dobl Redobl
Dobl norðurs er neikvætt og redobl
austurs sýnir háspil annað í hjarta. Þar
með var vörnin mörkuð.
Annar spilari hitti á smátt hjarta út,
en þá hafði suður vakið á veiku grandi:
Vestur Norður Austur Suður
– – Pass 1 grand
Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu
Pass 3 grönd Allir pass
Hér spyr norður um háliti og suður
sýnir fjórlit í hjarta. Eftir þær upplýs-
ingar er vandalítið fyrir vestur að
byrja á litlu hjarta í þeirri von að
makker sé með feitt tvíspil.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Og svo er hlegið
að öllu saman
JÆJA, voða fyndið og gaman að
festast uppi á jökli einhvers staðar,
illa búinn, án fjarskiptatækja og illa
undirbúinn í alla staði en það er allt í
fína því auðvitað kemur einhver að
leita.
Þvílík vitleysa! Þetta fólk gerir
sér enga grein fyrir því að allt kostar
þetta peninga og það mikla, veltur
sjálfsagt á milljónum, fleiri tugir
manna kallaðir til, þyrla sem kostar
nokkur hundruð þúsund á klukku-
tímann. Og hver borgar svo?
Að minnsta kosti ekki þau enda
hefðu þau ekki farið svona illa búin
ef þau hefðu átt von á að þurfa að
borga ef til björgunar kæmi.
Tökum Grænlandsjökul sem
dæmi. Þangað fer enginn sem ekki
hefur gengið frá öllum tryggingum
ef eitthvað brygði út af.
Og svo er bara hlegið framan í al-
þjóð í fréttum – voða fyndið og gam-
an. Já, ég segi það, láta þetta fólk
borga reikninginn og svona atvikum
mundi stórfækka.
Skattgreiðandi.
Verði ykkur Fischer að góðu
ÉG tek undir orð greinarhöfundar
Rocky Mountain News sem þakkaði
Íslendingum fyrir að losa Banda-
ríkjamenn við hann. Ég get samt
ekki sagt að ég sé ánægð með að
Fischer sé nú orðinn íslenskur rík-
isborgari.
Satt best að segja finnst mér allt
þetta mál um Bobby Fischer ansi
undarlegt. Maðurinn sat í fangelsi í
Japan fyrir að hafa brotið við-
skiptabann Bandaríkjanna á Júgó-
slavíu, svo hann sendir Davíði Odds-
syni og íslensku ríkisstjórninni bréf
þar sem hann fer fram á að fá land-
vistarleyfi á Íslandi. Málið fer svo á
hraðferð í gegnum útlendingastofn-
un og íslenska þingið, og endar á því
að maðurinn fær íslenskan rík-
isborgararétt. Þetta finnst mér ein-
staklega skrýtið þar sem það er ekki
hlaupið að því að fá íslenskan rík-
isborgararétt eða landvistarleyfi
undir venjulegum kringumstæðum.
Tala nú ekki um þegar ungum hjón-
um með nýfætt barn frá Austur-
Evrópu er neitað um pólitískt hæli á
Íslandi. Og þykir mér þó líklegt að
umrædd hjón myndu aðlagast ís-
lensku samfélagi betur en Fischer.
Er Ísland nú orðið hæli fyrir er-
lenda glæpamenn, svo framarlega
sem þeir eru frægir „Íslandsvinir“?
Elín Bjarnadóttir.
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU með styrk í dökkri
umgjörð fundust á Skólavörðustíg
hinn 23. mars sl. Upplýsingar í síma
557 2007 eða 862 6562.
Giftingarhringur týndist
GIFTINGARHRINGUR týndist,
líklega við sundlaugina í Mosfellsbæ.
Í hringnum er áletrunin „Anna Ýr“.
Skilvís finnandi hafi samband í síma
696 6989.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
BIBLÍUSKÓLINN við Holtaveg
býður til fræðslukvölds fyrir al-
menning um Jóhannesarguðspjall,
fimmtudaginn 31. mars kl. 20–22 í
húsi KFUM og KFUK við Holtaveg,
gegnt Langholtsskóla.
Ragnar Snær Karlsson mun fjalla
um guðspjallið en markmiðið er að
auðvelda fólki lestur þess og að
heimfæra það upp á eigið líf og að-
stæður.
Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn.
Nánari upplýsingar eru í síma
588 8899 og á heimasíðu skólans,
www.bibliuskoli.krist.is.
Fræðslukvöld um Jóhannesarguðspjall
EDINBORGARHÚSIÐ hefur und-
anfarin ár verið í mikilli end-
urreisn, en áhugahópur um end-
urbyggingu þess (nú
Edinborgarhúsið ehf.) keypti húsið
árið 1992 og hefur síðan starfað öt-
ullega að endurbyggingunni. Í Ed-
inborgarhúsinu er nú rekinn lista-
skóli auk þess sem þar eru
leiksýningar og tónleikar.
Jón Sigurpálsson, formaður fé-
lagsins, segir starfið hafa verið
unnið í litlum skrefum og af tölu-
verðri fyrirhyggju í fjármálum og
öðru. „Við höfum aldrei stigið of
löng skref, segir Jón. „Við erum
smám saman að endurgera húsið og
bæta. Í þeim áfanga sem við erum
nú að vinna verður fjöllistasalur og
veitingaaðstaða auk þess sem góð
búningsaðstaða verður í norður-
enda hússins fyrir listamenn. Þessi
gamli frystiklefi er í raun hjarta
hússins og verður rekstrargrund-
völlur þess. Hér hafa Nine Elevens
haldið tónleika og Menntaskólinn
var með sólrisutónleika. Þá setti
Litli leikhópurinn upp barna-
leikritið Hatt og Fatt. Það hefur
vantað svona stóran fjölnota sal.
Það er hér sérsmíðaður tónleikasal-
ur, Hamrar, en hann er aðeins of
lítill fyrir svona stærri tónleika.“
Húsið er að sögn Jóns í ótrúlega
góðu ásigkomulagi miðað við að um
er að ræða er grindarbyggingu frá
árinu 1907. „Húsið var síðustu árin
komið í dálitla niðurníðslu en það
er ótrúlegt hvað viðurinn hefur
haldið sér. Þegar við rifum frysti-
geymsluna innan úr húsinu kom í
ljós að byggingin var miklu betur
farin en við þorðum að vona.“
Stanslaus notkun
Jón segir vonir standa til að húsið
verði í stanslausri notkun á öllum
sviðum, að þar verði leikhús, tón-
leikar, sýningar og ráðstefnur.
„Þetta hús getur vel rúmað allt
þetta. Edinborgarhúsið er eitt af
þremur menningarhúsum hér í
bænum, ásamt Gamla sjúkrahúsinu
og Hömrum. Það er ekki síst fyrir
það sem þetta hefur haldið svona
vel áfram og með góðum stuðningi
og velvilja almennings. Svona við-
burðir eins og „Aldrei fór ég suður“
er einmitt það sem við þurfum. Þá
fá allir bæjarbúar og fleiri að sjá
hvað er um að vera hér, kynnast
starfinu og möguleikunum, því hér
er ekkert nema möguleikar. Fólk
er afar hrifið af húsinu og þessari
hátíð. Hátíðin er alveg frábært
framtak í sjálfu sér og við myndum
vilja hýsa hana til framtíðar.“
Fjölnota menningarhús
Barn að eilífu eftir Sigmund Erni
Rúnarsson er komin út hjá JPV út-
gáfu í kilju.
Bókin kom út í innbundinni útgáfu
á síðasta ári og varð ein af sölu-
hæstu bókum ársins og hlaut góða
dóma.
Hér er rakin saga íslenskrar fjöl-
skyldu með fatlað barn – sagt frá
gleðinni yfir nýfæddu barni og ang-
istinni yfir sjúkleika þess, tilraunum
til að fá bót á meinum þess og sorg-
inni yfir því sem ekkert fær breytt.
Sigmundur Ernir Rúnarsson deilir
með lesand-
anum reynslu og
sársauka sem
hefur mótað
hann og hans
nánustu.
Sigmundur
Ernir Rúnarsson
er kunnur fjöl-
miðlamaður og
ljóðskáld. Barn að eilífu er fyrsta
saga hans; í senn spennandi og
hreinskilin frásögn af óvenjulegu
lífshlaupi föður og dóttur.
Jón Ásgeir hannaði kápu og Oddi
prentaði.
Lífsreynsla