Morgunblaðið - 31.03.2005, Page 42
42 FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 drekkur, 4 hag-
virkum, 7 upptökum, 8
urr, 9 fita, 11 hluta, 13
klína, 14 furða, 15 vegg,
17 galdrakvendi, 20 garm-
ur, 22 lágfótur, 23 vatns-
fall,
24 víðar, 25 rannsaka.
Lóðrétt | 1 hákarlshúð, 2
hænur, 3 sterk, 4 heitur, 5
hamingja, 6 lítill silungur,
10 bárur, 12 nöldur, 13
ambátt, 15 megnar, 16
sprungum, 18 krafturinn,
19 gabba,
20 ósoðinn, 21 frábrugðin.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 fornöldin, 8 lubbi, 9 kylfa, 10 tík, 11 tuðra, 13
senna, 15 flesk, 18 sussa, 21 ólm, 22 feigð, 23 eirum, 24
gleðskapi.
Lóðrétt | 2 ofboð, 3 neita, 4 lokks, 5 iglan, 6 slít, 7 rata, 12
rós, 14 eru, 15 fífa, 16 Egill, 17 kóðið, 18 smeyk, 19 skróp,
20 aumt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn er að springa af hug-
myndaauðgi í dag. Hann langar til þess
að gera allt og fara allt. Einnig langar
hann til þess að hafa vit fyrir öðrum, allt
vill lagið hafa.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Dagurinn í dag er afar hagstæður fyrir
rannsóknir af ýmsu tagi, til dæmis í mál-
um sem tengjast útlöndum, útgáfu, fjöl-
miðlum og framhaldsmenntun.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Samræður í kringum tvíburann eru lif-
andi og skemmtilegar. Fólki liggur mik-
ið á hjarta, tvíburanum býr ýmislegt í
brjósti.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú óttast ekki að segja hug þinn í dag.
Nú er rétti tíminn til þess að ræða við
stjórnendur. Þú stendur líka uppi í
hárinu á foreldrum og öðrum yfirboð-
urum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Notaðu tímann og gerðu ferðaáætlanir.
Þig dauðlangar að leggja land undir fót
og vilt stækka sjóndeildarhringinn. Það
er nú eða aldrei, láttu vaða.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Rannsóknarhæfileikar þínir eru með
mesta móti núna og þú ert í stuði til þess
að fara í gegnum ógrynni af þreytandi
smáatriðum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin vill halda friðinn, en þarf samt
sem áður að geta lýst tilfinningum sínum
og því sem henni líkar eða mislíkar. Nú
er rétti tíminn til þess að ræða við ein-
hvern nákominn.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er sannfærður um að
hann hafi rétt fyrir sér varðandi eitthvað
sem tengist vinnunni. Ekki gera út af við
samstarfsfólkið, dragðu andann.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
En hvað bogmaðurinn á skemmtilegan
dag í vændum. Njóttu þess að lyfta þér
upp með vinunum. Farðu í bíó, skipu-
legðu partí. Daðraðu við makann.
O.s.frv.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Nú væri alveg kjörið að sinna litlum við-
gerðum á heimilinu. Fjölskyldan ætti
líka að setjast niður til skrafs og ráða-
gerða. Geitin er í stuði til þess að gæta
hagsmuna sinna.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Hugur þinn er á fleygiferð. Þér finnst þú
skýr og vakandi og í stuði til þess að
læra eitthvað nýtt. Erindi, stutt skrepp
og samræður við náungann einkenna
daginn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn er alltaf að fá hugmyndir um
nýja tekjumöguleika núna. Hann er með
á nótunum. Skrifaðu þær niður og vittu
hvað öðrum finnst.
Stjörnuspá
Frances Drake
Hrútur
Afmælisbarn dagsins:
Um leið og þú tekur ákvörðun, víkur þú
ekki af leið. Þú ert baráttumanneskja, og
berð þig eftir því sem þú vilt. Staðfesta og
seigla eru einkenni þitt.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Hótel Borg | Skonrokk leikur frumsamda
djasstónlist í Gyllta salnum. Hljómsveitina
skipa þeir Sigurdór Guðmundsson bassa-
leikari og hljómsveitarstjóri, Ívar Guð-
mundsson á trompet, Óskar Guðjóns á sax,
Sigurður Rögnvaldsson á gítar og Jóhann
Hjörleifsson á trommur. Tónleikarnir hefjast
kl. 21.
Kaffi Sólon | Magni og Sævar uppi með
partísession. Dj Tommi White með electro-
nic heineken session niðri – 5 grænir í fötu.
Pravda | Orgeldjass- og funktríóið B3 held-
ur tónleika 31. mars milli kl. 22–24. Tríóið
skipa Agnar Már Magnússon, orgel, Erik
Qvick, trommur, og Ásgeir Ásgeirsson, gít-
ar.
Myndlist
Gallerí Skuggi | Anna Jóa og Ólöf Odd-
geirsdóttir – Mæramerking II.
Gallerí Sævars Karls | Magnea Ásmunds-
dóttir – „Augnablikið mitt!“ Innsetning unn-
in með blandaðri tækni.
Gerðuberg | Ljósberahópurinn – Hratt og
hömlulaust. María Jónsdóttir – Gullþræðir.
Klippimyndir, verk úr muldu grjóti, olíu-
málverk og fleira í Boganum.
Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir
(Gugga) sýnir málverk í forsal.
Hafnarborg | Jónína Guðnadóttir – lág-
myndir og innsetningar í aðalsal. Barbara
Westmann – Adam og Eva og Minnismyndir
frá Vestmannaeyjum.
Hafnarborg | Hallsteinn Sigurðsson er
myndhöggvari marsmánaðar í Hafnarborg.
Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson – Sól-
stafir.
Hrafnista, Hafnarfirði | Gerða Kristín
Hammer sýnir akrílmyndir og fleiri listmuni
í Menningarsal á fyrstu hæð.
Kaffi Sólon | Auður Inga Ingvarsdóttir,
form, ljós og skuggar.
Listasafn ASÍ | Kristín Sigfríður Garðars-
dóttir – Handleikur. Sigrid Valtingojer – Hör-
und Jarðar.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930
1945 og Rúrí – Archive – endangered wa-
ters.
Listasafn Reykjanesbæjar | Erlingur Jóns-
son og samtímamenn.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Nían –
Myndasögumessa. Brynhildur Þorgeirs-
dóttir – Myndheimur/Visual World.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Hörður Ágústsson – Yfirlitssýning í vest-
ursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur
Örn Friðriksson – Markmið XI. Samvinnu-
verkefni í miðrými. Yfirlitssýning á verkum
Kjarvals í austursal.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir. Stendur til 22. maí.
Safn | Ingólfur Arnarsson – Teikningar.
Samsýning listamanna frá Pierogi-galleríi í
New York.
Thorvaldsen Bar | Ásta Ólafsdóttir –
Hugarheimur Ástu.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn – hús skáldsins er opið frá kl. 10–17.
Skemmtileg og fræðandi hljóðleiðsögn um
húsið, margmiðlunarsýning um ævi skálds-
ins og fallegt umhverfi. Sími 586 8066 net-
fang: gljufrasteinn@gljufrasteinn.is.
Lindasafn | Handavinnukvöld frá kl. 17-21
fyrir handavinnukonur sem vilja koma sam-
an og deila áhugamálum sínum með öðrum.
Bútasaumur og önnur handavinna. Heitt á
könnunni.Verið velkomnar í Lindasafn Nú-
palind 7 (2. hæð Lindaskóla). Gengið inn
Núpalindarmegin. Sími: 564 0621.
Þjóðmenningarhúsið | Hin fornu handrit
geyma einstæðar sögur, kvæði og frásagnir
sem varpa ljósi á samfélag, trúarbrögð og
hugarheim hinna norrænu þjóða í önd-
verðu. Á meðal sýningargripa eru Konungs-
bækur Eddukvæða og Snorra Eddu, Flateyj-
arbók og handrit lagabóka, kristilegra texta
og Íslendingasagna. Á sýningunni er leitast
við að skapa það andrúmsloft sem ríkti á
sýningu Þjóðminjasafns Íslands í risi Þjóð-
menningarhússins þar sem það var til húsa
á fyrri hluta 20. aldar. Hallgrímur Pétursson
(1614–1674) er skáld mánaðarins í Þjóð-
menningarhúsinu.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóð-
minjasafnsins, Þjóð verður til – menning og
samfélag í 1200 ár. Ómur: Landið og þjóðin í
íslenskri hönnun. Ljósmyndasýningarnar Í
vesturheimi 1955, ljósmyndir Guðna
Þórðarsonar, og Íslendingar í Riccione, ljós-
myndir úr fórum Manfroni-bræðra. Opið kl.
11–17.
Fréttir
Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Opið
þrið. og fim. kl. 13–16. Al-Anon er fé-
lagsskapur karla, kvenna og unglinga sem
hafa orðið fyrir áhrifum af drykkju ættingja
eða vinar. Alateen er félagsskapur unglinga
sem hafa orðið fyrir áhrifum vegna drykkju
annarra.
Tungumálamiðstöð HÍ | Háskóli Íslands
heldur alþjóðleg próf í spænsku 13. maí nk.
Prófin eru haldin á vegum Menningar-
málastofnunar Spánar (Instituto Cerv-
antes). Innritun fer fram í Tungumála-
miðstöð HÍ: 525 4593, sabine@hi.is.
Frestur til innritunar rennur út 8. apríl.
Fundir
Grand Hótel Reykjavík | Hópvinnukerfi ehf.
standa fyrir morgunverðarfundi á Grand
Hóteli Reykjavík 1. apríl kl. 8.30. Þar verða
mikilvæg atriði við innleiðingu kerfa rædd af
stjórnendum nokkurra fyrirtækja sem hafa
gengið í gegnum stór verkefni af þeim toga.
GSA á Íslandi | GSA-fundir eru haldnir öll
fimmtudagskvöld kl. 20.30 í Tjarnargötu
20. GSA-samtökin eru hópur fólks sem hef-
ur leyst vandamál sín tengd mat. Nánari
upplýsingar á www.gsa.is.
Hellisheimilið | Aðalfundur Hellis er í dag
kl. 20, í Hellisheimilinu, Álfabakka 14a. Sjá
nánar á www.hellir.com.
Kristniboðsfélag kvenna | Fundur á Háa-
leitisbraut 58–60 kl. 17. Fundurinn er í
umsjá Valgerðar Gísladóttur. Allar konur
velkomnar.
Rauði krossinn | Aðalfundur Alnæmis-
barna verður haldinn í dag kl. 17.15–19 í
fundarsal Rauða kross Íslands, Efstaleiti 9.
Alnæmisbörn voru stofnuð í mars 2004 en
tilgangur félagsins er að stuðla að bættum
hag barna sem á einn eða annan hátt eiga
undir högg að sækja vegna alnæmis.
www.hiv–born.is.
Mennt – samstarfsvettvangur atvinnulífs
og skóla | Félagsfundur í dag kl. 13–16 á
Hallveigarstíg 1. Fulltrúar atvinnulífs og
skóla ræða breytta námsskipan og áhrif
hennar á starfsmenntun á Íslandi. Frum-
mælendur: Sigurjón Mýrdal deildarstjóri í
menntamálaráðuneytinu, Ingi Bogi Boga-
son menntafulltrúi Samtaka iðnaðarins og
Halldór Grönvold aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands.
Lauf | Landssamtök áhugafólks um floga-
veiki halda fræðslufund um konur, með-
göngu og flogaveiki í dag kl. 20 í kaffistofu á
jarðhæð í Hátúni 10b. Fyrirlesarar verða:
Elías Ólafsson sérfræðingur í heila- og
taugasjúkdómum og Arnar Hauksson sér-
fræðingur í kvensjúkdómum og fæðing-
arhjálp. Kaffi og meðlæti er selt til styrktar
fjölskylduferð samtakanna í sumar. Allir vel-
komnir.
Fyrirlestrar
ADHD-samtökin | Fyrirlestur um sjálfs-
hjálparleiðir fullorðinna með ADHD (Athygl-
isbrest með/án ofvirkni) verður haldinn kl.
20–22 í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Fyr-
irlesari er Stefán Jóhannsson fjöl-
skylduráðgjafi. Allir velkomnir.
Háskólinn á Akureyri | Borgaspjall Auð-
lindadeildar Háskólans á Akureyri verður 1.
apríl kl. 12 á 2. hæð (við kaffiteríu) í rann-
sóknarhúsinu Borgum. Rögnvaldur Hann-
esson flytur erindið Loftslagsbreytingar og
áhrif þeirra á fiskistofna í NA-Atlantshafi.
Allir velkomnir.
Námskeið
Gigtarfélag Íslands | Vornámskeið hóp-
þjálfunar GÍ hefst í dag. Byrjendanámskeið
fyrir einstaklinga með vefjagigt og jóga fyr-
ir betra bak. Vatnsþjálfun, bakleikfimi karla
og leikfimihópar. Skráning á skrifstofu GÍ,
Ármúla 5, sími 530 3600. Opið öllum.
Krabbameinsfélagið | Reykbindindis-
námskeið Krabbameinsfélags Reykjavíkur
hefst miðvikudaginn 6. apríl. Fjallað verður
m.a. um fíkn, nikótínlyf, langvarandi afleið-
ingar tóbaksneyslu, og mataræði. Þátttak-
endur hittast sex sinnum á fimm vikna
tímabili, að námskeiði loknu er þátttak-
endum fylgt eftir í eitt ár. Leiðbeinandi er
Halla Grétarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og
fræðslufulltrúi hjá Krabbameinsfélagi
Reykjavíkur. Skráning á hallag@krabb.is
eða í síma 540 1900.
www.ljosmyndari.is | Námskeið í stillingu
myndavélarinnar verður dagana 4.–5. og
6.–7 apríl kl. 13–17 eða kl. 18–22. 3ja daga
námskeið (12 klst.) fyrir stafrænar mynda-
vélar verður 4., 6. og 7. apríl kl. 18–22 og 11.,
13. og 14. apríl kl. 18–22. Einnig eru nám-
skeið í fjarnámi. Nánari upplýsingar og
skráning á www.ljosmyndari.is.
Ráðstefnur
Norræna húsið | Kynntar 10 rannsóknir á
málefnum innflytjenda á Íslandi. Sjá www.a-
hus.is. Aðstandendur: Alþjóðahúsið, Rauði
kross Íslands, Háskóli Íslands og Kenn-
araháskóli Íslands. Skráning hjá Rauða
krossi Íslands, s. 570 4000, central@redc-
ross.is.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Farið kl. 18 frá bíla-
stæði við austurenda göngubrúarinnar yfir
Kringlumýrarbraut í Fossvogi og gengið
vestur með Öskjuhlíð, um Nauthólsvík og út
í Skerjafjörð. Allir velkomnir, ekkert þátt-
tökugjald.
Laugardalurinn | Stafgöngunámskeið í
Laugardal kl. 17.30. Skráning og nánari upp-
lýsingar á www.stafganga.is og gsm:
616 8595 og 694 3471.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
MAIJA Kovalevska sópransöng-
kona og Dzintra Erliha píanóleik-
ari eru margverðlaunaðar ungar
og upprennandi stjörnur frá Lett-
landi. Þær halda sína fyrstu tón-
leika hér á landi í Salnum í Kópa-
vogi í kvöld kl. 20.
Á fyrri hluta tónleikanna flytja
þær tónlist eftir fjögur þekkt lettn-
esk tónskáld. Meðal annars mun
Erliha leika tvo þætti úr glænýju
píanóverki eftir hinn virta org-
anista og tónskáld, Aivars Kalejs,
en verkið frumflutti hún fyrir að-
eins örfáum dögum í Lettlandi að
beiðni tónskáldsins.
Eftir hlé má heyra öllu þekktari
tónlist svo sem aríur eftir Puccini
og Bellini, auk verka eftir Chopin.
Sópransöngkonan Maija Koval-
evska hefur þegar vakið mikla at-
hygli í Lettlandi og víðar, og unnið
til margvíslegra verðlauna fyrir
list sína. Þrátt fyrir ungan aldur
hefur hún sungið stór hlutverk við
Þjóðaróperuna í Lettlandi, og fyrir
skömmu hlaut hún lettnesku
þjóðarverðlaunin í tónlist.
Kovalevska og Erliha halda einn-
ig tónleika á Ísafirði laugardaginn
2. apríl kl. 17 og á Flúðum föstudag-
inn 8. apríl. Þá kemur til álita að
bæta einum tónleikum við að auki
en þeir verða kynntir síðar.
Lettneskir söngtónleikar í Salnum
www.salurinn.is
1. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6
5. d4 0-0 6. Be2 e5 7. 0-0 Rc6 8. d5 Re7
9. Re1 Re8 10. f3 f5 11. g4 c6 12. Rd3
Db6+ 13. Kg2 Rf6 14. Rf2 cxd5 15.
cxd5 Bd7 16. Hb1 Hf7 17. Dd3 Haf8 18.
Be3 Dd8 19. Hbc1 a6 20. b4 h6 21. b5 a5
22. Ra4 fxg4 23. fxg4 g5 24. Dc4 Rg6
25. Dc7 De8 26. Dxd6 Bxb5 27. Bxb5
Dxb5 28. Rc3 Db2 29. Db6 Rf4+ 30.
Kg1 Re2+ 31. Rxe2 Dxe2 32. h3 Rd7
33. Db3 a4 34. Da3 Hf3 35. Hce1 Da6
36. Kg2 h5 37. Dd3
Staðan kom upp í Stigamóti Tafl-
félagsins Hellis sem lauk fyrir
skömmu. Davíð Kjartansson (2.290)
hafði svart gegn Atla Frey Kristjáns-
syni (1.910). 37. – Hxf2+! og hvítur
gafst upp enda drottning hans að falla í
valinn.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.